Þjóðólfur - 12.08.1880, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 12.08.1880, Blaðsíða 2
82 indamaður, og teljum hann frjáhlyndi og jafnvel háfleygi í skoðun auðfræðislegra hluta. Fáir íslendingar hafa nokkurn- tíma á æfi sinni heyrt svo hágöfuglega farið með hinn «rang- láta mommon», — já, heyrt hann bókstaflega gjörðan «að vini» siðgæðis og sanns kristindóms. Vér biðjum landa vora að athuga vel röksemdir höf. um og heimfærslu til lands- verzlunar- og búskapar-hátta hjá oss; margt af því er ærið viturlega mælt, þegar slíkt er frá almennu og vísindalegu sjónarmiði skoðað, en annað sumt eru nýjar eða þá hálfnýjar kenningar — (sósíalismi höfum vér hvergi fundið í bókinni) — sem ýmsum mun þykja liggja langt fyrir utan vorn venjulega hugsunarhring, t. d. sumt í kafl. um mannrett og frelsi. En þótt svo kunni að vera, er fróðlegt að lesa og heyra dálítið af þesskonar, einkum þar sem það er bundið og valdað af vís- indalegum grundvelli og lögum, enda má þá ekki slíta neitt úr þess fasta sambandi til að nota sem skens og skotvopn sundurlausra þanka. Höf. leggur takmörk auðfræði sinnar inn á túnjaðar trúar- og siðgæðis og þeirra fræðigreina, og mun þar mörgum þykja ekki síður skrítinn en skemtilega snjall, t. d. bls. 87—88. Svo Jítur út, sem auðfræðingum sé ekki mjög vel til lögfræðismanna né þeirra kenninga sumra og stofnana, sízt hinna fornu að erfðurn fengnu frá yfirgangsöld- um, og hið sama kemur fram í ríkum mæli hjá höf. þar sem hann er andstæður lögum þessa lands, löggjöfum, lögstjórnum og landsvenjum; sumt er hann þar segir, kann að þykja íburðar- mikið, en flest eða allt miðar þó til hins sama eins og gjör- Vallt þetta merka rit, þess, að manna upp hugsun, skiluing, manndáð og rænu þjóðarinnar. J>arf og það að vera eitt að- alaugnamið allra alþýðu-fræðibóka. f>eim tiJgangi mundi og fáum hafa getað tekizt betur að ná með almennri auðfræði en höfundinum. — Agrip af sögu íslamls, eptir séra þorkel Bjarnason. Loksins er þá búið fyrst um sinn og í fyrsta sinni að bæta úr hinni brýnustu þörf þjóðar vorrar hvað ágrip af sögu lands- ins snertir. Vér tökum undir hinn stranga dóm ísafoldar að því leyti, að oss þykir ágrip þetta þurfa umbóta við, en ekld að því leyti, sem höfundinum er þar nálega eintóm vanþökk goldin. Og þó vér undirskifum sum aðfinningar-atriði þess blaðs og ráðum höfundinum eða hverjum, sem endurbætir eða endursemur þetta ágrip, að taka þau vel til yfirvegunar, þá ráðum vér almenningi skýlaust til að eignast bæklinginn og kynna sér hann sem bezt. Málið er Ijóst, og liprara víða en á Siðbótarsögunni, og framsetning og meðferð efnisins hvorki ó- heppileg né ógreinileg, eða með öðrum orðum: yfirlitið (frá sjónarmiði höf.) er glöggt, einfalt og ljóst. J>essi kostur er aðalkostur á hverri sögu, og að fá eitthvert glöggt ágrips- yfirlit yfir æflferil vorrar þjóðar, var einmitt það, sem mest lá á að fá. Höf. sjálfur ætlast ekki til að ágrip þetta sé skoðað öðru vísi en tilraun, enda gat það trauðlega orðið meira eptir því sem ástendur bæði högum og tíma höf. og ekki síð- ur hinu dreifða, mikla og að mestu óundirbúna efni. £egar þessa alls er gætt, á séra forkell þökk skilið fyrir þarft verk. Ófullkoranastur þykir oss fornaldar kaflinn, 1. og 2. tímabilið, enda miklu styttri að tiltölu en nokkrir hinna. í sögu vorrar aldar vantar og svo að segja höfuð og herðar, en það er Jón SigurSsson. Án þess að miða sem mest við hin einstöku mikil- menni og lýsa þeim nokkuð gjörr, er ómögulegt að einkenna einstök tímabil eða gefa þeim líf og litu. Aptur þykir oss flest eða öll hin tíraabilin viðunanlega vel samin og framsett. í síðasta kaflanum er það skakt tilfært, að Sigurður málari hafi stofnað forngripa-safnið. J>að gjörði séra Helgi Sigurðs- son á Melum. Ágripið, 136 bls. í 8 blb., er vel prentað, á kostnað ísafoldarprentsmiðju. — Frá sömu smiðju er nýkomin Skýrsla um hinn lærða skóla í Rvík 1879—80. Fylgir henni Supplement til is- landske Ordböger, 2. Samling: «borða—fullfo*ra». Eptir Dr. Jón J>orkelsson. Slcólaárið, sem leið, var tala pilta 106. Af þeim útskrif- uðust 9 í sumar og 1 sagði sig úr skóla. Aptur voru 19 teknir inn. Tala pilta var því við lok júnímán. 