Þjóðólfur - 24.06.1882, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 24.06.1882, Blaðsíða 1
PJÓÐÓLFUR 34. ár. Kostar 3 krónur (erlendis 4 krónur), á að borgast fyrir lok ágústmánaðar. lteykjavík 24. júní 1882. Uppsögn á blaðinu gildir ekki, nema -i o T-|l q ^ hún sé gjörð fyrir i. okt. árinu fyrir. -1-0. UldO. Innlendar fréttir. í síðasta blaði f>jóð. er þess getið, að hér hafi dunið á norðanstormur mikill þann 23. f. m. Stormur þessi stóð hér í tvo daga, enn síðan lægri þann 25. enn hélzt þó við næstu daga á eptir. Frost var hér nokkurt og fjúkslitringur með köflum, enn festi al- drei hér, enn upp til sveita kom snjór nokkur. Svo mun verið hafa víðast um land, því úr Skagafirði er oss ritað þann 28., að þá væri þar alstaðar al- snjóa niður í sjó. Ur Borgarfirði hefir frétzt, að þá hafi komið slíkur snjór og óveður, að sauði marga hafi fent til bana í Hvítársíðu og Norðurárdal. þ>ar eru sumir orðnir nær sauðlausir og hrosslausir, og einstaka maður á enga skepnu eptir, t. d. bóndi einn þar efra, er átti 4 kýr lifandi, enn í þessu kasti drápust þær allar. Líkt þessu mun viðar vera, þó eigi hafi til spurzt, svo vissa sé á fréttum. Fénaður drepst eigi allur úr megurð eða hor, heldur Úr margskonar annari ótirmingu, því að sumstaðar hafa kindur verið orðnar máttlausar, og verið skornar, og þá ver- ið með 3 — 4 mörkum mörs. Leiðir sýki þessi að líkindum af ónýtu fóðri og slæmu, því hey hafa víða reynzt afar létt. Síðan þetta kast hafa eigi komið nein áköf óveður, enn sífeldur kuldi á norðan eða austan, enn hlý sunnanátt aldri verið meira enn dag í bili. Gras- vöxtur er mjög lélegur og lítill. Al- staðar að er sagður mikill lambadauði. Mislingasóttin hefir breiðzt hér óðum út, og lagzt allþungt á fólk. Meðan flest lá hér í bænum lágu nálægt 1000 — 1100 manns; allmargir hafa dáið úr henni, enn fáir merkir menn; helzt má nefna verzlunarmann Bjarna Sigurðar- son, er lézt úr henni 13. þ. m. rúml. þrítugur að aldri, efnilegur maður og vel að sér gjör. Mislingarnir eru komn- ir hér upp um allar sveitir, og þykja illkynjaðir mjög; fylgir þeim ýmis ó- fagnaður, svo sem lungnabólga, hlust- arverkur o. fl. Hætt er við að þeir verði mönnum skæðir þegar út um landið kemur. Tímum var hætt í lærða- skólanum 24. f. m. þeirra vegna, og var sú ákvörðun ger, að þeir sem gæti skyldi taka vorpróf í vor, enn hinir í haust í byrjun öktóbermánaðar. Vor- próf taka eigi nema örfáir (6) piltar. Strandsiglingaskipið Arktúrus fór héðn þann 1. og ætlaði að reyna að komast norðurfyrir, vestur um land, enn varð að hverfa aptur við Horn, og kom svo hingað aptur og fór héðantil Hafnar. þ>riðjud. 6. júní kom póstgufu- skipið Valdemar frá Höfn, og ætlaði héðan austur fyrir land, enn komst eigi lengra enn fyrir Berufjörð; var þar þá alt fult með ís á fjörðum inni og með landi, enn autt úti fyrir. Sneri það svo aptur og hingað, og fór svo vest- ur fyrir land og ætlaði þaðan norður fyrir ef auðið væri. Húsbruni. 20. d. þ. m. kom upp eldur í geymslu- húsi Kriigers lyfsala ; svo stóð á, að verið var að „destillera11 spiritus þar inni, og hljóp spiritusinn upp úr katl- inum og niður i eldinn, og fuðraði þegar upp bál mikið. þ>etta var um hádegisbil. Eldurinn fór á svipstundu um alt loptið í húsinu ; safnaðist þá þeg- ar að mikill mannfjöldi og slökkvilið bæjarins með slökkvitólin, og varð eld- urinn slöktur; brann þakið af húsinu, og alt það er þar var uppi, enn eigi niðri. Til allrar hamingju var lygnt veður, því að ef hvast hefði verið, eða eldurinn