Þjóðólfur


Þjóðólfur - 04.05.1878, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 04.05.1878, Qupperneq 2
58 Noregs var um nýárið orðinn 106781 og hafði talan aukist síðasta árið um 25000. (Bergensposten). Frn frettnritara Pjóðt'ilfs í Kaupmannahöfn (14. apríl). Síðan póstskipið fór héðan síðast, hefur veðráttufar hér verið mjög milt, og talsverður hiti hina síðustu dagana, og er útlit fyrir, að vorgróði verði með hezta móti. Kornvara hefur vorið mjög dýr í allan vetur, en er nú farin að lækka í verði, bæði sakir þess, að veðráttan hefur hingað til verið svo hagfelld fyrir vetrarsæðið, og svo af því, að nú þykir líta fremur friðvænlega út, enda þótt sú von geti brugðist, þegar minnst varir. Vöruverðið hér í bænum var í fyrra dag þann- ig: hveiti 125 pnd. 10 kr., rúgur 121—2 pnd. 6—7 kr.; bygg 107—9 pnd. 7,50 kr.; hafrar 84—5 pud. 6,50—7 kr.; baun- ir 224 pnd. 16 kr. — 30. dag f. m. var ríkisdeginum slitið. Fjárlögin voru samþykkt, og urðu hægri menn þar ofan á eptir langa deilu. Fjárlögin voru samþykkt að mestu leyti óbreytt eins og þau voru lögð fyrir þingið frá stjórninni. Vin- stri menn höfðu á mörgum fundum í sumar bundið það fast- mælum, að þeir skyldu eigi samþykkja neina fjárveiting á meðan Estrup og hans sinnar sæti að stjórn. En þetta er nú orðið nokkuð á annan veg, því að þegar í haust tók meiri hluti vinstri manna að semja við hægri menn á laun, og var Holstein greifi Ledreborg forsprakki þess flokks. En er þetta varð opinbert, og menn þóltust sjá fyrir, að fjárlögin mundu verða samþykkt, þá sundruðust vinstri menn; Bergur og nokkr- ir er honum fylgðu, tóku sig úr félagi vinstri manna, og mynduðu flokk sér; lýstu þeir því yfir, að þeir mundu eigi leggja samþykki sitt á nein fjárlög, á meðan Estrups ráðandyti, er brotið hefði grundvallarlögin með bráðabyrgðarfjárlögunum í fyrra, sæti að völdum. Síðan þjóðþinginu var slitið, hafa þingmenn haft fundi við kjósendur sína, og þykir það koma víðast í ljós, að öll alþýða er fylgjandi þeim Bergi að máli eins og að undanförnu, enda væri það undarlegt, ef þjóðinni nú allt í einu hefði snúizt hugur, eptir að hún nú í 7 ár hefur barizt fyrir almennum kosningarrétti og íjárveitingavaldi, er stjórnin allt til þessa hefur leitast við að takmarka á allan hátt, og þessi yfirgangur hægri manna hefur einmitt orðið til þess, að vinstri menn hafa risið gegn þeim og hafið þessa bar- áttu. Ititstjóri Morgunblaðsins situr nú í varðhaldi síðan fyrsta apríl, og á að sitja þar 4 mánuði fyrir meiðandi grein um Estrúp. Morgunblaðið er hið eina blað hér í Höfn, er fylgir máli vinstri manna, hefur það jafnan leitast við að halda uppi sjálfræði þjóðarinnar gegn andvígismönnum þess. fykir ritstjórn þessa blaðs einkargóð, enda er það mjög keypt hér í Danmörku. Á fæðingardegi konungs var Estrup Qármálaráðgjafi sæmd- ur fílsorðunni, en Nettemann íslandsráðgjafi var gjörður stór- kross danebrogsorðunnar. — Veðrátta. nflabröífð. Veðrátta má heita góð og hagfeld, þó heldur köld, enda er hafís að hrekjast með landi nyrðra og eystra, en vonandi er að hann festist ekki úr þessu. Vertíð er þegar orðin í betra lagi víðast á suðurlandi, þó er nú hætt að aflast í suður-veiðistöðunum. — Bókmenntafélag’sfiindiir var haldinn 1. sum- ardag. Forseti M. Stephensen, lagði fram ársreikning deild- arinnar, og á hún 1600 kr. í sjóði. Afráðið var að gefa út: sögu siðabólarinnar, samda af sira Þorlteli Bjarnasyni á Reynivöllum. Enn fremur afréð deildin að byrja að gefa út náttúrusöguhepti, frumsamin á Englangi og ágætlega vel hent almenningi, sem svo nauðsynlega þarf slíkra fræðibóka við. Enn var samþykkt, að ítreka heityrði um verðlaun fyrir ís- landssögu, og tiltekið, að verðlaunin skyldu verða 500 kr., en ritlaun að auki, og að handritið skyldi vera búið innan 5 ára, og vera eigi stærra né minna en 10—15 arkir, og ná frá landnámi til nútíma. Minna skyldi og deildina í Khöfn í 3. sinni á að segja já eða nei til um 100 kr. styrk til sira Matth. Jochumssonar til að prenta leik eptir Shakespeare. Loksins var því hreift, hve nauðsynlegt væri, að kraptar deildarinnar hér (aðal-deildarinnar) gætu vaxið að sama skapi, sem héðan verður hægra að koma bókum og bréfum milli félagsmanna en frá Kaupmannahöfn — öfugt við það sem áður átti scr stað. — lBafís, o. fi. Með kaupm. Aug. Thomsen, er