Þjóðólfur - 30.08.1849, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 30.08.1849, Blaðsíða 1
19 4 0« 1. Ár. 30. Ágúst. 20. þáttur u m alpin gi. (Framhald). 3>ó jeglmfi ekki ásett mjer að skvra í þætti þessum frá málum þeim, er þingiS hefur haft til meSferðar í þetta sinn, eSa siðasta úrsliti þeirra, verft jeg {)ó<að minn- ast á eitt, en jiaft er kosningarlaga-málið til þjóðþingsins, sem vonað er eptir að ári kom- andi. Mál þetta var dregið svo lengi, sem menn þorðu, til að bíða eptir konungsfulltrúa, er menn vissu, að mundi hafa frumvarpið til kosningarlaganna, og loksins seint á degi hinn 27. dag júlím. var það þó tekið til undirbún- ingsumræðu. En í því bili sást til skips, og huggðu menn, að konungsfulltrúi væri á því, mæltist þá stiptamtmaður til, aö hætt væri umræðunni, sem þegar var byrjuð, og Ijetu þingmenn jiað að orðum hans, þó bæði væri liinnlögboðni þingtímiþví nær á enda, og þing- menn orðnir mjög heimfúsir ; en skipiö var allt annað, en menn huggðu. Var þá haldiðþing daginn eptir, og rædd önriur mál til ályktun- ar, og kosningarlaga-málið til undirbúnings, og sleit ekki þinginu fyr, en undir lágnætti; svo varð mönnum þá skrafdrjúgt. Daginn eptir hjelt nefndin í kosningarlaga-málinu fund, til að tala sig saman uin breytingarat- kvæði þau, er upp höfðu verið borin, og bauð síðan hinum öðrum þingmönnum að eiga fund með sér' uppi á þingsal um kvöklið um 7. stundu viðvíkjandi breytingaratkvæðunum í málinu. En þegar menn voru að ganga upp að þingsalnum, lagði konungsfulltrúinn inn á höfnina, en ekki Ijetu |)ingmenn það fresta fyr- irætlun sinni, þó varaforseti spyrði þá, hvort þeir vildu ekki ganga í móti konungsfulltrúa, og var fundurinn haldinn, sem ráð var áður fyrirgjört. Morguninn eptir (30. dag júlím.) gekk varaforseti á fund konungsfulltrúa, og töluðust þeir við. Síðan byrjaði varaforseti þingið í ákveðinn tíma, og kom stiptamtmað- ur að lilýða upplestri þingbókarinnar. (Hjer liættir ,,j>átturinn“, en fjúðólfur setlar að balda áfrain söp;unni, sem byrjað er á í seinni bluta „þáltarins“, þó hann sje ekki eins fróðlega að henni kominn, og sá, seni þáttinn hefur saniið). Meðan þingbókin var lesin upp, kom kon- ungsfulltrúinn á þingið eg gekk til sætis, stóðu þingmenn upp í móti honum og áheyrendurn- ir, er voru allmargir á þinginu þá, sem opt- ar. 3>eSar upplestri þingbókarinnar var lok- ið, lýsti varaforseti því yfir, að forsetinn (Jón Sigurðsson) væri kominn eptir langa útivist (næstum S vikur) og sjóvolk, og hefði beð- ið sig að gegna forsetastörfum, meðan kosn- ingarlaga-málið stæði yfir, sem þá átti að koma fyrir til ályktarumræðu, þar eð hann væri ókunnugur umræðunum, sem um það heniii orðið. Jiessu næst tók stiptamtmaður- inn til orða og kvaðst álíta störfum sínum lokið á þinginu, þar eð konungsfulltrúinn væri kominn. Konungsfulltrúinn tók þá til máls og gat um útivist sína hina löngu og óhappa- sömu, þar eð liann kæmi í þinglok, en hefði þó meðferöar frumvörp og álitsmál frá stjórninni, sem hefðuáttað leggjast fyrir þingið, og kvaðst hann mundi taka það til bragðs að lengja þing- ið um 14 daga, þó að hann hefði ekki vald til þess frá stjórninni, þar eð stjórnin hefði ekki ímyniíað sjer, að á því þyrfti að halda í þetta sinn. Nokkrir þingmenn mæltu kröpt- uglega á móti þessu, og kváðu slíktverða á- byrgðarhluta fyrir sig við þjóðina, ef þingtím- inn væri lengdur, eins mikið og konungsfull- trúinn stakk upp á, í leyfisleysi stjórnarinnar; því að af því yrði að leiða nokkurra þúsund dala aukning við alþirigiskostnaðinn. jiing- menn gátu þess og, að nú hefðu höfuðskepn- urnar opnað munn sinn og sýnt nógsamlega,

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.