Þjóðólfur


Þjóðólfur - 11.08.1866, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 11.08.1866, Qupperneq 2
(Aðsent). (Um ofdryhkju og sÖIu á ötfaungum). (Nifcriag). Eg efast ekki um, að allir þeir íslend- íngar, er vilja þjóð sinni vel, álíti þetta eitthvert hið mesta velferðarmál lands vors, og ef sannfæríng þeirra er ekki á reyki, að þeir láti það ásannast í verkinu, að þeir vilji styðja að framför ianda sinna, með því eptir fremsta megni að útrýma ofdrykkjunni. fetta ímynda eg mér, að gæti orðið eins aífarasælt, eins og það, að leggja toii á alla þá, sem hér verzla með áfenga drykki; enda er það ekki enn sem komið er, orðið meira en að umtalsefni. Dæmi Norðramerikumanna, þar sem fyrir 30 árum töldust 8000 bindindisfélög með meir en 1 % millión meðlirrva, og þar sem 8000 veitínga- og verzlunarmenn aflögðu alla brenni- vínssölu, gæti orðið oss að góðri og gagnlegri kenníngu, ef vér vildum þar eptir breyta. En hvað gjöra vorir góðu kaupmenn? Er það ekki sem þeir keppist liver við annan, að láta aldrei þrjóta brennivín (þó þurð sé á mörgum nauðsynja- vörum) ailt eins og jtessi vökvun sé hin mesta nauðsyn mannlegs lífs? Hvort mun það vera í gróðaskyni fyrir sjálfa þá, eða af umhyggju fyrir velferð og velmegun þessa lands, sem þeir hafa af alla atvinnu sína og mestan part gróða síns? J>að vita þeir sjálflr hezt. En bágt væri til þess að vita, gætu kaupmenn vorir ekki staðizt, nema með því að selja áfenga drykki án allrar takmörkunar, og það má álíta, að verzlunar- stétt vorri væri vanvirða gjörð, ef menn segðu, að hún gæti ekki haldið höfði nema í skjóli drykkju- skaparins. Líklega munu þeir hafa komizt að þeirri reynslu, að ftestir sou þeir á skuldalistan- mn hjá þeim, sem optast koma að búðarborðinu, til að fá sér á pelann, eða ílöskuna, eða kútinn, eða biðja um að gefa sér í staupinu. Eg ætla svo ekki að fara hér um fleirum orð- um, en leyíi mér að vona, að þjóðólfr, sem svo víða fer, lofl línum þessum að berast með sér, ef einhver vildi virða þær þess, að gefa þeim ein- livern gaum. Vestmaiinaeyjnm, í Maí lsG(i. Ih'. Júnsson. UiMBUHÐARBRÉF til prófasta og presta á íslandi. Eptir að eg nú fyrir guðs náð heill á hófl er kominn heim úr utanferð minni og búinn að taka aptr við biskupsembættinu, þykir mér það eigavel við að heilsa yðr, kærir bræðr, og senda yðr vin- samlegt ávarp milt. Eg veit, að yðr muni vera það eins Ijóst og mér, og að þér munið ei síðr finna til þess en eg, að drottinn heflr kallað oss til þess að efla og útbreiða sitt ríki meðal bræðra vorra hér á landi, og að hann ætlast til þess og heimtar það af oss, að vér verjum kröptum vorurn í hans þjónustu, að vér af alefli leitumst við að viðhalda hinu kristi— lega trúarlífl hjá oss, glæða það, þar sem það er dauft, vekja það, þar sem það sefur, og það er sú gleðilegasta tilhugsun fyrir mig að vita, að svo margir meðal yðar eru gagnteknir af skyídurækt, og hafa ailan huga á því að gegna trúlega þess- ari háleilu köllun sinni. En eg veit líka kærir bræðitr, að vort tíman- lega líf heflr sínar kröfur, sem drottinn einnig ætlast til, að vér að nokkru leyti fullnægjum, en þó þannig, að vér ekki þar fyrir missum sjónar á vorri eiginlegu köllun eða vanrækjum hana; en þelta er því vandasamara, því örðugri sem hinar ytri kringumstæður eru, því að þá er svo hættvið, að trúarlífið deprist og deyi í sorgum og áhyggj- um þessa lífs; og er því bæn og árvekni einnig í þessu tilliti nauðsynleg eins og líka liitt, að þér hafið bróðurleg samtök við stéttarbræður yðar til að styrkja yðr sjálfa, glæða áhuga yðvarn og við halda kristilegum félagsanda, því þegar hinir góðu kraptar sameinast, þá keinst bæði meiri samhljóð- un á hina andlegu starfsemi vora, sem er þeim mun nauðsynlegra, sem land vort er svo strjál- bygt og samgaungur svo erfiðar, og þá verða líka hinir góðu kraptar miklu áhrifameiri heldren þegar þeir vinna á sundrúng og sinn í hverju lagi. Að vísu hefl eg í hyggju, gefiguðmér líf og heilsu, að vísitera svo opt sem eg get því við komið og á vísitazíuferðum mínum að halda fundi með yðr um kirkjuleg málefni; eu þér vitið sjálfir, kærir bræður, hve stórt, örðugt og ógreitt land vort er yfirferðar, svo mér mun naumast vinnast aldr til að fara svo víða sem eg vildi, en því meiri þörf er á því, að prófastarnir séu vandlátir í til- sjónarmannsembætti sínu, að vér séurn allir sarn- mála og samhentir og vinnum allir í einum anda, í sannleikans, kraptarins og kærleikans anda, og mun eg jafnan vera reiðubúinn til að veita yðr alla þá leiðbeiníngu, sem eg get eptir því sem eg hefl bezt vit á. • það er óþarfi fyrir mig að taka fram hin ein- stöku skylduverk yðar eða brýna þau fyrir yðr, því þar sem skylduræknin er fyrir, þar býr lílta áhugi á því að leysa hin einslöku skylduverk sem bezt af hendi.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.