Þjóðólfur - 07.10.1863, Síða 2

Þjóðólfur - 07.10.1863, Síða 2
— 186 — ferðinni, þegar binn lángi vetr stendr að, að skrifa yðr svo rækilega, sem eg vil og get. Að þessu sinni verða því fréttirnar fáorðar, en gagnorðar ætti þær þá að vera munuð þér segja og lesendryðar. Sumarið var framundir höfuðdag heitt, en þó fremr að því sem heyrðist sunnan úr löndum; þar keyrðu hitarnir svo úr hófi, að menn duttu dauðir niðr á götunum af sólbráð; yfir 30 mælistig í forsælu, en árnar þornuðu upp svo Dóná t. d. urðu sumstaðar ekki skipgeingar, og komu þar upp eyr- ar, sem aldrei hafði áðr verið. I Ungarn sviðnaði jörðin af hitum og þurkum svo, að á margra hundrað mílna svæði var ekki stíngandi strá fyrir nautpeníng, se.m þúsundum saman gekk beljandi um akrana, sem voru eins og sviðnir af koli, og urðu bændr að fella hann af grasleysi, og nemr hundruðum þúsunda, og var send nefnd til keisar- ans í Vín, að beiðast eptirgjafa á sköttum og nú fer keisarinn suðr til Úngarn, og er sagt, að hann ætli að gefa 30 mill. gyllina til að afstýra hallær- inu. fannig vinnr hiti og frost sama mein. — Síðan í þessa mánaðarbyrjun hefir skipt hér mikið um veðr; áðr leit út fyrir beztu uppskeru, en síð- an hafa verið sífeld hregg og stormar og dembi- regn, eitt hið lakasta veðr, sólskin eina stund, en regn og stormr hina, svo allt hefir flóð í vatni. Uppskeru var sumstaðar lokið áðr, en mikið liggr þó flatt helzt á stórbæum og borfir til bráðskemda, helzt hveiti, og verðr til mikils skaða, ef þessu heldr fram og ekki kemr bati. Fyrir þá, sem yfir sjóinn fara er ekki betra til afspurnar, en nú eru þó norðanáttir og skolar þá skipunum áfram að heiman. Um hiií önnur tíðindi skal eg skjótt yfir sögu fara. J>að munu yðr og mörgum lesendum yðar góðar fréttir, að síðan eg skrifaði yðr síðast, hefir skipt í tvo heima fyrir Bandamönnum og í hag þeim móti þrælamönnum. þrjá fyrstu dagana í Júiímánuði stóð mikil orusta við Gethysborg norðr í Pennsylvaníu milli hershöfðíngja Meade fyrir norðanherinum, og Lee af hendi sunnanmanna. þessi orusta var hin grimmasta og mannskæðasta, sem verið hefir í þessari styrjöld, og er það mikið sagt. Norðanherinn vann fullan sigr, og mistu sunnanmenn að sögn þriðjúng hers síns, eðr um 40,000 manna, og óku á hæl. Menn héldu nú, að her þeirra allr, af því þeir höfðu vogað sér svo lángt norðr — Gethysborg er meir en 2 þingmannaleiðum fyrir norðan Washíng- ton — mundi nú komin sem mús í gildru, en Lee tókst þó að sleppa suðr yfir árnar Rappahannock og Potomack suðr í Virginíu. Annan sigr unnu Bandamenn samdægrs Iángt þaðan vestr við Misisippi, þar sem þeir lengi höfðu setið um kastalann Vicksborg. Borgin gafst upp með 200 fallbyssum og 30,000 manna að morgni þess 4. Júlí. þessi sami dagr er afmælisdagr Bandaríkjanna. Fregnin um fall Vicksborgar og um sigrinn við Gethysborg kom samdægrs til Wa- shington og lét Lincoln forseti halda almenna þakk- argjörð í minningu þess tvöfalda sigrs á afmælis- dag ríkisins. þrælafylkin mistu um 80,000 manna á fám dögum og skipti svo skjótt um, því áðr héldu menn, að hinir væri dauðansmatr, á heljar- þröminni, og hefir síðan þreyngt að þrælafylkjun- um meir og meir, þó stórorustur hafi ekki orðið. I byrjun þessa mánaðar og síðast í Ágúst lögðust Bandamenn fyrir mynnið á Charleston, og héfir þar verið grimmasta skothríð af hjálniskipum (Monitorar), sem hafa skotið á meir en hálfrar viku færi á 10 álna þykka steinveggi, og kúlurnar, sem eru eíns og Grettishaf, hafa gengið í gegn, og er eitt virkið (Sumter) skotið niðr. Menn þykjast nú sjá, að engi steinvirki fái staðizt hin nýju skot- bákn, nema þau sé stálbrynjuð eins og skipin, en moldarveggir segja menn nú standi bezt fyrir þess- um skotum. það er í mæli, að Bandamenn muni nú, þegar mesti geigr er afstaðinn innanlands, minn- ast á lambið grá við Frakka í Mexico, þeir eru nú orðnir vanir hryðjuverkum, og Iáta ekki allt fyrir brjósti brenna. IJéðan úr Norðrálfunni er helzt til nýlundu konúngastefnan í Frankfurth. í byrjun Ágústmán- aðar ritaði Franz Joseph keisari bréf til allra banda- manna sinna á þýzkalandi, og í hinu þýzka sam- bandi, að koma saman í Frankfurth við ána Main 16. s. m. til að semja með sér um endrbót á alls- herjarlögum þýzkalands. Á fundinn komu fjórir konúngar, fjöldi af herlogum, álls nálægt 25 furst- ar og fjórir erindsrekar frá þeim fjórum frjálsu rík- isborgum, sinn frá hverri borg. En hér varð sem kveðið er: »Allir komu óvinir Njáls nema Ingjaldr frá Kcldum'). Prcussa konúngr kom ekki, svo þar var mikið skarð. Ekki kom heldr Dana- konúngr (sem hertogi llolseta og Laúenborgar), en hann ritaði þó keisaranum vinsamlegt svar fyrir boðið og afsakaði sig. Frumvarp keisarans var að setja forsetanefud (Directorium) 5 menn; keis- arann, Preussa og Bayarakonúnga og 2 kosna af hinum konúngunum og hinum smærri ríkjum. En fremr alþíng og 300 manns í, er skyldu kosnir af ríkjunum úr þíngum hvers ríkis, tveir hlutir i

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.