Þjóðólfur


Þjóðólfur - 24.07.1878, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 24.07.1878, Qupperneq 2
90 friðurinn er bundiun við á fundi þessum, eru þessi: hin stóru fylki, Servía og Búlgaría verða gjörð sérstök ríki hvort fyrir sig (furstadæmi); bæði fylkin fá töluverða landsauka. Bosnía og Herzegóvína (vestustu fylkin) skulu falla undir yfirumsjón Austurríkiskeisara, og býzt hann að setja gæzluher í þau Iönd, en eigi er úlkljáð um það mál enn; Montenegro (Svartfelling- ar) fá sjálfsforræði fult og hafnarstaðinn Antivari við Haðríu- ílóa. Fyrir sunnan Balkanfjöll myndast stórt fylki, er hafa skal sjálfsforræði að miklu leyti, en vera háð yfirstjórn Tyrkja; skilst oss sem það fylki eigi að ná yfir Rúmeliu og langt suður í hin forngrísku lönd, Þessalíu og Epírus. En suðurbelming þeirra fylkja fá Grikkir. Er mælt að þeir þykist mjög afskiptir orðið hafa, og að þeim svlði einkum, að þeir eigi fengu eyna Iírít, heldur hafi hún enn verið eptirskilin í höndum hins forna kúgara Grikkja. Af Búlgaríu sneiðist héraðið Dóbrúdsja við Dunármynnið, sem lagt er við Rúmenfu (Valakkíu), sem heldur sjálfsforræði, en missir þann hluta Bessarabíu, sem Rússar mistu 1856, og tóku með herskildi í vor. Aslumegin fá Rúss- ar hafnarstað mikinn og góðan nærri landamærum, Batum við Svartahaf, en eigi var alveg ljóst, hverir kostir voru þar við ákveðnir, því flestum er mjög sárt um að láta lönd og borgir þeim megin falla í hendur Rússum. Nánari friðarkosti milli Rússa og Tyrkja, lætur fundurinn þá sjálfa einráða um. Ná- kvæmari skýrslu um fríðgerð þessa er eigi hægt né vert að birta að svo stöddu. Meðan Beaconsfield sat á fundinum hefir hann utan þings ráðist í stórræði eitt, sem ýmislega mælist fyrir um: hann hefir samið svo fyrir Englands hönd við Tyrki, að enss stjórn skuli framvegis hafa verndarráð yfir ríki Tyrkja í Asíu, og bera ábirgð með þeim fyrir stjórn þeirra þar. J>ar með fylgir eyjan Iíyprus f Grikklandshafi, er verður kast- alastaður Englendinga. — Parísarsýningin stendur í fullum blóma, hafa þó bygg- ingarnar alt til þessa verið ófullbúnar, vænta menn að að- sóknin verði mest í ágústmánuði, en þó befir mannfjöldinn á Marsvellínum engan dag talist færri en 50,000 og alt að 100,000 manna. Af stórmennum, sem þar hafa verið viðstadd- ír, er optast getið þeirra máganna, krónprim vors Friðriks og primins af Wales-, þykja þeir báðir skörulegir menn og hinir liprustu í framgöngu. í hinni miklu oílætisborg er nú geysi- mikið um dýrðir, siórveizlur, heimboð, leikir og hverskonar fagnaður; einkum eru lofaðar kvöldveizlurnar hjá forstjóra sýn- ingarinnar, verzlunar-ráðherranum, og þar næst gildunum hjá Mac Mahon ríkisforseta í hinni fornu gullnu Elysée-hö\\, þar sem Búrbonnar og Napóleónar áttu heimkynni, uns nýir herr- ar með nýum siðum tóku við, og drotnar nú í þeim dýrðar- sölum eintómur lýðveldisbragur, skortir þó hvorki skraut né smekk-fegurð, því að Frakkar þurfa ekki konunga né keisara til þess að kenna sér kurteisi og prýði. Alt er ákaflega dýrt, er kaupa þarf í París, ferfalt og jafnvel tífalt við venju- legt verð, svo að einn dagur er þar jafndýr nú, sem vika var úður, og græða Parlsarbúar geysi-fé á hátiðinni, en þeir eru og kallaðir engu síður atorkumenn og kænir til gróða en gleðimenn og glysvinir. — Keisaranum f Berlín er nú batnaður áverkinn. Dr. No- beling, sá er tilræðið gjörði, skaut sig þegar eptir verkið gegnum höfuðið, oghöfðust af honum engar áreiðanlegarsagn- ir; en hinn mesti aðsúgur vargjörður að sósíalistum, því þeirra miklu æsingum er kent um þetta, sem annað ilt, og var fjöldi manna fángaður. Mælist misjafnt fyrir þvf kappi og harðræði stjórnarinnar og þykir mjög svo eyma af hervaldi og harðstjórn í því ríki, enda er þar óöld mikil, fjárþrot og ör- birgð víðsvegar, opinberir og leynilegir flokkadrættir, og loks svo mikið stríð í trúar- og hugsunarefnum, að ekki eru dæmi til slfks síðan trúnni á Guð var hrundið með lögum á hinni stóru Sturlungaöld Frakka fyrir síðastliðin aldamót. — í Belgíu eru nýorðin ráðherraskipti; stóðu klerkar fyrir stjórninni áðtir, en nú er þeim steypt og framfaramenn komn- ir f þeirra stað, að því er kallað er; beitir sá Frére Orban er forsætið hefir. — Ilin únga og nýgipta drotning Alfons Spánarkonungs er nýlega látin; hún