Þjóðólfur - 18.11.1882, Síða 1

Þjóðólfur - 18.11.1882, Síða 1
PJÓÐÓLFUR 34. ár. Kostar 3 krónur (erlendis 4 krónur), á að borgast fyrir lok ágústmánaðar. Reykjavík 18. nóv. 1882. Uppsögn á blaðinu gildir ekki, nema nn . \ hún sé gjörð fyrir I. okt. árinu fyrir. al. Uid/O. Eg skil mig ekki—altaf hlýt eg unna. Eg- skil mig ekki—altaf hlýt eg unna, en elskað sömu lengi’ eg get ei meir; mér finnst eg þjóta meðal ótal brunna og megi drekka—en þyrsti altaf meir. í’ví sjái’ eg mey, og sé hún ung og fögur og sé hún ekki járnköld eða stál, þá er eg í báli, yrki ótal bögur og öllu fórna, likam bæði’ og sál. En þegar víman aptur af mér líður eg ætíð finn, að glópska mín var stór. Var hún sú rétta ? Nei, og sárt mér svíður, er sé eg aðra, hvernig þarna fór. Með nýrri ást svo nýja byrja’ eg vegi en nýtt i vorum heimi eldist fljótt, svo gengur koll af kolli, dag frá degi, frá dagsins morgni fram á svarta nótt. En þó er eg orðin þreyttur fram úr máta á þessum leik, því hjarta mitt er kalt, og margopt hlýt eg sárri gremju gráta mitt glópskulíf og þetta ráðlag allt. Eg hef elskað bara einu sinni og elskað þá svo heitt, sem nokkur má, með þeirri glóð, sem brendi inst mig inni —nú askan þakin er með klaka og snjá. En allt sem bærist inst í sálu minni og allt sem neitar mér um stundarró er þetta: Eg vil elska einu sinni, bara' einu sinni til—og pá er nóg. S. m. Gufuskipaferðir. Eitt af hinu marga illa, sem vér höfum mátt reyna á sumri því, er nú leið, er samgönguleysi það, er Norður- land hefir mátt sæta sökum hafíss,sem þar hefir varnað bæði ferðum og að- flutningum. f>eirra þurfti þó sannarlega með, og vér Sunnlendingar megum furða oss á, hvé góðir búmenn að Norð- lendingar eru, að þeir skuli hafa getað haldið út harðrétti þetta. Enn það er og líka rétt að athuga nú nákvæmlega, hvort að það muni koma fyrir sétta hvert ár, optar eða sjaldnar, að þrjár fyrstu strandferðirnar •hljóti að hindrast sökum hafíssins, svo að ekki verði eptir nema tværafþeim. Ef vel er gætt að, munu menn komast að raun um, að þetta geti optlega borið að, enn þeir sem búa við hafnir þær, er strandferðaskipið kemur á, gæti gert vel i því af fræða menn um, hversu opt líkindi eru til, að strandferðirnar tálmist, þegar farið er eptir margra ára þekkingu á aðförum íssins. fó að þetta leiði ekki til vissu, er þó gagn- legt að vita, hvað líklegt sé. „Kongur vill sigla, enn byr hlýtur að ráða“, og svo er um það, að ef is er fyrir, má ei hætta skipum í hann. Lífi manna og fé er hætta búin, og ef eins dýr skip og gufuskip hreppa lang- ar kyrsetur, leiðir af því mjög mikið fjártjón og ekkert í aðra hönd. Menn verða því eptir fremsta megni að koma gufuskipaferðunum svo fyrir, að þó að nokkrar ferðir kunni að mishepnast, verði þó ætíð nokkrar eptir sem kunni að hepnast. Norðlendingar eru mjög hart leiknir að ná ekki nema tveim hringferðum aí fimm, og verða að sjá af vöruflutn- ingum og ferðum þrjú fyrstu skiptin. þ>etta getur þeim ekki nægt, og á því ætlum vér stuttlega að vekja máls, ef öðruvísi mætti koma ferðunum á. Hefði t. a. m. gufuskipaferðirnar byrjað fyr að vorinu til, er næsta líklegt, að sú ferð hefði getað hepnast. Menn ætti að skoða sig um, hvort ekki mundi rétt vera að ferðirnar byrjuðu fyr. Vér nefnum það að eins í þetta sinn. Hin