Þjóðólfur - 07.05.1866, Qupperneq 5
— 109 —-
meira lífs og forlaga auðið. Leöpold, sem var
hugað að vera her tilvooandi drotníngarbóndi, datt
því aptr úr sögunni, og bjó hér lengi í Englandi.
þegar Grikkir gjörðu uppreisn, var honttm buðið
að verða konúngr á Grikklandi, en hann var of
vitr ntaðr og séðr til að láta binda ser þann björn
á ltendr. Skömmu síðar kom nýtt konúngsríki
Belgía, sem var stofnað handa honum, og varð hann
þar konúngr að tilstilli Palmerstons vinar síns ; átti
hann dóttur Frakkakonúngs, en misti hennar og
lifði enn ekkill lánga stund. Bróðrsonr hans prinz
Albert varð drotníngarbóndi á Englandi, dó og var
graftnn, en allt þetta lifði hinn gamli konúngr, en
allir eldar brenna út um síðir og svo fór honum.
Um páskana andaðist hér tengdamóðir Leo-
polds konúngs (st'ðari konu hans) María Amalía
konúngsdóttir af Sikiley, ekkja Loðvíks Filips fyrr-
urn konúngs á Frakklandi. Var hún vel metin og
góð kona og hafði verið gestr Viktóríu drotníngar
nærfelt 20 ár í útlegð sinni. Hún var svo gömul,
að hún var dóttirdóttir gömlu Maríu drotníngar
Teresíu og systurdóttir Maríu Antoinettu, sem var
liálshöggviu 1793. þegar það varð, var hin gamla
drotníng, sem nú dó, ellefu vetra, og allt það,
sem síðan bar við, var því í rninni hennar. það
var almæli, að hún hefði meiri karlmannshug en
konúngrinn bóndi hennar, sein lét lönd og ríki,
en frelsaði líf sitt á flótta, og skyldi ófrægilega við.
Við lát Palmerstons lávarðar hafa orðið hér
tírnaskipti. Hann var hér manna vinsælastr, vitr
maðr og hafði ráð undir hverju rili. Meðan hann
lifði fór allt fram í sama horfi. þíngmenn voru
heitbundnir að halda frið og hefja engar nýúngar
meðan hann lifði, hvað sem síðar yrði.
þíngið var sett G. Febr., þá var hér mikið
um dýrðir; þetta er nýtt þíng; kosníngar fóru fram
í sumar, og það var nú fyrsta sinni, að drotníngin
kom fram, síðan hún varð ekkja; þvl var hér þá
mikill mannfagnaðr og- skraut. Drotníngin setti
sjálf þíngið og öll viðhöfn var viðhöfð, sem tíð er
við slík tækifæri, nema sá munr, að drotníngin ók
ekki til þíngsins í sínum dýra vagni, en hinir
sömu 8 hestar músgráir að lit voru spentir fyrir.
þessir heslar — eg sá þá en drotnínguna ekki —
eru réttir sólarhestar þessa ríkis, komnir af ein-
hverjum Freyfaxa fram í kyn, og eugir af þeirra
kyni hér í landi aðrir. þeir eru aldrei beittir fyrir
vagn nema drotníngarinnar, ef þíng er sett eðr
önnur stórtíðindi. Drotníngin setr þíngið í lávarða-
stofunni, en hún las ekki þíngræðuna sjálf, heldr
fe'jörði það Lord — canselerinn. þess var hér \ið
getið, að drotníngin stóð einsog líkneskja úr marm-
ara fyrir hásætinu í svörtum búnaði, og brá sér
ekki eða leit við, þegar þíngmennirnir úr neöra
húsinu þustu inn, og er þá ekki lítill þys, þegar
GOO manns ryðjasí inn, eins og ærúrstekk. það
er her gömul landsvenja frá fyrri tíð, þegar það
þíng var ekki svo göfugt sem nú, að þeim er ekki
ætlaðr bekkr, þegar þíng er sett en boðaöir uppí
efri stofuna til að hlýða á erindi drotníngar.
Síðan þíngið var sett, heflr verið mikill orða-
hjalrlr á þínginu. Fyrst um blökkumanna drápið
í Jamaica; eg er orðinn leiðr á að lesa um það
mál, svo eg skal ekki orðlengja það, eg læt Skírni
eptir að segja og leggja dóin á það sem annað.
Annað var hinn svonefndi Fenianismm eðr
írafárið, sem eg hér kalla; það er uppreistnartil-
raun á Irlandi, og tilraun til að rífa það land und-
an völdum Viktoríu drotníngar og gjöra þar lýð-
veldi, og er blásið að þessum kolum frá Ameríku.
Eg skal heldr ekki fara útí þessa sálrna, og að
eins nefna það í jjcirri veru, að sýna, hve fljótir
rnenn eru hér að gefa lög í viðlögum. Menn
skipta hér vikudögunum í stjórnarnætr og þíng-
mannanætr. Sjórnarnætr eru mánudaga, miðviku-
daga og stundum föstudaga, en þíngmannanætr
þriðjudaga og fimtudaga. En á laugardaginn hvíla
jieir eins og kerlíngin sín lúin bein. {>á er aldrei
fundr nema í mestu viðlögum. En á laugardag-
inn kom stjórninni boð frá landsdómaranum í
Dublin, að göturnar í Dublin væri fullar af voða-
gautum, illum útlits nýrunnum um haflð frá Ame-
ríku, og gæti hann ekki þbyrgzt friðinn nema hann
fengi nýtt og styrkvara vald. j>á var hér þíngs
kvatt eptir hádegi á laugardaginn ; en annurs er
það siðr, að þíngið byrjar um miðaptan, og þíng-
ræður byrja eptir þann tíma, og ef um mikið er
að reeða, standa þær yör sem fastast, þegar komið
er yfir miðnætti og frarnundir aptreldíng. j>að er
þó lög, að frarnyflr miðjan morgun, kl. 6 á morgn-
um, má aldrei halda þíng. Fara þíngmenn þá og
stjórnendr þessa ríkis í ból sitt eins og tröllin,
þegar blessuð sólin stígr npp. í þetta skipti var
því þíngs kvatt á venjulegri stund og degi, en
efnið var að leiðaúrlögum um missiristíma »Ha-
beas corpuso að írlands hálfu. llabeas corpus
var sett 1677, en hefir síðan alls 10 sinnum verið
»suspensum«, tekið úr lögum um stund á ófriðar-
tímum og það þrisvar í minni þeirra manna, sem
nú lifa, nefnl. 1798 um daga Pitts, 1822, þarnæst
1848 og nú 186G, bæði síðustu sinnin undir Itus-
sell lávarði, og öll fjögr sinnin fyrir írland og ó-