Þjóðólfur


Þjóðólfur - 15.02.1875, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 15.02.1875, Qupperneq 2
40 lungnaveiki. Bráðapestin heitir ólæknandi eptir það að veikin er orðin svo mögnuð í skepnunni að á henni sjer. En lækna má veikina, þótt stíflur sjeu farnar að myndast í lakan- um, og varna má því, að stíflur þessar myndist, og sjálf- sagt því, að veikin valdi stórtjóni. Sem varnarmeðöl gegn pestinní tel jeg: hýsingu á fjenu snemma að haustinu, hollt fóður og lagarmikið, nægilegt vatn; en ekkl of mikið, sjeu stíflur farnar að koma í lakann, nákvæma meðferð á fjenu og góða húsavist, og öll þau meðöl, sem eru hentug lil að leysa upp stíflur í innýflnm, og til að þynna og kæla blóðið. Nú leyfi jeg mjer að skora á þá herra, dýralæknir Snorra Jónsson og dr. J. Hjaltalín, og á hvern þann góðan og greindan mann, sem gefið hefur bráðapestinni nákvæman gaum, að hrekja með ástæðum þessa skoðun mína eða fallast á hana með á- stæðum, og gjöra þetta mikilsvarðandi mál að blaðamáli, svo að það bæði geti skýrst og rannsókn þess orðið kunn. Jeg hefl að visu í smíðum ritgjörð á ný um bráðapeslina, en jeg held henni heima að sinni, og vil fyrst sjá, hvernig þessari áskorun minni reiðir af. Breiðabólstað, 15. jan. 1875. G. Einarsson. Svar til „Nokkurra kaupenda „J»jóðólfs“. (Sjá Norðanf. 14. 3.—4.) Mínir kæru, «nokkru kaupendur Þjóðólfs» og pólití-kusar! Af því þið segist vera kaupendur Þjóðólfs, skal jeg sýna ykkur þá kurteisi að svara ykkur fáum orðum. En annars eigið þið það ekki betur en svo skilið, þvi hvorki reiðið þið kurteisina nje vitið í þverbakspokunum. Fyrst vænið þið mig bæði heimsku og óvöndunar í «pólitík» minni, og síðann sannið þið hvorttveggja eins ogmjög slakir, norðlenzkir pól-lí-ti-lcusar. í>ið segiðaðjeg knjesetji Jón Sigursson (t grein minDÍ nm Andvara). Það er ekki salt; hann er mjer vissulega of stór og of gamall knjesetningur, en eigi Jón ginningarfífl, t. a. m. ykkur, þá skal jeg knjesetja ykkur strax : þið segið að jeg "flensi við ritgjörð Jóns, eins og kisa kringum heitan mat», þetta er bull, því auk þess að Andvari er eiginlega enginn heitur matur, heldur, eins og sjálft nafnið segir til, sæmilega svalur, þá mun eng- inn maður með rjettri greind finna hálfvelgju I orðttm mínum, en miklu fremnr hitt, að jeg á botninum ber djúpa virðingu og gamla elsku til Jóns Sigurðssonar, sem aptraði mjer að sinni frá að segja meira en það, sern mjer fannst sá heimta, sem meiri er en Jón Sigurðsson og allir hans merkismenn, vtkingar, berserkir, skraffinnar og pólítí-kusar til samans tekn- ir. Jeg meina sannleikanri, að því leyti sem samvizka mín og sannfæring, vit og reynsla kennir mjer hann. 1*00 er enn fremur bull, er þið berið mjer á brýn fagurgala við nefndan merkismann, á Þingvallafundinum. Ef þið hafið verið þar, þá munið þið líklega að herra J. S. eins og jeg, vorum þá i þeim minni hluta, sem stilla vildi kröfur þeirra, sem börðu fram Persónal-Uniónina, Vetó-ið o. s. frv. Og hafi jeg talað þá fagurt til J. S., þá átti hann það skilið, og njóti hann þess vel. fá þótti mjer hann, eins og optlega fyrrum, ágætur. þ. á. m. minnir mig að jeg talaði lítinn fagurgala við ykkar líka, eða J. Sigurðssonar yztu vinstri menn. En þetta munið þið ekki nú, sem ekki er von, — «botninn er suður í Borgarfirði», ykkar höfuð er úti I Khöfn. Svo farið þið að botnvellta því sem jeg segi um Ríkisþing Dana. þið viljið láta skiljast að jeg hafi reiknað 12 á móti 60 eins og = 1 á móti 2, enjeg sagði að hinir 12 konungkjörnu ásamt öllum hinum sjálfkjörnu ríkismönnum, gætu ráðið atkvæðagreiðslu þingsins, efsvovildi til. Rekið þið þetta pólítíkusar! Loks farið þið að tala um Vinstrimenn Dana og Rósenberg, — og þá kaslar tólfunum ! 0 sancta simplicitasl 0 tremenda imolenlia1! Ilver hefur sagt ykkur þá vileysu að Dr. Rosenberg, — hinn ramasti and- vígismaður flokksins — sje Vinstrimaður? Vitið þið ekki svo mikið, pólítí-kusarnir, að Rósenb. hefur haldið út Vikublaði sfðan í fyrra á mdti þeim? Og hver hefur fyilt ykkur þeirri ósvífni að segja, «að stefna vinnstri manna sje almennt álitin hin rjettasta og hollasta fyrir Danmörku? Hvað vilja slíkir menn «þvaðra» við lýðinn, sem bersýnilega ekki vita hið allra- minnsta um núverandi pólítík í Danmörku? Sem kaupendur mfna, skal jeg fræða ykkur á þvf, að sárfáir npplýstra manna 1) Maður notar latínu til pess að fá ekki svartan blett á