inn koffl á póstskipinu, höfum vér frétt, að hafís haíi legið fyrir öllu austurlandi. í þórshöfn lá skonnortan «Sophie», skipst. Lar- sen, sem fór 18. marz frá Khöfn, en sneri frá Eskifirði 15. f-IJ1, J>að hafði haft tal af skonnortskipinu »Floraaf Bandholm» ná- lægt Færeyjum, er var á leið til íslands. «Sophie» hafðiog bitt við ísinn skonnortuna «Harriet», er átti að fara til norður- landsins, en hafði hitt ís 8—lOmílur undan Borgarfjalli; Pa® skip hafði haft tal af 3 skipum — «Alfred», «Manna» °o «Anine», sem norður fyrir ætluðu, en voru snúin við til a^ sigla vestur um landið. Enn fremur lá við ísinn brigg'11 «Hertha», og saltskip frá Liverpool til Seyðisfjarðar. ísinB hafði verið á liarða reki suður eptir út af Eskifirði, og náð1 2—3 mílur frá landinu. Bókmenntir. í «Fædrelandet» frá 29. nóv. f. á- hefur dr. C. Rósenberg getið um nýja þýðingu á Sœmundar- Eddu, sem út kom í fyrra í Stokkhólmi, eptir sænskan snill' ing, sem heitir F. Aug. Gödecke. Rósenberg, sem er alha manna færastur til að dæma um þess konar verk, sogir for- takslaust, að sú þýðing sé hin langbezta, er enn sé til. Full' ar þýðingar Eddu á dönsku eru þrjár: Fiuns Magnússonar (1821 —1823), Fr. Winkel Horns (1869) og H. G. Möllers (1870). og á sænsku þýðing A. A. Afzelíuss frá 1818. Ýmsir hafa þess utan þýtt meira eða minna af hinum 30 kvæðum, seno hin eldri Edda hefur, og má meðal hinna fyrstu nefna þýð' ingar N. F. S. Grundtvigs í hans norrænu goðafræði; I Aars í Noregi út gaf 1864: «Édvalgte norske(t) 01dkvad»; sömul- V. B. Hjurt í Danmörku, og Fr. Hammerichs síðasta verk var fögur og vönduð döusk þýðing á Völuspá («Nordens ældste Digt»). J>að sem Rósenberg lofar Gödeckes þýðingu einkum fyrir, er hve vel fornblæ kvæðanna sé náð jafnt að máli seiö kveðandi, töluvert betur en bezt hefur áður áður tekizt, enda játar hann, að sænskan standi nær íslenzku en hinar mállýzk- urnar, danskan og norskan, og er það alveg satt. Bók þessi kostar 6*/* kr (ódýr en vönduð útgáfa). Annar ritdómur í sama blaði eptir Rósenberg vakti eptir- tekt vora; hann var viðvíkjandi þýðingu ísl. æfintýra eptir Carl Andersen. Ber R. þar saman danskar alþýðusögur og íslenzkar; gjörir hann það þeim mun skarpar og réttar en flestir aðrir ritdómendur erlendis, sem hann þekkir til botns nálega allan vorn fróðleik. Getur hann fyrst hins sama ogfleirihaf* tekið fram, að fátt eða ekki sýnir eins og sannar frændsein1 allra þjóða á norðurlöndum, sem þjóðsögur þeirra, þegar þier eru bornar saman. þ>ó er meiri munur á íslenzkum og dönsk' um þjóðsögum, en dönskum og norskum eða svenskum, og vér höfum gefið sögunum fastast form. Huldufólk vort er líkt hinu danska «Ellefolk», en stendur miklu nær mannheimi en það, því álfa vora «vantar ei nema sjálfa sál» til þess að vera alveg eins og mennskir menn, en danskir álfar eru líkari önd' um, miklu léttara eðlis, og þótt þeir hafi mannlega mynd framan, eru þeir að aptan holir eins og «deigtrog». Tröni11 hjá oss eru og mjög frábrugðin, miklu hrikalegri og þó fastri mannsmynd, optast slysin og heimsk, en ekki ávalt i'* eða meinsöm við menn. Sagnir, sem lifa úr heiðni, segir L- séu aptur fleiri og fyllri í Danmörku, einkum þær, sem OðinS' trúnni bregður fyrir í. Aptur eru okkar draugasögur (&. apturgöngum, uppvakningum, sendingum, snökkum, og,meira af svo góðu) mest frábrugðnar og einkennilegar fyrir íslaöý’ og hinar römmu galdrasögur vorar sýna glöggt og sanna, hvi' líkt sérstaklegt andans þrek vort alþýðufólk hefur haft á þesS dimmasta og auðvirðilegasta tíma. (Framh.). E u r y d i c e. 24. marz varð stórkostlegt og afarsoO?' legt.slys við suðurströnd Englands. Stórt fregátu-skip (l^ tonna) var á heimleið vestan úr Vestur-Indíum með nál. 69 sjóforingjacfni (kadetta) eða 340 manns í allt, og sigldi i»e. öllum seglum í sólbjörtu og góðu veðri. Skipið átti eKK eptir nema hálfa mílu til lands. Horfði íjöldi manna landi á liina fríðu siglingu, því nú er orðin nýlunda, enao * Englandi, að sjá sórt seglskip með fullum seglum. Allt í el skall á el mikið með stormbyl, gjörði og sviplega myrkt «? hvarf þá skipið úr sýn af landi. En liálfum tíma síðar élinu upp, og sást þá hvergi hið fagra skip. Var þegar « að og fundust 5 menn á floti, og dóu 3 þeirra þegar i st

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.