Þjóðólfur - 08.10.1881, Side 2

Þjóðólfur - 08.10.1881, Side 2
92 beiðni Jóns, og engin sönnun er fyrir að svo hafi verið, enda hefði það ekki í minsta máta sannað, að handtakan hafi verið lögleg; en undir málsins rekstri kemur það fram, að þetta muni hafa átt að vera fyrir það, að Björn hafi verið grunaður um, að hafa verið með í kistubrotum í Elliðaánum, en allir vita, að þó svo hefði verið, gat enginn dómari tekið mann fastan fyrir það, því næga dóma höfum vér fyrir því, að slíkt brot varðar ekki nema sekt eða einföldu fangelsi, en stjórnarskráin kveður svo að orði, að engann megi taka fastan fyrir brot, sem ekki varði nema sektum eða einföldu fangelsi. Eg held nú að hver maður, nema lögjærðir of- vitringar, veiði mér samdóma um, að meining mín í þessu efni ekki hafi farið fjætri réttum skilningi, og að eg engan veginn sé sekta verður, þó eg hafi lýst meiningu minni fyrir almenningi, eða réttara sagt, lesendum þjóðólfs. ]>á er hitt, sem dómarinn tekur út úr heildinni, sem hann þó áður hefir eklci getað álitið meiðandi, að eg hafi sagt: »að óskiljanlegt sé, að landsh. og amtm. ekki liafi gefið fógeta vorum opin- berlegar áminningar fyrir vanrækt hans í að framfylgja skip- unum yfirboðara sinna». en dómarinn sleppir því úr orðum mínum í greininni, «því ekki má maður efast um, að amt- maður hafi tilkynt horium bréf landshöfðingja», en þessi orð benda þó svo beint til þess, sem hverjum dómara ætti að skiljast, að eg meinti með því, að orð mín væru undir því komin, að fógeti hefði fengið áminst bréf, en það segir dómarinn að eg hafi verið skyldugur að vita; nei, það var eg ekki, heldur var eg skyldugur að álíta það sem víst, að amtmaður ekki síður enn fógeti færu að boði yfirboðara hans; þetta var því alveg vítalaust, og fieira enn þetta finnur blessaður dómarinn ekki saknæmt, í grein minni, og þetta kostar 125 kr. eða 30 daga fangclsi. Eg læt nú þetta ráðast fyrst um sinn, og mun áfrýa málinu til yfirdóms, og þaðan lengra, ef þörf gjörist, nl. ef eg ekki verð alveg frídæmdur í alla staði. þessi dómur og aðrir fleiri í seinni tíð eiga víst að hræða menn frá að ræða aðgjörðir embættismanna votra í blöðunum, en eitthvað eru þeir hinir sömu dómarar ekki alveg ugglausir um gjörðir sínar, en þær ættu þó jafnan að þola dagsbirtuna, og mun ekki síður verða gáð að þessu hér eptir, og sannarlega hispurslaust tjáð almenningi, ef þötf gjöiist, um atferli þeirra, þó þeir ógni mönnum með háum sektum og fangelsum, því sektir og fangelsi getur engu síðnr lient þá enn oss hina. Reykjavík 26. sept. 1881. Eyilsson. Kjörfundnr í Reykjavík. pann 28. Sept. vár fundur haldinn á bæarþingstofunni, hvar kjósa átti 3 menn í niðurjöfnunarnefndina, í stað þriggja, sem höfðu þá útendað sína tíð í nefndinni. Fyrirfarandi helir nefnd þessi þótt ekki sem bezt valin, og bjuggust menn því við, að fundur þessi yrði fjölsóttur, og það einkum þar-eð nú áttu hærri gjaldendur bæarins að kjósa þessa menn. Sem hærri gjaldendur voru í þetta sinn 133 kjósendur. en hvað skeður: einir el/efu mættu, og voru því hinir sömu kosnir sem fyr voru, nema einn, sem ekki vildi taka móti kosningu aptur, en það var amtsskrifari Páll Jóhannesson, og í stað hans var kosinn póstmeistari Ó. Finsen. Hvernig sem niður- jöfnunin fer í haust, þá geta bæarbúar kent sér sjálfum um, þegar þeir ekki hafa einingu í sér til að fjölmenna við kosn- ingu á þeim mönnúm, sem eiga að hafa jafnþýðingarmikinn starfa á höndum, sem þann, er hér um ræðir. Setning lærða skólans. Hinn 1. þ. m. var settur liiun lærði skóli á sfnum vanalega tíma. Tölu skólapilta í ár vitum vér ekki nákvæmlega, því sumir voru ókomn- ir og fáeinir ætla sér ekki að koma; þó rnunu þeir naumast verða færri enn í fyrra, nefnilega 125. Tveir nýir tímakennarar eiga að kenna í vetur við lærða skólann, alþingismaður Jón Ólafsson ensku í öllum bekkjum og stúdent Jónas Jónasson isienzku í 1. bekk. Paginn sem skólinn var