Þjóðólfur - 05.11.1881, Side 1

Þjóðólfur - 05.11.1881, Side 1
þJÓÐÓLFVR. BB. ár. Kostar 3kr. (erlendis 4kr.), borgast fyrir lok ágústmán. Reykjavík 5. Nóvbr. 1881. Uppsögn á blaðinu gildir ekki, nema ne u„s pað sé gjört fyrir 1. okt. árinu fyrir ■— Sýslunefndin í Arnessýslu hefir á síðasta fundi sínurn, haldinn var að Eyrarbakka 25. til 30. apríl síðastl., svar- bréfi frá hreppsnefndinni á Skeiðum þannig: «pá var lagt fram og upplesið aðfinningarbréf frá 4 hreppsnefndarmönnum Skeiðahrepps, dags. 8. Marz 1881 við- víkjandi ýmsum aðgjörðum sýslunefndarinnar á fundi hennar 1880. Bréf þetta áleit sýslunefndin einasta sem pistil sér til skemtunar, en ekki svara verðan, og lýsir því yfir, að hún einasta framvegis svari slíkum útásetningum ef þær kæmi frá amtinu, en gangi þegjandi fram hjá þeim frá hrepps- befndunum». J>ar eð nú þetta svar sýslunefndarinnár er þegar komið ht um alla Árnessýslu í fundargjörðum sýslunefndarinnar og Qiargur ókuunugur kann að ætla hreppsnefndinni þann ósóma að hafa ætlað sér að knésetja hina háu nefnd, eða að hafa naisboðið virðingu hennar á annan hátt, vil eg láta Árnesinga sjá bréf það, sem sýslunefndin hér svarar, svo þeir geti sjálfir dæmt um það, og þurfi ekki að trúa í blindni. Bréfið hljóð- ar þannig. «í gjörðum sýslunefndarinnar í Árnessýslu á fundi henn- ar 13. til 15. Apríl f. á. og sem sent hefir verið eptirrit af í alla hreppa sýslunnar, eru ýms atriði, sem hreppsnefndinui bér í hreppi virðast miður ljós eða skiljanleg, og leyfir'hún sér því að leyta frekari skýringar sýslunefndarinnar á hinum helztu þeirra, og eru þau þessi. 1. Undir No. 2 í nefndargjörðunum er það ekki skýrt tekið fram a.f sýslunefndinni, að þó hún álíti brýna nauðsyn á gagnfræðaskóla hér í sýslu, og tilboð Eyrarbakka barnaskóla mjög billegt, álítur hún kostnaðinn sér of vaxinn, og álítur því réttast, til pes* svo gott fyrirtceki falli eiyi um koll. að bjóða Bangæingum í íélag með sér. Eptir þessu liggur beint við, að álíta mál þetta fallið, ef Kangæingar ekki þiggja tilboðið. Undir No. 16 er oddvita þó falið að taka 1000 kr. lán til þessa fyrirtækis, líklega áður enn Rangæingum er skrif- að um málið, hvað þá heldur svar komið frá þeim. f>að sýn- ist einnig nokkuð ógreinilegt að ekkert sést á nefndargjörð- unum, með hvaða skilmálum peningar þessir eru afhentir barnaskólanum, hvort til þess er ætlast, að þeir beri sýslu- sjóðnum nokkra vöxtu meðan gagnfræðaskólinn ekki er kom- inn í gang, eða það er gjöf til barnaskólans, sem hann aldrei þarf að svara neinu af, þó svo ólíklega kynni að fara að skófinn ekki kæmist á fót, eða þá ekki yrði á þeim stað eða með því fyrirkomulagi, sem útlit er fyrir að sýslunefndin hafi helzt haft í huga, þó það heldur ekki verði ljóslega séð af nefndargjörðunum. 2. Undir No. 13 er um kröfu Eiríks Ásmundarsonar á Grjóta að upphæð 571 kr. 95 a. og skýrt frá, að amtmaður hafi skorað á sýsumann að greiða fyrir málinu og borga upp- hæð þessa «ef nokltur samningur hafi þar um gjörður vcrifi«. Amtið virðist því að gjöra undanfarna samninga að skil- yrði fyrir borgun þessari. Slíkum samningum neitar oddviti, en hefir þó borgað 200 kr. eptir því sem út lítur fyrir helzt fyrir fyrir bænrækni Eiríks. Sýslunefndin í heild sinni er samdóma oddvita um, að enginn samningur hafi verið gjörð- ur og enginn getað verið til, og er honum þakklát fyrir að hann ekki borgaði meira af hinni umræddu upphæð 571 kr. 95 a., og lýsir því yfir, að hún að svo vöxnu máli ekki borgi meira. J>að lítur því svo út, sem nefndin sundurliði skulda- kröfu Eiríks og að hún álíti þessar 200 kr. sem greiddar eru rétthærri enn hinn hluta skuldarinnar, því engum getur komið í hug að sýslunefndin