Þjóðólfur - 12.08.1874, Side 4

Þjóðólfur - 12.08.1874, Side 4
— 178 — Helgi Helgasen mælti nokkrum sæmiiegum kveðjuorðum til bins nvja ráðgjafa (slands, herra Kleins. Eáðherrann sjálfr sleig þá f stólinn og mælti ekki fáum skörulegum og hjartanlegum orð- um, þakkaði fyrir vinsamlegar viðtökur, og kvaðst skoða það eins og góðan fyrirboða að hann var staddr hér í iandinu sjálfu fyrsta dag embættis- stöðu sinnar sem ráðgjafi (slands. Kvaðst hann glöggt finna til þeirrar miklu ábyrgðar er hvfldi honum á herðum, en hann reiddi sig einmitt á landsmenn sjálfa, að þeir yrðu sinn styrkr og stoð til að vinna að sönnum framförurn landsins, hann reiddi sig á, að hann og þeir mundu nálgast æ betr og betr hver annan, og hvað rangt og ó- skynsamlegt að ætla, að hann ekki myndi leita við að starfa í sem bezlri eining við þing og þjóð, þvf undir samiyndinu væri velferðin komin. Hann óskaði því af hjarta alþingi lil lukku og blessunar. Loksins mælti Gísli kennari Magnússon fyrir minni kvenna, og var ræða hans all-skörugleg og klassisk. Hann benti einkum á konunnar fegurð og friðþœgjandi áhrif í hverri hennar stöðu og á öllum hennar aldri. Seinast var allra gestanna minnst með kvæði, og eptir að menn höfðu dansað eða skemt sér um hríð á annan hátt, var fundinum lokið. — 2. dag Ágústmán. skipaði konungr vor herray KLEIN, ráðherra yfir (sland. — ( því skyni að færa lesendum vorum skýrslu- korn um dvöl og athafnir vors elskulega konungs, skulum vér taka þar til er vér áðr hurfum frá, er hans hátign var seztr að hjá oss hið fyrsta kvöld eptir komu sina. Verðum vér að taka sumt eftir Víkverja, þareð vér höfðum nokkurn annan slarfa með höndum þennan tíma, en að hnýsast eptir öllu sem fram fór. Alla þá daga, sem konungr hefir dvalið hér í Rvík, hefir hann haft íslenzka menn í miðdagsboði sínu, og er það fjöldi manna, sem hafa notið þeirrar sæmdar. Borðsalr konungs var stóri svefn- salrinn f skólahúsinu; höfðu konungsmenn tjaldað hann, sem höll, og búið alian fánum og vopna- og skjaldarmerkjum. Konungr sat á stóli (ekki liásæti) fyrir miðju borði að sunnanverðu, og sonr hans, hinn snotri og ástúðlegi prins Valdimar, til hægri handar, en öndvert konungi sat stallari hans, Holten ofursti. Stallarinn heOr alla umsjón á hendi við gestaboð konungs, ferðalög, hirðsiði og allskonar erindarekstr; hann skipar höfðingjum tii sætis, að því leyti, sem menn eru ekki látnir kjósa þau sjálfir. Við gestaboð konunga er við- hafðr hljóðfærasláttr og hvenær sem konungr kemr fram opinberlega, boðar stallarinn komu hans, og síðan kveða lúðrar við eða leikspil. Engin á- varpar konung (eða stórhöfðingja) nema hann á- varpi að fyrrabragði, eða með fengnu leyfl. Allr borðbúnaðr konungs er úr silfri, eða gulli, og ekki skortir lipra frammistöðu af hálfu veizlusveina kon- ungs. Miði liggr hjá hvers manns diski, og sýnir gestum rétti þá er fram eiga að befast, í réttri röð, svo og hvert vín skuli drekka með hverjum mat. Sé manni drukkið til, drekka menn helzt sama vín f móti. Konungr stendr fyrslr upp frá borði, en síðan gestir hans; geta menn þá skemt sér með samræðum eins og menn vilja, uns boðs- tíminn er úti. Öllum ber saman um það, að höfð- ingjar þeir er með konungi voru, hafi verið sam- valdir að Ijúfmennsku og lítilæti, einkum á ofursti Holten, þakkir og viðrkenningu að oss fyrir sfna frammistöðu og framgöngu við æðri menn og lægri, er eitthvað áttu við konung að skifta. Kom hann fram sem tilgerðarlaus en hjartanlegr maðr, svo ekkert varð að vandræðum. Óttuðust sumir að konungsmenn mundu sýna vandfýsni nokkra, en sú vandfýsni kom síðr en ekki fram. Hafa konungsmenn keppst við að hrósa viðtökunum, dugnaði fylgdarmanna, röskleik hestanna og allri frammistöðunni. Enda ætlum vér, að yíir höfuð hafi a 111 heppnast vonum fremr. (Framh. síðar). Ávarp (slendinga til konungs á l’ingvöllum. Herra konungr! Á þessum fræga, fomhelga stað þjóöar vorrar, bjóðum vér, fulltrúa hinnar íslenzku þjóðar, Yðar Hátign velkomna, að lOOOára afmælishátíð vorri, vér óskum að koma Yðar Hátignar til lands vors, verði Yðr gleðirík; lifi nafn Yðar Ilátignar i blessunarrlkri endrminningu alinna og óborinna íslands sona. pað er I sjálfu sér næg ástæða, til þess hjartanlega að fagna Yðar Hátign, að þér eruð sá fyrsti konungr vor, semiþau 1000ár, erland þetta hefir verið byggt, sækiross heim og í samfélagi við oss einmitt haldið þá hátíð, sem er i minningu um það, að forfeðr vorir fyrir 1000 árum, flýðu undan einokun harðstjórnar-konungs. í lOOOárhöf- um vér alið aldr hér við ýms örlög á þessu hrjóstuga, haf- girða landi. — Eftir 1000 ár erum vér fyrir Guðs miklu náð komnir fram á þennan dag, gegnum þrautir og mann- raunir, og lof sé drottni, að líf þessarar þjóðar þróast enn, að í brjósti hennar býr enn óbcygðr hugr, og a ð i hjarta hennar felast enn þá leifar af inu forna þreki og þoli. Herra konungr! Um leið og hugr vor dvelr við þunga endrminningu næstliðinna alda, rcnnum vér vonaraugum fram á skei® ókominna tíma, og erum hér komnir í nafni þjóðar vorrar til að tjá Yðar Hátign í þegnlcgu trausti og með þeg®' legri djörfung, að kraptar þessarar þjóðar eru þegar vakn'

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.