Þjóðólfur - 18.03.1872, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 18.03.1872, Blaðsíða 3
75 fiá ósamkvæmni sem er í hugsunum meirihlut- ans, því ef minnihlutinn og hinir konungkjörnu eru svo skynsamir menn, að stjórnin álítr það svo gullvægt, sem þeir leggja til málanna, að hún fari eptir því, því fer þá ekki meirihlutinn eptir tillög- um þeirra ? En þar að auk sýnir reynslan, að stjórnin fer ekki eptir öðru en því, sem hún álítr skynsamlegast eða sem hún getr komið við eða hénni þykir eiga við. þannig hafa allir þingmenn eins konungkjörnir sem þjóðkjörnir lagzt á eilt með að fá sem mest fjártillag frá Danmörku og sjálfr konungsfulltrúinn stutt að því; en allt fyrir það hefir það ekki fengizt í fyllsta mæli. Og þannig mælti færa til mörg fieiri dæmi. Nei, meirihluti þingsins getr því alls ekki klínt því á minnihlut- ann, að vér höfum enn ekki fengið stjórnarbót eða fjárforráð, heldr hlýtr hann að kenna það sjálfum sér, og bera af því fulla ábyrgð fyrir öldum og óbornum. Hann hefir heimtað of mikið, og því ekki fengið neitt, og það sem lakast er, hann hefir komið því til leiðar, að nú eru ekki líkindi til að stjórnin bjóði oss sömu kosti og áðr eptir að fjárhagr vor er að skilinn, og hún ekki þarf lengr að þrefa um hann við Itíkisþing Dana. J>ú segir í bréfi þínu, að meirihlutinn liafi farið eptir þjóðviljanum. En getr þetta verið full alvara þín, sem þekkir svo vel til, hvernig öllu til hagar hér á landi; því hvað er þjóðvili í þessu efni og hvaðan sprettr hann? Mér er svo vel til herra Jóns Sigurðssonar og eg virði svo mikils hans góðu eiginlegleika og mörgu mannkosti að mér er þvert um geð að þurfa að nefna hann í þessu máli, en eg kemst þó ekki hjá því úr því Þú talar um þjóðviljann, því það má óhætt full- yrða, að þessi þjóðvill er sprottinn frá lionum rétt eins og «Adamser eðli runnið í vort náttúr- 'egthold». l’rá herra Jóni Sigurðssyni sprettr þessi erfðasynd; hann gætir þess ekki með allri sinni föð- úrlands ást, að frelsistréð getr líka borið banvæn- an ávöxt og að frelsið, sé þvf ranglega framfylgt, getr bæði lcilt til sjálfræðis og ófrelsis. þessi vili herra Jóns Sigurðssonar getr nú heitið þjóðvili að Því leyti scm hann birlist í vilja meirahluta þings- ins og fiestir þingmenn úr meirihlutanum koma með bænarskrár til þingsins úr kjördæmum sínum, sem stefna í sömu átt og sem eiga að sanna, að Þetta se þjóðvilinn, en sem flestar eða jafnvel allar eru svo nndir komnar, að annaðhvort þing- menn sjálfir, eða einhverir einstakir menn hafa ffengizt fyrir því í sveitunum, að þær væri samdar °g undirskrifaðar af bændum hvar af fæstir skilja stjórnarbótarmálið til hlítar, en rita nöfn sín undir til að gjöra sig ekki fráleita öðrum. |>etta er kunnugra en frá þurfi að segja, og þarf ekki frekari sönnunar við. f>að er nógsam- lega sannað af reynslunni, að einstakir framtak- samir menn í sveitunum geta fengið alþýðu til að fallast á skoðanir sínar í alþingismálefnum. Eg skal að eins til færa eitt dæmi upp á þetta. Mun það ekki vera fyrir fortölur einstakra manna, að herra Jón Guðmundsson var bolaðr frá þingsetu í Vestr-Skaptafellssyslu? annars væri það óskiljan- legthvernin þetta hefir atvikazt, þar sem Jón Guð- mundsson ekki einungis hafði unnið sér álit sem forseti og varaforseti Alþingis, heldr um svo lang- an tíma verið þingmaðr Skaptfellinga og framfylgt svo rækilega rétti þeirra og hagsmunum bæði inn- an og utanþings. Hefði því allt farið með feldi, mátti ætla, að kjósendr hans bæri hið mesta traust til hans. En hvað skeðr? þeir fleigja honum frá sér eins og einhverri ræflatusku og velja í hans stað ungan og óreyndan mann. í bréfi þínu segir þú, að prestarnir á Alþingi sé einna fremstir í flokki þeirra sem gjöra miklar kröfur til stjórnarinnar og þannig hafi það verið í stjórnarbótarmálinu. f>etta segir þú því til sönn- unar, að uppástungur meirihlutans sé samkvæmar þjóðviljanum, þar sem prestarnir hljóti að vera kunnugir hugsunarhætti alþýðu. En bæði er það, að allir þingprestarnir hafa eigi fylgt meiri hlut- anum í þessu máli, og líka er það auðskilið, hvernig sumir þeirra hafa ieiðst til að fylgja oddvitum meirihlutans. Hvorki er það líklegt, að prestar yfir höfuð að tala hafi skýra og greinilega þekk- ingu á stjórnarmálefnum, þareð mentun þeirra fer í allt aðra átt, og líka þarf mikið þrek til þess að ganga móti jafnstríðum straumi og miklu lík- legra að þeir, sem í svo mörgum greinum eru uppá alþýðuna komnir, láti fremr hnegjast að því sem þeim er sagt að sö alþýðuvili, en að hinn, sem þeir eru hræddir um að kunni að verða ó- vinsælt. Loksins segir þú í bréfi þínu, að þig furði á þvf, að biskupinn skuli eigi hafa meiri hemil á alþingisprestunum en hann gjörir. f>etta virðist mér nú vera ósamkvæmni hjá þér, þar sem mér sýnist, að þú haldir með meirihlutanum, en átelr þó biskupinn fyrir það, að hann skuli eigi hafa fengið alþingisprestana til að ganga úr þeim flokki. Að öðru leyti get eg ekki svarað þér upp á þetta, nema hvað eg ímynda mér, að biskupinn skoði prestana á Alþingi sem þingmenn, en eigi sem

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.