Þjóðólfur - 31.03.1883, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 31.03.1883, Blaðsíða 4
44 uðust mig með meðalabrúkun*og allri ná- kvæmui, svo að þó ég hefði verið þeirra skilgetið barn, þá var ómögulegt'að’ætlast til nákvæmari aðhjúkrunar. Ég lá 3 vikur þunt haldinn. En fyrir guðs'náð og þeirra góðu tilraunir fór ég að hressast, svo þau fluttu mig til míns heimilis, og þar með vildu þau ekkert fyrir þetta þiggja, svo ég bið og treysti, að Guð, sem ekkert gott lætr ólaunað, endrgjaldi þeim þúsundfalt, þegar þeim inest á liggr. Eeykjavík 3. marz 1883. M. Magnússon, múrari. — I>egar ég næstlíðið sumar varð fyrir því sárt- sviðandi sorgarsári, að sjá á bak mínum elskuleg- um ektamaka, þórsteini Vigfússyni, er druknaði í Hvítá, sem rennr hér rétt fyrir framan bæinn, urðu margir til, bæði konur og karlar, af eigin hvöt og hjartans hluttekning í sorg minni, að leggja mér lílcn, eins til orða og verka, svo ég, veik og van- burða manneskja, sem opt hafði áðr reynt mótbyri lífsins, gæti staðizt þennan mótlætis brimboða, er á bijósti minu skall, og enn aftr við jarðarförina, sem löngu varð síðar, (þvi lík hans fanst eigi fyrri en eftir 8 vikur liðnar) vakti Guð upp sumpart nýja hjálparmenn, og sumpart " ina sömu, er áðr tóku hlutdeild i sorg minni; allir líkmenn gáfu mér upp sina fyrirhöfn, og prestr minn gaf mér að nokkuru leyti það, sem mér bar að greiða honum; ég er fullviss um, að þessum mínum velgjörðamönnum er ekki þént með þvi, að ég greini hér nöfn þeirra; það blasir líka fyrir hugsjón minni, að nöfn þeirra séu teiknuð og talin á þá bókina, sem sett er þvi lefri, sem aldregi verðr útskafið. Að endingu þakka ég öllum fjær og nær, sem studdu mig í stríðinu og bið af alhug til ins alvalda miskunnarans, að launa þeim, er mér miskunn veittu. Arnarbæli í Grímsnesi 27. febr 1883, Margrét Eiríksdóttir. Llm gripasýninguna. Vér þykjumst ganga að þvi visu, að almenn- ingr hér á landi hafi nú þegar heyrt getið innar yrirhuguðu sýningar, sem iðnaðarmannafélagið í Keykjavík hefir ætlazt til að yrði- haldin hér á inn- lendum iðnaði á komandi sumri um alþingistímann. En því er miðr, að vér höfurfi örðió’ þess varir, að það eru margir, sem ekki hafa getað gjört sér Ijósa grein fyrir, hvaö meint sé með þessari sýning. f>að t. d. hefir margr lagt. þan.n skilning í tilgang þessarar sýningar, að sem flestir ættu að kapp- kosta að búa til, eða jafnvel að uppgötva einhverj- ar nýjar vciar, sem væru alveg óþektar, eðr að búa til einhvern þann kjörgrip, sem væri sannköll- uð gersemi, sem ekki stæði til bóta, og þess- vegna í alla staði ómögulegt, að ganga betr frá honum. Eins og leiðir af sjálfu sér, þá getr þetta ekki náð nokkurri átt. Vér hljótum fúslega að játa, að vér íslendingar stöndum langt á baki annara þjóða í iðnaði, sem öðru, og gjörum vér ráð fyrir, að engum útlendum manni hafi komið til hugar, sem látið hefir á iðnaðarsýningar .erlendis muni eftir sig, að þeir væru svo af hendi leystir, að ómögulegt væri að gjöra þá betr á nokkurn hátt,—Hvernig skyldi oss þá geta dottið í hug, að leysa nokkuð það verk af hendi, sem ekki þyrfti umbóta við?