Þjóðólfur - 12.08.1874, Síða 3

Þjóðólfur - 12.08.1874, Síða 3
blessunar. Lifi hin islenzka þjóð! Lifi ísland!» Voru þá endurnýuð fagnaðar-óp til konungs. Séra Matthías Joehutnsson mælti nokkrum Orðum fyrir minni Noregs: «0vað hétum vér áðr en vér nefndumst íslendingar? Vér hétum Norð- tnenn. Frá Noregi er ættstofn vor og uppruni. Fyrir 1000 árum steig norðmaðrinn Ingólfr Arn- orson i land á þeirri strönd, er vér nú stöndum á — Ingólfr með ægishjálm göfuglyndis og guðs- ótta; Hjörleifr með ægishjálmi hreystinnar, og Helga, syslir Ingólfs, með ástarinnar ægishjálmi. Frá Noregi kom þjóðkraptr vor, og ( jálsu sam- handi við Noreg óx hann og efldist, og meðan frelsisins jafnvægi hélzt milli landanna, viðhélzt og blessaðist blóðskyldan og bar hina fegurstu ávexti. En óðar en þetta jafnvægi raskaðist, óðar en sam- band landanna tók að losna, verða ófrjálsara og ónáttúrlegra, óðar tók þjóðkraptr vor að hnvga, og þegar vér höl'ðum minst viðskifti við Noreg, vorum vér minstir í þjóðlegum skilningi. Vér óskum því af öllu hjarta, að nýir tímar megi vekja nýtt líf og frelsi i viðskiftum og fóstbræðralagi þeirra landa, sem eru sköpuð iivort öðru til hjálpar og hlessuaar. Lifi Noregr!» Kandidat Holfsen frá Noregi, talaði því næst langt erindi og snjult. «Eins og bóndinn á Borg, sem tók legstein Kjartans Ólafssonar, og hefði haft í smiðjuafl sinn, ef hinn reiðulegi svipr heij- onnar hefði ekki birtzt honum í tíma og ónýtt hans óheillaráð, eins hættir nú hinum eljanlausu bynslóðum vorra tíma við að leggja glópshönd á 8amlar menjar, og niðr-troða fornar leifar feðra ainna. Þelta hafa íslendingar ekki gjört: 1‘eir bafa varðveitt sögunnar helgidóma, geymt anda hins foraa Norðrheims, og einkum Noregs sjálfs. Islandi á Noregr það að þakka, að það á sögu — hún er stórvirki Snorra — en án sögu getr engin Þjóð lifað, hvað margar verksmiðjur og hvað ^arga peninga, sem hún á. Menn hafa kaliað ís- *and dóttur Noregs; sé svo, má Noregr ekki láta gár nægja fortíð íslands, því framtið barns sins hggr hverri móður á hjarta. En á hvaða raddir a Þá að hlusta? Ilvaða andar eiga þá að snúa hótim ( fögr engi, töfra málm og kol út úr klett- Utn5 kenna íslendingum að ausa upp auðæfi sjáv- aims? þag á andi forfeðranna að gjöra. Af þeim LMga íslendingar að læra, bæði hvað þeir eiga að gjöra, og ekki að gjöra, því feðurnir sýna oss Jafnt þá kostl og þá ókosti, sem drottna i þjóð '0rri' Gunnar lalar enn hátt úr haugi síntim — a'ar li| allra Norðrlanda. «Nóltin líður, nú fer að morgna», stendr í yðar Noregs minni ( dag — verði hin nýa tíð hvetjandi morgunstund, vekjandi unga og ferska þjóðkrafta til blessunarríkrar á- reynslu». Jón rektor Porhelsson mælti fyrir minni Svía. «Einnig frá Svíþjóð hafa göfugir gestir heimsótt oss. Enda var sú tíð, er Svíar og íslendingar töluðu sömu tungu, þá er íslendingar voru hirð- skáld sænskra konunga og höfðingja. Snorri kom sjálfr til Svíþjóðar og safnaði þar efni til þeirrar bókar, er byrjar á Ynglingatali, hinnar göfgustu konungaæltar á Norðrlöndum. Samband vort féll að vísu f gleymsku, en það slitnaði þó aldrei, Á 17. og 18. öld tóku sænskir fræðimenn að þýða og prenta sögur vorar. Karl 12. hinn frægi hetju- konungr Svíanna, skemmti sér við íslenzkar sög- ur, þá er hann lá sjúkur við Pullava. Og á hinn bóginn hafa þjóðmæringar Svía og afreksvcrk þeirra vakið og viðhaldið náskildan hug í hjört- um vorrar þjóðar». Að endingu óskaði ræðumaðr, að bóklegt samband vort og Svíaríkis mælti við- haldast, aukast og eílast, og þakkaði ( þjóðarinnar nafni hinurn sænsku gestum fyrirhingaðkomu þeirra. Hinn sænski Admíráll Lagerhrantz, steig þá í stólin fyrir hönd Svía; sagði, að sinn herra, Óskar Kgr. 2., hefði sent herskip hingað vegna þjóðhátíðarinnar, og vildi með því votta, ekki ein- ungis alúð sína, heldr og allrar þjóðar sinnar. þjóðir Norðrlanda eru samhuga hjörtum sinna konunga; «og sú konungs ást», kvað hann, «birtist að mér finnst í dag, eins og væri hún arfr frá íslandi. Eirihr Magnússon frá Gambridge, hélt því næst langa og snjalla tölu á ensku máli lil gesta vorra frá Amiriku. Meðal annaas sagði hann, að Amiríkufundr íslendinga hefði að vísu ekki byggt landið, en þó orðið leiðarljós og lífskveikja Kol- umbusar, er fyrstr hóf að byggja þessi undra-lönd. Hann kvað Amerikumenn sviplíka fornu íslending- um : hvorir tveggja hefðu yfirgefið öðul og leitað frelsi og frægð að fóstrjörð fyrir handan viðan ver; hvorrirtveggja hefðu verið frumherjar og fyrirmyndir öðrum þjóðum, með framförum og frístjórn; hvorir- tveggju hefðu verið forvígisheljur frelsisins. f>eg- ar hann lauk sínu máli, stígr skáldið Taylor frá Ameríku í ræðustólinn, og mælti á nokkurskonar dönsk-norsku máli fá, en mjög heppileg orð, óskaði heilla og heiðrs yfir ísland og alla hina norrœnu þjóð. Var að sjá sem einingarhug- mynd Norðrlanda, stæði Ijósast fyrir augum þess manns, sem lengst var aðkominn.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.