Þjóðólfur - 31.03.1883, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 31.03.1883, Blaðsíða 2
42 Gœrur höfðu nýlega lækkað If verði og bauðst eigi meira en 4 kr. 75 a. fyrir vöndulinn (2 gærur); töluvert var óselt. Sundmagar voru seinast seldir fyrir 85 a. pundið. Rúgur, danskur 6kr. 25 a. til 6 kr. 50 a. hver 100 pd.; rússneskur 6 kr. 10 a. til 6 kr. 35 a. Rúgmjöl 6 kr. 35 a. til 6 kr. 50 a. hver 100 pd. Bankabygg, í meðallagi 8 kr, 50 a. hver 100 pd.; betri tegundir um 9 kr. Kaffi, gott meðalkaffi 32 a. til 36 a. pundið. Sykur: kandís 30 a. til 32 a. pundið, melís 26 a. Hrisgrjón 7 kr. 35 a. til 7 kr. 85 a. fyrir 100 pd., voru að hækka. ÚR ÖLLUM ÁTTUM. Seyðisfirði (N.-Múlas.), 11. febr. 1883. Stórkostlegt slys fréttistígær norð- an úr Njarðvík. p>að bar til aðfaranótt 2. ]>. m. á bœ þeim, er að Stekk heit- ir, að þar kom svo mikið snjóflóð, að af tók ofl bœjarhús og deyddi 6 af 9 manns, sem á heimilinu voru. f>eir, sem dóu, voru : bóndinn, Guðmundr að nafni, móðir hans, kona hans, barn þeirra hjóna á 3. ári og fóstrbarn og vinnu- kona. Voru þau öll nema vinnukonan í öðrum enda baðstofu og féll veggrinn inn á þau og deyddi þau víst snögglega. Tveir synir hjóna og tvær vinnukonur voru f hinum enda baðstofu; þar féll og inn veggr, en þakið bar þar svo af þeim, að brœðrnir og önnur vinnukonan héldu lífi En í þessari þröng lágu þau frá því aðfaranótt föstudags og fram á laugardag. Bar þá gest af hendingu að bœnum, sá hann vegsum- merki og sagði til og var þá grafið í rústirnar og þeim 3 bjargað, er með lífi voru. Góðr afii sagðr kominn undir Jökli, einkum hákarlsafli (30 kúta hlutir). Skip Geirs Zoega hafa aflað mæta vel, annað ca. 100 tn. og hitt ca. 80 tn. lifrar; höfðu verið úti fulla viku. Með páskunum gekk í norðanátt með frosti talsverðu. 27.—29. þ. mán. féll nokkur snjór. — Bjargarskortr. Eptir að bjarg- arskortrinn í Skaptafellssýslu frétt- ist hingað, sendi hinn setti landshöfð- ingi hraðboða austur til að láta menn þar vita, að hann veitti hverjum hreppi f Vestur-Skaptafellssýslu 1250 kr. af gjafapeningum þeim, er hann hafði til umráða og Austur-Skaptafellssýslu 1300 kr., er menn skyldu veija til bjargræð- iskaupa hvar og hvernig, sem menn bezt gætu fengið það. Útvegsbændur á Vatnsleysuströnd hafa og ótilkvaddir boðið skiprúm fyrír 150 manns að aust- an, þó þeir kæmu allslausir. („ísaf.“). Vesturheimsferðum er sagt að all- margir menn hafi hug á á sumri kom- anda, einkum norðanlands; þar á með- al nokkuð á 2. hundrað manns í Skaga- firði, en minna í hinum öðrum hjer- uðum. (,,ísaf.“). Skiptapi varð 10. þ. m. á Eyrarbakka; fórust þar í lendingu 5 menn en öðrum varð bjargað; formaðurinn hjet Sigurð- ur Gamalíelsson. Húsbruni varð 20. f. m. í Nesi í Höfða- hverfi; brann nýtt timburhús, er alþing- ismaður Einar Ásmundsson átti. Með mönnum nýkomnum að vestan og norðan hefir fijezt að gjafakornsskipið Neptun var komið til Borðeyrar; það hafði orðið vart við hafís nokk- urn fram undan Hornströndum; fyrir vestan og norðan sama veðurblíða að undanförnu sem hjer. („ísaf,“). Embættispróf við háskólann hafa tekið : þórhallr Bjarnarson (frá Laufási) í guðfræði með 1. einkunn. Finnr Jónsson (Borgfirðings) í málfræði með 2. einkunn. Jón Jensson kand. jur. er settr til að gegna landritaraembættinu. Séra Magnúsi Jonssyni á Skorrastað er veitt Law/a's-prestakall. öfrardtó-prestakall veitt uppgjafa-presti pórði Thorgrímsen. Séra Jóhann Briem í Hruna hefir fengið lausn frá embætti. Séra Stefdn Arnason á Hálsi sömuleiðis. Séra Hjálmar porsteinsson á Kirkjubæ sömuleiðis. Séra Jón Kristjánsson á Breiðabólsstað sömuleiðis. Styrkr af landssjóði til vísindalegra fyrirtækja : Jóni Borgflrðing alt að 270 kr. til útgáfu „ágrips um ísl. bókmentir11;— Biskupinum alt að 600 kr. til að gefa út „Hugvekjur11. Óhafandi embættismenn. (Niðrlag), Vér vonum að vér með þessum fáu orðum höfum sýnt almenningi fram á, að þeir Fischer sýslumaðr og Arngrímr prestr eru öldungis óhafandi og ólíðandi yfirvöld; þeir eiga báðir sammerkt að þessu leyti; og þó einkunnarorðin kynnu, ef til vill, sýnast eiga betr við Fischer, sem er danskr f húð og hár, þá mætti á borð við þau syngja þessi einkunnar- orð um séra Arngrím : „Sjá hér, hve kyrkjan vígja vann, vesalan fjón og kennimann ! “ Vér skiljum svo að sinni við þessar tvær fyrirmyndar-útgáfur af islenzkum embættismönnum og skorum á alla þá, sem þær hafa séð og lesið í kjölinn, að láta álit sitt í ljósi um þær, hvort sem það verðr oss með eðr mót. Ritað í desember 1882. Nokkrir Barðstrendingar. Mannalát. t — þann 18. jan. þ. á. andaðist 1 Hjör- leifshöfða í Mýrdal konan Málfríður And- rjesdóttir. Hún var fædd á Beynir í Mýr- dal 10. febr. 1836; giftist hún 1864 ekkju- manni Markúsi Loftsyni bónda á Hjörleifs- höfða og bjó þar með honum til dauðadags; áttu þau saman 3 börn, 2 syni og 1 dóttr; eru þau öll á lífi og vel efnileg. Málfríður sáluga var vel gáfuð kona og einnig mesta siðprýðis- og dugnaðarkona; er hennar því að maklegleikum saknað mjög. t Yigdís Einarsdóttir frá Gíslakoti, fædd 15. oktbr. 1852, gift lo.júní 1881, deyði 23.júní 1882. Hún var guðhrædd, ástrík og elsku- verð, vinsæl og vel metin. Lifi hennar minning í blessun. Jón Böðvarsson. 14. þ. m. dó hér í bænum jþorfinnr stúdent Jónathansson, fyr verzlunar- stjóri í Hafnarfirði. 19. þ. m. dó í latinuskólanum MarkÚS Kristjánsson, mannvænlegasti piltr. Auglýsingar. Auglýsingab í embættisnafni Oddviti kjörstjórnar Dalasýslu Kunngjörir: Miðvikudaginn 30. dag maimán. 1883 verðr að þingstaðnum Hvammi í Hvammssveit innan Dala- sýslu kjörþing haldið og skal, sam- kvæmt fyrirskipun landshöfðingjans yfir íslandi 28. nóv. 1882 og lögum 14. sept. 1877 (A. Nr. 16.), á þingi því fulltrúi kosinn til alþingis fyrir kjördæmið í stað síra Guðmundar Einarssonar og fyrir þingtíma þann, sem hann átti eftir, er hann dó. Kjörþingið byrjar á hádegi réttu.— Jafnframt því, að þetta er almenn- ingi birt, er skorað á þingmannaefni þau, er gefa vilja kost á sér, að gæta fyrirmæla fyrnefndra kosningarlaga um framboð til kosningar. Skrifstofu Dalasýslu, i.marz 1883. Guðlaugr Guðmundsson, cst. — Hér með auglýsist, að þriðjudag- inn 12. júní 1883 á hádegi verðr hér á skrifstofunni skiftafundr haldinn í dán- arbúi smáskamtalceknis Benedikts Gabrí- els Jónssonar og verðr þá fram lagt yfirlit yfir hag búsins, skrá yfir skuldir og frumvarp til úthlutunargjörðar í búinu. Skrifstofu Dalasýslu, 5. marz 1883. Guðl. Guðmundsson, cst — Hér með auglýsist, að mánudaginn þann n. júní 1883 á hádegi verðr hér á skrifstofunni skiftafundr haldinn í dánarbúi sýslumanns Skúla Magnússon- ar, og verðr þar fram lagt yfirlit yf- ir hag búsins, skrá yfir skuldir og niðr- röðun þeirra og frumvarp til úthlutun- argjörðar á fé þvi, er fyrir hendi er. Skrifstofu Dalasýslu, 5. marz 1883. Guðl. Guðmundsson, cst. í næstliðnum ágústmánuði fundu menn á skipinu „Ingólfi“ bát úti á rúmsjó suðr undir Papey, mannlausan, og fluttu hann upp á Djúpavog ; bátrinn er að stœrð sem tveggjamanna far, merkja- laus, en að öllum líkindum norskr.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.