Þjóðólfur - 18.03.1872, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 18.03.1872, Blaðsíða 4
— 76 — presta, og að hann álíti sér því ekkí skyll að hafa meiri áhrif á skoðanir þeirra þar, en annara þing- manna. f»araðauk mundi þetta eigi vera hægðar- ieikr, þareð hann í stjórnarbótarmálinu fylgir þeirri stefnu, sem þú kallar óvinsæla hjá almenningi, en sem mér virðist lúta að því, að miðla málum milli stjórnarinnar og íslendinga, eptir því sem kring- umslæðurnar leyfa.-------— — — LTLENDAR FRÉTTIR (Úr bréfl dags. Oxford 28. Febr. 1872, frá frettaritaia vorura meistara G u í> b r. V i g f ú s s s y n i). Góði vin. J>etta bréf kemr til yðar með vorfuglunum, cf það ekki kemr um seinan, en fyr gat það ekki komizt, meðan vetrinn var í hönd. Alian ársins hring eru samgöngur héðan frá þessu landi að hverjn bygðu bóli undir sóíunni nema að íslandi einu, menn fara og koma, bera fréttir fram og aptr, í austr og vestr og suðr, jafnt um skamm- degið sem hvern annan tíma árs, yfir höf miklu breiðari en það, sem skilr ísland. Við íslenzkir erum einir gjörðir afskipta; á haustin er kyppt bryggjum, og reginhaf á milli, og veröldinni skipt í tvo óltka heima, svo hvorugr veit af öðr- um að segja. þeirri fyrstu ferð á vorin tökum við því með hálfum huga, tilhlökkun en þó kvíð- boga, því mörgu viðrar á fjórum vetrarmánuðum og hverir lifa eðr hverir eru dánir, veit ham- ingjan ein. Eg hefi nú ísland fyrir augum í snjó og vetrarfeldi, hvítt milli fjalls og fjöru; hér hefir verið öðru nær, og varla getað heitið vetr — sí- feldar rigningar, þokur og úrkomur, en varla sézl livít jörð, og þjður á hverjum degi, nema fáa daga á jólaföstunni, sem fraus að mun. Hér í Oxforð hefir allt ílóð í vatni. Áin Isis flytr hér yfir á vetrna, yfir fitjarnar báða vegu, svo hér er fjörðr yfir að líta. þetta kalla menn hér «flóð» (tlie floods). þenna vetr eptir nýárið um þorra- leytið hafa flóðin verið hér geysihá, hærri en nokkru sinni síðan 1852, svo fleyta liefir mátt bátum um allt; trén standa upp úr í reitum, og stöku grandar hér og hvar; þegar á landið kemr, er leir og aur nóg, því hér eru vegir gjörðir af límsteini, sem blotnar eins og deigulmór og ökv- ast við fælrna. J>etta veðráttufar hefir ekki verið heilnæmt, og því verið venju framar krankfellt, bæði hér og viðar. Ilér hefir í sumar er leið og síðan í allan velr gengið bólusótí; en lakari hefir verið thiphoid-sótt (taugaveiki), sem gengið hefir þung og hættuleg, og margir lagzt. Fyrst skal frægan telja, Prinzinn af Wales, sem lagðist í Nóvember snemma og lá mjög hætt og lengi, mállaus, þangað til bráði af um miðjan Desem- ber. |>ann 14. þann mánuð var jafnlengd að Prinz Albert dó fyrir réttum níu árum; Prinzinn af Wales lá þá dauðvona, milli heims og helju; en þann sama dag bráði fyrst lítið af til betra, svo þessi dagr, í stað þess að verða tvöfaldr sorgardagr, varð nú aptr á móti gleðidagr drottn- ingunni hér og Prinsessunni af Wales. í gær var haldinn almentir bænadagr (þakkarhátíð) og drottningin fór sjálf til að hlýða bænagjörð í Pálskirkju í London, og Prinzinn af Wales og Prinsessa voru þar, og er við að búast, að heyra þar um langar sögur í þessa dags blöðum, sem eg enn ekki hefi séð. Droltningunni hefir enn ekki brugðizt sín veðrsæld, því á rnanudaginn var hregg og «rota» «ósvást» veðr, svo engu kvik- indi var úli vært; en þá reis glasið, og i allan gærdag var hreinviðr hér í Oxforð, nokkuð svalt, en regnlaust að ofan, sem er mesta mildi fyrir þann mikla múg, sem í London hefir verið sam- kominn að sjá drottningarinnar innreið eptirendi- löngum stærstu strætum þeirrar borgar, frá kirkju og til. Ilér í Oxforð var messugjörð í dóm kirkj- unni, söngr og bænalestr, en ekki var stigið í stólinn; lesinn kafli úr ritningunni, eins og vandi er til á helgum dögum (ekki þó endrskoðaðr), og að öllu farið vel og skipulega; nokkur flögg á húsum, skotleikr í gærkveldi, en engin önnur gleði né tíðabrigði, og nú í dag er allt sem fyrr, og engin nýsmíði á neinu; þetta sem enn erkom- ið, eru því allt góðar fréttir, sem Guði er þakk- andi. Um annað fer eg fáum orðum, enda munu aðrir verða til að skrifa yðr það betr, og er mér því betra að þegja, heldr en að segja, svo tvísagt verði það sama mál. Frá Indíum hafa komið vondar fregnir. Enskir hafa þar mikið ríki, auðsælt ríki, annar fótr þessa lands, en sú hagsæld verðr einatt dýrkeypt, því margir beztu menn fara þangað til að deyja, eða láta þar heilsu sina, og koma svo aptr, að þeir ekki síðan taka á heilum manni; en morð hafa verið sjaldgæf, en nú bætist það á ofan. í Indí- um ægir saman mörgum þjóðum sundrleitum, ein hönd á móti annari. Fyrir skemstu hefir hafizt þar flokkr, eiðsvarar, sem kallast «Wahabus», eða svo kalla þeir þá hér, af Mahómetstrú; «Skugga- sveinar» mætti þeir á íslenzku kallast; þeirra kredda er liefnd og dauði á þeim útlendu drottn- um landsins, og byrja þeir á höfði, en ekki fót- 1

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.