Þjóðólfur - 27.07.1879, Page 2

Þjóðólfur - 27.07.1879, Page 2
82 ættartölu, 3. erfiljóð (eptir E.Ó. Briem og Matth. Jocliumsson) og 4. Sýnisborn af þingræðum Bjarna sál. Ritið er ekki prentuð tii útsölu, en er i sjálfu sér þess vert að alþýða ætti það, því bæði er það vel samið og lýsir einum röggsamasta og beztlátna yngri embættismanni landsins. Af Mrlejutíðindunum er komið út l.h. II.árg., efni: auglýs- ing um hinn nýja lærdóm H. Hálfdánars ; um presta og kirkna- málið; um ástand hinna hólpnu sálna frá dauðanum til upp- risunnar, úr dönsku; um ríki. og kirkju; kirkjuleg bindindis hreifing á Englandi. Heptið er allt, nema 2 bls. af 48, sam- ið af Þórarni Böðvarssyni. 1. 2. og 3. ritgjðrðin lýsir óneit- anlega meiri álúð og áhuga á málefnum og hag kirku vorrar, en almennt er nú eða verið hefir, en ekki fellum vér oss alstaðar við skoðanir böfundarins, og allra sizt um huxanir hans um samband ríki og kirkju, sem vér ætlum að standi reglulega á höfði. Meðal annars segir hann, að það sem menn meini með því að aðskilja ríki og kirkju sé það, að oþjóðfélagið, sé ekki bundið við neina trú». Nei! heldur er meiningin hitt, sem höfundurinn nefndi á fyrri blaðsíðunni, og neitar að sé meiningin : «réttur aðskilnaður á því andlega og veraldlega valdi». Höf gengur út frá þeirri skoðun, að kirkjan hætti að vera til og bver einstaW maður verði guð- leysingi, ef konungur og landsstjórn sleppi takinu, og krist- innamanna félagi sé leyft að annast sín málefni sjált.t Ti.1 þess að svara þessu þarf í sannleika postullega þolinmæði, enda leiðum vér það hjá oss að sinni. Prestum hér á landi er nýtt um varninginn, «að pólitísera» um kirkjumál og andlegt frelsi, enda sézt þess skjótt vottur, þegar þeim málum skal hreifa ; jafnvel sumir vorir beztu og vitrustu menn koma þar fram, að oss virðist, líkara unglingum en fulltíðamönnum, og þverneita allri tilslökun til frjálsari siða í trúar- og kirkjumálum — ef ekki af annari ástæðu, þá af þeirri, að »tíminn se ekki kominn» (!) Nær er tíminn kotninn, vorir elskulegu bræður, að brjóta af oss forn heimsku-fjötur og vakna til guðsbarna frelsis? Nær er tími kominn til að byrja á þvf, að losa kirkju frá konungs- valdi og fá umráð hennar i hendur henni sjálfri, það er söfn- uðunum ? Nær er tfminn kominn til að leysa menn frá sókn- arbandi og öðrum persónulegum höptum, sem frá fornum harðstjórnar- og myrkratímum, hafa skert rétt manna og æru og þvingað og svæft samvizkur manna ? í Ameriku er kirkjulíf fjörugast í heimi; þar hafa kirkjur tvöfaldast að tölu, efnum og sóknarmönnum síðast liðin 20 ár. En hver stjórnar þar kirkjunum ? Svar : ekki ríkið, heldur söfnuðirnir sjálfir. Meðan rfkiskirkjur standa, verða prestar ætíð apturhaldsmenn og að eins til bálfrar uppbyggingar. Gripasýnin^. «Sunnlendingurinn kemurá eptir», segir fornt spakmæli, og datt oss það f hug hér um kvöldið, er oss varð reikað upp Bakarastíginn, þvi þá heyrðist oss ekki betur, en einhverstaðar í þingholtunum væri hviskrað : «Við skulum líka halda gripasýningu*. Það var að tarna — hugsaði eg — jú, Sunnlendingurinn kemur á eptir. í alvöru að tala, mun dálítil hreifing komin hér syðra á hugi manna í þessa átt, síð- an menu fréttu um sýningarnar ( Eyjafirði og f Skagafirði. Búnaðarfélagið hefir og hreift gripasýningar- tillögn, en þess hrefingar eru bæði seinar og sérstaklegar. Hvar er sjálfsagð- ari sýning en hér í höfðstaðnum og í miðjum fjölmennustu sveitum landsins? Hverja gripi skal hér sýna? Hér skal sýna allt, sem her er alið, unnið og gjört að vöru eða varningi:; fyrst og fremst getur handiðnamannafélagið gengið í broddi fylkingar; það ætti að stofna sýninguna ; þar næst koma sjáv- arbændurnir með sín handbrögð, skipasmiðirnir með sín, kon- urnar með sín, sveitamenn með sín, o. s. frv. Til þess að slík fyrirtæki, sem þetta, komist lengra en á pappirinn, þarf að vísu almennan áhuga, félagslíf og félagsanda. Vér álítum tilgangslltið að fara að eyða orðum til þess að reyna að koma mönnum í skilning um nytsemi