Þjóðólfur - 05.01.1884, Síða 4
148
— Bœjargjöld i Bvik 1884, mðurjöfnun
eptir efnum og ástandi. Gjöld þessi, auka-
útsvör bæjarmanna, nema alls 16504 kr.; í
fyrra 15682 kr. Arið 1877 voru þau ekki
nema 11000 kr. Gjaldendur nú 762 ; 1877
ekki nema 431. þessir hafa mest útsvar,
í krónum :
450: Smiths verzlun.
410 : P. Pjetursson biskup og Thomsens
verzlun.
400: Fischers verzlun og Knudtzons
verzlun.
380: Brydes verzlun.
350: Bergur Thorberg landsh. og Sli-
mons verzlun.
260: Geir Zoega kaupmaður.
250: Halberg hóteleigandi og Krúger
lyfsali.
235 : Sigurður Melsted lektor.
225 : Magnús Stephensen amtmaður.
200: Siemsens verzlun.
175: Johannessen kaupmaður.
160 Bemhöfts bakaraiðn og Jón Pjet-
ursson háyfirdómari.
155 : Arni Thorsteinsson landfógeti.
150: Schierbeck landlæknir.
130: Jespersen hótelhaldari, Jón f>or-
kelsson rektor, Theódór Jónassen bæjarfó-
og þorsteinn Jónsson f. sýslumaður.
120: Eyþór Eelixson kaupmaður og Sí-
mon Johnsen konsúll.
110 : Sigurður Magnússon kaupmaður.
100: Einar þórðarson prentsmiðju-
eigandi, Löve kaupmaður og þorlákur Ó.
Johnson kaupm.
90: Einar Zoega hóteleigandi, Hall-
grímur Sveinsson dómkirkjuprestur, Jónas
Jónassen læknir, Lárus Sveinbjörnsson yfir-
dómari og Óli Finsen póstmeistari.
80 : Halldór Kr. Friðriksson yfirkenn-
ari, Magnús Jónsson kaupm., og Sigfús
Eymundarson agent.
76 : Halldór Guðmundsson adjunkt.
70 : Eggert Gunnarsson kaupmaður og
Jón Ólafsson húseigandi í Hlíðarhúsum.
65: Eiríkur Briem prestaskólakennari,
Guðbr. Finnbogasen faktor, Jakob Sveinsson
snikkari, Larsen faktor, N. Zimsen konsúll
og Steingrímur Thorsteinsson adjunkt.
60: Helgi Hálfdánarson prestaskóla-
kennari, Jón Jensson landritari og Jón Ó.
V. Jónssonfaktor.
56 : Valgarður Ó. Breiðfjörð snikkari.
55: Gunnlaugur Briem faktor, Helgi
Helgason snikkari, Indriði Einarsson revisor
og Unbehagen faktor.
50: Björn Jensson adjunkt, Björn
Magnússon Olsen adjunkt, Einar Jónsson
snikkari, Endresen timburkaupmaður, Helgi
E. Helgesen yfirkennari Herdís Beni-
diktsen ekkjufrú, Jóel Sigurðsson kaupmað-
ur, Kr. Ó. þorgrímsson bóksali, Sigurður
Jónsson jámsmiður, Sigurður Sigurðarson
adjunkt, Sturla Jónsson kaupmaður, Tómas
Hallgrímsson docent, þórunn Thorsteinsen
ekkjufrú.
48 : Hannes Johnsen kaupmaður
45 : Egill Egilson alþingismaður, Jónas
Helgason organisti og Magnús Einarsson í
Melkoti.
40 : Björn Jónsson ritstjóri, Einar Sig-
valdason, Jensen bakari, Jóhanna þorleifs-
dóttir ekkja, Jón þórðarson í Hlíðarhúsum,
Ólafur Amundason faktor, þórður Guð-
mundsson í Görðum.
35 : Friðrik Eggerz emerítprestur, Gísli
Björnsson á Bakka.
36: Magnús Ólafsson snikkari, Páll
þorkelsson gullsmiður.
32: Páll Melsteð málaflutningsmaður,
Sveinn Bjarnason í Sauðagerði.
