Þjóðólfur


Þjóðólfur - 28.01.1879, Qupperneq 4

Þjóðólfur - 28.01.1879, Qupperneq 4
16 f Merkisböndinn J<5n sál. Finsson, andaðist að Langár- fossi í Mýrasýslu 4. ndv. síðastl.; hann var borinn 15. sept. 1798, og dvaldi þar alla sína 80 ára æfi á sama bæ. «Jón sál. var einu hinn merkari sómabdndi; gæddur ágætum gáf- um, prýðilega greindur og guðrækinn, stiltur og hægur í lund, kjarkmikill atkvæðamaður, tryggur og trúfastur, vinvandur og vinfastur, stjörnsamur og staðfastur, sem hvorki leið nokkra óreglu né skeytingarleysi. Hann var stgjörvismaður bæði til líkama og sálar, og snillingur sem lagði allt á gjörva hönd, heppinn og lipur formaður, búhöldur góður og varði efnum sínum vel. Ástúðlegasti og rkylduræknasti ektamaki, sannkallaður sómi sinnar stéttar, og er því sárt saknaður ekki einasta af hans ekkju og vandamönnum, heldur af þeim sem honum kyntust. Hann lifði blindur síðustu 9 ár æíi sinnar». f Annan dag jóla næstliðinn andaðist að Neðrahálsi í Kjós merkisbóndinn Jón Sæm undsson, 78 ára að aldri. Hann var borinn að Haukagili í Vatnsdal árið 1800. Móðir hans Briget var sonardóttir Haldórs bps Brynjólfssonar. Frá því hann var 10 ára og fram að tvítugu var hann hjá Ólafi sáluga á Auðúlfsstöðum í Blöndudal, en kona Ólafs var móðursystir hans. 29 ára fluttist hann á suðurland og hefir búið 49 ár á Fossá og Neðrahálsi. Hann var tvígiptur og átti 19 börn, en af þeim lifa 7. Jón sálugi var einn af þeim, sem ekki hafði úngur verið til menta settur, en hafði náttúru atgjörvi ekki lítið. Hann var fljótgreindur maður og bar gott skyn á mart; hann var karlmenskumaður, ör og fjörmikill, reiðmaður mesti, gestrisinn og góðgjarn. Hans var og mjög leitað til lækninga, því hann stundaði þá list frá únga aldri, og þótti mjög hepp- inn blóðtökumaður, og þó einkum, er hans var vitjað til kvenna í barnsnauð. Til slíkra kærleiksferða var hann jafnan fljótur til bragðs og tók sjaldnast fé fyrir. Hann bjó jafnan all- góðu búi, því ekki skorti dug og starfsemi. Húsfaðir var hann hinn bezti og ástfólginn öllum sínum. — Nýlega er sáluð frú Hildur kona Hjartar læknis Jóns- sonar í Stykkíshólmi, fædd Tborarensen (dóttir Boga sál.), skörulig kona, barnung að aldri. — Nýdáinn var og, er póstur fóraðvestan: Guðmundur Brynjólfsson, dannebrogsmaður á Mýrum í Dýrafirði; mun hann hafa verið nálægt sjötugs aldri. Mistu þar Vest- firðingar einn sinn helzta og merkasta mann í bændaröð. AUGLÝSÍNGAR — Hér með er skorað á þá, er eiga til skuldar að telja í dánarbúi ekkjunnar Valgerðar Ólafsdóttur, er andaðist hér í bænum árið 1877, að gefa sig fram með kröfur sínar og sanna þær fyrir skiptaráðanda hér í bænum innan 6 mánaða frá birtingu þessarar auglýsingar, samkvæmt fyrirmælum í opnu bréfi 4. janúar 1861. Skrifstofu bæjarfógetans í Eeykjavík 24. janúar 1879. E. Th. Jnnassen. — Hér með auglýsist, að við 3 uppboð, er haldin verða um hádegi hinn 1., 14. og 26. apríl þ. á. verða seld hæðst- bjóðanda verzlunarhús dánarbús 0. P. Möllers, liggjandi í strandgötunni hér í bænum; hús þessi eru: stórt íbúðar- og búðarhús með kvisti á og 2 pakkhús, öll virt á 12,402 kr. til brunabóta og fylgir þeim góð lóð. Tvö fyrstu uppboðin verða haldin á bæjarþingstofunni, en 3. uppboðið í greindum húsum. Skilmálar fyrir uppboði þessu verða til sýnis á skrif- stofu bæjarfógetans viku á undan 1. uppboðinu, og verða birtir á uppboðsstaðnum í hvert skipti áður en uppboðið fer fram. Skrifstofu bæjarfógetans í Eeykjavík 27/i 1879. E. Th. Jónassen. — Hér með auglýsist, að við 3 uppboð, er baldin