sýninga, en látum nægja, að geta þess, að þær þjóðir, sem ekkí hafa sýningar, eru ekki lengur f mannatölu. Og hvað oss Sunnlendinga snertir, álít- ura vér, að hvergi hér á landi sé gripasýning nauðsynlegri en hér, bæði sökum þess, að hér blasir allt bezt við útlandinu, og hér er á minnstu svæði saman kominn mestur slyrkur land- sins. En framfarirnar standa þvf miður i mörgum greinum í öfugu hlutfalli þar við. Vér álítum þvf, að það væri hið mesta snjallræði ef handiðnamannafélagið hér f bænum vildi sem fyrst eiga fund með sér lil að fhuga þetta mál, og kjósa nefnd maona til þess að þoka því lengra áleiðis. Gfrænlandsior "íngólfsr,, «íngólfur», hið danska herskip, er nýkomið úr ferð norðan úr Dumbshafi eða Dan- merkursundi. Komust þeir norður á 70. gráðu, eða ekki lang- an veg fyrir vestan Scoresbyfjörð. þeir fenga bjart veður og kyrt. Nær ströndum komust þeir hvergi en 5 mílur undan, sökum fsa, enda þorðu þeir ekki lengra norður að halda á svo veiku skipi; héldu þeir síðan all-langan veg vestur með ísnum allt á móts við Vestfirði, og höfðu svo bjarta landsýn, að þeir gátu bæði mælt fjöll og teiknað; var það og allmikil strand- lengja, er þeir þanuig skoðuðu, og ekki var áður kunn. Einn jökultind á þvi svæði sunnanverðu nefndu þeir (ngólfsfjall; það er yfir 5000 feta hátt. Allt er það land jöklum þakið, með hamraklettum í milli, úfið, skörðótt og tindótt, og efiaust blá óbyggð, optast nær ísum lokuð. Fnndarskýrsla. Hinn 27. dag maímánaðar 1879, var J>ómessfundur hald- inn í Stykkishólmi, samkvæmt fundarboðuu þingmanns Snæ- fellinga. Til fundarstjóra var kosinn alþingismaður þórður J>órðarson, en fyrir skrifara cand. theol. Grímur Jónsson og verzlunarmaður 0. A. Thorlacius. Til undirbúnings undir fund þennan hafði sýslunefndin með þingmanni sínum og fleiri merkismönnum, að afloknum sýslunefndarfundi 2. s. m., skotið á frjálsum fundi, sem kaus nefndir, er íhuga skyldu hin vandasömustu mál sem sýslubú- ar óskuðu að lögð yrðu fyrir alþingi í sumar. Voru nú nefndarálitin lögð fyrir fundinn og síðan ítarlega rædd: 1. Presta- og kirknamálið, og varð sú niðurstaða, að ágrip til alþingis var samið þess efnis: að talsverðar breyt- ingar þyrfti að gjöra á því sem brauðamatsnefndin hefði gjört, hvað laun presta áhrærir, og að brauðum verði steypt saman þar sem því verður við komið. 2. Um stjórnarskrá íslands urðu all-langar umræður, en að þeim loknum, var sýslumanni Sigurði Jónssyni falið á hendur, að semja ávarp til alþingis um, að stjórnar- skráin verði vandlega íhuguð, og, að alþingi haldi fast við þá rás, sem þjóðfundurinn tók 1851, og ráðgjafar- þingin þar á optir, o£ var ávarp þetta á fundinum sam- þykkt af meiri hluta fundarmanna. 3. Agrip til alþingis um, að konungur undirskrifi einungis hinn íslenzka texta laganna; sömuleiðis samþykkt. 4. Landbúnaðarmálið kom til umræðu, en varð ekki útkljáð svo að ávarp yrði samið um það, en a!lir fundarmenn voru á því, að bezt mundi fara, að það mál yrði ,ekki út- kljáð á þessu þingi, og að nokkur atriði þess yrðu borin undir álit hreppa- og sýslunefnda áður en það yrði gjört að lögum. 5. Var samþykkt nefndarálit um, að leggja niður landlæknis- embættið, en stofna í þess stað heilbrigðisráð í lieykjavík. 6. Um gufuskipsferðir var samið ávarp til alþingis í þá átt, að það láti semja við Slimon eða einhvern anuan um gufuskipsferðir milli íslands og útlanda og urahverfis strendur íslands, og semji sjálft eða láti semja ferða- áætlun fyrir gufuskipið; en fái alþingi ekki full umráð yfir tilhögun á ferðum strandsiglingaskipsins, þá neiti það alveg um fé úr landssjóði til gufuskipsferða. 7. Ávarp um að byggja nýtt alþingishúá á pingvelli við öxará. 8. Ágrip um breytingu á nöfnum þingdeilda alþingis þann- ig: að deildir þessar verði nefndar eptirleiðis »lögrjetta« og »lögþingi«. 9. Ávarp til alþingis um, að gjöra ekki að lögum að egg verði friðuð með lögum. 10. Bænarskrá um þóknun handa hreppstjórum úr landssjóði.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.