Alþýðublaðið - 04.12.1959, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 04.12.1959, Blaðsíða 5
KÆLING mjólkur á fram- leiðslustað er víða mjög ófull nægjandi, mjólk er ekki nægi lega varin fyrir sólskini með- an á flutningi stendur og 2. flokks mjólk er ekki verð- felld. Þetta kemur fram í skýi'slu af fundi HeilbrigSisnefndar Reykjavíkur 24. nóvember s. 1., þar sem tekið var fyrir bréf frá Mjólkursamsölunni í Reykjavík ■— er var svar við fyrirspurnum nefndarinnar um flokkun óger- álsneiddrar mjólkur í Mjólkur- samlagi Borgfirðinga, um að- stæður framleiðenda til kæl- ingar mjólkur, um flutning mjólkur frá fi'amleiðanda til mjólkurbús og loks verðfell- ingu og endursendingu mjólkur frá mjólkurbúum. Um þetta mál segir svo í til- kynningu frá nefndinni: Að fengnum þeim upplýsing- um, sem fyrir liggja í málinu, er ljóst: Að. kæling mjólkur á fram- leiðslustað er víða mjög ófull- nægjandi. Að miólkin er ekki nægilega varin sólskini meðan á flutn- ingi stendur. Að 2. flokks mjólk er ekki verðfelld. Hér er því eigi fullnægt á- kvæðum reglugerðar um mjólk og mjólkurvörur varðandi veiga mikil atriði í mjólkurmeðferð. Með hliðsjón af framan- greindu og með sérstöku tilliti til þess, að neyzlumjólk bæjar- búa hefur s. 1. tvö sumur reynzt verri en áður, beinir heilbrigðis nefnd því tilMjólkursamsöiunn ar í Reykiavík, að hún hlutist til um, að bætt verði úr nefnd- um ágöllum hið allra fyrsta. Enn fremur geri hún aðrar þær láðstafanir, sem nauðsynlegar eru til að tryggja bæjarbúum jafnan góða neyzlumjólk. F.í. veiíir námsmönnum FLUGFELAG ISLANDS hef- ar ákveðið að veita skólafólki, sem ætlar að ferðast í jólafrí- inu með flugvélum félagsins, afslátt á fargjöldum. Slíkir afslættir hafa verið veittir fyrir nokkru undanfar- án jól og hafa námsmenn not- HnWHMIMMMWMHWMWVI' vesfnr HER er gullfalleg mynd að okkar dómi. Hún var tekin í Tokyo fyrir skemmstu á hinum árlega barnadegi borgarinnar. Þarna mætast austrið og vestrið. Pilturinn er jap- anskur, en telpan litla þýzk. fært sér þau hlunnindi í æ rík- : ara mæli til þess að dveljast með skyldmennum sínum um | hátíðarnar. Námsafsláttur þessi er 25% frá núverandi tvímiðagjaldi og gildir á öllum flugferðum Flug- félags íslands innanlands. Afslátturinn er háður eftir- farandi skilyrðum: 1. Að keyptir sé tvímiði og hann notaður báðar leiðir. 2. Vottorð frá skólastjóra, er staðfesti að viðkomandi stundi nám við skólann. 3. Að farseðillinn sé notaður á tímabilinu frá 15. des 1959 til 15. jan. 1960. Það skólafólk, sem hugsar :sér að notfæra sér þessi hlunn- indi ,-ætti að panta sér far með góðum fyrirvara, því að búast má við því að síðustu ferðir fyr- 1t jól verði fljótr fullskipa'öar. Hvað er að gerast 3. desember Mótmæli HÖFÐABORG, (Reuter). — Stúdentaráð háskólans í Höfðaborg hefur aflýst dans leik, er haldinn skyldi n. k. miðvikudag í tilefni af því, að menn eru að útskrifast. Ástæðan er sú, að rektor háskólans hafði bannað, að nokkrum þeldökkum væri boðið til dansleiksins. Viija ekki kosningar BRUSSEL, (NTB-Reuter). - Leiðtogar þriggja helztu stjórnmálasamtaka