komið upp á nóttu, var allur miðhluti bæjarins í veði,. og hefði þá mátt fyrst sjá, hvað slökkviliðið hér í bænum er í raun og veru duglegt. Nýjar bækur. VERÐANDI. Útgefendur: Bertel E. O. porleifsson, Einar Hjörleifsson, Gestur Pálsson, Hannes Hafsteinn. Kh. 139 bls. 8vo. Kostar í kápu 1 kr. 50 a. Fyrir meir enn 30 árum síðan sendu tveir fslenzkir stúdentar við há- skólann í Kaupmannahöfn til íslands ársrit eitt, er þeir kölluðu Norðurfara, og átti það að færa landsmönnum fög- ur kvæði og smásögur og annað það fagurt, er andinn inngæfi þeim þar i miðri gróðrarstíu mentanna og strauma hins andlega lífs. f>etta rit stóð ei nema tvö ár (1848—1849), og var þar á ofan seinna árið ólíku óskáldlegra enn fyrra árið, og líkt Skírni eða öðr- um slíkum þingræðuskrínum úr Norður- álfunni, nema hvað það var margfalt betur skrifað enn Skírnir. Síðan hefir ná- lega ekkert slikt rit komið út ,og svo hafa stundum liðið mörg ár í bili að eigi hefir heyrzt stunur né hósti frá stúdent- um við háskólann; hefir það líklegast verið af því að námið hefir ei veitt þeim tíma til slíks. Nú virðist aptur sem andinn sé að koma yfir þá, og hafa þeir sent oss kver það, er nefnt er 1 fyririrsögn greinar þessarar, og þar eð slíkt er svo mikil nýjung og kverið er harðla ólíkt flestu því er hingað til hefir út komið, þykir oss hlýða að fara um það fáeinum orðum. þ»ess verður að geta áður enn tal- að er um efni ritsins, að fyrir nokkr- um árum fór að koma upp ný stefna í bókmentalífinu á norðurlöndum; áður höfðu skáldin hamazt í að leita að og yrkja um eitthvert óljóst og dulið hug- sjónalíf, sem átti að vera fólgið á bak við hið sýnilega líf, enn þó hvervetna að koma fram í því, ef vel var að gáð og litið var á J'lð einmitt á þann hátt sem þeir vild J Með þessu varð lífið eintómt samsafn af draumum, og lýs- ingar þeirra líkastar myndum, er spegl- ast í kaffikönnu. Mennirnir skiptust í tvo flokka, engla og djöfla, og svo fá- einar hræður þar á milli; og endirinn varð optast sá að fantarnir hlutu sín makleg málagjöld, enn englarnir æru- laun dyggða sinna. f>að er nú auðsætt, hvé trygg þess lýsing er af lífinu—enn það eiga rómanar og leikar altaf að vera—æf vel er að gáð; ið sanna, fagra og góða fær með engu móti neytt sín. Ekkert er fagurt eða gott nema það sé samkvæmt sannleikanum, og ekkert er honum ósamkvæmara enn að laga hann i hendi sinni, þannig, að ekkert verður eptir af honum annað en barlaus feyskja, klædd i silkihjúp í stað grænná blaða, sem tælandi lygahjúpur. þessi alsherjar hugsjón eða „ideaP, sem þeir þóttust vera að leita að, og bygðu þó altaf á, rann altaf úr höndum þeim er þeir þóttust vera að handsama hana, eins og draugarnir, sem öll von var á, því að hún gat með engu móti verið til, sízt eins og þeir hugsuðu sér hana, og varð því að engu allur þeirra dýrðlegi himnastigi „idealsins“ í lífinu. I>að var auðsætt, að allir voru eigd blindaðir af þessari hugsjónablekking, enn þeir voru þá líka skammaðir út eins og hundar og kallaðir siðspillandi höfundar, mein- sýnismenn (Pessimistar), „realistar“ og annað því um líkt, af því að þeir þorðu að snerta við sannleikanum og átu- meinum mannfélagsins. Um og eptir 1870 fór þetta að breytast; menn fóru að sjá hvað „idealið" var ramfalskt, og breiddi hulu yfir sannleikann, og fóru þá að snúa sér að stefnu þeirri, erkall-- ast „realisme“ og nefndu sig „realista“, er „idealistar11 höfðu áður haft að níðs- orði. „Realisme“ er það að skoða

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.