Þjóðólfur - 13.07.1882, Síða 4
62
Mannalát.
Fyrir nokkru síðan lézt húsfrú Ragn-
heiður Kristjánsdóttir, kona Jóns bónda
Tómassonar á Hjarðarholti í Borgar-
firði, dóttir Kristjáns bónda Matthie-
sens á Hliði. Hún var ung kona og
vel látin. Nýfrétt er og, að húsfrú
Guðrún Lárusdóttir, kona J>orsteins
prests Benediktssonar á Lundi í Borg-
arfirði sé látin eptir nýafstaðinn barn-
burð.
Fimtudaginn 19. janúar næstliðinn sál-
aðist að Hjörtsey á Mýrum merkiskon-
an Sigríður Hafliðadóttir 59 ára gömul.
Hún var fædd á Stórahrauni í Stokks-
eyrarhrepp 20. apríl 1823. Olst hún
upp þar eystra, enn fluttist árið 1846
með prófasti síra Guðmundi Vigfússyni
frá Stóranúpi að Borg á Mýrum. Vor-
ið 1848 20. maí giftist hún ekkjumanni
Jóni Sigurðssyni, sem þá bjó í Kross-
nesi í Álptaneshrepp og fluttist með
honum að Hjörtsey fáum árum síðar,
hvar hún dvaldist til dauðadags. J>au
hjón eignuðust einn son, Guðjón, sem nú
er búandi í Hjörtsey.
Sigríður sál. var mesta sóma kona,
mikið vel greind og vel að sér til
munns og handa, stilt og siðprúð, guð-
hrædd og ráðvönd til orða og verka.
Hún var ástúðlegasti ektamaki, bezta
og umhyggjusamasta móðir og stjúp-
móðir, trygg og vinföst og hvers manns
hugljúfi. IX.
Nýdáin er prestsekkjan Helga Bryn-
jólfsdóttir; hún deyði 9. júní næstliðinn
hjá systur sinni, húsfrú þórunni áKirkju-
vogi.
Húsfrú Helga var fædd 1807 31. marz
á Seli við Reykjavík, hvar faðir henn-
ar síra Brynjólfur Sívertsen var dóm-
kirkjuprestur, enn móðir hennar var
Steinun Helgadóttir, sem segjamáum,
að verið hafi fyrirtak kvenna í öllum
greinum. t
Með foreldrum sínum fluttist Helga
1814 austur að Holti undir Eyjafjöllum,
ólst þar svo upp hjá þeim, uns hún var
19 ára að aldri, giptist 1826 17. okt.
prestinum sira Jóni Steingrímssyni á
Hruna.
þegar maður hennar fyrir aldurssakií
hafði sagt brauðinu lausu, fluttist hún
með honum hingað á suðurland að Nesj-
um í Hvalsnessókn; hér misti hún mann
sinn, orðlagðan merkisprest og göfug-
menni 1851 4. jan., bjó svo á jörðunni
og seinast við litla grasnyt af henni
sem ekkja og einstæðingur næstliðin
30 ár, þangað til hún í fyrra sumar,
þrotin að heilsu, fjöri og kröptum flutt-
ist til áður nefndrar systur sinnar að
Kirkjuvogi, hjá hverri hún naut hinnar
einstökustu aðhjúkrunar og umönnunar,
unz drottinn hvíldi hana eptir langvinn-
ar og sárar þjáningar og sjúkdómslegu.
Helga sál. hafði orð á sér fyrir höfð-
ingsskap, göfuglyndi og gestrisni, og
sýndi mikið örlæti og rausn, (því
efni voru næg á hennar fyrri
búskaparárum), ávann sér allra af-
hald og ástarþokka vegna hjarta-
gæzku sinnar og meðaumkunar við alla
sem liðu neyð og áttu bágt; hún gat
engan nauðstaddan séð, að hún ekki
Hknaði honum, og sama var hjartalag
hennar til að gjöra gott og útbýta,
eptir að efnin voru að mestu þverruð.
Bæði eystra og hér fyrir sunnan var
hún ljósmóðir margra barna með mik-
illi heppni, og hafði gott skynbragð á
lækningatilraunum ; hún var hin ástrík-
asta eiginkona, umhyggjusamasta móðir
barna sinna og barna barna, hjúin elsk-
uðu hana og virtu og allir sem hana
þekktu unnu henni hugástum. Af þrem-
ur sonum hennar lifir nú einn, Stein-
grimur að nafni, og er ekkjumaður, enn
alls eru sonarbörn hennar 7 á lífi.
Blessuð sé hennar minning.
Auglýsiiigar.
Undirskrifaður skiptaráðandi í Kjósar- og
Gullbr.sýslu skorar hjer með á alla þá, sem
standa í skuld við verzlun Ólafs heitins Jóns-
sonar, kaupmanns í Hafnarfirði, að greiða
skuldir sínar hið allra fyrsta annaðhvort
til mín eða til einhverrar verzlunar í Hafn-
arfirði.—þoir er eigi hafa innan næstkom-
andi júlímán.loka annaðhvort greitt skuldir
sínar á þennan hátt eða samið um greiðslu
þeirra við mig, verða lögsóttir til greiðslu
skuldanna.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbr.s., 27. maí 1882.
