Þjóðólfur - 31.05.1879, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 31.05.1879, Blaðsíða 2
58 verkið sé traustlega og óaðfinnalega af hendi leyst og mun það varða yfirsmiðnum ábyrgðar, ef þá koma fram gallar á smíðinni annaðhvort af því, að verkamenn þeir, er hann hefir haft sér til aðstoðar ekki hafa haft skynbragð á vinnu sinni eða af öðrum ástæðum. Á hinn bóginn mun yður kunnugt, að Jakob Sveinsson hafði með miklum kostnaði gjört tilraun til að ráða sér til aðstoðar útlendan steinsmið, og hefir hann, þegar þessi tilraun misheppnaðist, tjáð mér, að hann hafi gjört ráðstöfun til að fá svo fljótt, scm unnt er, annan steinsmið frá útlöndum. Að láta hætta við aðgjöðina þangað til alþingi kemur saman í sumar, myndi vera slík samningsrof að hálfu liins opinbera, að það myndi geta bakað því talsverðar skaðabæt- ur, og í annan stað myndi það varna því, að aðgjörðin yrði búin á þessu sumri. Slík ráðstöfun virðist mér því jafn ótil- tækileg, sem hún er ástæðulaus'). 3. Bref Iialldórs yfirlcennara til ráðherra íslands dags. 5. maí þ. á. "Eins og hinum háa ráðherra sjálfsagt er kunnugt, var aðgjörðin á dómkirkjunni falin á hendur trésmið Jakob Sveins- syni. J>á er bæjarbúar sáu að aðgjörðin í byrjuninni var eigi samkvæm því, sem stungið hafði verið upp á af þeim mönn- um, sem skyn bera á slíkar smíðar, eða þannig ásigkomin, að hún gæti orðið til fullnaðar, eptir því sem flestir ætluðu, áttu þeir fund með sér 25. d. f. m., og fólu mér á hendur á fundi þessum, að rita landshöfðingjanum fyrir þeirra hönd um málið, og skora á hann, að leggja fyrir herra Jakob Sveinsson, að fá sér þann mann, er fullt skynbragð bæri á húsagjörðir og múrsmíði. Samkvæmt þessari ósk bæjarbúa, ritaði jeg landshöfðingjanum 26. dag sama mánaöar og leyfi jeg mér þegnsamlegast að láta fylgja eptirrit af bréfi þessu. í svari sínu til mín dags. 30. f. m., og fylgir hér með einnig eptirrit þess, segirlandshöfðinginn, að sig, samkvæmt samningn- um við herra Jakob Sveins., vanti heimild til að skipa honum að hafa sér til aðstoðar við þotta starf nokkurn þann mann, sem skyn beri á múrsmíði, enda virðist það óþörf ráðstöfun, því að ef gallar komi fram á smíðinni við úttektina, varði það ytirsmiðnum ábyrgðar. En viðvíkjandi þessu verð jeg að leyfa mér að gjöra þá athugasemd, 1. Að úttektarmennirnir munu alls eigi geta dæmt um traustleika smíðarinnar, þegar henni er að öllu lokið, með því þeir þá að eins geta séð veggina að utan, en þeim gefst þá ekkert færi á að dæma um það, að hve miklu leyti allur hinn skemmdi tigulsteinn sé burtu tekinn, eða hvort sameining hins innra gamla múrs og hins ytra nýja sé áreiðanleg. 2. Ef úttektarmennirnir kæmust til þeirrar niðurstöðu, að svo miklir gallar vær'u í smíðinni, að hún þyrfti verulegra umbóta við, eigi að tala, ef eitthvað þyrfti alveg að gjöra um, þá verður að telja veð það, sem Jakob hefir, alveg ónógt, með því að það er einkum fólgið í húsi einu, sem er 4000—5000 kr. virði, en sem áður er veð- sett fyrir 3100 kr., en á hinn bóginn fær herra Jakob Sveins- son hin umsömdu verkalaun borguð á tilteknum gjalddögum þannig, að þegar hann hefir gjört við kirkjuna eptir samn- ingnum og á að afhenda liana, þá hefir hann úr bítum borið allt verkkaupið, nema það, sem að öllum líkindum gengur til þeirrar aðgjörðar, sem hann eptir samningnum má fresta. J>egar landshöfðinginn enn fremur segir, að Jakob Sveinsson hafi tjáð sér, að hann hafi gjört ráðstöfun til áð fá stein- smið frá útlöndum, þá ber brýn nauðsyn til að steinsmiður þessi komi nógu snemma, og áður en smíðin er komin svo langt, að allt er um seinan. Samkvæmt þessu leyfi jeg mér þegnsamlegast, samkvæmt ósk kjósanda minna, að skjóta máli þessu til hins háa ráð- gjafa til nákvæmari íhugunar, ogþeirrar ráðstöfunar hans, að smíð þessi verði haganlega af hendi leyst». 