Alþýðublaðið - 08.12.1959, Qupperneq 3
Framhald af 1. síðu.
kaupgjaldi stööugu allan þann
tíma er hún sat. En með þess-
um ráðstöfunum var aðeins
einn þáttur efnahagsmáianna
leystur sagði Emil Jónsson. Rík
isstjórn Alþýðuflokksins hafði
ekk' þingstyrk til þess að leysa
efnahagsmálin til frambúðar og
því var eðlilegt að það verk-
efni biði meirihlutastjórnar. —
Hins vegar reyndi ríkisstjórn
Alþýðuflokksins að undirbúa
störf meirihlutastjórnarinnar
með því að fela efnahagsráðu-
naut sínum að taka saman
skýrslur um efnahagsástandið
og var það gert. Lágu skýrslur
hans fyrir í síðasta mánuði en
þá var eftir að ákveða hvaða
leiðir skyldu farnar til lausnar
vandanum og fullkomlega væri
það eðlilegt að ríkisstjórnin
þyrfti nokkurt tóm til þess að
ákveða það. Væii það raunar
engin nýjung í sögu Alþingis,
að fresta þyrfti störfum þings-
ins um skeið.
Viðbrögð stjórnarandstöðunn
ar væru því hin undarlegustu
og með endemum. Stjórnarand-
staðan legðist ekki aðeins gegn
frestun þingsins, heldur reyndi
hún að hindra framgang sjálf-
sagðra mála og þyrfti að fara
marga áratugi aftur í tímann
til þess. að finna hliðstæðu við
slík vinnubrögð.
HVER ER VANDINN?
Emil Jónsson vék því næst að
vandanum í efnahagsmálunum.
Hann sagði að dr.aga mætti or-
sök vandamálanna er nú væri
við að glíma í efnahagsmálum
þjóðarinnar saman í eft'.rfar-
andi atriðum:
1) Lántökur erlendis til stutts
tíma er s. 1. 5 ár hefði numið
yfir 1000 milljonum króna. —
’Sagði ráðherrann, að þessi lán
hefðu verið notuð til þess að
jafna hallann við útlönd og
skapa Útflutningssjóði tekjur
með innflutningi hátollavara.
Kvað Emil greiðslubyrðar
vegna þessara lána nú orðnar
meiri en flestra annarrg b.jóða.
2) Innflutningur hátollavara
væri annar hornsteinn Útflutn-
ingssjóðs. Það býddi, að ef dreg
ið væri úr innflutningi hátolla-
vara bilaði þessi hornsteinn og
útkoman yrði halli á Útflutn-
ingssjóðh
3) Grundvöllur verðbólgu-
skrúfu kaupgjalds og verðlags
væri enn fyrir hendi.
4) Enginn gjaldeyrisvarasjóð
ur væri til, heldur þvert á móti
safnað lausaskuldum erlendis.
Ástandið nú er einmitt tákn-
rænt fyrir það hve illa við
stöndum, sagði Emil. Undanfar
ið hefð. tvennt gerzt er komið
hefði illa niður á okkur: — 1)
Gjaldeyrislán, er við áttum von
á, hefði ekki komið að fullu á
áætluðum tíma. 2) Sal.a útflutn
ingsafurða hefði dregizt nokk-
uð.
Afleiðingin hefði orðið sú,
sagð'i ráðherrann, að bankarn-
ir hefðu lent í m'.klum erfið-
leikum með yfirfærslur. Þó
væru þessir erfiðleikar okkar
varðandi gialdeyrislánið og
sölu útflutningsafurðanna í
fvllsta máta eðlilegir en aðrar
þjóðir gætu, er svo bæri við
gripið til gjaldeyrisvarasjóða"
en þá ættum v-ð enga.
ÁRÓÐUR FRAMSÓKNAR.
Næst vék Emil Jónsson, að
hinum skefjalausa áróðri Fram
sóknarmanna og blekkingum
þeirra gegn Alþýðuflokksstjórn
inni. Hélzt væri það, að skilja
á þeim Framsóknarmönnum,
að allur vandi okkar í efnahags
málunum væri Alþýðuflokks-
stjórninni að kenna, þar eð sú
stjórn hefði aukið gífurlega nið
urgreiðslur og skil ð eftir sig
ó”eiðuvíxla á framtíðina. Væri
staðreyndum hér alveg snúið
við. Sannleikurinn væri sá, —
sagði Em 1 Jónsson. að vandinn
í efnahagsmálunum væri ein-
niitt auðleystari nú en elia
befði orðið vegna aðgerða Al-
þýðuflokksstjórnarinnar. Ef
verðbólguþróun vinstri stjórn-
arinnar hefði fengið að halda
áfram óhindrað hefði mvndazt
hreint vandræðaástand. í nóv.
