Þjóðólfur - 12.07.1879, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 12.07.1879, Blaðsíða 2
74 Að endingu vona eg að þessi skýrsla mín, um framkvæmd- ir okkar í námanum, verði steini sterkari, og steypi því heið- arlega ætlunarverki hans, að spilla fyrir góðu fyrirtæki, og væri steini hentast að hverfa aptur heim á Tindastól — og hátta. — Reykjavík 30. júní 1879. Egilsson. — f þjóðólfi, 17. blaði 31. árs, sem útkom 25. f. m. er þess getið í skýrslu um sýslufund þann, sem eplir áskorun alþing- ismanns Árnesinga var haldinn í Bjálmholti 19. dag f. m. að fundarmenn hafi hreift því á fundi þessum að «eigi væri fullnægt lögum hlutaveltufélagsins með að auglýsa ástand og efnahag veltunnar, og þingmanninum hafi verið falið á hendnr að vekja máls á þessu í blöðunum», og hefir hann og í athuga- semd neðanvið fundarskýrsluna beint eins konar áskorun tíl stjórnenda félagsins, að gjöra hlutaðeigöndum Ijósari reikn- ingsskil. Eg finn mér því skylt fyrir mína hönd og meðstjórnanda minna að svara þessari áskorun nokkrum orðum, því að und- irrót hennar er sjálfsagt af misskilningi runnin. í 19. grein félagslaganna er svo að orði kveðið: «Jafn- «snart sem endurslcoðun reikninganna er lokið, verða þeir fé- «lagsmönnum öllum til sýnis um 2 mánaða tíma hjá kaupstjóra «félag8ins eða einhverjum félagsstjóranna, eptir því sem gjörr • verður áuglýst. f>á skal og auglýsa, hve mikill sé ágóði eða «afrakstur í dalatali af hverjum tíutíu allrar veltu innstæðunnar*. Á þessari grein laganna er auðsjeð, hver skylda fé- lagsstjóranna er um auglýsingu efnahags og ástands félagsins, sú ein, að segja frá ágóðanum eptir hundraðatali, þá er reikn- ingarnir eru endurskoðaðir. Hinir núverandi stjórnendur fé- lagsins voru kosnir á fundi 6. dag júlímánaðar 1875 eptir lát Jóns heitins Guðmundssonar. Á hverju ári hefir fundur verið boðaður opinberlega í blöðunum, og fyrstu árin 2 fundir á ári, en enn þá hafa eigi á nokkurn fund komið svo margir, að fundarfært hafi þótt, þar sem að eins 1 — 3 menn hafa sótt hvern fund, og hafa því aldrei orðið kosnir endurskoðunar- menn. Á hinn bóginn hafa allir hlula-eigendur séð arð þann, sem þeir hafa haft af hlutum sínum, í reikningum þeirra frá verzluninni, og eins og hver og einn hluta-eigandi hefir átt kost á, að sjá reikning félagssljóranna, sem saminn hefir verið i byrjun hvers árs, eins er og að sjálfsögðu hverjum þeirra heimilt framvegis að fá að sjá hann hjá verzlunarstjóranum, eigi að eins um 2 mánaða tíma á ári hverju, heldur hvenær sem þess er óskað; en að aulýsa þessa reikninga í blöðunum, er hvorki boðið í lögum félagsins, enda væri það filgangsiaust og ástæðulaust, því að engan annan en félagsmenn eina varðar um ástand og efnahag félagsins, til þess þyrfti reglulega breyt- ing á lögunum. Reykjavík 8. dag júíím. 1878. H. Kr. Friðriksson. A 1 þ i n g i. — í stað Torfa sál. Einarssonar kaus hið sameinaða þing til setu í efri deildinni Jdn Jdnsson landritara. Nefndarkosningar. Fjárlaganefnd: Grímur Thomsen (for- maður), Einar Ásmundsson, Tryggvi Gunnarsson, H. Kr. Friðriksson (skrifari), ísl. Gíslason, Guðm. Einarsson og Egg- ert Gunnarsson. Nefnd í presta- og kirknamál., sem kom nál. óbreitt aptur frá stjórninni: Páll Pálsson prestur (skrif- ari), fórarinn Böðvarsson (formaður), Hjálmur Pétursson, Friðrik Stefánsson, J>orl. Guðmundsson, Arnljdsur Ólafsson, H. Kr. Friðriksson. Landsreikninga nefnd: Arnljótur Ólafs- (form.), Björn Jonsson (skrifari) og Snorri Pálsson. Búnar- laganefnd (í efri deild): Árni Thorsteinson, Sighvatur Árna- son, Magnús Stephensen. Silfurbergsnáma-nefnd: B. Thor- berg, E. Kúld, B. Kristjánsson. Rædd mál. í neðri deild: Konungl. frumv. um sætisfisk: fellt. Hver utansóknar-ver- maður átti eptir því að greiða hálfa alin til sóknarkirkju veiði- stöðunnar, ef hann réri þar 6 vikur eða lengur. |>essi sæt- isfiskur hefur gilt á suðurnesjum samkv. kgsbr. 1. desemb. 