Þjóðólfur - 01.07.1850, Síða 4

Þjóðólfur - 01.07.1850, Síða 4
140 afi sjá, sem hann vilji af tvennu illu, aftstjórn landsins megi heldur fara sínu fram á trje- fótunum gömlu, heldur en að lýfinum sje leyfi- legt, að vekja henni huga með nokkru óvana- legu eður ógeðfeldu tiltæki. Hið síðara dæmi póstsins keinur nú ekki okkur við, sem ritum línur þessar; en hvað fyrra dæmið áhrærir, um undanskorun Ölves og Selvogshreppa, að greiða alþingiskostnaðinn, f)á viljum vjer segja söguna, eins og hún gekk til. 5ó að settur sýslumaður í Árnessýslu herra Páll Melsted, þegarhann 16. dagmaím. í vor, eð var, kom að Bakkarholti í Olvesi, til að halda venjulegt manntalsþíng, hefði nokkuð aðra aðferð, en þeir sýslumenn, sem á undan honum höfðu verið, voru vanir að hafa í sömu erindagjörðum, þá hirðum vjer eigi að herma frá því í þetta skipti, heldur komum vjer þegar til efnisins. Herra Mel- sted nefndi alþingistollinn, og fiðraði við það með fáum orðum, að bændur ættu hann að greiða; en þess skal eigi dylja, að oss bænd- um þótti tollurinn heldur ójafnt á lagður og misjafnt niðurskiptur, beiddum þess vegna sýslumahn, án þess að skora oss undan að gjalda tollinn, um frest og ráðrúm, bæði til þess að fræðast betur um sanngjarna heimt- ingu á honum, en þó sjerílagi til að fá pen- inga honum til lúkningar, því að vjer höíðum þá eigi þá þegar fyrir hendi. Og gegndi herra Melsted þessum tilmælum vorum með hógværð. Hann nefndi ekki tollinn, nema að eins við nokkra menn; en honum hefur, ef til vill, þótt hjáhliðrunarorð þessara fáu manna ástæða til þess að fara eigi lengra fram í þetta niál, eins og öllu tollsins mál- efni væri fyrir þetta gjörsamlega spilt. 3?að er því ofhermt og ber ósannindi, sem lteykja- víkurpósturinn segir, bls. 145, að bændur í Ölves og Selvogshreppum hafi skorað sig í einu hljóði undan því, að greiða alþíngis- kostnaðinn; þvert á móti fram buðu hann nokkrir sjálfkrafa, ogguldubann ótilkvaddir, og hinir, sem ekki höfðu áður goldið tollinn, greiddu hann þegar viðstöðulaust við fyrstu bendingu frá yfirvaldinu. Vjer segjum pað því allir í einu hljóði, að Reykjavíkurpóstur- inn hafi ekki goldið sannleikanum skil í þessu efni. En honum mun þykja oss bændum flest fullboðið, og það líka sjálfsagt, að vjer eigi dveljum við, að gegna fyrstu skipun, eða rjettara munnmæli þess yfirvalds, sem skortir reglu, minni og stjórnarlag á opin- berum þingum. En heyrið nú, landar góðir! hvað hlotn- aðist út af þessu. Jrír hreppstjórar voru settir frá hreppstjórn, án þess þeir fengju að- vörun, bendingu eða ráðrum til að koma fyr- ir sig afsökun og tjá sakleysi sitt. Og finnst okkur það kenna nokkurra nýunga og harð- stjórnar þeirra, sem því rjeðu; og væri ósk- andi að það yrði ekki stjórnarregla yfirvalda vorra, að misbjóða þannig saklausum dugn- aðarmönnuin. Vjer höfum skrifað línur þess- ar til að leiðrjetta Reykjavíkurpóstinn, og herma sannleikann frá vorþingi voru alþing- istollinum viðkomandi; líka vildum vjer láta í ljósi það álit vort, að oss sýnist, að hrepps- bændur ættu sjálfir að velja hreppstjóra, en ekki ókunnugur amtmaður eða ungur sýslu- maður, sem skjótast snöggvast inn i einbætt- in, eins og þegar kría- sezt á stein; því að líklega er bændum trúandi fyrir þessu vali ekki siður, en þeim er trúað til þess, að kjósa fulltrúa sinn til alþíngis; að minnsta kosti er þeim ætlandi að velja ekki menn af handahófi, og ef valið mistekst, geta þeir engum kennt um nema sjálfuin sjer. AÍsent. I janúar-mánuði 1849 kom boðsbrjef frá kennurunum við prestaskólann í Reykjavík, og sðgðu þeir í boðsbrjefinu, að þeir hefðu í hyggju, að gefa út árrit, ef áskrifendur yrðu svo margir, að þeir fengju prentunarkostnað- inn borgaðan og sölulaun umboðsmanna. Ef þeir fengju nógu marga áskrifendur, sögðust þeir mundu láta byrja á prentun ritsins, und- ir eins og prenturi alþingistíðindanna væri lokið. Nú er 1. árið af riti þessu nýkomið fyrir almenningssjónir, og er formálinn ritað- ur síðast i maí-mánuði, þ. er: formálinn er rit- aður ári síðar, en menn vonuðust eptir ujip- haflega, þegar boðsbrjefið kom út. Útgef- endunum hefur og sjálfum fundizt ritið síðbúið, ogþess vegna fara þeiraðafsaka sigiformál- anum með þvi, að alþingistíóindin hafi ekki verið búin, fyr en á útmánuðum í vetur. Jeg rengi engan veginn þessa afsekun þeirra,

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.