Þjóðólfur - 31.12.1852, Síða 4
28
Iiomim; mark: tvístýft framan hægra. Júekki
nokkur hann fyrir sina eiirn, er hann beftinn aft gefa
sýslumanninnm í Borgarfjarftar-sýslu það til kynna.
Hesturinn ertil geyinslu hjá hreppsljóranuin í Skorradal.
Borgarfjarftar- sýslu skrifstofu, Ilöfn, 12. des. 1852.
Lassen.
A u y lý sín r/.
Sámkvæmt bréfi frá stjórnarráðinu fyrir
kirkjumálefnum og skólamálefnum, dagsettu
14. d. septembermánaðar í baust, gjöri eg það
bert fyrir almenningi, að 3. grein í skólareglu-
gjörðinni 30. d. júlímánaðar 1850, um kröfur
þær í latínu, er gjörðar verða til Jieirra, er
óska, að komast inn í 1. bekk í skólanum,
eigi svo að skilja, að hver piltur verður að
hafa lesið 2 bœkur af ((Cœsaris commentarii
de bello Gallico”, eða ((liorr/ens Latinske
Læsebor/, Kjöbenhavn 1834, paany forand-
ret 1846” eða {>á ((Cornelius Nepos”; og
þaraðauki Mudviys minni málfrteði og belztu
atriðin úr setníngafrceðinni (syntaxis) í Mad-
viys stœrri málfroeði. Einnig eiga lærisveinar
að gjöra latínskan stýl, en lettan og sam-
svarandi þekkíngu þeirri, er ætlazt verður til
að þeir hafi.
Enn fremur gjöri eg það heyrum kunn-
ugt, að foreldrar þeir eða fjárhaldsmenn, er
óska að koma sonum símnn í skóla við byrj-
un næsta skólaárs, 1. dag októbermánaðar
1853, eiga að sjá um, að synir þeirra komi
hér í skólann, til að láta reyna sig, siðustu
dagana í júnimánuði í vor, er kemur, en láta
mig vita það skriflega að minnsta kosti 14
dögum áður en prófið verður haldið, og láta
þar fylgja með skírnarseðil og bólusetníngar-
seðil piltsins, eins og lög bjóða, ogjafnframt
skýra frá, hvað pilturinn hafi lesiö. Nákvæm-
ari ákvarðanir um þetta efni munu menn fá í
skólaskýrslunni, sem í vændum er.
Keykjavíkur latínuskúla, 1. d. descinbcrinánaðar 1852.
B. Johnsen.
Fréttir, árferð oy a/labröyð.
þar sem binni blfðu sumar- og haust veðurattu
sleit, hefir veturinn tekið við og haldið til þessa h§r
eonanlands hinni beztu veðuráttu, og ivarla komið
nema lítið föl, sem var ekki nema til bóta bæði fyrir
útifénað og jörðina sjálfa. En nokkuð belir hér veriá
frosthart á jólaföstunni. Frostið mun hafa orðið mest
13* K. Nokkru frostharðara og snjómeira var sagt að
vestan um jólaföstu komuna, einkum f Dala- og Barða-
strandar-sýslum.
— A Fjárpestinni hefir mjög svo brydt í Árnes-sýslu,
en einluiin i Borgarfjarða-sýslu sunnanverðri, og er það
helzt f Skorradal, á llvalfjarðarströnd og f Svínadal;er
sagt að bóndinn á Draghálsi sé búinn að niissa 70 fjár
úr pestinni, en hann kvað og vera maður fjárríkur.
Kveður þvi að tiltölu meira að missi 2gja annara bænda,
á Bjarteyjarsandi, sem er næsta fjárfár, og f Svánga,
sem ekki kvað vcra fjárríkur, ef liver þeirra mn sig
er búinn að missa meira cn 40. fjár, cins og ferðamenn
þar að ofan liafa sagt. Á (irund og Háafelli í Skora-
dal kvað pestin og hafa verið næsta sltæð það sem af
er vetrinum. Á Ilaukadal f Árness-sýslu var það um
viku tíma fyrir skemstu, að 5. og 6. kindur fórust dag-
lega; en ekki er haft í sögum hvað margt hafi farizt
alls á þeim bæ, cn þar er og, að sögn, á miklu að
taka.
— Af aflabrögðum vestanlands liefir ckki frézt; hér
sunnanlands hafa þau verið f minna lagi þessa haust-
vertíð. I Grindavík er sagður lmndraðs hlutur niest; í
Garðinum 2. hundr.; á Álptanesi uin 8 hnndr.; á Sel-
tjarnarnesi nm 6 hundr. og á Akranesi cins; þetta hefir
heyrzt að hlutir væri haeftstir; cn næsta misfiskið hefir og
reynzt á þessari vertíð, og eru t. d. á Seltjarnarnesi
og Akranesi þeir, að ekki hafi meira en hundraðs hluti,
eða vart það.
— t sjalfum höfuðstaðnum cr fréttalaust. þafterfmæli
að „Bræðrafélagið“ sé farið að verfta stafgisið þarna í
„okakerinu“, gisbentu eg lagg-gisnu. Sumir ern að spá
því, að „Felagið11 sjálft niuni detta f stafi uin nýárift, því
margír félagsmenn eru strax gengnir úr þvf, og þykjast
hafa sparað sér 6. rbd. útlát árlega með þeim grikk.
Hinir sumir telja þessi 6 rbd. útlát á við hreinan ávinn-
íng, ef þessu félagi, eins og er um liver önnur samtök
sem ncfnist félagsskapur, gæti hepnazt að binda sjálft sig
lögum. og regluin; cnum hclztu mönnum staðarins hefir
ekki heppnazt þetta enn, nú í rúmt ár; bræðrafélagið
er lagalaust enn í dag, og vist forgaunguinanna lítið.
Sumir telja það, ef til vill, kotúngskap og heimsku fyrir
félagið að það bindi sig lögum og reglum, og segja þá
bezt fara þar fram, þcgar eingi séu lögin og engir
umsjónarniennirnir, og mcgi þetta haldast, segja þeir, þá
eru 6 rbd. útlátin vcl tilvinnandi.
tjjg* Næsta blað 3>jóöólfs kemur ekki út
fyrri en eptir að póstskipið er komiðfráEng-
landi. f {>ví blaði kemur (—{>ví nú komst
{>að ekki): Ný yrafskript yfir Siyurð sáluga
tlinriksson á fíjalla, og mótmæli gegn þeirri,
sem prentuð var í Jjóöólfi 24. ág. {>. á., —
hvorttveggja frá „{>eim, sem búa til austurs
frá Grindaskörðum”■
Ábyrgðarmaður: Jón Guðmundsson.
Prentaður í prentsmiðju íslands, bjá E. þórðarsyni.