Alþýðublaðið - 04.12.1959, Side 1
nmEm
40. árg. — Föstuda-gur 4. des. 1959 — 260. tbl.
Tveir menn slasast í
UMFERÐASLYS varð á Kefla
vkurveginum, skammt frá Hafn
arfirði, um kl. 11 í gærmorgun.
Opelbifreiðin G-1826 rakst á
vci.'ubifreiðina G-1424 með
J>eim afleiðingum að farþegi í
G-1826 stórslasaðist. Ökumað-
Blaðið hefur hlerað
Að Jón Múli Árnason,
höfundur laganna í
„Rjúkandi ráð“, hafi
upp úr því 1900 krón-
ur á sýningarkvöldi.
Revýan hefur nú ver-
ið sýnd 32 sinnum.
ur hennar slasaðist einnig. Opel
bifreiðin skemmdist svo mikið,
að hún mun vera ónýt.
Opelbifreiðin var að koma úr
Grindavík. Á beygju rétt norð
an við Kapelluhraun missti öku
maður hana í sand á vegarbrún-
inni, en gat svipt henni upp á
veginn aftur. Þá fór bifreiðin
það langt út á hægri kant, að
ökumaður bjóst við að missa
hana út af þeim megin. Sveigði
hann þá til vinstri en missti við
það bifreiðina aftur í sandinn
á vegarbrúninni.
Þá kom þarna að vörubif-
Framhald á 5. síðu.
Spilandi
sjálfsalar
ÞAÐ hlaut að koma að
því að „jukeboxin“ kæmu
til landsins, en því nafni
eða því sem næst — heit-
ir gripurinn á amerí-
könsku. Þetta eru
grannnófónar naeð sjálf-
salasniði. Það kostar tvær
krónur að spila hverja
hljómplötu, og viðskipta-
vinurinn velur hana með
því að þrýsta á hnapp. Nú
eru spilakassarnir komnir
í nokkrar veitingastofur í
bænum. Þessi Alþýðu-
blaðsmynd af þeim nýj-
asta var tekin í Matstofu
Austurbæjar í gær. Þar
fór spilakassi í gang í vik-
unni.
Páll Krisfjánsson
fekur sæfi á þingi
PÁLL KRISTJÁNSSON skrif-
stofumaður á Húsavík tók sæti
á alþingi í gær í stað Hanni-
bals Valdimarssonar, sem er>
farinn til útlanda. Var kjörbréf
Páls samþykkt samhljóða í sam
einuðu þingi að lokinni rann-
sókn kjörbréfanefndar.
YFIRLYSING LAND-
BÚNAÐARRÁÐHERRA
ANDREW Gilchrist, ambassa
dor Breta á Islandi, fcr héðan
alfarinn einhvern næstu daga.
Hann heldur fyrst til Bretlands
— en þaðan til Chicago þar
sem hann verður að'alræðismað-
ur.
Á miðvikudagskvöld var hon
um haldið kveðjuhóf í ráðherra
bústaðnum við Tjarnargötu. —
Þetta var samkvæmt fastri
diplomatískri venju og er per-
sónuleg kveðja til sendiherra,
sem er að fara frá landinu, en
óviðkomandi samskiptum þjóð-
anna.
Hver sem hlutur þessa brezka I
embættismanns í iandhelgis-
deilunni hefur verið, — hefur
hann persónulega og hans fjöl-
skylda ekki átt siö dagana sæia
síðan deilan hófst. Menn muna
grjótkastið á sendiráðið í byrj-
un. Síðan hefur allur þom ís-
lenzkra embættismanna og
fleiri íslendingar afþakkað öll
boð brezka sendiráðsins og neit
að að stíga inn í Það fæti, og
bað varð fátítt að brezka sendi
herranum væri boðið til eins
eða neins af opinberum aðiium
hér.
Þessa einangrun og alian
þann kulda, sem fylgt hefur
landhelgismálinu hefur Gil-
Framhald á 5. síðu.
m m
Eysíeinn býsí við
nýjum bráðabirgða-
lögum effir nýár
INGÓLFUR JÓNSSON
landbúnaðarráðherra
skýrði frá því í umræðum
á alþingi í gær, að sam-
komulagsumleitanir um
landbúnaðarverðið væru
byrjaðar. Taldi hann far-
sælast, að samningar tækj
ust með deiluaðilum um
lausn málsins og virtist
vongóður um þann árang-
ur af samkomulagsum,-
leitununum. Ennfremur
endurtók hann að gefnu til
efni þá yfirlýsingu, að
bráðabirgðalögin um land
búnaðarverðið verði lögð
fyrir alþingi fyrir þing-
frestun.
Tilefni þessara upplýsinga
var það, að að Eysteinn Jónsson
hélt áfram málþófinu utan dag
skrár í sameinuðu þingi með
því að spyrja enn einu sinni,
hvort bráðabirgðalögin verði
lögð fyrir þingið. Kom til nokk-
urra orðaskipta milli hans og
landbúnaðarráðherra. Vildi Ey-
steinn ekki láta sér nægja þá
yfirlýsingu, að bráðabirgðalög-
in verði lögð fram fynr þing-
frestun. Krafðist hann þess, að
þau verði rædd og afgreidd nú
þegar. i
Eysteinn komst svo aS orði í
Framhald á 5. síðu.
HÚSMÆÐUR hafa fund
ið pappaumbúðum Mjólk-
uirsamsölunnar það helst
til foráttu, að óþægilegt sé
að handleika þær; það er
eins og ekki sé almenni-
lega hægt að ná' á þeim
taki. Nú er málið leyst. —
Tveir ungir menn hafa
smíðað fallega og einfalda
„mjólkurgrind“, — sem
mjólkurhyrnan fellur ná-
kvæmlega í. Hún er þá á
augaliragði orðin að snotr-
ustu könnu, sem sómir sér
ágætlega á matarborðinu.
Grindin hefur auk þess
þann kost, að þegar askjan
er komin í hana, helst
„stútur“ hennar vel op-
inn. — „Mjólkurgrindin“
vcirður seld í mjólkurbúð-
um og mun væntanleg á
margaðinn í dag.
U 3
Róm, (NTB-Reuter).
EISENHOWER, Bandaríkja-
forseti, kemur á morgun til
Rómar í fyrstu opinbera heim-
Eisenhower
sókn nokkuirs Bandaríkjafor-
seta síðan Woodrow Wilson kom
hingað árið 1919, og er Það
fyrsta viðkoma hans á „good-
will“ för hans til 11 ríkja í Evr-
ópu, Asíu og Afríku. Hefur for-
setinn beðið þess, að heimsókn-
in yrði óformleg, svo að hann
fái sem mestan tíma til við<
uæðna við ítalska leiðtoga.
Komu Eisenhowers til Ciamp
ino flugvallar fyrir utan Róra
verður sjónvarpað um alla Evr-
ópu um hið svokallaða Eurovisi
on-s j ón varpsnet. —• Gronchi.
forseti, og ráðherrar munu taka
á móti Eisenhower á flugvell
inum. Búizt er við, að þúsundii
manna muni taka sér stöðu mef
fram leiðinni, sem ekið verðui
til Quirinal-hallar, aðsetursstaS
ar Gronchi, forseta.
Viðræðurnar hefjast síðdeg-
is á föstudag, og verður Pella
utanríkisráðherra, viðtsaddui
þær. Þá munu for’setarnir ræf
ast við að nýju á laugardag. Á
Framhald á 5. síðu.