Þjóðólfur - 16.06.1883, Síða 4
74
oft eigi svo vandvirklega af hendileyst,
sem ella væri kostr. „Hraðvirki er
hroðvirki", segir danskt máltœki. Og
gallar og vansmíð í lögum geta oft
orðið dýrir, bæði beinlínis við það hvað
lögin verða lakleg, og svo við það, að
fyrir það sama þarf aftr og aftr að vera
að káka við ný lög.
Hins vegar er þörf á að ráða til lykta,
og það sem fyrst, svo mikilsverðu máli
sem landbúnaðarmálið er ; og svo væri
full þörf á að hreinsa ofrlítið fyrir dyr-
um með því að koma fullnaðar-úrslitum,
er dugað gætu nokkra hríð, á ýmis þau
mál önnur, er nú flœkjast árlega fyrir
á þingi.
Hvernig þetta geti orðið með þing-
tíma þeim, er nú er, fáum vér eigi séð.
f>að hafa því komið fram ýmsar radd-
ir fyrr og síðar, er allar hafa lagt eitt-
hvað til að ráða bót á þessu. Sumir
hafa viljað lengja þingtímann, aðrir
viljað hafa þing á hverju ári o. s.
frv. Oss virðist lenging þingtímans um
i mánuð eða svo framyfir það, sem nú
tíðkast, geta alls ekki nœgt til að ná
tilganginum. Og þegar ekki eru önn-
ur stór-mk 1 fyrir, en fjárlögin, þá er
þingtímin líklega nœgr, svo sem hann
nú er. Betr mundi bætt úr sumum
þörfum vorum með því að halda árlegt
þing; og auðvitað væri það réttara, ef
efnin leifðu; því að hvert þing fær þeim
mun öflugra bolmagn gagnvart fram-
kvæmdarstjórninni og hinum löggjafar-
valdsliðnum (konungi), sem það kemr
oftar saman. En úr þeim vandrœðum,
sem vér höfum að framan á bent, bœtir
ekkert, nema lengri þingtími í
eitt skifti.
þ>að er því skoðun vor, að ráðlegt
væri að lengja e k k i næsta reglulegt
alþingi með því, að taka t. d. landbún-
aðarmálið fyrir ; heldr hafa tímann sem
styztan, ljúka meðferð fjárlaganna og
þeirra annara nauðsynlegustu smærri
laga, er tíminn leyfði, jafnframt þeim.
Skora svo heldr á konung að stefna til
aukaþings. milli inna reglulegu
þinga, er þá gæti staðið lengri tíma
og lokið við t. d. landbúnaðarmálið og
fleira. Vér vitum að ein mótbára verðr
þegar á lofti hjá mörgum, og það er
kostnaðrinn. En vér ætlum að auðvelt
sé að sýna, aðí raun réttri kosti
það þjóðina miklu meira að hafna
þessu ráði, en að taka það. þ>að munu
flestir geta séð, er vandlega vilja hug-
leiða málið og eru nógu kunnugir til
að meta það rétt.
En yrði þetta tekið ráða, þá gæti
verið áhorfsmál um, hvort tiltœkilegra
væri að halda slíkt aukaþing að vetr-
inum til næst á eftir reglulegu þingi,
eða þá að sumarlaginu til það sumarið,
sem reglulegt þing er ekki haldið.
Vér viljum ekki fjölyrða um þetta
meira að sinni, en skjóta því til íhug-
unar alþingismanna og stjórnarinnar.
Alþingiskosning.
29. f. m. var kosinn alþm. í Dala-
sýslu. Kosning hlaut séra Jakob Guð-
mundsson.
Aiigljsingar.
Þeir, sem eiga hatta hjá mér,
verða að vitja þeirra fyrir mánaðarlokin.
Hannes Skarphéðinsson.
Hér með auglýsist, að bœjarstjórnin
hefir samþykt, að bœjargjaldkerinn
ekki þurfi að hafa skrifstofu sína opna
nema frá kl. 11 f. m., til 1 e. m. á hverj-
um degi, utan mikið liggi á einhverri
afgreiðslu, því þá skal hann gegna nær
sem hans er vitjað.
Skrifstofu bœjarfógeta í Reykjavík,
7e- i883-
E. Th. Jónassen.
Starfi sem annar lögregluþjónn í
Reykjavík er laus og eiga þeir, sem
vilja takast þenna starfa á hendur, að
sækja um hann skriflega til bœjarstjórn-
arinnar fyrir 1. ágúst þ. á. Launin eru
560 kr. föst og aukatekjur frá 60 til
100 kr. á ári. Enn fremr styrkr 40 kr.
úr bœjarsjóði til þess að kaupa sjer ein-
kennisbúning, og 20 kr. úr lögreglu-
sjóði.
Skrifstofu bœjarfógeta í Reykjavík,
h. 1883.
