Þjóðólfur - 21.07.1883, Page 2
88
þessi j afnrjettishugmynd í vísindalegum og
stjórnlegum efnum væri rík og lifandi í
brjóstum vor Islendinga«.
Landshöfðingi taldi áhuga þingsins á
þessu máli .hafa verið minni 1881 en B. Sv.
sagðist frá, þar sem efri deildin ljet það
deyja í nefnd. Tímarnir nú væri ekki hent-
ugir til breytinga, sem hefði mikinn kostn-
að íför með sjer. Auk þess núum stundir
engar tilknýjandi ástæður til lagaskólastofn-
unar, því nú væri 3íður en eigi skortur á lög-
fræðingum í embætti. það mundi vart vera
almenn skoðun, að kostur mundi á meiri
vísindalegri menntun hjer en í Khöfn.
Th. Thorsteinson lagði á móti frum-
varpinu, vegna bágindanna í landinu.
Sömuleiðis Arnlj. Ólafsson; vill heldur
byrja á verðlaunuðum lögfræðiritum handa
almenningi. Jakob Guðmundsson, f>ór-
arinn Böðvarsson og Eiríkur Kúld allir
meðmæltir.
Nefnd: Grímur Thomsen, Benid. Sveins-
son og Lárus Blöndal. —
Við 1. umr. um fríkirkjufrumvarpið í
neðri deild mælti flutningsmaður þess, Jón
Olafsson, meðal annars á þessa leið: »Jeg
býst við misjöfnum undirtektum undir mál
þetta. Margir eru svo gjörðir, að þeir þola
eigi að hreift sje við gömlum böndum.
Sumir fá hroll og kvíða fyrir því, að allt
falli í heiðindóm, ef böndin leysast, sem
þjóðkirkjan leggur á samvizkur manna.
Svona hefur gengið í öllum löndum, er
þessu máli hefur verið fyrst hreift, en
reynslan hefir jafnan sýnt að þessi kvíði
hefir verið ástæðulaus. Svona mun og fara
hjer á landi með hinum sömu leikslokuin.
Jeg býst við að menn munisegjaað engin
ástæða sje til ýmissa fyrirmæla frv., t. d. að
það sje eigi skylt mönnum utan þjóðkirkju,
að láta skíra börn sín. Er þetta ástæðu-
laust þegar Beyðfirðingar segja að prestur
þjóðkirkjunnar hafi haft við orð að skíra
v börn þeirra með aðstoð lögreglustjórnarinnar
hvort sem þeir vilja eða ekki? Sje hægt að
gera slíkt, þá gef jeg ekki grænan eyri fyrir
frelsið sem stj.skráin veitir oss í trúarefnum.
Ef menn vilja fylgja slíku fram, þá má eins
fara með utanþjóðkirkjumenn hjer á landi
og Bússar fóru með Pólverja hjer um árið,
er þeir ráku þá hópum saman í kirkju
og gáfu þeim sakramentin á þann hátt
að opna varirnar með byssustingjum.
það er ekki verra en að rífa börnin frá
móðurbrjóstunum og engin meiri nje minni
ástæða til að nauðga utanþjóðkirkju-
mónnum til annars sakramentisins framar
en til hins. það er alls eigi ætlun frv.
að eigi skuli skíra börn, heldur hitt að
prestar þjóðkirkjunnar eigi skuli hafa heim-
ild til að skíra að foreldrunum nauðugum.
(H. Kr. Fr.: Hverjir eiga þá að skíra?).
|>að kemur þm. Bvk. ekki við ; hann verð-
ur varla sóttur til þess. En kirkjufjelög
utan þjóðkirkju munu hafa sína presta.
Enn fremur mun verða sagt, að það komi
of snemma að fara nú að leysa böndin í
kirkjulegum efnum; það sje engin þörf til
þess enn þá hjer á landi. þessa mótbáru
heyrði jeg 1863, er frumvarp um trúar-
bragðafrelsi lá fyrir alþingi. En hver getur
sagt að nú sje eigi þörf hjer á landi er
söfnuður er til, er telur 300 manna fyrir utan
þjóðkirkjuna og þessi söfnuður er rjettar-
laus, og er þá eigi þörf að skipa fyrir um
rjettindi hans ? Eólkstöluskýrslurnar 1880
geta og sýnt oss, hvort eigi sje þörfin fyrir
hendi. Jeg hef átt kost á að kynna mjer
þær og í.þeim hef jeg fundið katólska menn
hjer á landi, nokkra únítaríana og 1 heið-
ingja, og þessi heiðingi var meira að segja
safnaðarfulltrúi í þjóðkirkjunni. þetta
þykir mönnum, ef til vill, tilhlýðilegt, að
þvinga menn til þess að vera í þjóðkirkj-
unni, menn sem hún ætti að hafa rjett til
þess að skilja frá sjer sjálf? Skyldi ekki
vera rjettast að hver væri á sínum stað,
þar sem hann á heima ?