verða um hádegi 2. apríl, 9. apríl og 5. maí þ. á. hér í bænum, verður boðið upp og .selt hæðstbjóðanda hús dánarbús Gísla skólakennara Magnússonar, liggjandi í Tjarnargötu hér í bæn- um, með tilheyrandi lóð; húseign þessi er virt til brunabóta 3,201 kr. Tvö fyrstu uppboðin verða haldin á bæjarþingstof- unni en 3. uppboðið í greindu húsi. Skilmálar fyrir uppbodi þessu verða til sýnis á skrif- stofu bæjarfógetans viku á undan 1. uppboðinu og verða birtir á uppboðsstaðnum í hvert skipti áður en uppboðið fer fram. Skrifstofu bæjarfógeta í Eeykjavík 27. janúar 1879. E. Th. Jónasson. — Fyrri ársfundur búnaðarfjelags suðuramtsins verður haldin föstudaginn 31. dag þ. m. á hádegi (kl. 12) í «Glasgow» upp á loptinu. Verður á fundi þessum lagður fram reikn- ingur yfir tekjur og útgjöld fjelagsins hið liðna ár, skýrt frá aðgjörðum þess og ýmsum jarðabótum, sem fjelaginu hafa borist skýrslur um, og rætt um fyrirætlaðar athafnir þess á þessu ári, og enn fremur nefnd kosin til að yfirfara skýrslur um jarðabætur og verðlaunabeiðslur, og loks kosnir endur- skoðunarmenn á reikningi hins liðna árs. Beykjavík 20. d. janúarm. 1879. H. Kr. Friðriksson. — par eð landsstjórnin Iieíir, með vissum skilyrð- um, selt mér forlagsréttinn á pessum tveim Lókum: 1, gömlu Lærdómsbókinni (Balle), eins og liún hefir verið prentuð að undanförnu á kostnað landsprentsmiðjunnar, og 2, Biflíusögum handa úngl- ingum, íslenzkuðum og löguðum eptir biflíusögum 0. F. Balslevs af prófastinum sál. Ólafi Pálssyni, með viðbæti eptir Helga Einarsson barnaskóla- kennara, eins og pær voru útgefnar 1 Keykjavík 1877, pá banna eg hér með öllum, að prenta þessar bækur. Enn fremur óska eg að prestar vildu gjöra mér pann greiða, að gefa mér bendingar um, hvað mikið peir mundu vilja fá sent af pessum bókum í sínar sóknir á yfirstandandi ári; einnig vil eg biðja bóka- sölumenn mína að láta mig vita, livað mikið peir óska að fá af pessum bókum. Beykjavík 27. janúar 1879. Einar Pórðarson. — Hvíthyrntur hrútur á annan vctur hvarf hér af mýr- unum, m.: tvístíft framan hægra biti undir; sneitt framan vinstra biti 'undir. Mark Gísla Jónssonar i Hvammkoti. Hver sem verður var við kind þessa, umbiðst að koma henni strax til mín mót fullri borgun. 22/t 1879. Jón Steffensen. — Seldar óskilakíndur í Seltjarnarneshrepp haustið 1878. 1. Hvítbyrnd ær 3v., mark blaðstýft fr. hægra, hálftaf aptan vinstra, hornamark: sneitt fr. h. blaðstýft fr. v. 2. Hvítt lamb, sýlt h. biti fr., heilrifaö v., biti fr. 3. Hvítt lamb, gagnbita hægra, sneitt apt. vinstra. 4. Hvítt lamb, tvístýft aptan hægra sneitt apt. vinstra. peir sem sanna eignarrétt sinn að ófannefndum kindum, geta vitjað andvirðisins að frádregnum áföllnum kostnaði til Ingjaldar Sigurðssonar á Lambastöð. til næstkomandi fardaga. — Bauð bryssa með síðutökum, um miðaldra, merkt gagnfjaðrað hægra, strandfjöður framan vinstra, hefir verið í í óskilum I Breiðholti síðan um veturnætur. Nýveitt prestakall. pingvellir við Öxará aðstoðar- presti að Arnarbæli sira Jens Pálsyni. Auk hans sóttu: sira porvaldur Ásgeirsson á Hofteigi (v. 1862), sira Sveinn Skúlason á Staðarbakka (v. 1868), sira Oddgeir Gudmundsen á Felli (v. 1876) og kand. theol. Magnús Andrjesson í E.vík. Óveitt eru: Hallormsstaður í Suðurmúlasýslu (822,95 kr.) Eeynistaðarþing í Skagafirði (518 kr. 28 a.) Afgreiðslustofa Jpjóðólfs: í Gunnlaugsens húsi. — Útgefandi og ábyrgðarmaður: Matthías Jochumsson. Prentaður í prentsmiðju Einars pórðarsonar.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.