— Fljótt yfir sögu farið, þá er hér einungis sú aðal- meiníng með sýningu þessari, að inn innlendi iðnaðr komi nú fram á skoðunar-plássið, eins og hann er i sjálfu sér,—Ekki meiningin, að menn séu að „reisa sér hurðarás um öxl“ og búa til þá muni, sem þeir eru alls ekki færir um að leysa af hendi —nema ef menn vilja leggja einhverjar tilraunir á sig í uppgötvunar stefnu, eru menn náttúrlega sjálfráðir — heldr einungis að búa það eina til— hvað helzt, sem það kann að vera—sem hver og einn er leiknastr í, og náttúrlega leysa það svo vel af hendi, sem hver er fær um. Af því þetta verðr in fyrsta almenna sýning á Xslandi, er óskandi og vonandi, að sem flestir reyni til að styðja að því, að sem mest verði sent á hana af gripum til sýnis, svo að mönnum gefist færi á að sjá ið innlenda iðnaðar-ástand vort, eins og það er nú, í von um, að smátt og smátt verði föng á að bæta úr því, sem ábótavant er hjá oss i þessaátt, og aftr á hinn bóginn,^aðfumbuna því, semfhrósvert er. Yér vit- um það fullvel allir íslendingar, |hversu mikið far aðrarj'þjóðir hafa gert sér um, að rétta hluta vorn á þessum tveimr hörðu árum, sem yfir oss hafa dunið, með stórkostlegum peninga- og matvælagjöf- um; en vér, eins og eðlilegt er, höfum á engan hátt getað endrgoldið þessar miklu velgjörðir við oss, sem vist hefir heldr ekki verið ætlazt til af hendi gefandanna; en vér viljum segja: að það sýnir þó einhverja framfaratilraun hjá okkr, að vér einmitt nú þetta ár höfum ráðizt í að halda sýningu á innlendum iðnaði, eingöngu til að hvetja menn til framfara, og nota alla þá vinnu-krafta, sem völ er á í landinu, og væri eigi fjærri sanni, að halda, að iðnaðrinn gæti á sínum tima að nokkru leyti bætt það skarð, sem órðið hefir fyrir landbún- aðinum og kvikfjárræktinni þessi ár, og færi svo, að það yrði, þá fyrst gætu inir veglyndu gefendr, sem svo ríkulega hafa rétt oss hjálparhönd á vor- um neyðartímum, séð, að vér íslendingar höfum skilið réttilega kröfur tímans, þegar vér reynum að reisa annan atvinnuveginn, þegar hinn er að sumu leiti að líða undir lok, og er vist óhætt að full- yrða, að sú tílraun er þakklæti betri í augum þeirra, sem hafa viljað og vilja oss vel. Reykjavík, 20. marz 1883. Páll porkelsson. Sigfús Eymundarson. — Undirskrifaðr tekr að sér útsölu á als konar bókum íslenzkum. Yestdalseyri við Seyðisfjörð, 24. jan. 1883. Sigfús Magnússon. Pakkhús-umsjónarmaðr. Ið íslenzka brennisteins- og koparfé- lag vill fá áreiðanlegan og ötulan mann, sem verðr að hafa góðar meðmælingar og geta talað ensku, í þjónustu sína sem um- sjónarmann í húsum félagsins og til að vinna félaginu gagn yfir höfuð, svo sem ráða verkamenn til námavinnu og annara starfa. Fáist reglusamr, framkvæmdasamr og ötull maðr, er talar viðunanlega ensku og er vel skrifandi, fær hann góð laun, er hækka eftir 6—12 mánuði, eftir dugnaði hans. Lysthafandi snúi sér skriflega til al- þingismanns Jóns Olafssonar, ritstjóra »pjóðólfs«, og skýri frá, hver laun hann nú hefir og í hvers þjónustu hann er nú eða hefir áðr verið. Paul G. Johnston, forstöðumaðr. Yegna þess að ég sé á Markaskrá Dalasýslu prentaðri 1880, að maðr hefr lát- ið prenta sig fyrir sauðfjármarki mínu; fjöðr fr. hægra og sneitt fr. vinstra, þá gjöri ég mönnum í nálægum sveitum og sýslum það vitanlegt, að ég hefi fyrirboðið eins og ég hér með fyrirbýð áminnztum manni að brúka ofanskrifað sauðfjármark. þverholtum í Mýrasýslu, 10 febr. 1883. Jón Einarsson. þegar guði á síðastliðnu sumri þókn- aðist að burtkalla minn hjartkæra ekta- mann Gísla póst Magnússon, eptir langa og stranga banalegu, þá urðu eigi allfáir, til að taka innilegan þátt í kjörum mínum, og styrkja mig, eigi að eins með skuldaupp- gjöfum, heldur öllu fremur með dagsverkum um sláttinn, og stórgjöfum, bæði í fénaði