Þjóðólfur - 07.10.1863, Blaðsíða 6
— 190 —
lífsstöðu sinni öðrum fremri, tæki sig saman um,
að vernda líf einstaklínganna með því, að brýna
fyrir öðrum nauðsyn hreinlætisins, og þannig léðu
fáfræðíngnum hjálpandi hönd og leiðréttu hirðu-
leysíngjann. f>á mundu landfarsóttir og aðrir
kvillar hér á landi gjörast ómannskæðari en híng-
að til.
Eg heíl, ef til vili, orðið nógu berorðr við
yðr í þessu máli, en mér gengr ekki annað tii,
en innileg laungun til þess, að efla velferð yðar
allra.
En þó nú þelta sé allt næsta aðgæzlu og
eptirtektar vert, þá er það ei svo að skiija, að þar
með eigi að vanrækja hið eina nauðsynlega.
»Iléttlætið upphefr þjóðina», segir orðskviðaspek-
íngrinn, og mín heitasta og alvarlegasta ósk er
sú, að þjóð yðar megi ná meiri og meiri þroska í
trú og siðgæðum. En hvar er þessi þroski? þér
hafið heyrt hina aðvarandi rödd, að köld játníng
trúarinnar með vörunum sé þýðíngarlaus, ef ekki
fylgir með hið innra afl trúarinnar; því ella verðr
hjartað óbreytt. J>að hefir opt ollað mér sorgar,
iiversu mér hefir virzt líf trúarinnar vera dautt og
dofið hjá sumum yðar, hjá þeim, er lifa að nafn-
inu einu, þó þeir hafi á vörunum glæsilega játn-
íngu trúarinnar. »En tréð þekkist af ávöxtum*
þess».
J>ó eg hafi þannig fylizt harmi af því, að sjá
þá, er andans líf hefir verið meir eða minna út-
kulnað hjá, þá hefir þó hugr minn tíðum lifnað
við og huggast í þeirri fullu- trú og föstu sannfær-
íngu, að í þessu landi megi sjá, og það víða, hin
ástkæru börn Guðs, í hverra hjörtum Drottinn hefir
byrjað og heldr áfram starfi hinnar eilífu náðar
sinnar og býr stöðugt undir dýrð hins himneska
ríkis síns. J>eir eru ekki fáir yðar á meðal, er
gánga á hans vegi, lifa í félagi við hann og sam-
einast honum æ nánar dags daglega. |>essum
mönnum vil eg að eins ráða til, að biðja óaflátan-
lega í nafni Jesú, um nýan styrk Iiimneskrar náð-
ar, um hjálp og leiðsögn Ileilags Anda dag frá degi.
Minnist, ástkæru vinir, þessara orða: »Treystu
Drottni af öllu þínu hjarta, en reiddu þig ekki fast
á þitt hyggjuvit«, »Mundu til hans á öllum þínum
vegum, og hann mun láta þína leið verða beina»,
»J>ví allir þeir, sem leiðast af Guðs Anda, þeir eru
Guðs börn». »þér eruð þess þjónar, sem þér
hlíðiðo.
Eg tala ekki þetta af því, að eg þykist hafa
náð takmarkinu, heldur aí því, að eg óska, að
mér mætti auðnast að skunda til takmarksins með
öllum yðr, sem heyrið eða lesið línur þessar, til
þess himneska hnossins vorrar háu köllunar af
Guði í Jcsú Iíristi. Innrætum oss staðfastlega
þessi lærdómsríku orð Krists: »|>að, sem eg segi
einum, það segi eg öllum: Vakið« I »Vakið og
biðið, svp þér fallið ekki í freistni«I og orð Pétrs
Postula: »Endir allra hluta nálgast; hegðið yðr
því skynsamlega og verið árvakrir til bæna«!
í kristilegum kærleika og brennandi laungun
eptir eilífri velferð hinnar ódauðlegu sálar eins og
sérhvers yðar, kveð eg yðr, ástkæru vinir, og fel
yðr góðum »Guði og orði hans náðar, sem mátt-
ugt er, að efla yðr og veita yðr arftöku meðai
allra helgaðra«, ef að þér leggið kapp á sáluhjálp-
ina, sem yðr er veitt fyrir Jesúm Iirist, Drottinn
vorn, er dó fyrir syndir vor allra, og reis aptr
upp oss til réttlætíngar.
Rej'kjavík, 28. dag 9. mána^ar (september) 1863.
Yðar einlægr vinr
Isaac Sharp
frá Middlesbro’ — Yorkshire — á Englandi.
(Aðsent)
Ávarp.
Kæru landar! Eins og flestum yðar er kunn-
ugt, hefir hið brezka og útlenda biflíufélag gefið
út á sinn kostnað hið íslenzka Nýa Testamenti
með endrskoðaðri útleggingu, og er í alls staði
gengið prýðilega frá þessari útgáfu, pappírinn er
góðr, Ietrið stórt og skírt og bótón í sterku og
vönduðu skinnbandi; og lætr félagið selja hvert
Nýa I’estamenti á 64 sk, eða fjögur mörlc og má
óhætt fullyrða, að þetta er ekki þriðjúngr þess
verðs, sem venjulegt er á bókum. f>egar vér nú
þaraðauk gætum þess, kæru landar! að þessi bók
er aðaluppspretta vorra guðdómlegu trúarbragða og
að hún er nauðsynlegust allra bóka fyrir hvern
kristinn mann, þá ætti þetta að vera hin sterkasta
hvöt fyrir alla til að útvega sér hana. Sleppið því
ekki þessu tækifæri, kærulandar! heldr kaupið sem
flestir þessa ágætlega vönduðu útgáfu afNýa Testa-
mentinu, og fæstir yðar eru svo fátækir, að þeir
geti ekki varið til þessa fjórum mörkum, ef ei með
öðru móti, þá með því að spara yið sig einhvern
óþarfa, og þó þér áðr eigið biflíuna eða ISýa Testa-
mentið, þá kaupið samt þessa útgáfu, því að hún
ber lángt af hinum cldri. Ef þér eigið börn, þá
gefið þeim bókina, og látið þau lesa í henni og
verið vissir um, að þér haftð aldrei varið fé yðar
betr. þetla er sá bezti fjársjóðr fyrir yðr sjálfa,