1752, *en skyldi nú úr lögum numinn. Kirkjugjald af húsum; samþykt í neðri deild. Eptir því frumvarpi skal gjalda 5 a. af hverju 100 kr. virði af húsum „þeim, sem ekki eru notuð við ábúð á jörð er metin sé til dvrleika11 (Breyt. atkv. |>. pórðars.) Kirkju-skattur Reykvíkinga breytist samkv. þessum lögum. Frumv. um lóðargjald í Reykjavík; samþykt í efri deild. Eptir því minkar 3 a. lóðargjald torfbæja í R.vík um 1 eyrir. í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar er gjört ráð fyrir, að tekjur landsins árin 1880—1881 nemi 791,923 kr. en út- gjöldin 717399; afgangur 74,523 kr. Tekjur þessa tímabils er því ætlast til að verði rúmum 50,000 kr. meiri en gjört var ráð fyrir þeim síðastliðið fjárhagstímabil. Helztu tekjurn- ar eru: vín- og tóbakstollur 98000 kr. hvert árið fyrir sig; tillag Danmerkur 92000 kr. ár hvert, lestagjaldið 37000 kr. hvert árið; ábúðar og lausafjárskattur 52000 kr. hvert árið; af þjóðjörðum hvert árið 30000 kr. o. s. frv., eins og síðar mun greint verða, þegar málið er útrætt á þíngi. í útgjalda- dálkinum er mesti munurinn fólginn í útgjöldunum til um- boðsstjórnarinnar, eins og breytingin á launum sýslu- manna hlaut að hafa í för með sér; eru þau talin rúmlega 300000 kr. fyrir bæði árin, í stað 194000 kr. áður. Til al- þingis eru ætlaðar 3500 kr. meira en áður, til póstmála 2000 kr. meira og til kirkju- og kennslumála 5000 kr. rneira en áður. Jóni ritara Jónssyni skal veita 2000 kr, þóknun fyrir störf hans í fjárkláðamálinu; sömuleiðis er hæstarjettar-dóm- ara V. Finsen ætlaðar 800 kr. á ári í 3—4 ár fyrir vísinda- lega útgáfu Jónsbókar. Til Reykja'nessvitans eru ætlaðar 2780 kr. á ári. Eitt af stórmálum þingsins eru landsreikningarnir fyrir 1876 og 1877. Er lagt fyrir þingið frumv. stjórnarinn- ar um endilega samþykkt á þeim, og þar með fjöldi fylgiskjala, athugasemdaskjöl í tvennulagi fyrir hvert árið frá yfirskoðun- armönnum reikninganna, Gr. Thomsen og Magnúsi Stephen- sen, er vér ætlum að hafi ósleitilega af hendi leyst sinn starfa; tvenn svör landshöfðingja, fleiri tillögur og skjöl yfirskoðunar- manna, o. s. frv. Yör ætlum mjög tvísýnt, að presta- og kirknamálið fái framgang á þessu þingi, enða er mikill vafi á, hvort búnaðar- lögin ekki verða líka óútkljáð. Fyrir þinginu liggur enn eitt mikilsvert mál, umlandamerki jarða; hyggur þing- ið að sjá um að nefndir verði settar, til að fastákveða landa- merki allra jarða á íslandi, áður en nýtt jarðamat verði gjört. f>á er eitt mál, umsölu þjóðjarða, sem liggur fyrir þinginu, og sem vér óskum að mætti hafa framgang. Öllum tillögum um póstskip og strandsiglingar er vísað til fjárlaga- nefnðarinnar, og er varia efi á, að þingið muni skoða nákvæm- lega tilboð Slimons áður það hafnar því. Að öðru leyti er sjálfsagt að landsmenn sjálfir taki til sín þau ráð, að ákveða ferða-áætlanir strandsiglingaskipsins fyrir hvert ár. — Á amtsráðsfundi suðuramtsins 11. f. m. kom til um- ræðu uppástunga frá sýslumanni Mýra- og Borgarfjarðars. um breyting á ferðum pósta og um gufuskipsferðir milli Reykjavíkur og Akraness og fl. hafna; hét amtsráðið að taka að sér málið til frekari meðferðar. Ýmsar skýrslur frá ýmsum hreppum bárust ráðinu um brúargjörðarmálið yfir fjórsá og Ölfusá. Afréð amtsráðið að senda þær landsstjórn- inni, og leggja til, að leigulaust lán yrði veitt úr landssjóði, er endurgjaldist á 35 árum af viðkomandi sýslum. Amts- ráðið mælir með, að töluverðu af landssjóðs styrknum 1878— 79 verði varið til eflingar jarðrækt og sjávarrútvegi í suður- amtinu, og sérstaklega til þess, að stöðvað verði samdfok á þjóðjörðunum í Skaptafollssýslu. — Á amtsráðsfundinum í Stykkishólmi 17. f. m. var sam- þykt að mæla með að Bened. Oddson á Gjarðey fengi styrk úr landssjóði til að læra leirkerasmíði. Aukapóstur er ráðið að gangi frá Laugabóli í ísafjarðars. að Stað í Grunnavík, og að bréfhirðingar-staður verði á Laugabóli í stað Vatnsfjarð- ar. Ólafur jarðyrkjum. Björnsson skal fá 400 kr. styrk úr landssjóði til þess að ferðast um í vesturamtinu, eins og að undanförnu, og segja til í jarðabótum. Torfi Bjarnason á Ólafsdal hafði boðist til að veita kennslu íjarðyrkju og b ú f r æ ð i, móti styrk af landsfé. Ályktaði amtsráðið að fylgja því máli fram af alefli. Skal betur skýra frá því síðar. Verð- laun úr búnaðarsjóði vesturamtsins var veitt þessum bændum: Guðna Jónssyni, hreppstjóra á Dúnkárbakka 100 kr„ en þeim Jóni Jónssyni á Teigi og Jóni Einarssyni á Hólum 25 kr. hverjum. — Ársfundur Reykjavíkur deildar bókmentafélagsins var

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.