1958 hefði vísitalan hækkað
um 17 stig á e'num mánuði og
samkvæmt áætlunum sérfræð-
inga hefði vísitalan verið kom-
in upp í 270 stig haustið 1959
ef akkert hefði verið aðgert. En
það var þetta er Alþýðuflokks-
••••••*JIíIII
í- -
ll
að vaxandi framleiðslu og
bættum lífskjörum liggur
í orkulindum þjóðarinnar,
Styrkið rafvæSingima
og sjálfa yður um leið
með því að kaupa nýju
verðbréfin. Þau fást um
allt land í bönkum og
sparisjóðum,
SEÐLABANKINN
Emil Jónsson.
stjórnin kom í veg fyrir, með
niðurgreiðslum og niðurfærslu
verðlags og kaupgjalds.
Niðurgreiðslur hefðu ekki
numið 250—300 millj. eins og
Tíminn fullyrti, heldur væri sú
tala ýkt um rúman helming.
Ríkisstjórn Alþýðuflokksins
hefði einnig tekizt að ' standa
straum af kostnaði við niðui'-
greiðslurnar án þess að skilja
eftir þeirra vegna nokkra ó-
reiðuvíxla. Hefði það tekizt með
því að færa tekjuáætlun fjár-
lagafrumvarps til rétts vegar,
og með hækkuðu álagi á tóbak,
áfengi og bíla. AllttalFramsókn
armanna um óreiðuvíxla væri
því staðlausir stafir. Þá héldu
Framsóknarmenn því einnig
fram, að innflutningur hátolla-
vara hefði verið hóflaus í
stjórnartíð Alþýðuflokksins. —
Sannleikurinn væri hins, vegar
sá, að hann yrði nokkru minni
en árið 1958. Þrátt fyrir það
yrði hagur útflutningssjóös
betri árið 1959 en mörg undan-
farin ár. Þannig bæri allt að
sama brunni í málflutningi
Framsóknar. En síðasta háim-
strá þeirra Framsóknarmanna
væri að rugla saman árunum
1959 og 1960. Þannig héldu
Framsóknarmenn því nú fram,
að það sem áætlað væri að
mundi vanta í útflutningssjóð
og ríkisjsóð 1960, hefði vahtað
1959. En sannleikurinn væii sá,
að þegar reiknað væri með aukn
um halla útflutningssjóðs 1960
og versnandi hag ríkissjóðs á
því ári, væri það vegna þess, að
reiknað væri með minni hátolla
vöruinnflutningi og minni toll-
tekjum ríkissjóðs af þeim orsök
um. Sú þróup væri óhjákvæmi-
leg, þar eð draga yrði úr lánum.
Emil sagði, að blekkingar
Framsóknar í þessum málum
væru fram settar til bess að
Framhald á 5. síðu.
MIKIL síldveiði var um síð-
ustu helgi og var sunnudagur-
in meíafladagur. Bórust þá
3800 tunnur á land í Keflavík,
3150 á Akranesi, 2800 í Sand-
jerði og 2828 til Grindavíkur.
Akranesi í gær. — Hingað
bárust í gær 3150 tunnur af
síld úr 16 bátum. Hæstur var
Jram með 260 tunnui', þ. e. af
reknetabátum, en hringnótabát
arnir voru með meiri afla, Höfr
ungur með 480 tunnur og Keil-
ir með 553- í dag var afli minni.
Hæstur var Ásbjörn með 180
iunnur.
Keflavík í gær. — Hingað
bárust í gær 3800 tunnur. Var
Jón Finnsson hæstur með 352
'■.unnur, Kópur var með 284
tunnur, en báðir þessir bátar
æru með hringnót, en hæstur
'eknetabáta var Ásgeir með 282
unnur. í dag var afli minni.
ýomu hingað 24 bátar með 1910
ánnur. Hæstui' var Vísir með
167 tunnur, en Helguvík næst-
hæstur með 150 tunnur.
Grindavík í gær.
FYRIRTAKS síldveiði var í
Tær. Hingað komu 19 bátar
neð 3058 tunnur. Hæstur ar
'•eknetabátum var Guðjón Ein-
irsson með 300 tunnur, en Sæ-
’ión var aflabæsti snurpunóta-
báturinn með 384 tunnur.
