Þjóðólfur - 28.09.1866, Síða 1

Þjóðólfur - 28.09.1866, Síða 1
18. ár. 43.-44. Reykjavík, 28. Sept. 1866. — Af fjárkláðanum eru fregniriiar, sem ferða- menn víðsvegar úr nærsveitunuin færa híngað um þessa daga, næsta áþekkar því sem bent var til í síðasta blaði. Öll Suðrnesin frá Ilafnarfjarðarbotni og austr til Selvogsheiðar, að frá teknum Höfnun- um, mega heita útsteypt; þá er og sagðr megn kláði víðsvegar um Selvog, og flestir Ölfusíngar, er bér bafa komið um næst undanfarna daga, mæla það einum munni að svo megi kveða að orði, að þar 1 sveit sé meiri og minni kláði nálega á hverj- um bæ. 'Vér höfum eigi fyllilega áreiðanlegar fregnir úr Grafníngnum, en þeir úr nágrannasveit- unum segja, að þar í Grafníngi muni hafa borið næsta lítið á kláða í haust og sjálfsagt miklu minna en við hefði mátt búast. I þíngvallasveitarréttun- um kom engi kláðakind frain hvorki innsveitis né úr öðrum sveitum fjær eða nær. En þeir í þíng- vallasveit heimtu úr Grimsnes réttum nál. 80 fjár, og af því þar komu fram samtals 4 kindr inn- sveitis með kláðavotti, þá hleyptu þíngvallasveitar- menn engri kind sinni af þeim, er úr Grímsnesi heimtust, sainan við heimafé sitt, heldr tóku þeir sumt af því samstundis og skáru, en liitt ailt ráku þeir af stað degi síðar híngað suðr og seldu hverja kind til skurðar, og fór þó fjærri að neinn vottr sæist í neinni þeirri kind. Hinn eini kláðavottrer fanst í öllu fé Grímsnesmanna, var í þeim 4 kind- um er fyr var getið og komu þær nú fram í fjall- fénu, en heimaféð reyndist allt alheilt. þar í sveit var þó kláðinn magnaðr á samtals 6 hinum fjár- ríkustu bæum, frá því um útmánuði, og fram undir messur á 2 bæunum er hans varð síðast vart í vor, en það var að Ásgarði og Gölt, og voru ein- mitt þær 4 kindrnar, er nú fundust með vott, frá þessum 2 bæum, 2 frá hvorum; en engi kind kom fram kláðug frá hinum 4 bæunum, þar sem kláðans varð fyrst vart á útmánuðnnum í vetr, og því síðr frá neinum þeirra bæanna þar sem aldrei varð vart við sýkina. Nál. 70 fjár hafði sloppið í sumar uppyfir Brúará neðan úr Grímsnesi, og komu þær nú frarn í Biskupstungnaréttum, og voru ná- kvæmlega ransakaðar, en engi voltr sást í neinni þeirra. — í Alosfellssveit og Seltjarnarneshr. og Kjalarnesi fyrir sunnan Kollafjörð hafa eigi komið fram fleiri né aðrar kindr sjúkar eða grunsamar, heldren þær. 3 sem fyr var getið, sín úr hverjum h‘ePP' flú. — það er nú orðið héraðsfleygt, þóað dult ætti að fara með fyrsta, að nokkrir bændr um Ásana, Blöndudal, Lángadal, Svartárdal og Svínadal í Húnavatnssýslu gengu næstl. vetr í félagskap um að reyna að vinna Englendínga til að fara híngað á gufuskipi nú á þessu hausti til að kaupa að þeim skurðarsauði á vefii og flytja lifandi til Eng- lands. Félagþetta leitaði þá á kand. Eirík Magn- ússon, sem hefir verið erlendis um nokkur ár: um þýzkaland og Frakkland en mest England, til milligaungu af þeirra hendi við Englendínga um sauðaverzlun þessa, og vanst það svo fyrst, að verslunarhús nokkurt í Lundúnum gaf sig fram til að gánga í kaupin, hét að senda gufuskip á Sauð- árkrók, um 20. þ. mán., taka þar við lOOO skurð- arsauðum, og borga hvern sauð með aldri og í lagi með 13—14 rd., en eigi með peníngum út í hönd, heldr með ávísunum og vixlbrefum með 2 — 3 mánaða fyrirvara eðr gjaldfresti, frá því er skipið legði héðan með skurðarféð. En er þessi boð komu fyrir Húnvetnínga, fundust þeim svo feld viðskipti fremr óaðgengileg og viðsjál, og kváðust mundu því að eins láta sauði sína, að hönd seldi hendi um borgun, en þeir mundu láta sauði í lagi á 11 —12 rd. eptir værdeik, gegn borg- un útí hönd. f>egar Eirikr Magnússon kand. hafði tjáð kaupanautum sínum á Englandi af þessum skilyrðum Ilúnvetnínga, vildu þeir og gánga að þessu, og lastréðist þá jafnframt, að gufuskipið skyldi vera komið á Sauðárkrók 20. þ. mán., skyldu þá Húnvetníngar hafa svo til taks sínalOOO sauði þar á staðnum, að þeim yrði útskipað á 2 hinum næstu dögum (21. og 22. þ. mán.). Hún- vetníngar áttu að útvega Englendíngum hey handa fénu heim í leið til Englands og hafa á reiðum höndum þar á Sauðárkrók fyrir sérskilda borgun. Gufuskip þetta var ókomið á Sauðárkrók 23. þ. mán. í annan stað liafði Porhikr Johnson (Ólnfs- sonar prófasts frá Stað á Reykjanesi, er hefir verið 169 —

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.