Frv. er í einstökum ákvörðunum sínum
samhljóða því, sem eru lög í Noregi og Dan-
mörku í líkum efnum, en þó eigi svo smá-
smuglega tiltekið eins og í dönskum lögum«.
Yið 1. umræðu um lfrumvarpið um kosn-
ingu presta mælti flutningsmaður þess,
Asgeir Einarsson, meðal annars á þessa leið:
í>á kemur enn sú ástæða [í neitunarbrjefi
ráðgjafans, 28. júní 1882], «að stjórnar-
»vald það er ábyrgðina ber á því, að kirkju-
»málum sje viðunanlega og hagkvæmilega
»stýrt, fái framvegis að hafa ráð til þess.
»að fullnægja þessari skyldu sinni«. Jú
það hefir nú sýnt sig, hve vel kirkjumálum
Islands hefir verið stýrt opt og tíðum. Margir
söfnuðir hafa verið prestlausir ár eptir ár og
sumir verra en prestslausir, þó messað hafi
verið hjá þeim tvisvar eða þrisvar á ári.
En hvað er nú þetta hjá því, þegar þessi
dásamlega, _ umhyggjusama stjórn sendir
út um landið fyrir sálusorgara þá menn,
sem þegar á námsárum sínum hafa vakið
stórkostlegt hneyksli á þeim stað, er þeir
h'afa verið við námið, sem síðar verða
stjettarbræðrum sínum yfir höfuð til mestu
vanvirðu. Já, svo rammt hefir kveðið
að, að sumir útsendarar hins núverandi
veitingarvalds hafa lifað þannig, að ó-
hróðurinn um þá hefir flogið út um fram-
andi lönd. þetta er ekki söfnuðunum að
kenna. þeir hafa ekki kosið þessa menn.
Jeg veit líka að öllum söfnuðum, sem jeg
þekki til, er annara um vöxt, viðgang
og sóma kirkjunnar, en svo, að þeir ljeti
slíkt viðgangast eða spyrjast, ef þeir
mætti ráða. þar næst segir í rg.brjefinu,
að stjórn landsins einni verði fyrir því
truandi, að gæta þess, að sá, er um em-
bættið sæki, hafi eigi að eins almenna
lögboðna. hæfilegleika sem sálusorgari,
heldur sje og lagaður til að gegna þeim
sjerstaklegu störfum, sem honum verði á
hendur falið. jpegar svona ástæður koma,
þá þykir mjer nú kasta tólfunum, enda
hef jeg þegar í upphafi ræðu minnar
sýnt hve fánýt þessi ástæða er. það er
trúlegt, að ráðgjafinn úti í Danmörku
sje ,kunnugri mönnum heima á íslandi
en Islendingar sjálfir. þessi ástæða get-
ur þó heldur staðizt með tilliti til veiting-
arvaldsins hjer heima á íslandi. En eins
og jeg hef áður tekið fram, þá fer því
mjög fjarri, að allir þeir prestar, sem
veitingarvaldið sendir út, sjeu svo liprir
og reglusamir og vel að sjer, að af því
megi raupa. Báðgjafinn mun einhvern-
tíma sjálfur hafa fundið og átt tal við
klerkinn, sem jeg gat um áðan, að eigi
hefði getað samið einfaldar skýrslur, svo
að þær yrðu notaðar. Hann hefir þá
víst ekki heldur »examínerað« hann í
þessum vísindagreinum.
IV.
Efri deild.
12. júuí: 3. umr. um frv. til 1. um bcej-
arstjórn á Akreyri. Samþ.; afgr. til n. d.
3. umr. um frv. til 1. að afnema bann gegn
því að ráða útl. menn á dönsk skip, sem
gjörð eru út frá íslandi. Samþ.; afgr. til
n. d.
13. júlí : 3. umr. um frv. til 1. um sölu
nokkurra þjóðjarða. Samþ.; afgr. til n. d.
3. umr. uin frv. til 1. um eftirlaun presta-
ekkna. Samþ. með viðauka og afgr. til
n. d.
14. júlí : 3. umr. um frv. til 1. um breyt-
ing á 1. gr. í 1. zff- 1880 um skipun presta-
kalla. Samþ. með áorðnum breytingum og
afgr. til n. d.
3. umr. um breyting á skottulœknalöggjöf-
inni. Samþ. og afgr. til n. d.
Ein umr. um tillögu til þingsál. (frá sr.