síðasta strandferð fer um Norð- urland í áliðnum september. Er þetta ekki of snemma hvernig sem í árilæt- ur, hvað þá heldur nú eins og á er statt? Hjá þeim er meiri haustverzlun enn öðrum íslendingum, og það er of snemma sem skipið fer um hjá þeim rétt eptir réttir, eða áður enn bændur hafa getað safnað haustarði sínum í verzlanirnar. Fyrir verzlanirnar er einn- ig óhagur að því, að þær vörur, sem koma inn eptir miðjan september eða frá því um réttir, verða að fara með seglskipum eða bíða næsta sumars. þ>au eru eklci eins fær og gufuskipin um að fara leiðar sinnar, og eru alt of dýr, ef þau ekki geta fylt sig með farmi. það á strandferðaskip hægra með, af því að það kemur á marga staði, og mælir því næsta mikið með gufuskipsferð síðast í október. Sú mótbára er almenn, aðhafnirnar á norðurlandi sé svo slæmar, að gufu- skip eigi ekki að fara á þær úr því komið sé fram i október. Hvernig sem þessu nú er varið, þá getur þó engi neitað því að Akureyri og Borð- eyri sé þó fullgildar hafnir, og þareru þá tvær. Lítið er betra enn ekki neitt, og það væri þá rétt að rannsaka hvort ekki mætti gera Sauðárkrók að tryggi- legri höfn með nokkrum tilkostnaði, eða jafnvel finna höfn utar í firðinum, sem nota mætti. £>að er svo áríðandi fyrir Norðlendinga að fá gufuskipsferð í október, bæði hvað haustverzlan snertir og vörubirgðir undir veturinn, eða þeg- ar hafís varnar ferðum sumarlangtfram á höfuðdag, að þetta atriði ætti að rannsaka. Vér vitum það vel að gufuskipsferð í október á fáeinar hafnir yrði til þess að kveða dauðadóm yfir fáeinum smá- borgum á Norðurlandi. Nauðsyn brýt- ur lög, enn það má vel gera ráð fyrir því, að þegar á hag almennings er lit- ið, enn ekki nokkurra, sem búa { grend við smástaðina, að þá sé Norðurlandi það í öllu haganlegra að koma upp fáum, enn öflugum verzlunarstöðum, heldur enn að dreifa verzlunarkröptun- um. Fjölgun á gufuskipaferðunum hefir einkum kostnað í fÖr með sér, enn hún loiðir af sér svo mikinn óbeinlínis hag, að það verður minna enn í fyrstu sýn- ist, þegar ekki er litið á annað enn krónufjöldann. Skortur á vörubirgðum, og það fram á höfuðdag getur lagt fjölment hérað í eyði, og sá skaði verð- ur ekki reiknaður út í krónum. Eru nú þessar hringferðir hugsan- legar? ]->að er nú eitt sem vandi er úr að ráða, úr því að Danir kosta helm- ing til ferðanna, og vilja svo haga öllu eins og þeim þykir henta. feir, sem hafa myndað þetta sainfélag, þekkja ástæðurnar, sem reynslan hefir sýnt oss á þessu sumri, að vel gæti það komið fyrir, að hagkvæmara væri að láta aðalstöðvar strandferðanna vera í Reykjavík enn i Kaupmannahöfn. Geti skip ekki komizt fyrir Langanes, eins og ferðunum nú er hagað, hörfar það aptur, og reynir þrem vikum síðar að komast fyrir Llorn. Hepnist það ekki, fer það leiðar sinnar til útlanda, og byrjar svo á nýjum leik 3—4 vikum siðar, belgfult af vörum, sem ekki kom- ast á verzlunarstaðina. Væri nú ekki eins hagkvæmt að láta gufuskipaferðirnar milli íslands og útlanda hafa aðalstöðvar sinar í Reykja- vík, og láta svo strandferðaskip fara frá Reykjavík 2svar meðan hitt skipið fer eina leiðina til og frá útlöndum ? Strand- ferðaskipið getur farið tvær ferðir með- an hitt fer eina, aðra ferðina vestur-

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.