30: Gijþmundur Erlendsson í Hlíðar-
húsum, Hlutafjelagsverzlunin, Jóhannes
Jónsson snikkari, Jóhannes Ólafsson kand.
júris og prókúrator, Liiders múrmeistari og
Sveinn Ingimundarson á Stóra-Seli.
[«Isaföld#].
t
Jón sál. þorsteinsson
var fæddr á Vindási í Landmannasveit
í Rangárvallasýslu 2. dag febrúarmán-
aðar 1816 ; ólst hann þar upp með for-
eldrum sinum þangað til hann reisti
þar bú þrítugr ár 1846.J Bjó hann
þar síðan allan sinn búskap. Sama ár
gekk hann að eiga ungfrú Karen Nikó-
línu Friðriku, dóttur hr. kancelliráðs
ísaks Jakobs Bonnesens, er var sýslu-
maðr Rangæinga um nokkur ár. í
hjónabandi sínu eignuðust þau i3börn;
önduðust 8 af þeim i bernsku, en 5 lifa
föður sinn, 4 synir og 1 dóttir. Alla
jafna bjó hann góðu búi, og var jafnan
fremur veitandi en þiggjandi, öll þau
36 ár, er hann bjó á Vindási. Honum
voru gefnar góðar og liprar gáfur, enda
hafði hann á hendi flest þau störf, er
helzt bera fyrirmönnum í hverju sveit-
arfélagi. Hann var lengst af æfi sinn-
ar meðhjálpari og forsöngvari í Stóru-
vallakirkju, og i 6 ár var hann hrepp-
stjóri Landmanna, 1862 var hann kos-
inn annar sáttanefndarmaðr, og 1872
bólusetjari. Eftir að in nýju sveita-
stjórnarlög komust á, var hann kosinn
hreppsnefndaroddviti. Gegndi hann öll-
um þessum störfum með inni mestu
prýði meðan honum vanst þrek og
heilsa til. En tvö eða þrjú síðustu ár
sín varð hann að segja þeim af sér
fyrir vanheilsu sakir. Hann var góðr
smiðr, og lagði gjörfa hönd á allt er
smi'ði hét, en þó tamdi hann sér ein-
kum þá list að skera út horn, og þóttu
horn hans svo snildarlega grafin, að
útlendingar sóttu mjög um þau, og
vildu borga þau ærnu fé. Hann var
nærfærinn við veika og bezti blóðtöku-
maðr. Hann lézt að Vindási 12. dag
nóvembermánaðar 1882, og lifir kona
hans hann, og er þar hjá sonum sfnum.
Jóns sál. er og verðr lengi maklega
saknað í bygðarlagi hans, bæði sakir
mannkosta hans, dugnaðar og hæfileg-
leika.
Mannaláta þessara hefir þjóðólfi
láðzt að geta: 25. okt þ séra Gufffórt
Halfddnarson að Saurbæ i Eyjafirði.—-
í sama mánuði andaðist Friðrik Da-
víðsson, verzlunarstjóri á Blönduósi. —
21. nóv. andaðist að Fiskilæk í Borg-
arfirði merkisbóndinn fórðr Sigurðsson,
smiðr og hreppstjóri, einn af elztu og
tryggustu vinum „þjóðólfs11, sem hann
var stöðugr áskrifandi að, öll þessi 35
ár, sem blaðið hefir komið út.
AUGLYSINGAR
í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a, (pakkaráv, 3 a.) hvert orá 15 stafa frekast;
m. 55m lelri eða setning 1 kr, fjrir [ramlmj dálks-lengdar, Borpn úti hönd.
FROSTBOLGA, SPRUNGUIt á höndum og
f andlití, viðkvæmni, þurleikr ogsprungur á hörundi
írostbólgubollar, opin sár, brunaíneiðsl, skinnkast
o. s. frv. læknast fljótt með þvi að við hafa cand
pharm. Andersens Creme hygienique. Dósir
á 3° °g 5° au- fást í Reykjavík hjá
P. A. L0ve. 494.]
Samkvæmt opnu bréfi 4. jan. 1861
og lögum 12. apríl 1878 er hér með
skorað á alla þá, sem telja til skulda
eftir þorgrím sál. Jónsson snikkara, er
andaðist að þverhamri 7. f. m., að
gefa sig fram og sanna kröfur sínar
fyrir mér eða erfingjum hans innan 6
mánaða frá síðustu birtingu þessarar
auglýsingar.