tunguna. töldust eptir í þessum flokki í haust þegar sfðast frjettist, eptir því sem Dr. Rosenberg sjálfur skrifaði mjer; og eptirþví sem hver heilvita maður sjer af blöðum Dana, er ekki nema tvennt til : annaðhvort verðnr þessi æðsti bændaflokkur yfirstígin inn- an skamms, eða þá að Grundvallarlög Dana, stjórnarskipun, og ef til vill ríkið allt, er f veði. Að eitthS’að kunni að vera rjett sem flokkur þessi ber fram, neitum vjer ekki, en ekki hef jeg sjeð önnur Ijósari deili á alhöfnum og aðferð hans, en af frelsis-ofsa og flokkadráttar frekju, sem ekkert samkomnlag þýðist og rauninni berst eingöngu um völdin; með öðrum orð- um. l’essi flokkur er auðsjáanlega «harðstjórinn með 100 höfðunum». Og nú lætjeg þetta duga að sinni. Ef þið, min- ir kæru kaupendur! viljið nú gjöra mjer þá þjenustu að kaupa þjóðólf eins eptir sem áður, þá gjörið þið sjerlega vel, og ef þið finnið ástæðu til að hælta að kanpa hann, þá sakna jeg skildinganna, en slór höfuð missir þjóðólfur varla þótt þið farið, enda er ekki örvænt að hann kunni að fá aðra betri pólíti-kusa. Að svo mæltu óska jeg ykkur gleðilegs, nýbvrjaðs, pólí- tisks árs, og vil mega heita ykkur hápólitiskheita reiðubúinn- llitstjóri «Pjáðólfs«. — Dýralæknir Snorri Jónsson hefur sent oss all-Ianga grein móti greininni frá sjera þorkeli á Mosfelli í síðasia <>þjóðólfi'*> og skorað á oss að taka hana í blaðið. Grein þessa viljum vjer ekki taka til þess að æsa ekki til óróa að nauðsynjalausu, því eins og nú stendur á, er bæði einstökum mönnum og al- þýðu sá eini kostur bestur, að tempra sem bezt geðsmuni sfu® til að geta sjeð, skilið og ráðið úr vandrœðunum. Eins og kláðamálið er nú, er ekki nóg að vera ákafur og óvæginn, heldur þarf líka að við hafa ró og stillingn, og stnðla með öllu móti lil samtaka og samkomulags, en til þess að þetta fáist, mega menn 6em minnst á þessu stigi málsins minnasl á fornan fjand- skap — reynslan talar samt — eða æsa upp kapp, ástriður og hleypidóma. Vjer höfum nú hjer að framan bent á þilir skoðanir sem oss þykja liggja beinast við, og ætlum að öðru levti að tala sem fæst um málið, sem valdið getí óróa og niis' skilningi; eins og vjer ekki heldur ætlum oss að forsvara einn flokk gagnvart öðrum, og þá ekki heldur yfirvöldin eða dýralæknir' iun. Kláðamálið ætti að vera búið að kenna oss þann sann- leika, að vjer ölum óvin vorn en sigrum ekki tneðan vjer höf' um þann þór i stafni, sem heitir fjandskapur og fiokkadráttur- það er óeigingjörn sannleiksást, og stillt og viturleg samtök, sem eru þau einu vopn sem bíta — hvað sem menn svo segja — úrþví oss vantar það neyðarúrræði, sem margar þjóðir hafu, en sem Forsjónin hefur hingað til hlíft oss við, og sem kall' ast harðstjórn. Með ósljórn verður enginn óvinur unninn, varla með harðstjórn, en með góðri sjálfstjórn, má vinna meir11 en borgir, með henni má vinna kláðann. En hvað aptur viö- víkur áminnstri grein dýralækriisins. þá til færirhann ýmsar af' sakanir viðvikjandi ákærum sjera þorkels um misheppnaðaf skoðanir sínar og lækningar undanfarin ár I Mosfellssveii' þessar ástæður hans mundu nú þykja meira eða minna full' nægjandi, að minusla kosti yfirboðurum hans, svo sein t. d. el hann sökum veður-forfalla mætti ekki I tæka tíð við skoðanirO' ar i nefndrí sveit veturiun 1872; eins þegar skoðun hans þal næsta ár þótli endaslepp, þvi dýralæknirinn ber það fyró að amtið hafi með skipun til sín að skoða fje á öðrum stöð' um, ollað þvi, að hann ekki skoðaði nema á grunuðu bæjun' um. Hann neitar og að skrifað hafi þá verið »með sjer», heldo1 «til sín», þess efnis, að skoðunarmennirnir hafi sagt af sjel starfa slnum, og frá beðið allar skoðanír að sinni. þessir þvílikir málavextir eru nú fyrir sig, og alls ekki aðalelriið rn sem stendur, með því meiningin erhvorki sú, að kenna dýra lækninum um, að kláðinn lifði, nje heldur að þakka honuO1 að hann varð yfirstiginn I það sinn, úr því að sá kláði, selT þar er nú, er úr öðrum sveitum kominn. En hins vegar oio1 öllum almenningi lengi hafa virzt, að ekki einasta þessí dýra læknir, heldur og einkum yfirvöldin hali opt verið ekki eio asta sljó, heldur og mjög óheppin í þessu máli, og þessu de|l með því l'tla ur oss ekki I hu ö að neita, enda viljum vjer afia sem vjer skrifum, gefa jafnt yfirvöldum og undirgefuum mögulegar upphvatningar til að fram fylgja og lilýða með eal

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.