Þjóðólfur - 02.02.1855, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 02.02.1855, Blaðsíða 4
— 40 — Liebenberg etazráð málaflutnfngsmaður við hæstarétt. þessir nýju ráðgjaf'ar lýstu yfir stjórnaráfornmm sínum fyrir Ríkisþínginu, og var það bið helzta, að þeir mundu stjórna í lika stefnu og hinir næst undangengnu ráðgjafar, að þvf, að koma sem fyrst á fót sameiginlegri frjálslegri stjórn fyrir gjörvalla hluta konóngsveldisins, og þvf leitast við að fleiri þjóðkosnir menn sæti í Ríkisráðinu, sem stofnað var með tilsk. 26. júli í fyrra, heldur en þar væri ráðgert, og að sú samkoma fengi ályktandi vald í öll- uin hinum sameiginlegu málum konúngsveldisins; en við- vikjandi hinni ytri stjórn, og viðureign við aðrar þjóðir, þá mundi hinum sömu stjórnarreglum verða fylgt, sein áður var. — Heldur góður þeli og góðar vónir virtust að liggja hjá Dönum til þessara nýju ráðgjafa; og bæði þessvegna,,en eínkum fyrir það, að konúngur sleppti hin- um ráðgjöfunum, þá vildu Kaupinhafnarbúar votta kon- úngi lotnfngarfullar þakkir sínar mcð nokkurri opinberri viðhöfn, og gjörðu þeir það að kvöldi 18. f. mán. með „blisgaungu“ (Fakkeltog), — sem einatt er títt til veglegrar viðhafnar, — epþr endilángri borginni og námu staðar fyrir framan konúngshöllina Kristiansborg; þegar þar var komið með hin 1200 blis, sem allt að 5000 manna fylgdi, — en þótt nrkomuveður væri þá hið versta, — þá flutti sá, sem til þess var kjörinn, konúnginum snjalla þakkarræðu í nafni staðarbúa og þjóðarinnar, og kvæði var súngið, sem til þess var orkt, en konúngur stóð i opnum einum hallarglugganum, og tók ljuflega og þakk- aði með blfðuum orðum þessa veglegu vottun þjóðarinn- ar um ást hennar og traust til sfn. — Hinir nýju ráðgjafar hófu stjórn sína mcð því, að láta hætta við hinar mörgu lögsóknir. sem fyrri ráðgjafarnir hófðu skipað gegn hin- nm frjálslyndari dagblöðum, — en mörg þau mál voru þegar dæmd, og blaðamennirnir frí-fundnir í flestum þeirra — og ineð því að leyfa Slésvíkurinönnum að kaupa þau blöðin, „Föðurlandið“ og „Dagblaðið“, sem Carl Moltkc, hinn fyrri Slésvíkur ráðgfafi, hafði harðlega bannað að flytja til þeirra. — Um alþíngismálin, eða önnur Islandsmál fréttist ekkert, og ekki hver konúngsfulltrúi muni verða að sumri. — Stríðið milli Rússa og sambandsmannanna sem í móti þcim eru, helzt enn. Ekki náðu Engilsmenn og Frakkar Sebastopool, og er talið mjög tvisynt, að þeim takist það nokkurn tíma, því staður sá hefir bæði hin öflugustu varnarvirki og ótal herskip á höfninni, sem sem vígin innilykja meir cn á 3 vegu, en mergð af hin- um öflugustu og beztu fallbyssum og öðrum skotvopnum, og þeim svo stórkostlegum og ramgerðum, að varla eru dæmi til slíkra fyrri, — ótal fallbyssur sem senda ór sér 60 og 70 phnda kúlur, og „Granater" sem hleypa má úr glóandi eldhnöttum, er hvcr nm sig innilykja I sér 240 kúlur; iná nærri geta hvað slíkir morðhnettir verða mannskæðir, þegar þeir sprfnga á fylkíngum óvinanna. Nú liafa Engilsmenn og Frakkar náð undir sig landinu að norðan -og vestanverðu við borgina, og hafa síðan í haust verið sð vfggirða þar herhúðir sínar, en liafa hvergi nógan mannafla til að s|á óvígri skjaldborg um allan staðinn landmegin, og því geta Rússar dregið að