Þjóðólfur - 02.09.1882, Side 4
82
Við þetta tækifæri get eg eigi leitt
hjá mér að drepa á, hvé æskilegt það
væri, að eimferjur kæmust hér upp til
flutninga með ströndum fram. Slíkar-
ferjur þyrfti eigi að kosta stórfé, en
mundu verða til mikils gagns. Borg-
firðingar hafa viljað koma á reglubundn-
um gufubátsferðum milli Akraness og
Reykjavíkur og fleiri hafna í Faxaflóa,
er flytja skyldi og póstana að norðan
og vestan. Um mál þetta hefir verið
rætt all-mikið á sýslufundum hér syðra,
svo og á sjálfu alþingi. Á þinginu
mætti málið mótspyrnum. Einn hinn
helzti þinggarpurinn bar það fyrir, að
enginn hér kynni að stýra slíkum bát
(eins og örðugra væri að fá stýrimann
en skip). Annar þingskörungur kvaðst
hvorki vera „tyrfinn né gyfjaður11 (!) og
væri hann því á móti þessu gufubáts
máli. Alþingi gat eigi gjört sér glöggva
hugmynd um það, hvé dýr báturinn
mundi verða, né um kostnað og ávinn-
ing, og var því engi von, að málið fengi
góðan byr á þinginu. Ræður sumra
þingmanna í þessu máli virðast bera
vott um það, að þeir þingmenn sé eigi
sannir framfaravinir, eður að þá skorti
næga þekking á þessu efni, er þeir sjá
eigi nauðsyn slíks fyrirtækis. Væri
vonandi, að mál þetta kæmi betur und-
irbúið til næsta þings. Allur almenn-
ingur umhverfis Faxaflóa fylgir máli
þessu með miklum áhuga.
PÓstskipið „Valdemar11 kom 31. f.
m. vestan og norðan um land, svo og
„Camoens11 frá Skotlandi. Frá Norður-
landi er að frétta dæmafáa óveðráttu
og hafisrek. Frá útlöndum spyrjast
engin sérleg tíðindi. Útlendar fréttir
og innlendar koma í næsta blaði.
Auglýsingar.
þrengir að brjósti bölið kalt,
blóðug var und mér gjörð,
mörg falla tár, því mjög er valt
meðlætið hér á jörð.
Drottinn, yfir mér hendi halt,
huggaðu beinin mörð,
réttvíst er jafnan ráð þitt alt,
refsing þó finnist hörð.
Hver sorg að skar mitt hjarta tvist
hann einn sem reynir veit,
tvo þegar syni báran bist
blóm-vaxna frá mér sleit;
fyrir guðs náð eg frelsaðist
fölur við strandar reit;
mín löngun himna laut að vist,
lifandi þá eg heit.
Ástkæru niðjar, öll sem hjá
ánægja lífsins bjó,
í brjóstum ykkar eg blika sá
blómstur manndygða frjó
hlýjustu dögum æsku á
óvörum dauðinn sló.
þ>ið eruð heimsins fári frá
fiuttir í himna ró.
Gleðst nú minn andi guði í,
gott er hans stjórnar ráð,
mitt reynslustand skal meta því
meðal til heilla þáð,
sælunnar landi’ eg senn að sný,
sigur-kóróna þráð
gefst mér skínandi og gleði ný,
þá góðvina fundi’ er náð.
Sigtr. GuðmuncLsson.
vissi þetta eigi í fyrstu, og sá það svo um
seinan. Hann hafði gefizt í klær miklu
slungnara manns en hann sjálfur var, og
varð því nauðugur viljugur að beygja sig
undir vald hans og vera sem hann vildi.
Hann varð sjálfur þræll, bundinn á allar
hliðar, og varð að sitja með það sem komið
var, þó sárt þætti. þanriig varð þá Smith
»Drottins útvaldi spámaður« í staðinn fyrir
Bigdon foringi fyrir öflugum og harðsnún-
um trúarflokki.