í dag var aflinn minni, eða
1252 tunnur hjá 17 bátum. —
Aflahæstur reknetabáta var
Guðjón Einarsson með 165 tunn
ur, en Arnfirðingur var hæstur
af snurpunótabátunum með 129
tunnur.
Hér er blíðveður og allir bát-
ar farnir út.
Saudgerði í gær.
ÁGÆTUR afíi var hjá bátun-
um í gær og komu hingað 16
bátar rheð 2800 tunnur í gær.
A£ hringnótabátum var Kaín-
keíl aflahæsíur með 430 tunnur
— en Muninn II. var hæsíur f
reknetabátunum með 337 twsm
ur. i
í dag komu hingað' 16 bátar
með 1322 tunnur. Hr.ngnótá-
bátarnir áttu örðugt með að at-
hafna sig vegna stormbrælu.
Fengu þeir engan afla, nerna
'Víðir II. fékk 402 túnnur.
Síldin er yfirleitt góð og cíl
söltuð og fryst. Sæmilega lítur
út í kvöld fyrir reknetabátana,
en vafasamt fyrir hringnéta-
báta vegna veðurs. — Ó.V.
SEINT á laugardag var aug-
lýst eftir vélbátnum Páli Þor-
Ieifssyní frá Vestmannaeyjum.
Ilafði hann farið frá Reykjavsk
kl. 4 á fösíudag og var því faril>
að óttast um hann. Dauf merki
heyrðust frá bátnum kl. 11,30 á
laugarclag.
Eftir þriggjá klukkustunda
leit fannst báturinn' á réki með
bilaða vél út af Selvogi. Var
hann dregm til Eyja. — Var
talið, að sveifarás hefði bilað
eða .skrúfan á einhvern hátt far
ið úr sambandi. — Páll Þcr-
leifsson er 50 tonn, nýlega
keyptur til Eyja frá Stykkis-
hólmi. Voru fjórir menn á báfn
um; formaður Þorleifur Guð-
jónsson. . .—------------‘
FURÐULEGT æði virðist
hafa gripið einhverja náunga
hér í Reykjavík um helgina.
Beindist æðið að bílrúðum,
einkum hogal’úðum bíla, sem
eru rándýraí og illfáanlegar.
Konunnar leitað
Á FIMMTUDAG sl. hvarf að
heiman frá sér Þórey GuÖ-
mundsdóttir, til heimilis að
Starhaga 10. Hún fluttist ný-
iega til Reykjavíkur ásamt
tveim ungum dæírum sínuni.
Kápa hennar fannst á föstu-
dag á Grandagarði. Froskmaður
var fenginn til þess að leita í
höfninni á laugardag. Á sunnu
dag.var slætt í höfninni og þá
leitað á víðara svæði. Fannst
þá á floti bomsa með sk'ó, sem
talið er að hafi verið eign Þór-
eyjar.
í gær leitaði froskmaður aft-
ur í höfninni, en leitin bar eng-
an árangur, sem fyrr.
Hefur tilfinnanlegt tjón hlotizt
af þessari einkennilegu skemmíl
arfýsn. .
Ráðizt' var að nýlegum bíl,
sem stóð fyrir framan Hring-
braut .121. Allar rúður bílsing,
8 að tölu, 'voru. brotnar. Auk
þess var loftnetsstöngin brotin.
Eigandi bílsins vai'ð fyrir tíí-
finnanlegu tjórii.
Þá var ráðiz.t að tveim bílum,
sem voru á Miðtúni. Voru bcga
rúður þeirra brotnar. Annar
bílhnn var mánaðargamall og
mun ný rúða ekki íást í hanri.
Kl. 18.30 Amiria
segir börnunum
sögu. —• Kl. 18.50
Framburðar-
kennsla í þýzku. Kl.
20.30 Daglegt mál.
Kd. 20.35 Útvarps-
sagan Sólarhringun.
Kl. 21 ísland ögrum
skorið: Eggert Ólafs
son náttúrufræðing
ur og skáld. (VI-
hjálmur Þ. Gíslason
talar um Eggert;
lesið úr verkum hans og sung-
in lög við ljóð eftir hann). Kl.
22.10 Tryggingarmál. Kl. 22.30
Lög unga fólksins. Kl. 23.25
Dagskrárlok.
Alþýðublaðið — 8, des. 1959 ^