í Bel- gísku Kongó báðu í dag yf- irvöldin í Belgrá um að fresta fyrirhuguðum kosn- ingum í nýlendunni. Komu leiðtogar þessir til Birússel í dag til viðræðna viö belgísku stjórnina um fram- tíð Kongó. í sameiginlegri yfirlýsingu lýsa þeir sig and víga þeirri fyrirætlun belgísku stjórnarinnar að halda kosningar í Kongó á föstudag. Kassem laus BAGDAD, (NTB-Reuter). — Það var þjóðhátíð um allt frak í dag í tilefni af því, að Karim Kassem, forsætisráð- herra, var um hádegisbilið útskrifaður af sjúkrahúsinu í Bagdad, þar sem hann hef- ur legið vegna skotsára, er hann hlaut við morðtilraun- ina í byrjun október. Hátíða höldunum verður haldið á- fram á morgun með fjölda- göngum í stærri bæjum. Kassem var umkrlngdur sterkum herveirði, er hann fór af sjúkrahúsinu. Hann fór beint til landvarnaráðu- neytisins í Bagdad, þar sem hann hefur skrifstofu, og voru þúsundir viðstaddar til að hylla hann. S.töku veitingahús héldu upp á atburðinn með því að gefa mat, strætisvagnamið- aP voru lækkaðir um helm- ing, lyfsalar seldu lyf við innkaupsveirði og læknar stunduðu sjúklinga ókeypis. Flestir fangelsisdómar voru lækkaðir um 10%, frelsi Nehru NÝJU DELHI, (Reuter). — Nehru, forsætisráðherra, sagði á hlaðamannafundi í dag, að allir töluðu um sam- einingu Þýzkalands, en eng- inn vildi hana í raun og veru. Þá kvað hann liggja í augum uppi, að afvopnunar- málin væru mikilvægust og ætti því að hafa forgangs- rétt á fundi æðstu manna. Nehru kvaðst enn ekkeirt svar hafa fengið við bréfi sínu til Chou En-Lai, þar sem hann stakk upp á bráða- birgðalausn á landamæra- deilunni. Hann kvaðst ekki hafa í hyggju að banna ind- verska kommúnistaflokkinn. Frá Grikklandi AÞENU, (Reuter). -—- Páll konungur lagði í dag bless- un sína á fyrirkomulagi við komu Eisenhowers Banda- ríkjaforseta hingað 14. des. Hefur m. a. verið lýst yfir fríi handa öllum, til þess að þeir geti tekið á móti for- setanum. Formaður WASHINGTON, (NTB- AFP). —• Eisenhower forseti hefu|n útnefnt Frederick M. Eaton sem formann banda- í’ísku nefndarinnar á tíu- veldanefndarinnar um af- vopnunarmál, er hefja á störf í Genf í byrjun janúar. 1 nefndinni verða jafnmarg- ir fulltrúar frá austri og vestri. För frestað GAUTABORG, (Reuter). — Sýningarferð Ingemar Jo- hansson, heimsmeistara í hnefaleik, um Suður-Ame- ríku, sem hefjast átti í þess- um mánuði, hefur verið af- lýst — a. m. k. fyrst um sinn. Stafar þetta af því, að ýmsar borgir, þar sem meist arinn átti að koma fram, skái.ust úr leik á síðustu stundu. NEW YORK, (NTB-AFP). - „Sovétríkin hafa staðið með ,. þeim, sem berjast fytrir þjóð- i > legu sjálfstæði og frelsi“ sagði Sobolev, fulltrúi Rússa ^ hjá SÞ í dag, er pólitíska nefndin hélt áfram umræð- um sínum um Algiermálið. „Þess .vegna óska Sovétríkin eftir því að stríðið í Algier fái friðsamleg og réttlát endalok, því að á meðan þáð stendur veldur það áhyggj- l; um í friðelskandi löndum“. Hann kvað einu . lausnina vera, að Algierþúar fái sjálf- iiy að ákveða framtíð sína. Hann kvað Sovétstjórnina vera þeirrar skoðunar, að tillaga de Gaulles mundi gegna miklu