Þjóðólfur - 12.09.1852, Blaðsíða 7

Þjóðólfur - 12.09.1852, Blaðsíða 7
363 hallar suður af og norður af. Vestan til á J sandinum eru mörg dý, og koma lænur úr þeim. i Úr einu stóru dýi renna þar tvær lænur og fellur önnur suður til Köldukvislar, en hin norður í Ilrauná, sem rennur í Skjálfandafljót. Mosi vex ineðfram dýjunum. 3>egar komið er norður á sandinn, sjer norður yfir Sprengisand og austur að Ódáðahrauni. Norðaustan við bungusandinn er fell laust við Vatnajökul. Ofan að því hefur eitt sinn farið hlaup úr jökl- inum. Jað er rauður leir og sandsteinn, hverju hrúgaö á annað ofan, svo þar er ill- fært hestum yfir. Bezt er að stefna af sand- inum, sem uin var getið, austur á við milli fellsins og hlaupsins. Jar mun jafnan vera fönn, sem fara má eptir $egar austur fyrir fellið kemur, sjezt yfir vesturhluta Ódáða- hrauns allan Sprengisand og fjöllin vestan við hann. Nú er farið austur og upp á við í hallanda norðvestan i Vatnajökli og verða þar fyrir nokkrar hraunæðar, sem fallið hafa úr jöklinum. Allt. af er þessi vegur sæmilega góður. Jegar spölkorn er komið austur með jöklinum, tekur að blasa við snjóháls sem liggur norður úr honum niður að vestari brún Odáðahrauns. Upp á hálsinum stendur á ein- um stað svartur klettur einkennilegur og rnik- ill uin sig, líkur kistu. jþar er bezt að stefna upp á hálsinn. Er þá farið á snjófönn upp fyrir kistuna. 5«r taka við bungóttar hjarn- breiður, sem stefrit er beint, austur ýfir, þang- að til kemur á einlæga hallandi fönn norður á jökuhnn ofan við Ódáðahraun. jþessa fönn cr bezt að fara austur eptir þangaQ til, sem fjall æði mikið genguí norður úr jöklinum. Jað heitir KistuQall. Eönnin er meir enn þriðjungur þingmannaleiðar og er rnjög víðsýnt af henni. Sjer þaðan nordur um Ódáðahraun og víða um öræfi. Hraun þetta hið mikla hefur runn- iö úr Vatnajökli og Trölladýngju. Jað er lágt fjall i miðju hrauninu skammt norðan við jök- ulinn líkast livölfðri skál viðri. Suint af hrauninu hefur líka komið, ef til vill, úr ! Oyngjufjöllum fremri, sem standa i eystri brún j braunsins. 3>au hafa eittsinn rifnað að endi- ! Iöngu innað fremri enda, og er þar hamra dal- | ur eptir alsettur hrauni og vikri. ]>að er að likindum Dyrigjuf jalladalur. Norðaustan við hraunið stendur Hörðubreið mikiö fjall. Nái Ódáðahraun alla leið irman frá Vatnajökli og út í Skjálfanda, mun það vera fullar 3 þing- mannaleiðir á lengd, en innfrá er það nálægt tveim þriðjungum þingmannaleiðarj á breidd. Af fönninni sjást og austur með jöklinunr fjöll- in Kverkfell og Snæfell. Jiegar kemur aust- ur undir KistuQall, er farið ofan fyrir noröur- horn þess og austur með því ofan á Jökulsár sanda. $á erbeygt í norðaustur frá jöklinum fyrir hraun, sem er á sandinum. Austarlega á sandinum eru jökulkvíslar nokkrar. Jar er jökulsá í Axarfirði. Kvíslar hennar eru óvíða djúpar. Inn af sandinunr er einlægur skriðjök- ull milli Kistufells og Kverkfjalla. Kverk- fjöll ganga norður úr Vatnajökli og hafa ein- hverntíma rifnaö, svo mikill klofi er að sjá norðan í. ]>að er líklegt að jökullinn dragi nafn af þessum klofa. Norður frá Kverkfjöll- um liggur langur hnúkarani, líkur því aö hann sje gamalt hlaup, í þessuin rana er hver hnúkurinn við annnn og hraunflóð i dældun- um, og hefur það löngu seinna runnið en hnúkarnir urðu til. Bezt er að fara innarlega yfir ranann. Raninn heitir Kverkfjallarani. Austan viö hann eru sljettir sandar. Skammt norðaustur á þeim er uppmjór hóll auð- kennilegur, sem nefnist Lindakeylir. Und- anhonum koma lindar ívolgar ogþó misheitar. Aðrar koma þar að framan misheitar. Hjá þessum linduin er og graslendi og hvannstóð rióg. j>ær heita Hvannalindar. Úr Illugaveri og hingað er hjer um bil hálf fjórða þinginanna- leið, og hvergi grasstrá á þeim vegi. Skammt fyrir austan Hvannalindar er Kreppa mikið jökulvatn. Hún fellur undan Klofajökli aust» an við Kverkfjöll norðvestur í Jökuldalsá í Axarfirði. Kreppa fellur í kvíslar austur af Ilvannalindum, og er þar vað á henni meöan hún er ekki í miklum vexti, en æði strangt, er það og þó bleytuhætt sumstaðar. Aust- , an við vaðið er brött fjallkinn. (Framhaldið síðar). F r j e t t i r. Árt'erði hefur til þessa tíma verið hið æskilegasta viðast hvar á euðurlandi, ncma ef vera skyldi i Skapta- fcllssýslu, því þaðan höfuin vjer heyrt kvartað yfir ros- um og rigníngum. Að norðan og vestan er tíðin sögð ágæt, og setjum vjer hjerkafia úr hrjefi af Vesturlandi. „Sumarið hefur hjcr vcstanlands verið eitthvert hið beita, sem menn muna, grasvöxtur og nýtíng mikið göð; fiski-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.