4. Bref Halldórs yfirlcennhra til Beykjavíkur bœjarstjórnar, dags. 12. maí þ. á. "Eins og hinni heiðruðu bæjarstjórn sjálfsagt er fullkunn- ugt, er allmikil óánægja moð bæjarbúum yfir hinni nýbyrjuðu aðgjörð á kirkjunni hér í bænum, og telja þeir aðgjörð þessa varða sig allmikið, þar sem húsaskattur er á þá lagður til kirkjunnar, svo að hún verði fær um að endurborga lán það, sem alþingið veitti úrlándssjóði til aðgjörðarinnar. J>eir áttu því fund með sér hinu 25. f. m. til að ræða um, hvað þeir ættu til bragðs að taka í máli þessu, og komust til þeirrar niðurstöðu að rita landshöfðingjanum þá áskorun, að leggja fyrir Jak'ob Sveinsson, sem hefur að sér tekið aðgjörðina, að hafa sér til aðstoðar og umráða við hana einhvern þann mann, sem fullt skynbragð bæri á múrsmíði. En þessari áskorun svaraði landshöfðinginn í bréfi dags. 30. f. m. á þá leið, að hann samkvæmt þeim samningi, sem hann hefði gjört við Jakob um aðgjörðina, gæti alls eigi lagt fyrir hann, hverja menn hann hefði til verksins, og þá eigi heldur, hvort hann hefði nokkurn þann mann, sem vit hefði á verkinu eða eigi; en allt yrði að vera komið undir því, hvort skoðunarmenn- irnir við úttektina á sínum tíma teldu aðgjörðina áreiðanlega eða eigi. Bæjarmenn gátu eigi látið sér lynda slíkt svar, og er nú málið eptir beiðni þeirra sent stjórninni. En hversu sem stjórnin tæki í þetta mál, þótti þeim nauðsyn til bera, að fá nákvæma lýsingu á aðgjörðinni, sem skoðunarmennirnir gætu haft sér til leiðbeiningar við úttektina; því að þegar að- gjörðin væri fullgjörð, gæti enginn sá fengið ljósa hugmynd um hana, sem eigi hefði séð, hversu henni er hagað frá upp- hafi, og þessa lýsing þótti þeirn nauðsynlegt, að gjörð væri af mönnum, sem til þess væru kosnir, og þótti þeim eðlilegast, að bæjarstjórnin kysi þessa menn fyrir þeirra hönd. Á almennum fundi, sem eg hafði stefnt til síðasta laug- ardag hinn 10. þ. m. út úr þessari kirkju-aðgjörð, fólu þeir mér því á hendur, að rita hinni heiðruðu bæjarstjórn, og skora á hana, að skipa fimm menn í nefnd, sem skoða skyldu alla tilhögun aðgjörðarinnar frá upphafi og fylgja henni, unz henni er lokið, og svo senda bæjarstjórninni nákvæma lýsing á henni, sem orðið gæti til leiðbeiningar þeim, sem á síðan ættu að dæma um traustleika viðgjörðarinnar, og þessa áskorun leyfi «eg hér með að bera fram fyrir hina heiðruðu bæjarstjórn til þóknanlegra og sem fljótastra aðgjörða». Jpessu bréfi svaraði bæjarstjórnin á þá leið, að hún treyst- ist ekki til að verða við áskorun fundarmanna. VEBÐL AGSSKSÁ ísafjarðarsýsluogkaupstaðar. þ>að er alkunnugt, að skrá þessi er, og hefur verið að undanförnu, hin hæsta á öllu landinu, en hitt mun ókunn- ugra, að verðlagið í henni er í reglunni ekki aðalverð eða al- gengt meðalverð októborárið næst á undan, heldar optast hœstaverð, eða jafnvel fram yfir það, sem að minnsta kosti vér innandjúpsmenn höfum heyrt getið um, helzt við sölu á fríðum peningi á uppboðsþingum, þegar í kappið kemst og vitið vill fara út um þúfur. J>að er vitaskuld, að vér höfum sett verðlagsskýrslur vorar lægra, en æfinlega fullan kaup- staðarprís á vörum þeim, sem þar eru seldar, og það eins, þó örðugt sé, eða lítt mögulegt hafi verið, að fá peninga út á þær, án afsláttar. Meðalverðið er því ár eptir ár of hátt, og til útörmunar fyrir alla þá, sem gjalda eiga eptir því. Menn skyldu ætla, að verðlag á þeim vörúm, sem mestmegnis eða að öllu leyti ganga í kaupstaðina, væri þó eigi hærra, en fengizt hefir fyrir þær í næstu kauptíð á undan, en það er samt eigi ætíð víst, en mjög fágætt að það sé lægra. Næst- liðið sumar (1878) var saltfiskur, skpd. á 50 kr., eða vættin á 12 kr. 50 a., en í verðlagsskránni komu út 12 kr. 60 a., þó það muni eigi miklu í útreikningi meðalverðsins. Smjör vildu kaupmenn eigi gefa fyrir meir en 60—70 a. — skráin hefur 70a. — og 50a. fyrir tólg, sem í ár er líka of hátt meðal- verð á þeirri vöru. Peisur held eg ekki séu hér kaupstaðar- vara, en hvaða vit er í, að setja einfaldar og tvinnaðar sölu- peisur á 4kr. 45 a. og 7kr. 69 a.? — allt að helmingi dýrara en vera ætti, og hækkar það eigi lítið meðalverð á tóvöru.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.