settur var eptir venju flaggað á skólahús- inu og eptir venju flaggaði enginn í bænum, nemaeinn með binu bláa fálkamerki. — Annars eru flagghafendur bæarins vanir að flagga við hverja útför, hvert brúðkaup, fyrir hverri fiskisleif o. s. frv. Lserði skólinn er náttúrlega of ómerkilegur; hann er íslenzkur. Mimur á mönnum. (Aðsent). Eptir lifir mannorð mætt þó maðurinn deyi. I>etta eru óbrigðul sannindi, en enginn auður er þó betri enn góður orðstíf, sem maðurinn getur áunnið á lífsleið sinni, en það eru ekki allir sem hafa þá hugsun, og að okkar skoð- un verða hinir jafnan floiri. þannig sýndi það sig á næstliðn- um vetri, að ekki eru allir jafnir, hvað meðaumkvun og mann- kærleika snertir við bágstaddan bróður sinn, og það jafnvei þó ríkir menn séu, þeir apturloka evrum sínum fyrir kvein- stöfum þeirra og einskisvirða þeirra bænir. |>annig sýndu tveir menri hér í Strandasýslu of mikinn mismun á mannkærleika, og langt um meira enn muntir var á auð. Mennirnir voru Jakob Thorarensen kaupmaður á Reykjarfirði og Loptur Bjarna- son á Eyum í Kaldrananeshrepp. Hinn fyrnefndi var boðinn og búinn til að hjálpa, þegar hans var leitað: hýsti fjölda- margt, fólk, og iét engan hungraðan frá sér fara, menn fengu ekki að f'ara úr húsum hans þá nokkur tvísýna var á veðri, og þeim sem ekki þáðu góðgjörðir hans áður burt, fóru, þeírn hinum sömu bauð hann að hafa nesti með sér. |>uð var opt húsfyllir hjá honum og þó einatt fjölgaði talaði þann ávalt hin sömu orO: «húsin taka». J>annig sýndi hann einstaka velvild í öllu, fyrir hvað vér undirskrifaðir vottum honum innilegasta þakklæti, og sömuleiðis væri óskandi að fieiri vildu feta hiri sömu spor, því þetta einstaka eðallyndi hans mun varla gleymast hinum nauðstöddii reisubræðrum vorum og hinn rétttfáti konungur mun ávarpa, þenna þjón sinn á degi endurgjaldsins þessum orðum: «það sem þú gerðir einum mínum minsta bróður, það gerðir þú mér». Hitin síðarnefndi á eins skilið að verka hans sé getið, þó ílestum hafi fundizt þau nokkuð ólík. Á heimili hans var óminnilegur afii af hákarli umliðinn vetur og komu þangað margir fátækir menu til að leita sér bjargar og fá að vera með aflanum, en þess var eriginn kostur. Nokkrir Strandasýslubúai. Hjólguíuskipið ,,Kac»ou“, Capt. Wilson, frá (ilasgow á Skotlandi, hafnaði sig hér þ. 23. f. m. á áliðnum degi. Er skip þetta gert út frá hinu nýa skozk-íslenzka verzlunarfé- lagi í Glasgow með vörur til kaupstjóra Eggerts Gunnarsson- ar, og á að taka aptur hesta til Skotlands. Með skipi þessu kom einnig kaupmaður Georg Thordal og hafði með því tals- vert af vörum, mest nauðsynjavörum, sem haun fiytur héðan að Borgarnesi á Mýrum, hvar hann í suraar hefir bygt verzl- unarhús og sett sig þar niður sem fastakaupmaður. X>á áttu þeir Vídalin og Eggerz kaupmenn einnig talsvert af vörum með skipi þessu. Allir þessir nefndu kaupmenn færa mikið at góðri matvöru og talsvei t ódýrri enn hér gerist, og enn fremur flytja þeir að góðum mun skepnufóður (stórhlutað mais), sem kemur sér vel í heyleysinu, sem nú er hvervetna. pað er mjög óheppilegt hversu óforsjállega að útgerðarmönnum í Glasgow hefir tekizt að velja skip til þessa, því þetfa skip þarf fjarska mikil kol, og ber eða rúmar tnjög lítið eptir stærð’ enda er það bygt til mannflutninga eingöngu. Sagt er a® það kosti 720 krónur um daginn. Herra Eggert Gunnarssou hafði hér á staðnum 400 hesta, og má nú láta nokkra þeirra bíða, og er það óendanlegt tjón, en það hlýtur að skrifast á reikning út.gerðarmannanna, en ekki félagsins hér, og er þetta óheppilegra enn frá megi segja, einkum þegar svona er orðið áliðið tímans. Strand. J>ann 28. f. m. strandaði stórt enskt brigg-skip við Stafnnes syðra; var það hlaðið kolum til konsúls M. Smitlis- Sagt er að það hafi verið 400 smálestir að stærð. Björguðu alh’ skipverjar sér á bátnum til lands, og eru nú hingað komi■ i1

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.