var 18 ára gömul og hét Mercedes. Lfka er dáinn (12. f. m. í París) hinn gamli blindi konúngur Georg, er lengi stjórnaði Hannover, þar til Prússar steyptu honum af stóli og tóku ríki hans 1866. f>eir köstuðu og eign sinni á 16 mill- fónir dala, er hann átti; buðu þeir honum síðan optlega að skila honum því fé ef hann vildi afsala sér erfðarétti til ríkis f Hannover, en hann kvaðst aklrei mundi kaupa af þeim það er hann ætti né samþykkja þeirra ofríkisráð, og skildi svo með þeim. — í Bandaríkjunum hafa enn gengið miklar pólítiskar deil- ur út úr hinni síðustu forsetakosningu; þykir þar fullsannað, að sá fiokkurinn (þjóðvaldsmenn, republicans), sem kusu fla- yes, hafi svikið hina (lýðvaldsflokkinn, democrats) í kosning- unni. þó ætla menn að Hayes muni halda tign sinni, enda er hann sjálfur sýkn í þeirri sök. — t Iífna heldur enn áfram hinu ógurlega húngri, sem staðið hefir hátt á annað ár; ganga þaðan hinar hryggilegstu sögur, og er fullyrt að 5 milljónir manna séu þar dauðar úr húngri. þessi voði geysar í norður-skattlöndum hins mikla keisaraveldis, og er tilefni þess óvenju miklir þurkar, sem eytt hafa nál. öllum jarðargróða, en þar er hvorki verzlun eða iðnaður né nokkur meutun svo teljandi sé, en fólk fjöldamargt. — Úr Danmörku og af norðurlöndum er sem stendur engra tiðinda að geta, sem hér er rúm fyrir. Ný sáluð var frú Sigríður Thorgrfmsen, ekkja Sigurðar sál. Thor- grfmsens fyrrum landfógeta hér ú íslandi. Uún var bróður- dóttir Geirs biskups Vidalíns og kvennval mikið, eins og hún átti kyn til. Hún andaðist nær níræðu. — 3. þ. m. sendu rúmt 20 (slendingar í Khöfn heiðursá- varp landa vorum, hinum nafnfræga kennara fslenzkrar túngu og fornfræði við háskólann f Ifhöfn, dr. Konráði Gíslasyni■ J>ann dag fylti prófessórinn sitt 71 ár. — Landi vor Eiríkur Magnússon, meistari og bókavörður í Cambridge, hefir þýtt á ensku og gefið út í félagi við enskt skáld, er Palmer heitir, safn af Ijóðum eptir Runeberg Finna- skáld; hann tileinkar bókina Óskari Svíakonungi. Eiríkur gaf og út rit f haust um fornt rúna-almanak, er fundist hafði á Finnlandi árið 1866, og þykir allmerkilegt. Nú er hann á ferð austur í Sviþjóð. — í Khöfn var nýlega á ferð Napóleon prins sonur Nap. 3.; von var og þangað á Grant fyr. forseta Bandaríkjanna. Deilur vinstri fiokkanna halda óspart áfram enn í dönskum blöðum. §kipakorna og ferð«afólk. 13. þ. mán. kom gufuskip Mr. Slimons «Qveen» frá Skotlandi og hélt héðan samdægurs til Austfjarða og ætlaði þaðan heim. •— Með því sigldi til Skotlands Gísli skólakennari Magnússon tíl að leita sér lækningar. Skyldi það fiytja ferðamenn, og var sent í þvf skyni að bæta upp hindrun þá, sem leiddi af því, að fyrsta ferð «Gumbrae» brást við norðurlandið. Með Qveen komu: Miss Oswald, sú er ferðaðist hér í hitt eð fyrra, og með henni Lady Cathcarl, hirðmey Victoríu drottningar; þæf eru báðar hinar stórbornustu meyjar; ætla þær norður í land, og er fylgdarmaður þeirra hra Þorgrímur Guðmundsen frá Litla-Hrauni. Með sama skipi komu og 3 stúdentar frá Cam- bridge, sem einnig ætla að dvelja hér og ferðast. Major Mo- ran (sem nefndur er f sfð. bl.) er nu á ferð til Geysis og Ileklu, en nýkomin þaðan aptur eru hin göfugu systkyn, sem dvelja hér f sumar, Thompson ofursti og Miss Thompson — 18- þ. m. kom póstskipið «Phönix.", með því komn : frá Khöfn Consúl Hock, forstjóri hins sameinaða gufuskipafélags, og með honum M. E. de Serre, franskur aðalsmaður; kaþólskur prestur að nafni Euch\ en frá Skotlandi frúrnar Á. Melsteð og P. Thorsteinsen, og nokkrir ferðamenn: Crawford general' major og Edw. Everett frá Bandarlkjunum; Fr. Daries, N. P- van Gruisen og Ch. J. Daintrey frá Liverpól. 'VItabyfíSÍng'in á Reykjanesi þykir sein, dýr og eff' ið. í miðjum þ. m. mán. var turninn orðinn að eins 9 feta hár yfir grundvöll (hann á að verða rúml. 30 fet á hæð) átt' strendur en mjór á kanta). Erfiðleikarnir eru miklir, þvf manns hafa nú stuðið þar að starfi í meira en 2 raánuði. Grjöt allt verður að flytja langt að, fyrst á báti, en síðan á hestuö1 og börum, því allt grjót þar sem vilinn er settur, er brunagfj01 ónýtt f veggi. Rothe ingeneur er þar sjálfur til forsagnar Lyders múrsmið hefir mest að segja við verkið sjálft, og er

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.