Kristján Jónsson.
ILIER MBÐ AUGLÝSIST, að sam-
kvæmt ákvörðun á skiptafundi í dánarbúi
Ólafs heitins Jónssonar, kaupmanns í Hafn-
arfirði, verða íbúðar- verzlunar- og útihús
þau, sem eru eign búsins, seld við opin-
bert uppboð, er haldið verður þannig :
1. þriðjudaginn 15. ágústm. næstk. kl. 12
2. ------- 22.-------------------------
3.---------29. -------------------------
Hin fyrstu 2 uppboðin verða haldin á
skrifstofu undirskrifaðs, hið 3. í húsum dán-
arbúsins.—Fáist viðunanlegt boð í húsin á
á síðasta uppboðinu, er samþykkt verði af
skiptarjetti og skuldheimtumönnum, verða
þau seld hæztbjóðanda.
Skilmálar fyrir sölunni og virðingargjörð
á húsunum verður til sýnis á skrifstofu minni
eptir 1. ágústmán. næstkomandi.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbr.s. 17. júní 1882.
Kristján Jdnsson.
Samkvæmt opnu bréfi 4. janúar 1861 og
lögum 12. apríl 1878 er hérmeð skorað á
alla þá, sem telja til skuldar í dánarbúi
landlæknis Dr. Jóns sál. Hjaltalín, er and-
aðist hér í bænum 8. þ. m. að koma fram
með og sanna kröfur sínar á hendur dánar-
búi þessu fyrir skiptaráðanda í Reykjavík
innan 12 mánaða frá síðasta birtingardegi
Dessarar auglýsingar.
Skrifstofu bæjarfógeta í Rvík 26. júní 1882.
E. Tli. Jánassen.
Hér með leyfi eg mér að gera almenningi
kunnugt, að eg hefi sezt að í húsi Ólafs
gullsmiðs Sveinssonar hér í bænum, sem
bókbindari, og tek að mér alskonar bókband,
sem og aðgerðir á nharmonikumn.
Reykjavík, 11. júlí 1882.
Arni porvarðsson.
Jörðin Brú í Biskupstungum 17 hndr. að
dýrleika, með 3 kúgildum og 100 ál. land-
skuld fæst til kaups og ábúðar í næstkom-
andi fardögum, ef kaupandi semur við
undirskrifaðan eða Sigurð bónda Guð-
mundsson í Gröf um kaupin fyrir næstu
veturnætur.
Brú 29. júní 1882.
porsteinn Narfason.
Jörðin Jófríðarstaðir við Hafnarfjörð, 9
hndr. og 7,10 P. fæst til kaups frá fardög-
um 1882 til 1. marz 1883. Jörðin hefir
stór tún öll slétt, grjótgarður alt í kring og
nýbygður bær og bæjarhús.
Listhafendur vildu semja um kaupin við
porvarð Ólafsson á Jófríðarstöðum.
Nýsilfurbúin svipa hvarf mér nálægt Hlíð-
arhúsum við Reykjavík, á hana grafið þorv.
Ólafsson. þann sem hirt hefir svipu þessa,
bið eg að gera svo vel að skila henni á skrif-
stofu þjóðólfs eða til mín að Jófríðarstöðum
við Hafnarfjörð.
p. Ólafsson.
Óll þau óskilahross, sem finnast í heima-
löndum Mosfellshrepps, verða tekin til hirð-
ingar mót daglegri borgun 30 aur. um dag
hvern, hreppstjóra strax send lýsing af
þeim, og réttað við Grafarvog, í fyrsta sinn
þriðjudaginn f elleftu viku sumars og svo úr
því annanhvorn þriðjudag til haustrétta.
þau hross, sem eigendur ekki hirða við
fyrstu réttun, verða geymd mót sama vökt-
unartolli sem áður er greint, lýst um 14
daga eða til næsta réttardags, og ef þau
eigi ganga út, verða þau seld á réttarstaðn-
um við opinbert oppboð, og áfallinn kostn-
aður tekinn af andvirðinu. Sömu reglu um
vöktun, lýsing og sölu verður einnig fram-
haldið til hausts, ef þörf gjörist. þess skal
getið, að hross þau, sem hér ræðir um fást
eigi laus, nema mót borgun út í hönd.
Mosfellshrepp, 13. júní 1882.
Hreppsnefndin.
Handhringur með dökkum steinum lítið
eitt rauðdropóttum, og mikið slitinn, týnd-
ist 28. maí þ. á. frá kirkjugarðinum og niður
að Brunnhúsum. Finnandinn er beðinn að
halda honum til skila á skrifstofu þjóðólfs
mót fundarlaunum.
Auglýsingar festum við undirskrifaðir því
að eins upp hér eptir, frá utanbæjarmönn-
um, að hið lögboðna gjald fylgi með.
Rvík, 82.
Lögregluþjónarnir í Reykjavík.
Nokkrar eikartunnur fást hjá Sigm.
Guðmundssyni fyrir mjög lágt verð.
Afgreiðslustofa pjóðólfs: ,JW. 8 við Austurvöll
Útgefandi og ábyrgðarmaður Kr. O. þorgrímsson.
Prentaður í prentsmiðju ísafoldar.