Faðir Jóseps Smiths var einn af þeim, er
fást við fjárgröft í Ameríku, og flakkaði um
landið með hyski sitt. Atvinna hans var
fólgin í því, að ljúga að fáfróðum mönnum
að hann vissi þar og þar af fólgnu fé í
jörðu, og stela sér fénað þess á milli. Jósep
var yngri sonur karls og mesta uppáhald hans,
og sagði hann, að sonur sirm yæri skygn, og
sæi víða dalakúta í jörðu niðri. Jósep var
vel greindur, og karl og kerling spáðu því, að
ef hann yrði ekki hengdur, yrði hann sjálf-
sagt forseti Bandaríkjanna eða annað því
um líkt. (Framh. síðar).
Eg leyfi mér að skora á hina heiðr-
uðu kaupendur „þjóðólfs11, að greiða
mér hið allra fyrsta andvirði blaðsins
fyrir þetta ár, með því að tveir þriðj-
ungar árgangsins eru þegar út komnir.
Svo skora eg og á alla þá, er eldri
skuldir eiga að greiða mér fyrir blaðið
eða annað, að greiða þær svo fljótt
sem unnt er.
Kr. Ó. porgrímsson.
Allar bækur, sem bókmenntafélagið
hefir gefið út frá upphafi og eigi eru
löngu uppseldar, fást hjá bókaverði
félagsins, Kr. O. þorgrímssyni, er
einnig sendir félagsmönnum ársbækur
félagsins.
Til barnakennara.
Munið eptir, að kaupa í tæka tíð áður
vetrar:
NÝTT STAFROFSKVER
eptir Jón ritstj. Ólafsson, sem að allra
dómi er hið bezta stafrofskver til að
kenna börnum lestur. Fæst hjá út-
gefandanum, Kr. Ó. þorgrímssyni, á
50 aura.
Silfurbúinn tannbaukur með stöf-
unum @ <0 á tappanum hefir glat-
azt næstliðinn sunnudag þ. 27. ágúst.
Hver, sem kynni að finna eða hafa
fundið þennan bauk, er beðinn að
halda honum til skila — gegn fundar-
launum — til
Rvík 3I/g 82
G. Emil XJnbehagen.
íbúðarhús úr timbri, 14 ál. á lengd 10 ál.
á breidd, tilheyrandi dána,rbúi M. A. Th.
Clausens í Hafnarfirði, fæst til kaups nú
þegar. Lysthafendur eru beðnir að snúa
sjer til undirskrifaðs, er í umboði skuld-
heimtumanna semur um kaupin.
Keflavík 24. júlí 1882.
H. J. Bartels.
Samkvæmt opnu bréfi, 4. jan. 1861, og
lögum 12. apríl 1878, er hér með skorað á
alla þá, sem telja til skulda í dánarbúi
dannebrogsmanns þorleifs heitins Kolbeins-
sonar frá Háeyri hér í Arnessýslu, til þess
áður 6 mánuðir séu liðnir frá síðustu birt-
ingu þessarar auglýsingar, að lýsa kröfum
sínum og sanna þær fyrir skiptaráðandanum
í Árnessýslu.
Sömuleiðis er einnig skorað á alla þá, er
skulda kynnu téðu búi, að hafa borgað skuld-
ir sínar innan sama tíma til sama skipta-
ráðanda.
Til staðfestu
Skrifstofa Arnessýslu á Eyrarbakka,
31. júlí 1882.
Stefán Bjarnarson.
Erfingjum bóndans Arnórs Árnason-
ar, sem andaðist að Dalkoti í Kirkju-
hvammshreppi hér í sýslu 13. febrúar
þ. á., tilkynnist hér með, að skipti á
dánarbúi hans verða til lykta leidd að
forfallalausu að Stóruborg í þverár-
hreppi föstudaginn 27, október næst-
komandi um hádegisbil.
Skrifstofu Húnavatnssýslu, 31. júlí 1882.
Lárus Blöndal.
Umburðarbréf
og kort yfir Rauðárdalinn (á íslenzku og
dönsku) verða send og borgað undir með
póstum til íslands hverjum, sem sendir
utanáskript til sín eða vina sinna til
A. E. Johnson,
Com. of Emgr., St. P., M. & M. R. R.
St. Paul. Minn. America.
Afgreiðslustofa pjóðólfs: J\@. 8 við Austurvöll.
utgefandi og ábyrgðarmaður Kr. O. þorgrímsson.
Prentaður i prentsmiðju ísafoldar.