G-ílsá í Breiðdal 18. október 1883. .
Fyrir hönderfingjanna :
Páll Benidiktsson.
Síðan síðustu auglýsingar hefi ég til minnisvarða
yfir Hallgr. Pétrsson meðtekið : K.r.
Frá málaflutningsmanni Páli Melsteð ....'. 8,00
— frú Láru Pétrsdóttur á Seyðisfirði....4,00
— Erl. hreppstjðra Erlendssyni á Breiðaból-
stöðum ........................... . . 2,00
Samtals 14,00
Bessastöðum, I.jan. 1884.
Grímur Thomsen.
Arið 1883 seldar óskilakindr í Garðahreppi,
Gullbr.sýslu : Hvít ær, geirstýft h„ standfj. aft.
v.; hvít ær. tvístýft fr. biti a. h., tvírifað í stúf.
gagnbit. v.; hvítt lamb, sneitt a„ st.fjöðr fr.h,
standfj. a. v.; hvítt lamb, stýfðr helm. a. h.. sýlt
v.; hvítt lamb, sýlt h„ biti fr. v.; hvítt lamb, tví-
stýft fr. h„ hvatt st.fjöðr aft. v. — Eigendr fá and-
virði að frá dr. kostn. til næsta manntalsþings.
Dysjum, I, des. 83. Magnús Brynjúlfsson.
2herbergi með ofnum og eigin inngangi geta 2
einhleypir menn fengið til leigu í miðjum bcen
um frá 14. maí. Ritstj. ávísar.
Mig undirskrifaðan vantar nýlegan hnakk, með
nýlegum búðarístöðum, gömlum ístaðsólum og
hnakkölalylckjum úr leðri. Hnakk þennan hefi eg
ljeð einhverjum hjer í Rvk. eða hér nærlendis, en
honum eigi verið skilað aftr. jþeir sem til hnakks
þessa kynnu að vita, eru vinsamlega beðnir að skila
honum til undirritaðs.
Reylijavfk 26. des-ember 1883.
Magnús Árnason trésmiðr.
Mér var í haust dreginn tvævetr sauðr hvítr í
Ölvesréttum með marki mínu : lögg aft. hægra
Sá, er brúkar mark þetta, gefi sig fram lyrir far-
daga 1884.
Sölvholti 20/12 1883.
Magnús þorkelsson.
0X útgengnar óskilakindr sem seldar voru í Yatns-
leysustrandarhreijpi haustið 1883 :
1. Hvítt gimbr.l., stýft h., hvatt v.
2. Hvíthyrnd ær, heilhamrað h., heilrifað
gagnbitað v.
3. Hvlt ær, sýlt gagnfjaðrað h., blaðst. fr. v.
4. Hvítt gimbrarlamb, stýft biti a. v.
5. Hvíthyrnd ær, tvístýft a. h., lögg fr.,
sýlt v.
6. Baugóttr geldingr (lamb), stíft gagnbitað
h. geirstíft v.
Béttir eigendr geta vitjað verðs kmda
þessara til undirskrifaðs að frádregnum
kostnaði, sé það gjört fyrir fardaga næst-
komandi ár.
Brunnastöðum þann 10. desember 1883.
J. J. Breiðfjörð.
Með 1. tölublaði ins nýja ár-
gangs Ycrðr kaupendum senttit-
ilblað og efnisskrá að 35. árg.
þjóðólfs, og liafa þeir þá fengið
ais 37V2 örk (auk aukablaða, sem
fylgt hafa með árgangnum) í
stað 36 arka, er þeim var heitið.
RITSTJ.
Ritstjóri: JÓn Ólafsson, alþingism.
Prentaðr í prentsmiðju ísafolJ^'r