Þjóðólfur - 29.03.1884, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 29.03.1884, Blaðsíða 2
46 er til hans að flýja með þær; hann lítr ekki við þeiin, heldr en annarri óþekt; því hann er á því bjargi grundvallaðr, að gefa út að -eins, en taka aldrei aftr við bréfum sínum. Hann borgar, meðan hann getr, vextina af þeim ; það er alt sem hann lætr i pening- um út á þau. Sá litli reitingr peninga, sem nú er eftir í landinu, er orðinn þeim mun dýrari en bankaskuldarbréfin, gangverð hans orðið það hærra en þeirra, að menn borga langt um hærri vexti af peningum, en af jöfnu hlutfalli bankaskuldarbréfa. Hvað hátt þeir vextir ganga, fer eftir þurð peninga og þörf þeirra, er á peningunum þurfa að halda. þegar nú er altítt orðið, að borga 6°/» af prívatlánum á íslandi, má nærri geta hvaða vextir byðust þegar hér væri komið. það er ekki of mikið í lagt, að það yrði 12”/» að minsta kosti. jþað sem því 100 kr. í peningum gætu keypt, það gætu keypt ekki minna en 300 kr. í bankaskuldarbréfum. þetta er nú ið sama sem að gangverð bankaskuldarbréfa væri hrapað úr 100 niðr í svo sem 30. þá eru bændr nú búnir að tapa á hnossinu um 70'/». Bn ekki er þó lýst að öllu hrapinu enn. Bréfin eru ekki gjaldeyrir, heldr að eins gjaldeyris virði. Nú verðr þeim komið í gjaldeyri einungis því að eins, að menn vilji gefa gjaldeyri fyr- ir þau. Bn enginn maðr gefr fyrir slíka hrapandi pappíra meira en svo, að hann sé viss um að verða skaðlaus á kaupunum. Ið illa orð, sem þegar er á þá fallið, er meira en nóg til þess, að gjöra ipÁverðlaiisa, og verðlausir verða þeir. Menn verða fegnir að verða af með þá fyrir svo sem þrjár krónur á endanum. In beina afleiðing af þessu yrði það, að bændr gætu ekki staðið í skil- um við bankann. Hann tæki jarðir þeirra lögtaki og seldi við opinbert uppboð. þær færu fyrir ekki neitt, eins og menn segja, því enginn gæti keypt. Bankinn einn gæti keypt og hann yrði hæstbjóðandi og bætti því ofan á bréfa-drepið, að fá fasteign um alt land fyrir ekkert. Hvernig stendr nú bankinn sig sjálfr í öllu þessu hruni ? Höf- undar hans héldu honum svo einbeitt fram af þvf, að hann gceti ekki hrunið ; og það má sjá það, að eftir því sem þeir vildu búa um hnúta bankans virtist það ífljótubragði ekki heiglum hent, að koma bákninu af fótum. því nú kom það fram, í fyrsta skifti í þing- sögu íslands, að þjóðfulltrúar bundust fyrir því, að setja upp í landi og undir vernd landslaga fjársvika-stofnun, óviljandi náttúr- lega. því fjársvika-stofnanir eru allar verzl- unar stofnanir, sem undan því eru þegnar að lúta almennum viðskiftalögum mannlegs félags, að bera ábyrgð athafna sinna og standa í ráðvöndum skilum við þá, sem þær kynnu gjöra skaða. Undan öllu þessu ér bankinn þeginn í öllu því, er verulegt má telja. þegar þannig er búið um hnútana, er það eðlilegt, að höfundum þyki smíð sín stæðileg. En er hún það? Hvað verðr nú um bankaskuldarbréf hlötareigenda ? Eftir frágangi höfundanna á bankinn að borga af þeim 4°/» vöxtu— hvað gjöra skuli við gróða bankans er ekki minnzt á einu orði !■—Ætli þau færu ekki leið annara bankaskuldar- bréfa? Hvernig því verði forðað, fæ ég að minnsta kosti ekki séð, og víst er um það, að þeim er engin sérstök trygging fengin, enda mundi hún þu«fa að vera býsna röm ef til hlítar skyldi vera. Nú á landssjóðr í þessum bréfum 200,000 kr., sem hann á að horfa á aðgjörðalaus að verði landi ónýt eign, því hjá því er sneitt, eins og heitum eldi, að veita nokkrum hlutaðeiganda, sem á bréfum bankans kann að tapa, nokkurn að- göngurétt að honum til skaðabóta. Halda nú höfundar þessa furðuverks að landsmenn stæðust slíka opinbera óráðvendni? Nei, þeir mega eiga það víst, að yrði ekki lögum komið yfir bankann eftir máldaga hans (Charter) þá yrði þó lögum komið yiirhann eftir réttarmeðvitund vélaðrar þjóðar og sakalögum lands. Og þó hann slyppi hjá þessu, þá slyppi hann þó ekki hjá sjálfum sér. Enginn banki stenzt, sém ekki hefir traust almennings. þessi banki skapaði það útstreymi peningaúr landinu, sem dæmi