Alþýðublaðið - 08.12.1959, Blaðsíða 4
Otgefandi: AlþýBuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingóllur KrlstJánMon.
— Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ástþórsson og Helgi SæmundMOO
(éb.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björg-
Vin Guðmundsson. — Simar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýa-
lngasími 14 906. — Aðsetur: AlþýöuhúsiS. — PrentsmiSja AlþýðublaBrlnfl,
Hverfisgata 8—10.
Mótleíkurinn
STJÓRNARANDSTAÐAN hefur nú haldið
uppi nálega tveggja vikna þófi á alþingi. Hafa þing.
menn framsóknar og kommúnista flutt langar ræð-
ur og margar, en yfirleitt tuggið upp sama efnið
aftur og aftur með ótrúlega litlum tilbreytingum.
Þeir hefðu efnislega getað sagt það, sem þeim býr
í brjósti um stjórnina, bráðabirgðalögin og þing-
frestun, í umræðum á 2-3 dögum. En tilgangur
þeirra var alls ekki skynsamlegar umræður um
málefni, heldur þóf og aftur þóf, enda þótt vonlaust
væri að halda þófinu áfram í viku enn, eins og
stjórnarandstaðan hefur vafalaust viljað.
Slíkt þóf er með eindæmum á alþingi.
Það er að sjálfsögðu réttur þingmanna að tala
eftir vild. En sá réttur er misnotaður, þegar
þingmenn kom fram eins og framsóknarmenn
og kommúnistar nú hafa gert. Þess vegna hlaut
að koma að því, að langlundargeð annara þing
manna tæki enda, og gripið væri til gagnráð-
stafana, sem dygðu. Þetta gerði deild; er hún
samþykkti tiílögu forseta síns um að takmarka
umiæour, er íhöfðu staðið á áttundu klukku-
stund.
Tímmn heldur fram, að þessi samþykkt
neðri deildar sé byggð á rangtúlkun á þingsköpum.
Blaðið segir, að umræður hafi alls ekki staðið „úr
hófi fram“ eins og nefnt er í upphafi 37. greinar
þingskapanna. Tíminn athugar ekki, að í greininni
eru nánari fyrirmæli, og er þar dregin lína við
þrjár klukkustundir sem lágmark, en málþófsfund-
urinn hafði staðið rúmar sjö, er hann var stöðvað-
ur. Þá er heimild til að takmarka umræðu þegar í
upphafi fundar, eða hvenær sem er á fundinum við
. ákveðið tímamark, þó ekki innan þriggja
klukkustunda. Tíminn veður því reyk í þessum
efnum. Forseti neðri deildar túlkaði þingsköp ó-
tvírætt rétt.
Reykjavíkurflugvöllur
ÞAÐ var fróðlegt að heyra umræður um fram
tíð flugvallarmála Reykjavíkur i útvarpsþætti Sig-
urðar Magnússonar á sunnudagskvöld. Þær beindu
athygli að mjög veigamiklu málefni, framtíð aðal-
flugvallar íslenzku þjóðarinnar, sem byggir flest-
um þjóðum meira á flugsamgöngum.
Sjálfsagt er að leitast við að gera sér skynsam
lega grein fyrir þessu máli — en þó er rétt að hafa
í huga, að ekki liggja lausar þær 2—400 milljónir,
' sem flugvallargerð á Álftanesi mundu kosta. Auk
þess verður sá staður umkringdur byggð áður en
langt líður. Hvort sem mönnum líkar betur eða
verr, þarf þjóðin að notast við Reykjavíkurflug
völl lengi enn og má vera þakklát fyrir að hafa
hann. Að sjálfsögðu ber að gera á honum allar
breytingar, sem aukið geta öryggi hans.
Hitt er aðkallandi verkefni að skapa rúmlega
100 000 farþegum, sem um völlinn fars^árlega, út-
lendum jafnt sem innlendum, viðunandi aðstöðu.
Þau kofaræksnij sem flugfélögin hafa hróflað upp,
eru alls ónóg. Það varðar sóma þjóðarinnar að þeg-
ar verði reist ein viðunanleg afgreiðslustöð á flug-
vellinupi- Teikningar eru til — það vantar aðeins
viljann og átakið.
Samkvæmi:
Glæsilegt úrval
Samkvæmiskjóll er falleg jólagjöf.
stuttir, síðir — þröngir, víðir,
þykkir, þunnir.
Baby Doll náttföt — Náttkjólar —
Undirkjólar ,>Jólabuxur“ o. m. fl.
Nýjasta Parísar-tízkan.
Hálsklútar
Fallegasta úrvalið í bænum.
Uítí
Nýjar gerðir
Ný sending
Nýjasta tízka.
Margar nýjar gerðir.
Vínglö
margar gerðir.
Ath.: Látið okkur
pakka inn jólagjöfunum.
MARKAÐURINN
Laugavegi 89.
• »■■■■■■■■■■■■ a ■■■■■■■■■■■■■■■■■•<■ wfi
Amerískir-kjólar
stór númer
Nylon-pelsar
% sídd
Vetra-dragtir
Garðastræti 2.
Sími 14758.
INEÖLfS CAFÉ
Opnar daglega
kl. 8,30 árdegis.
ALMENNAR
VEITINGAR
allan daginn.
Ódýr og vistlegur
matsölustaður.
Reynið viðskiptin.
Ingólh-Csfé.
Gólfleppahreinsun
Hreinsum gólfteppi,
dregla og mottur fljótt
og vel. Gerum einnig við.
Sækjum — sendum
Gólfteppagerðin h.f.
Skúlagötu 51
Sími 17360.
Lesið Aiþýðublaðið
. ......
£ 8. des. 1959 — Alþýðublaðið