115. Eins og kunnugt er, varð töluverð breyting á gæzlu skólans í fyrra, samkvæmt undirlagi alþingis og að ráði stjórnarinnar. í>annig var umsjónarembættið við skólann Iagt niður og ept- irlitinu skipt í milli H. Kr. Friðrikssonar yfirkennara og Bjarnar kennnara Ólsens. Reikningsfærslan var falin landfógetanum. Enn má geta þess, að hið eldra bókasafn og lestrarfélag pilta, sem komin var mikil deyfð yfir, er nú endurreist, mest fyrir framkvæmd og gjafir prófessors W. Fiske frá íþöku, enda kallast hið nýja félag «íþaka». — í prentsmiðju E. fórðarsonar er nýprentuð: Lítil rit- gjörð um nytsemi nokkurra íslenzkra jurta eptir Jón Jóns- son garðyrkjumann. Ritlingur þessi er að vísu ófullkominn, einkum að formi, — jurtirnar taldar óreglulega, útliti þeirra ekki lýst, heldur að eins taldar upp dyggðir þeirra og einfald- asta notkun — þó mun hann vera áreiðanlegur það sem hann nær og byggður á reynslu höf. og á eldri íslenzkum grasa- kverum (0. Hjaltalíns, B. Halldórssonar, Al. Bjarnasonar og handriti Sv. Pálssonar). —- The younger Edda, by Rasmus R. Anderson, (prófessor í Wisconsin). Chicago 1880. í>að er hin fyrsta þýðing Snorra Eddu á enska tungu, sem nokkuð kveður að, (tvær eldri, önnur eptir Dr. Dasent, 1842, voru brot, enda útseldar fyrirlöngu). Bók- in er skrautlega prentuð og útgefin. Efnið er: Formáli Snorra, Gylfa gynning, Bragamál og kaflar úr skáldskaparmálum. |>á koma nótur höf., margfróður kafli með skýringum og yfirliti vorrar fornu goðafræði. Eins og eðlilegt er, hefir hinn gáf- aði og duglegi prófessor ekki þýtt háttalykil né hinar torveldu dróttkvæðu vísur og kvæðabrot Eddu, að öðru leyti virðist. oss þýðing hans bæði klassisk og fjörug. Próf. Anderson heldur með miklu kappi fram norrænum fornfræðum í Ameríku, og hefir unnið afar-mikið verk í þá stefnu á stuttum tíma. Latínu-dýrkunina hatast hann við að sama skapi, og segist hafa breytt viðkvæði Catós gamla og gjört það að sínu, svo hljóðandi: «Praeterea censeo Romam es*e delendam ! Bókstafurinn deyðir. Hinn nafntogaði prédikari ensku kirkjjinnnar Canon (dómherra) Farrar hélt nýlega fyrirlestur í Lundúnum um rangan biflíulestur og brýnir þar skorinort fyrir löndum sínum (hinni mestu biflíuþjóð heimsins) þá aðvörun, að forðast á- trúnað bókstafsins, er hann kallar aðalrót allrar vantrúar nú á tímum og móður mestu meina, böls og hneykslana á umliðn- um öldum. Hann kennir bókstafstrúnni um upphaf páfaveld- isins (orð Krists: «þú ert Pétur» o. s. frv.) svo og flestra of- sókna, glæpa og ódáða hinnar fornu rómversku kirkju; í annan stað telur hann bókstaf hinna helgu bóka hafa valdið flestum villum, ofsa og stríði gagnvart öllu mannviti og vísindum og sértaklega gegn flestum þjóðlegum fróðleik. «Á bókstaf biflí- unnar var bygt lögmæti brennudómanna miklu, eins galdra- brennurnar, eins þrælasalan — þetta þrefalda djöfulæði krist- inna þjóða.» — «Á bókstaf bifiíunnar byggðu konungarnir lánstitil sinn: «af guðsnáð», og þjófsvöld þau er sviptu þjóð- irnar öllu náttúrufrelsi, og fyrir trú á bókstafinn beygði hinn blindaði lýður háls sinn undir hið tvöfalda ok konungs og kirkju. Með Bókstaf biflíunnar játuðu þegar háðfuglar mið- aldanna að fjandinn gæti sannað að svart værí hvítt, enda eru þeir ótal margir enn í dag, sem bjóðast til að gjöra hið sama. Samkvæmt Kalvín sanna hans lærisveinar enn daglega með bókstafnum, að allur þorri mannkynsins sé á leið til ei- lífra kvala, þar á meðal öll börn, sem deyja óskírð. Trauðla finnst (segir Farrar) nokkur ný kenning nokkurs flokks, trauðla nokkur ójafnaður konungs eða klerks, trauðla nokkur villa í félagsfræði og vísindum, sem ekki hefir skýrskotað til rang- færðra texta. Hver einasta bálför og brenna fyrir skoðun eða trú, hvert einasta fangelsi, hver einasta ofsókn, hvert einasta logið brennimark fyrir vantrú, hver einasti rógur guðfræðilegs haturs, hver einasta tilraun til að æsa upp trúarofsa alþýðu- múgsins, hver einasta viðleitni til að niðurlægja ritninguna í þrætublett milli trúarflokka og sníða úr henni eiturskeyti handa bræðrum í guðs kristni til að berast á banaspjót — allt eru þetta eins mörg dæmi til þess að skerpa hjá oss þá of van- ræktu viðvörun að bókstafurinn deyðir, allt þetta eru eins mörg dæmi til að varast að fylgja blindandi fjölda guðfræð- inganna — því ófróðari fjölda sem hann þykir vita meira, og

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.