Þjóðólfur - 08.03.1884, Síða 4
36
dóma oss voru ýmsir góðir menn á þingi,
þar á meðal þingsins bezti og mezt álitni
búmaðr, séra Guðm. Einarsson sál., sem
sagði: »Eg er samþykkr inum háttv. 2.
þingm. Suðr-Múlasýslu um það, að því færri
sem skólarnir verði, því meiri líkindi eru til
að þeir verði sem fullkomnastir og komi að
sem beztum notum«. A sama máli voru með-
al annara þorv. KjerúlfogTr. Gunnarsson.
Nú eru komnir búnaðarskólar bæði á norðr-
landi (Hólum) og austrlandi (Eyðum), og
með því að tilsk. 12. febr. 1872 um stofnun
búnaðarskóla lögbýðr stofnun 4 skóla, en
eigi fleiri, og suðr- og vestrumdœmið eiga
vafalaust að fá sitt hvorn, þá er auðsætt að
allar sýslur norðr- og austr-umd. eiga að
skifta sér milli skólanna á Hólum og Eyðum,
og þá er bágt að sjá, hvf Eyfirðingum skal
fyrirmunað að sameina sig Skagf. og Húnv.
þingeyingar virðist auðsætt að ætti að slá
sér saman við Múlasýslurnar um Eyðaskól-
ann.
Oss virðist það því miðr vel hugað, svo
að vér ekki segjum gjörræðislegt, af inu há-
vísa amtsráði og inum hæstvirta landshöfð-
ingja að svifta þannig Eyafjarðarsýslu sjálfs-
forræði í þessu máli.
HITT OG þETTA.
ElTNINGIN Og YFIRKENNARINN. í miðs-
vetrar-prófinu í latínuskólanum núna í vet-
ur fengu piltar þetta ritgjörðar- efni (í ís-
lenzku) sett fyrir af yfirkennaranum : »Ag-
úr bað: gef mer hvorki fdtœkt né auðcefi, en
láttu mig hafa rnitt up p skamtað uppeldi*.—
þetta mun vera ný biflíu þýðing eftir yfir-
kennarann, sem allir vita að er djúplærðr
guðfræðingr, því að hitt er óhugsanlegt, að
hann sé farinn að riðga í barnalærdómnum,
guðvitringrinn.
Úr Krukkspá : 8. marz 1884 mun fress nokk-
urt í Guðrúnarkoþ setja upp stýri og mjálma hjá-
kátlega, og í þeim hríðum fæða grisling ósélegan
andvana. Seppi nokkur mun gleypa grisling-
inn, og verða þó jafnsoltinn eftir.
f Miðvikudaginn 20. þ. m. andaðist mín
vœna kona Guðrún þorkelsdóttir nœstum 64
ára. Okkr var 12 barna auðið; 5 af þeim
lifa, 7 eru dáin.
Borg 25. febrúar 1884.
G. Bjarnason.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli m, smáletri kosta 2 a, (þakkaráv. 3 a.) hvert orí 15 stafa frekasti
la. öðru letri eía setning 1 kr, fvrir þumtang dálks-lengdar. Borgun út i hönd-
Proelama.
Samkvæmt opnu bréfi 4. jan. 1861 og lög-
um 12. apr. 1878 er hér með skorað á alla þá,
er telja til skulda í dánabrúinu eftir þórð
prófast þórðarson Jónassen frá Beykholti,
er andaðist 13. f. m., að lýsa skuldakröfum
sínum og sanna þcer fyrir skiftaráðanda hér
í sýslu, áðr en 6 mánuðir eru liðnir frá síð-
ustu birtingu þessarar auglýsingar.
Svo er og með sama fyrirvara skorað á
erfingja ins látna að gefa sig fram og sanna
erfðarétt sinn.
Skrifstofu Mýra og Borgarfjarðarsýslu
16. febrúar 1884.
73r.] Guðm. Pálsson.
U ppboósauglýsing.
Opinbert uppboð verðr haldið i Hafnarfirði
fimmtudaginn þ. 20. þ. mán. og verðr þá
eftir kröfu hr. W. G. Spence Patersons sem
umboðsmanns ins íslenzka brennisteins- og
kopar- félags selt ýmislegt góz, tilheyrandi
inu svo nefnda Borax-félagi, en sem nefndr
umboðsmaðr brennisteins-félagsins hefir í
sínum vörzlum, svo sem; múrsteinn (um
2000 st. : eldfastr steinn) nCokesv., blýplótur,
galvaniseraðar járn-plötur, blý-pípur, skófi-
ur, spaðar, íshögg, smiðatól, gufuketill og
gufuvél í mörgum pörtum), »sóda«, eínskon-
ar þak-pappír, skriffœri, lampar,. luktir og
ýmislegt fleira.
' Uppboðíð verðr haldið í hiisum brennisteins-
og ícopar- félagsins, og byrjar kl. 10 fyrir
hádegi. Skilmálar verða birtir á uppboðs-
staðnum.
Skrifstofu Kjósar og Gullbr.sýslu 5—3. 1883.
7gr.] Kristján Jónsson.