og peningum, til að geta haldið við bú, sem kallast mátti sauðlaus eftir hinn stórkost- lega fénaðarfellir í vor. Eg vil því fyrst og fremst þakklátlega leyfa mér, að nefna eínu nafni: hina eðallunduðu Oræfinga, þeir hafa bannað nöfn sín, er fyrstir manna auðsýndu mér bróðrlega hluttekningu, þar sem hinir helztu þeirra sóttu, á nýbyrjuðum slætti, yfir langa og torfæra leið, til að heiðra út- för míns sártsaknaða ektamanns, mér og mínum til ómetanlegrar ánægju, gáfu mér upp meiri og minni skuldir, mörg dagsverk um túnasláttinn og síðan æðimargt fé og peninga í haust, auk margra annara greiða og hjálpsemi, svo þeirra höfðinglegu gjafir gætu vel reiknast til 200 kr. Enn fremr urðu margir nærlendis til að rétta mér hjálpar- hönd, einnig í skuldauppgjöfum og beinlínis útlátum, og af þeim vil ég fyrst leyfa mér að nafngreina vorn ágæta sýslumann S. Ólafsson, umboðsmann Ó. Pálsson, heiðurs- bóndann þórarinn þórarinsson á Selja- landi, prófast J. Sigurðsson, söðlasmið S. þorleifsson, vinnumann minn þorgils Guðmundsson, og vinnumann J. Jónsson á Kálfafelli, auk margra annara, sem ég hvorki endist til upp að telja og því síðr að endr- gjalda; fyrir því sný ég mér til hins himn- eska föður, sem engu góðverki gleymir, og sem nógu er ríkr til að launa, og bið hann af hrærðu hjarta að umbuna öllum þessum æruverðu höfðingsmönnum fyrir mig og minn munaðarlausa barnahóp, eigi að eins með því að blessa og farsæla þeirra stund- lega hag, heldr öllu fremr að minnast þess á hinum mikla dóms- og reikningsskapar- degi, að þeir hér opt gáfu hungruðum að eta og þyrstum að drekka, etc., hvar fyrir góðr guð virðist að metta þeirra eigin sál með náð og svala með miskunn. Sauðabergi 25. janúar 1883. Bagnhildr Gísladóttir. Af þakklátu og jafnt viðkvæmu hjarta finn ég sérstaka skyldu mína sem móðir, að opinbera það kærleiksverk, er nokkrar ó- vandabundnar manneskjur af tilfinningar- sömu hjarta gjörðu á dóttur minni Guðrúnu sálugu Rögnvaldsdóttr, er lá veik á spítalan- um og Miðseli í þeim hættulega sjúkdómi sullaveiki, er um síðir leiddi hana heim. Er þá fyrst að geta ins góðkunna manns doktor Jónassens, er veitti henni nákvæma að- hjúkrun í þjáningum hennar, auk meðala, er hann útvegaði henni reikningslaust; og þvf næst systranna á spftalanum, madömu Guðrúnar og systur hennar Halldóru, er af einstakri alúð hjúkruðu og sýndu alla góða meðferð á henni, er þær bezt gátu. Einnig er verðugt að ég minnist þeirra valinkunnu hjóna, Magnúsar Vigfússonar á Miðseli og Guðrúnar Jónsdóttur konuhans, er ekkilétu sitt eftir liggja, með öllu mögulegu að bæta úr krossburði hennar, og veita henni alla þá aðhjúkrun, er þeim var auðið, ásamt öll- um þeim, er vitjuðu hennar, og réttu henni hjálparhönd á þeim tíma, er þjáningarog krossburðr heimsóttu hana sem mest. Fyrir þessar og allar aðrar velgjörðir henni í té látnar, votta ég hér með mitt innilegasta hjartans þakklæti, og bið inn algóða föðr- inn, sem ekki mun láta einn vatnsdrykk ó- launaðan í lærasveinsnafni gefinn, að um- buna það af ríkdómi sinnar náðar, þá þeim og þeirra mest á liggr. |>ví það orð stendr stöðugt: »hvað þér gjörðuð einum af þessum mínum minstu bræðrum, það hafið þér mér gjört«. Tungufelli dag 14. febr. 1883. Guðrún Jónsdóttir. , Næsta blað laugard. 7. april. mr i því birtist svar kjörstjórnarinnar í Rvík, Ritstjóri: Jón Ólafsson, alþingism. Prentaðr í prentsmiðju ísafoldar.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.