B. Kr.) þess efnis að skora á stjórnina, að
taka til greina fyrirmceli 3. gr. í l. 1880
um skipun prestalcalla. Samþ.; afgr. til
n. d.
16. júlí : 2. umr. um frv. til 1. um kosn-
ingar presta. Samþ., gekk í 3. umr.
1 umr. um frv. til 1. um að meta til dýr-
leika nokkrar jarðir í Bangárvallasýslu. Gekk
til 2. umr.
17. júlí : 1. umr. um frv. til 1. um að
banna niðrskurð á hákarli. Gekk til .2.
umr.
1. umr. um frv. til l. um strandgœzlu.
Gekk til 2. umr.
18. júlí : 2. umr. um afnám aðfiutn-
gjalds ffi/útl. skipum. Gekk orðalaust til 3.
umr.
3. umr. um prestakosningar-frv. Samþ.
með 6 atkv. (Á. E.; B. Kr. ; E. Á.; S. Á.;
Sk. þ.; St. E.) móti 5, og afgr. til n. d.
1. umr. um frv. til 1. um að selja kirkju-
jörðina Selstaði í Seyðisfirði (austr). Felt
með 7 atkv.
1. umr. um frv. til l. um sérstakt kirkju-
þing (frestað til næsta dags).
19. júlí: 1. umr. um kirkjuþingið. Kos-
in 5 manna nefnd : B. Kr. (10), E. Á., S. Á.
(9 hvor), St. E. (8), M. St. (6).
1. umr. um frv. (frá J. P., E. Á., Sk. þ>.)
umstofnun landsbanka. Nefndsett: E. Á.,
J. P. (9 hvor), Á. Th. (8), B. Kr., Sk. jb.
(7 hvor).
N eðri deild.
13. júlí : 1. umr. um frv. til l. um rétt-
indi og skyldur einstakra manna og kirkju-
félaga, sem eru ekki í þjóðkirkjunni. Nefnd
sett: J. Ól. (18 atkv.), þór. Böðv. (15), Jak.
G. (14).
1. umr. um frv. um að eftirstöðvar af
byggingarkostnaði fangelsanna greiðist eigi
af jafnaðarsjóðum né bœjarsj. Bvíkr. Gekk
til 2. umr.
Frh. 1. umr. um frv. um veiðar hlutafé-
laga 1 landhelgi. Gekk til 2. umr.
1. umr. um frv. til 1. um heyásetningu og
eftirlit á meðferð húsdýra (frá jporl. Guðm.).
Vísað til horfellis-nefndarinnar.
14. júlí : 3. umr. um frv. til l. um bœj-
arstjórn á Isafirði. Orðalaust samþ. og afgr.
til e. d.
(Eftir ísafold).
Staður í Steingrímsfirði er veittur 14. júlí
síra Isleifi Einarssyni að Hvammi í Laxár-
dal.
Laura, strandferðaskipið, er fór hjeðan 30.
júní áleiðis vestur fyrir land og^norður, kvað
ekki hafa komist lengra en á Isafjörð; sneri
þar aptur suður fyrir land og austur.
Hið væntanlega gufuskip frá Slimon í stað
Camoens ókomið enn.
Einnig ókomið kaupskip það frá Liverpool,
gufuskip stórt, er von var á til hinnar nýju
ensku verzlunar hjer í bænum, Murray &
Co., fyrir forgöngu Eggerts Gunnarssonar.
Kvefsótt í skæðara lagi gengur hjeríBvík
og víðar um sveitir sunnanlands. Snýst á
stundum upp í lungnabólgu banvæna. þó
engir nafnkendir dáið, svo til hafi spurzt.
Útlendar frjettir.
Með franska herskipinu öðru, er kom
hingað í dag frá Leith. Kólera á Egipta-
landi, mjög skæð. Greifinn af Chambord,
konungsefni lögerfðamanna á Frakklandi,
(Hinrik V.), lá fyrir dauðanum. Hitar á-
kaflega miklir í Danmörku. Hjeraðsfund-
um haldið áfram þar, út af stjórnarþrasinu,
síðast í Friðriksborg, af hægrimönnum, og
lauk með barsmíð : sonur Plougs gamla,
stúdent, rak Holstein-Ledraborg greifa löðr-
ung; var settur í varðhald. Síðasta af-
reksverk stjórnarinnar, að Dr. Pingel, yfir-
kennari við metrópólítan-skólann í Khöfn,
mesti lærdómsmaður, en vinstrimaður og
vinur Georgs Brandes, er settur frá em-
bætti.
Camoens kominn til Leith. Átti að fara
aptur þaðan hingað til lands 24. júlí, sam-
kvæmt ferðaáætluninni, og fylgja henni úr
því. Craigforth sent 6. júlí á austur- og