„Thorvaídsensfélagið11
ætlar, svo framarlega sem minst 25 fátæk stúlku-
börn, frá 8 ára til fermingar, beiðast inngöngu, að
halda ókeypis sauma- og prjónaskóla mánuðina
apríl, maí og júní, kl. £.7. þeir, sem vilja sæta
þessu boði, snúi sér fyrir 20. marz til einhverrar
af oss nndirskrifuðum.
Elina Sveinsson. þórunn Jónassen.
Lueinde Bernhöft. Elín Stephensen,
Carolína Jónassen. [81*
Yegna undanfarandi átroðnings og þrengsla á
hrognkelsanetalögnum vorum, fyrirbjóðum-^vér
öllum fjær og nær (að undanskildum leiguliðum
vorum) að leggja hér eftir hrognkelsanet á veiði-
svæði voru fram undan landi voru, sem er kriug
um alt framanvert Seltjarnarnes inn að svo nefnd-
um Valluisagarði.—Brjóti nokkur gegn banni þessu,
munum vér leita réttar vors eftir því, semlögleyfa.
Nesi við Seltjörn, 3. marz 1884.
Guðm. Einarsson. Sig. Ingjaldsson.
þ. Jónsson. Br. Magnússon. [82*
Yfirsetukvenna- kennsla.
Hérmeð gjöri ég kunnugt að eftir fyrir-
skipun landshöfðingja mun ég byrja kenslu
yfirsetukvenna 1. d. maímán. nœstkomandi,
og verða því þær konitcr, sem vilja njóta
kenslu minnar þeta árið, að koma þá til mín,
því á öðrum timum geta þœr eigi fengið kenslu
hjá mér.
Beykjavík 5—3—84.
77r.] Schierbeck.
þeir af inum heíðruðu skiptavinum mín-
um, sem enn þá skulda mjer j'rá árinu 1883,
eru vinsamlega beðnir að borga mjer fyri/r
15. marz ncestkom.
125” Hinir fáu, sem hvað eptir annað hafa
þrjózkazt við að borga mjer, mega búast við
lögsókn, hafi þeir eigi borgað mjer innan
sama tíma.
Beykjavík 22. febr. 1884.
Jóel Sigurðsson.
MaÖr nokkur óskar að
k a u p a hús í Reykjavík, sem
kosti frá 3000 til 4000 kr. eða
lítið par yfir.
Hvcr sá, er kynni vilja sclja
slíkt liós, er beðinn að skýra frá,
hvert liúsið er og verð þess, í lokuð-
um seðli með utanáskrif't „F. HÚs“
sem aí'henda má á skrifstofu ,.J>jóð-
ólfs“ innan 3 daga. [78r
Hús nýtt í Rvík til sölu. Ritstj. þessa bl. á-
vísar. [77*
auðr hestr góðgengr, io—12 vetra, mark : tví-
stýft aft. h„ stýft v„ var seldr í Strandarhreppi
og getr réttr eigandi vitjað verðsins til undirskrif-
aðs að frá dregnum kostnaði.
Kalastaðakoti, io. jan. 1884.
76*] Jón Sveinbjarnarson.
y I -----—-3--- * ; i-----------; "
AKjalarnesi helir íyrirfundizt í vetr 1 óskilum
rauðr foli á 3. vetr; mark: 2 st.fjaðr. aft. v.
Eigandi gefi sig fram við undirskrifaðan.
Móum, 28. febr. 1884.
74*] J>. Kuxiólfsson.
^jelt óskilafé í Hálsahreppi haustið 1883:
Hvítr sauðr tvævetr, marlc : tvístýft aft. h.
gagnfj. v,—Hvítt lamb : blaðst. a„ biti fr. h.; sýlt,
vaglsk. fr. v.—Hvítt lamb : sýlt, oddfj. a. h.; sýlt
v. -Hvítt lamb: tvígagnfj. bæði.—Hvítt lamb ; tví-
stýft a. h.; biti fr. v.—Hvítt lamb með sama marki—
Hvítt lamb: tvístigað fr. bæði.—Hvítt lamb : sýlt
2 fj. fr„ haugfj, a. h.—Hvitkollótt gimbr I vetrar:
sýlt h.; stýft. hnífsbr. tr. [v. ?].—Réttir eigendr geta
vitjað verðsíns að frá dregnum kostnaði til undir-
skrifaðs.
Stóra-Ási, 25. febr. 1884.
75* ] Jón Magnússon.
AÐALFUNDR INS SUNNLENZKA SÍLD-
VEIÐAFÉLAGS verðr haldinn föstudaginn 18.
aprílmán. þ. á. kl. II f. m. í húsi gestgjafa Jesp-
ersens (hótel Alexandra).
Reykjavík 6. marz 1884.
80r.] Félagsstjórnin.
ísafold XI 8 20/2: innl. fréttir. ý Snorri
Pálsson (kvæði, ei'tir Matth. Jochumsson). Konráð
Maurer. Blautfisksverzlun við Englendinga. Augl.
ísafold XI 9 27/2 : Innl. fréttir. Til frú Her-
disar Benedictsen (kvæði frá M.). Hin fyrirhug-
aða fiskiverzlun við Englendinga. þjóðólfur og
Eggert Gunnarsson. Kirkjusiðir og utanþjóðkirkju-
menn. Hitt og þetta. Augl.
Eigandi og ábyrgjðarm.: Jón Olafsson, alþm.
Aðalstræti Nr. 9.
Prentaðr i prentsmióju ísafoldar.