hefði borgað þetta, hefði hún ekki álit- ið það skyldu sína, og væri því ákjósanlegt að þetta væri bet.ur uppIýsC svo menn væru í engum vafa. 3. Undir No. 21 er talað um laun sýslunefndarmanna fyrir að sækja fund þennan, «sem hefir nú varað í bráðum 3 daga». Við launin viiðist breppsnefndinni þetta athugandi. a. hvort sýslunefndin álítur sig að hafa lagaheimild til að launa þá menn af sýslusjóði, sem ekki áttu lögum sam- kvæmt að sækja fundinn, svo sem er um sýslunefndarmann- inn úr Selvogi og Villingaholtshreppi. b. Sýnast laun fiestra nefndarmanna of hátt sett, efþau að eins eru fyrir að sækja fundinn, eins og þó er skýrt tekið fram í nefndargjörðunum, því eptir því sem út lítur fyrir hafa .1 a m e s R a r f i e 1 d. (Niðurlag) Garfield gekk nú þegar með aletli og einbeitt- um áhuga að því verkofni, sem hann hafði sett sér, nefnilega að uppræta þá spillingu og fjárdráttar óhæfit, sem átti og því miður á sér enn stað í hinni umboðslegu stjórn banda- •íkjanna. í samvinnu með fjárhagsráðgjafanum Windom tókst honum að færa niður rentur ríkisskuldanna að stórum raun, og yfir höfuð miðaði öll stjórn hans til bóta. En hér var illur þröskuldur í vegi. Eitt af aðalatriðunum var að afnema' 'hinn persónulega framdrátt í embættaveitingunum. Hinn mikilsmegandi ráðherra, (senator) Conkling, vildi koma að einum af fylgifiskum sínum sem tollstjóra í Newyork. Gar- field valdi annan betri mann, og meðmælti honum hjá öld- ungaráðinu. Út úr þossu æstist upp ákefðar rimma milli fiokksmanna Conklings, hinna svo nefndu «stalwarts» (hinna sterku), sem vilja halda uppi hinu gamla ástandi, að embætt- tn séu feitir launabitar fyrir fylgi og fulltingi við kosning- arnar, og svo hinna, sem vilja koma lagi á embættaveiting- arnar og skipulag þeirra. En einmitt þegar Garfield var ^yfjaður á þessu drengilega verki, þá var það að Guiteau, w'nn af flokksmönnum Conklings) liitti hann með morðkúlu sinni, óumræðilegs harms og óbætanlegs tjóns fyrir land og lýð. Uannig hafa tveir lörsctar bandafylkjauna fallið fyrir jnorðingja hendi, báðir í baráttu fyrir hinn bezta málstað, E'nkoln af því hann barðist fyrir að útrýma þræláhaldinu, Garfield af því hann hafði tekið fyrir sig að eyða annari meinsemd rikisins, nefnilega spillingu þeirri, sem á sér stað í embætlisstéttinni. Dauði beggja þessara blóðvotta hefir orðið þjóðinni sárasta sorgarefni, en eins og það málefni sigr- aði, sem Lincoln barðist fyrir, eins er ekki örvænt að það mál, sem Garfield sókti svo drengilega, nái fram að ganga, og að það einmitt fyrir dauða hans verði sigrinum enda nær enn það var áður. Einn rnerkur rithöfundur, sem þekti Garfield og hefir minzt hans eptir andlátið, fer meðal annars þessum orðum um hann : Jeg man eins glögt eptir því og það hefði verið í gær þegar jeg í fyrsta sinn sá þenna fágæta mann. þ>að var 1872 þegar stóð á streitunni fyrir endurkosningu Grants. Rjóð- vaídsmenn í Washington voru sem steini lostnir, því Karl Schurz haföi með öllum hinum þjóðversku frelsismönnum kjörið Horace Greely sem sinn mann, að halda fram til for- seta kosningar. Oddvitar þjóðvaldsmanna nefndarinnar kvöddu þá mig og nokkra aðra á fund einn á Kapítólium hjá hinum núverandi ríkisritara Blaine. Fundarstjórinn Zacharias Chand- ler hafði stórhrúgur af bréfum fyrir framan sig, með tilkynn- ingum um fráfall þjóðverja svo hópum skipti um öll banda- fylkin, og þrumaði af reiði mikilli mót hinum ótrúu liðs- mönnum og vildi liafa alla pjóðverja rekna úr þjóðvaldsfiokk- inum þá reis upp maður út í horni salsins, hár vexti og virðuglegur í yfirbragði með breiðvaxið brjóst og miklar herðar -63-' /03

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.