sér hvenær sem vill og við þarf nýjan mannafla frá megin- landinu, jafnótt og varnarliðið týnir tölunni, vistir og aðrar nauðsynjar; ^ru þri sambandsmenn svo margfalt liðminni svo fjærri sem þeir eru fósturjörðum sínuin, og veitir því mjög svo erfitt að haldast við, einkum þar eð alltaf gengur öðru hverju sjúkleiki í liði þeirra, en bera illa hið miklu kaldara loptslag, sem þeir eru óvanir. — Mikill og mannskæður slagur varð þarna hjá Sebastopool, við Inkarinan, 5. nóvbr. f haust. Réðust þá inilli 60 og 70 þúsundir Rússiskra á vfggirðíngar Englendfnga, en þar voru þá fyrir til varnar að eins 8000 manna; en hæð ein fyrir vestan þá, er átti að bera af þeim atlögu þeim megin, var svo illa vfggirt og með svo ónóguin fallbyss- um, að Rússar páðu óðar hæð þessari, og stöðu fyrir það svo miklu bctur að, auk hins ijarskalega liðsmunar, að vinna á Eitglendíngum fullan sigur og drepa þániður; þarna vörðust samt Englendíngar i fullar 2 stundir og hopuðu hvergi, en þá náði lið Frakka þángað til hjálpar við þá, og gerðu þeir svo hart álilaup á Rússa, að þíir urðu að hopa aptur ofan af hæðinni, og gekk svo 3 sinn- um að sínir náðu lienni frá hinum, cn um síðir urðu Rússar að hörfa undan og leggja á flótta, var þaí> fyrst með mestu reglu og hægð og með fylktu liði, og fengu haft mcð sér nálega allar fallbyssur sfnar og skotvopn; en sambandsmenn veittu þeim brátt svo harða eptirför, að fylkíngar þeirra gjör-riðluðust, og hljóp hver, sem fætur toguðu, og fleygðu frá sér skotvopnum og öðru, svo að sambandsmenn tindu þar upp síðar mn 15000 byssur. 5000 Rússa láu dauðir á sjálfum vígvellinum, og er því talið víst, að af þeim hafi fallið alls vissar 10,000 eður meira (nokkur blöð segja 15,000), af Englendíngum féllu alls 3000, en af Frökkum 2000. (Framh. siðar). — Fiski aflinn helzt f Garði og Höfnum, þar eru nú komnir 300 til hlutar af vænum fiski. — það er oss sönn gleði að geta hermt með vissu, að bókbindari herraEgill Jónsson hefir keypt af prófessor og Dr. P. Pjeturssyni fórlagsrétt til eins árgángs af pré- dikunum eptir sjálfan þenna merkilega kennimann, til allra sunnu-oghelgidaga ársins; prédikanir þessar eiga að koma út vorið 1856. Uppboð. þriðjudaginn hinn 27. næstkomandi febrúarmánaðar um hádegi verða f þínghúsf bæjarins boðnir upp til sölu hlutir þeir er K a 1 da ð a r ne s -spítala falla tii á i hönd farandi vetrarvertíð, i Reykjavfkur katipstað, Seltjarnar- nes, Alptanes, h'jalarnes, Strandar, Rosmhvalanes, llafna og Grindavíkúr hreppum. Fiskurinn verður f ár boðinn upp og seldur fyrir hvern lirepp sér í lagi, og munu söluskilmálarnir verða birtir fyrirfram á uppboðsstaðnum. Skrifstofu bæjarfógeta í Reykjavík, 16. janúar 1855. V. Finsen. Prestaköll. Veitt: 31. f. mán., Stafholt, séra E in a ri (Sæmundssyni) Einarsen presti tilSetbergs; Holt í Onundarfirðí, kandíd. theol. S teffá ni (Péturssyni) StephensenfráOlafsvöllum. Óveitt: Setberg f Snæfellsnes-sýslu; að fornu mati 83 rdd.; 1838 metið 242 rdd.; slegið upp þ. mán. — Póstskipið fer alls ekki af stað fyrir 24. þ. m. — Næsta blað kemur út fimtud. 22. þ. mán. Ábyrgftannaíiur: .lún Guðmundsson. PreutaLur í prantsmibju Islands, hjá E. þóriarsyni.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.