Þjóðólfur - 04.06.1853, Page 2

Þjóðólfur - 04.06.1853, Page 2
90 Vér geturn né megum í engu vefengja heiti konúngs vors frá 23. sept. 1848, né láta oss koma til hugar að liann efni þau ekki framar en komið er. En stjórnarskipun Dana og stjórnarmálefni öll eru enn ekki út gjörð né komin í kríng í öllum hlutum konúngs- veldisins; boðan konúngsins 28. jan. 1852 hefir heitið því, en það er ógjört enn. 5ó sú boð- an nefni ekki ísland, htytur liið almenna fyr- irkomulag stjórnarskipunarinnar i ríkinu, einn- ig að ná til íslands á einhvern veg. Ilin eina rétta og eðlilega skoðan á kon- úngsbr. 23. sept. 1848, og stjórnarhögum vor- um er því vafalaust sú, að það sé enn óefnt sem þar er heitið, og því síður sé það aptur kallað á nokkurn hátt. En þar af leiðir þá aptur, að það fyrir- komulag landstjórnarinnar sem nú er hjá oss, er hvorki blífanlegt né getur verið ; það er að eins millibils - og bráðabyrgðar fyrirkomulag, þángað til konúngurinn sér sér fært að efna heiti sín 1848, og koma þeirri skipUn á stjórn landsins, og láta oss verða aðnjótandi þess jafnréttis, sem hann hefir heitið, og sem er sam- kvæmtog samhljóða því sem er í meginríkinu, samkvæmt og samboðið hinum upprunalegu og óröskuðu þjóðréttindum vorum. Alþingið 1853, er ekkert blífanlegt þing engin viðvarandi og endileg stofnan, heldur að eins millibils - og bráðabyrgðarstofnan, þángað til samkvæm og samljóða stjórnarskipun kemst á um gjörvallt konúngsveldið, hér sem annarstaðar. Á þennan veg vonum vér að $jóöin öll og hinir kosnu fulltrúar hennar líti á stöðu Alþíngis 1853, og riti um það almennar áskor- anir til þingsins, að þingið, þegar í byrjun athafna sinna í sumar, lýsi yfir þessu áliti sínu og allra landsmanna í þegnlegu ávarpi til konúngsins, og taki þar jafnframt fram þau , aðalatriði, sem landsmenn hafa jafnan álitið og álíta enn að sé undirstaðan undir þjóðrétt- indi vor, og sem eru bygð á samníngum feðra vorra, á viðurkenníngum og heitum konúng- anna, og sem með engu móti má rnissa sjón- ar á né án vera, ef oss Íslendíngum á að hlotnast það jafnrétti við aðra samþegnana vora sem heitið er og vér eigum, og sem kemur heim við hið nýja og frjálsa fyrirkomu- lag stjórnarinnar í Ðanmörku. Og valla mun nokkur íslendingur í vafa um að þessi aðalatriði séu: 1. Alþíng með löggjafarvaldi, ásamt með konúnginum, í öllum innlendum málum. 2. Innlend landstjórn í landinu sjálfu. 3. Islenzkur ráðgjafi hjá konúngi í öllum íslands málum. 4. Atkvæðisréttur fslendinga í öllurn sam- eiginlegum málurn alls konúngsveldisins. — Á meðan „Lanztíðindin“ og „Ný Tíðind- in“ voru á dögum, færðu þau Jesendunum flest- öll ný lagaboð sem út komu, annaðaðhvort orðrétt, eða þá að eins fyrirsöyn þeirra, ef ekki þókti rúm fyrir þau í blaðinu. ”Inf/ólfur” hét liinu sama í 1. blaði sinu: „að taka við öllum auglýsíngum o. s. frv., sem alþýðu varða, likt og Tiöíndi stjórnar- innar (!) liafa gjörtu. Og fyrst að stjómin (!) okkar, háyfirvöld- in, á þau ráð a prentsmiðjusjóðnum eða öðru opinberu fé, að hún getur haldið úti öðru eins blaði og Ingólfi, þá er varla að efa að hún vilji kosta kapps um, að blaðið færi mönnum þau lagaboð og úrskurði orðrétta og óaíbak- aða sem út gánga og eptir skal breyta. En vér sjáum nú og sönnum að annaðiivort Ingólfsstjórninni eða herra kostnaðarmann- inum, eða hvorumtveggju firinst alþýðu varða miklu meir staupastíju- og gorgeirshjal þess- ara gleiðstígu eksa, eða einstakra náttugla, heldur enn lög þau og lof sem konúngur set,- ur landi og lýð. jþess leiðis fróðleiks- og shild- arklausur komu svo margar í Ingólfi 9. að ekki varð rúm fyrir að auglýsa orðrétt þessi 4. smá- lagaboð sein komu híngað með póstskipi, en þótt þau séu mikilsvarðandi, og gjöri veru- lega breytíngu á því sem verið hefurí lögum; því varðaði almenníng iniklu að fá að sjá þau og hafa í blöðunum orðrétt eins og þau eru. Af því þetta varætlandi stjórnarblaðinu (!) sem til þess er styrkt af opinberum sjóði, þá höfum vér aldrei heitið né ætlað oss að aug- lýsa nein lagaboð orðrétt. En alþýðu til fróð- leiks og leiðarvisis sömdum vér dálítið á- grip af þessum lagaboðuni, eins og það kom í 114. blaði voru, svo að kaupendurnir gætu

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.