E. Th. Jónassen.
Hér með auglýsist að byggingarnefnd
Reykjavíkr heldur fundi sína á 1. og
3. þriðjudegi í hverjum mánuði og verða
því þeir, sem þurfa að fá útmældar lóðir
undir byggingar, eða annað að leita til
nefndarinnar, að hafa sent bréf um það
til bœjarfógetans fyrir kl. 12 m. d. næst
á undan nefndum fundardögum.
Skrifstofu bœjarfógeta í Reykjavík,
1. júní, 1883.
E. Th. Jónassen.
Síðan í fyrravetur hefi ég úr ýmsum
áttum fengið svo mörg bónarbréf um
að útvega landamerkjaskjöl fyrir jörð-
um eða eftirrit þeirra, að ég hefi eng-
an tíma til að svara þeim öllum, er þess
hafa beiðzt eftir allan þann tima sem
ég hefi eytt til að leita að þeim í bóka-
safninu, þess vegna læt ég hér með
alla þá vita, sem beðið hafa um þessi
skjöi, að ég hefi engin þau skjöl fund-
ið, er ég hefi verið beðinn um, og að
ég framvegis ekki tek að mér slíka
leit, því ég hefi engan tíma til þess,
enda er nú hverjum heimilt að fá hand-
rit lögð fram á lestrarstofu safnsins og
sjá það, er hann vill.
6. júni, 1883.
Jón Árnason.
Ásk orun.
þ>ar eð vér Mormónar höfum oft orð-
ið fyrir mörgu álasi og mótmælum fyr-
ir trúarboðun okkar, og verið oft ó-
virtir af œðri og lægri mönnum hér,
sem telja sig til þeirrar lútersku kirkju,
þá langar mig til að gjöra grein fyrir
trú vorrH heyranda hljóði, svo almenn-
ingr geti heyrt okkar ástœðr, og þann-
ig séð hvor er sennilegri.
Skora ég því hér með á Biskupinn
yfir íslandi, ef hann treystir sér til þess,
að mœta og forsvara trú sína á þeim
stað hér í Reykjavík, er honum þókn-
ast, innan þess 19. þessa mánaðar, og
áskil ég, að hvor okkar tali 5 mínútur
í senn, til skifta, fyrir trú sinni, og hann
láti mig vita þann stað og tíma er hann
útvelr.
Reykjavík, dag 12. júní 1883.
Æríkr Olafsson.
Hér með auglýsum vér undirskrifaðir, að
vér bönnum öllum ferðamönnum áfanga eða
hesta-áning í voru landi eftirleiðis án vors
leyfis, en þeir sem ekki skeita banni voru
mega búast við, að vér förum eftir því sem
lög leyfa í því efni.
Bjarni Guðmundsson á Önundarholti.
Sigurður Arnbjörnsson í Vælugerði.
Einar Einarsson Urriðafossi.
Jón Eiríksson á Kampholti.
Sökum þess mikla fénaðartjóns, sem vér
urðum fyrir á næstliðnu vori og þar af leið-
andi örðugleikum, hljótum vér að selja öll-
um óviðkomandi ferðamönnum beina og
nœtrgistingu þannig : Lausgangandi mað-
ur, sem fær vökvun og kaffi, greiði fyrir
nóttina 15 aura ; maður með hest, sem fær
hey, greiði 25 au. Kaffibolli sérskilinn kost-
ar 10 au.
Einar Einarsson á TJrriðafossi.
Sigurðr Egilsson á þjótanda.
Jón Eirtksson á Kampholti.
Sigurðr Arnbjörnsson í Vœlugerði.
Bjarni Guðmundsson Ónundarholti.
Hotel
„Ingólfur1.
Hér með auglýsist, að ég hef sett
mig niðr sem gestgjafi hér á Eyrar-
bakka, og veiti upp frá þessu mat,
kaffi, ölföng m. m. með svo vægu verði,
sem kostr er á. f>að skal tekið fram,
að lokið verðr upp fyrir ferðafólki alla
nóttina.
Garðbæ á Eyrarbakka, i2.júni 1883.
Bárðr Nikulásson,
— Hér með auglýsist, að afréttr Öl-
veshrepps verðr á yfirstandandi sumri
smalaðr að öllum hrossum þessa daga:
1. mánudaginn 9. júlf, og 2. mánudag-
inn 30. júlí, og verðr hrossunum réttað
að kveldi hvers smölunardags í „Hvera-
gerðisréttinni“, og-öll óskilahross, sem
ekki eru hirt, verða seld þá þegar á
staðnum.
Ölveshreppi, 11. júní 1883.
Hreppsnefndin.
Brúkað „Fortepiano“ fæst til kaups
með vægu verði. Ritstj. vísar á seljanda.
Ritstjóri: Jón Ólafsson, alþingism.
Prentaðr i prentsmiðju ísafoldar.