hefðu aldrei verið til fyrri. I landinu sjálfu gæti hann ekki ávaxtað einn eyri, fé sitt yrði hann þvf að ávaxta utanlands. þetta yrði honum sá kostnaðr, sem hlyti að fella hann að lokum, þegar hann væri búinn að tæma út úr Islandi alla peninga. þetta yrði veðlánabankans óhjákvæmilegu örlög af því hann er stofnsettr í beinu berhöggi við það alsherjar lögmál allra mannlegra viðskipta, að Jörf skapar verft úrlausn- ar. Á íslandi er engill þörf til fyrir ó- gjaldgeng bréf; þau eru því verðlaus þar. Nú segja höfundar þessa banka : »þetta er heilaspuni; bréfin geta aldrei fallið með- an bankinn borgár reglulega ákveðna laga- vöxtu, 4°/»;« því á þessari hugsun bærði glögglega í þingræðunum. Enginn skyldi láta slíka viðbáru véla sig. Vextir, sem lofað er af einhverjum hlut út í loftið, hvort sem hann reynist í viðskiftum manna nokk- urs virði eða einskis, hafa als engin áhrif á verð hlutarins. En þá skuldabréf ríkis- sjóðsins ? Einmitt ! þar er dæmið. Hverir hafa keypt þau og halda á framm að kaupa þau ? J>eir sem peninga hafa aflögu, og vilja gjöra sjer þá arðberandi með hægu móti og á óhultan hátt. Gildir þá ekki sama regla um skuldbréf veðlánabankans ? Jú, jú, það held ég! þau verða einmitt keypt af þeim, sem peninga hafa aflögu og vilja gjöra sér þá arðberandi á vhultan hátt. Engum öðrum ! Hví skyldu þau þá falla fremr enn ríkisskuldabréfin ? Af því að rík- isskuldabréfin eru seld þeim sem fala þan, og þeirra éru nógir, og ríkissjóðr sjálfr hefir svo að segja takmarkalaust lánstraust. In er þeim skipað að kaupa, sem annaðhvort ekki geta það, eða vilja það ekki. Bíkis- skuldabréfin ganga í þeim markaði sem nóg- ir peningar eru í. Hinir bleðlarnir ganga í markaði sem er peningalaus og—heyr undr og ódœmi!—eiga að bœta úrpeningaleysinu!!! þeir eiga að gjöra það kraftaverk, sem af engum skuldabréfum hefir énn verið til ætl- azt í sögu þjóðanna. Kraftaverkið kemr aldrei og töfrarnir verða ónýtt rusl. Kœmi það nokkurn tima fyrir Danmörku að ríkis- sjóðr yrði gjaldþrota, og land peningalaust. færu ríkisskuldabréfin sömu leið. þegar menn hvorki gætu keypt, né vildu kaupa þau, yrðu þau, eins og hver önnur verzlun- arvara, sem lýtr sömu viðskiftalögum, verð- laus. Menn óttuðust mjög, að seðilbankinn mundi falla—svo að ég drepi á það atriði áðr en ég enda.—það er vitaskuld, að seð- ilbanki getr fallið, og margr slíkr hefir fallið. En í engri tegund verzlunar er fall til líka jafn ótítt og í bankaverzlun. Og aldrei hefir banki hrunið enn, sem vandlega leit eftir, að geyma vel full-tryggs stofnsjóðs eða viðlagasjóðs síns. Seðilbanki á íslandi, sem heldr hlutfalli milli fyrirliggjandi pen- inga og seðilveltu f hlutfallinu 1: 3,getr ekki fallið; um það má hver sem vill spyrjareynda bankara. Eftir því sem reikningar banka eru venjulega haldnir, veit bankastjóri á á hverjum degi, hvað hann skuldar og hvað hann á til góða. Hann veit, hvenær hvort- tveggja kemr í gjalddaga og við það miðar hann athafnir bankans. Fyrir óhöppum er sjálfsagt að hann kunni að geta orðið, en bankastjórnar er að sjá um það, að þau verði sem fæst og sem smæst. Ég veit loks ekki, hvort það er misskiln- ingr minn eða ekki, sem ég þykist hafa orðið var við: að sparisjóða stjórnendum standi beygr af landsbanka. Skyldi shkr ótti eiga sér stað, þá er hann ástæðulaus. Landsíoanki verðr að vera stoð og bakhjarl slíkra stofnana, ef á þarf að halda, einmitt af því, að hann er landsbanki og á að halda hlífiskildi yfir öllum framfarastofnun- um lands, það er hann getr, svo skaðlaust sé. Landsbanki er einmitt sá banki, sem slíkar stofnanir þurfa að hafa bak við. Privatbanki þar á móti gæti orðið þeim, og yrði þeim eflaust, skæðr. Ný aðferð til að verka hey, (»Ensilagh«). Einn gamall og göfugr Islands vinr í Skotlandi, herra Robert Mackay Smíth í Edinburgh hefir ritað blaði voru um nýja aöferð til að verka hey án þess að þurka það, og hefir sent oss ýmis útlend blöð, þar 1 sem skýrt er frá aðferð þessari og árangri

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.