hlutverki í lausn vandamálsins, ef hún væri studd raunhæfum að- gerðum, er tækju tillit til óska Algierbúa. KAUPMANNAHÖFN (Reu- ter). — 29 ára gamall bif- reiðasali, sem ákærður er um njósnir, skýrði frá því fyrir rétíi hér í day, að hann hefði fallizt á að afla hern- aðarlegra upplýsinga um NATO fyrir Rússa „vegna æviníýralöngunar“ og til aS afla sér fjár. Bemmy Svendsen kvaðst fyrst hafa flækzt í njósnir, er hann fór til Stralsund í Austur-Þýzkalandi í apríl 1958. Var hann þá á bátn- um Runa, en skipstjóri hans, ]; Carl Petersen, er einnig sak j; Uður um njósnir ásamt 5 öðrum Dönum. Eru þessir sjö menn sakaðir um að hafa ljósmyndað hernaðar- mannvirki og aflað skjala, teikninga og annars viðvíkj- andi þeim handa erlendu stórveldi. LAUSANNE, (Reuter). — Oona Chaplin, hin 35 ára gamla eiginkona Charíie Chaplin, eignaðist í dag átta - punda dóttur, sjöunda bam þeirra hjóna. tWW/WMWtMMMMMWMMWWWMWMMHM Tvelr ntenn slasasf Framhald af 1. síðu. reiðin G-1424 og var á suður- leið. Ökumaður hennar sá hvað verða vildi og stöðvaði bifreið- ina. I sömu mund náði ökumað ur Opelbifreiðarinnar pð yíkja henni aftur in ná veginn, en hún var kominn það nálægt hinni, að hún rakst á hægra frambrettið og fór síðan aftur með henni. Ökumaður Opelbif- reiðarinnar fékk mikið högg á höfuðið og missti meðvitund um stund. Farþegi í Opelbifreiðinni — klemmdist á milli stafs og hurð ar, en höfuð og herðar hans voru út úr bifreiðinni. Hlaut hann mikil meiðsli á höfði og handleggsbrotnaði. Hann heiti-r Magnús Magnússon, frá Nesi í Grindavík. Hann liggur á Landakotsspítalanum, Ökumað urinn meiddist á höfði og öxí. Sem fyrr segir, er Opelbifreið in talin ónýt, eftir árekstui'inn. Gilehris! Framhald af 1. síðu. christ vafalaust bætt sér örlííið upp með veiðifei'ðum sínum. — Hann er sportmaður í húð og hár, og stundar bæði fisk í áiii og vötnum og fuglaveiðar af miklum dugnaðj og áhuga. Til þeirra hluta eru fá lönd betri en ísland. 11 landa för Fram'hald af 1. síðu. föstudagskvöld heldur Gronchi Eisenhower veizlu. Á laugardag borðar Eisenhower hádegisverð með Segni, forsætisráðheira, og Pella, áður en þeir hefja við- ræður. Um kvöldið heldur Eis- enhower veizlu í bandaríska sendiráðinu, og áður en hann fer til Ankaia á sunnudag fær hann áheyrn hjá Jóhannesi páfa. í GÆR var efiregið í 8. flokki Happdrættis DAS um 20 vism- inga, eins og að veniu: Einstaklingsíhú® að Hátúni 4, 5. hæð kom á nr. 59899. Selt í umhoðinu Keflavíkurflugvelli. Eigandi er Ólafur Ormsson vkm OPEL Rekord fólkshifreiff meff útvarpi og miðstöð kom á. nr. 32594. Umboff Keflavík. — Kom á óendeirnýjaðan miffa. — FIAT 600 Multipla fólkshif- reið meff miffstöð. Selt í Aðal-_ umboffinu Vesturveri. Eigandi er Þórður Guðmundsson, Hofs- vallagötu 15. Húsbúnaff eftir eigin vali hlutu: fyrir kr. 20.000.00 nr. 56928. fxirir 15.000.00 nr. 12473, 18820. Fyrir kr. 12.000.00 nr. 3800, 4833, 46716, 60895, 60979. Fyrir kr. 10.000.00 nr. 4372, 13298, 22661, 24504, 25248, 43475, 43765, 57103, 62561. Alþýðublaffið — 4. des. 1959 5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.