Þjóðólfur - 21.06.1884, Page 1
Kemr út á laugard.morgna.
verð árg. (50 arka) 4 kr.
(erlendis 5 kr.). Borgist fyrir
I5. júlí.
PJÓÐÓLFR.
Uppsögn (skrifl.) bundin við
áramót, ógild nema komi til
útg. fyrir I. október.
XXXYl. árg.
Iteyk.jarík, laugardaginn 21. júní 1884.
M 24
!!!
A mánudaginn og þriðjudaginn (23. og
24. þ. m.) sendi ég hér um bœinn til að
innkalla andvirði þ. á. „f>jóðólfs“, og bið
ég vinsamlega sem ílesta að verða greið-
lega við með lúkninguna. — Sér í lagi von-
ast ég til að þeir, sem ætla burtu úr bœn-
um, borgi áðr en þeir fara,
Útg.
Utsölumenn og utanbœjarkaupendr blaðs þessa
úniinnast um, að borgun fyrir þennan árgang á að
vera komin í hendr afgreiðslumanni „f>jóðólfs“
^r- Sighvati Bjarnasyni fyrir 15. júli.
Makúlatúr.
Nokkrir fjórðnngar af makúlatúr eru til sölu
ú skrifstofu „þjóðólfs11.
Ámtmannaembættin.
Úins og menn munu minnast, skoraði al-
Úngi 1881 á stjórnina að veita ekki amt-
'Qannsembættið norðan og austau, sem þá
Var laust, meðan eigi væri fullráðin breyt-
ln§ sú á fyrirkomulagi innar innlendu
^jérnar liér, sem þá var fyrirhuguð af þing-
tnu, yjð þessari áskorun varð hr. Nelle-
otann þá,_
A síðasta þingi (1883) voru svo samþykt
nú aðU alnára Þossara embætta. |>að má
illa^ f bSU °lgl <dyljast þess, að lögin voru
, , . aencii leyst, sem von til var, þar sem
var1 lagfækarr maðr en herra gullriddarinn
bau f.^,rata 8Prauta» í nefndinni, sem um
með þeim^rr ?ngU að 8Íðr voru lö§ Þessi
j, Þinginu l,nk a atkv*ðafj'»lda, er þauhlutu
um deilduma(að8<Tfrf ^ póðfulllrúar 1 báð;
greiddu atkv. með It °knUm 1 neðn <L)
brro oír,b„rro au Þeim1 — ljós vottr um,
hve omhuga áhugamá! Þjóðinni var þetta.
i- , í rUln ö 11 eiS1 úllizt á lögin svona
loguð, ems og þau komu frá þinginU hefð.
um vér getað sldlið, og ekki láð hemi það.
En hvað mátti þá við búast að hún
gjorði ?
í hverju öðru þingfrjálsu landi hefði stjórn-
in álitið sér skylt að láta þinginu í té sína
1) Konungs-fulltrúana i efri d. teljun, vér ald
með, þegarum vilja þjóöarinnar er að rceða.
samvinnu í tilbúningi laganna; það er að
segja: stjórnin hefði þar fyrir næsta þing
lagt frumvarp um þessa breyting á umboðs-
stjórninni, svo lagað, sem hún (s'tjórnin)
treysti sér til að ganga að ; hún hefði reynt
að mæta þinginu á miðri leið. því að í
öðrum löndum taka stjórnirnar ávalt að
sér að út búa frumvörp um þau aðalmál,
sem þær ljóslega sjá að eru áhugamál þjóð-
arinnar, og bjóða þannig þinginu samvinnu
sína. þar mæta svo ráðgjafamir á þinginu,
og semja við þingið, skýra frá, hvort þeir
geti gengið að þessari og þessari breytingu,
og víkja frá völdum, ef háðar deildir þings-
ins fara því fram, sem þeir geta ekki að
gengið. |>etta viðrkenna allir, jafnvel örg-
ustu hægri-menn í Danmörku, að sé sjálf-
sögð siðferðisleg skylda hverrar stjórnar í
þingfrjálsu landi l. Sé frá þessari reglu
vikið, þá er traðkað siðferðislegum' rótti
þjóðarinnar, og fulltrúum hennar sýnd fyllsta
fyrirlitning.
Hér á landi er enginn fulltrúi stjórnar-
innar á þingi, sem geti samið við þingið
fyrir stjórnarinnar hönd, því að landshöíð-
ingi eða hver annar umboðsmaðr ráðgjafans
sem er, veit ekki og getr ekki vitað upp nó
niðr. Hann veit ekki, hvað ráðgjafinn
kynni að hugsa um mýmörg atriði, sem fyrir
kunna að koma, og sem ráðgjafinn ekki
hefir vitað af fyrir fram.
í stað þess að fara nú að, eins og vænta
mátti og land vort átti fulla heimting á, þá
eigi að eins synjar hr. Nellemann staðfesting-
ar lögunum um afnám amtm.emb., en til þess
að ganga milli bols og höfuðs á þeim, svo þau
gangi ekki aftr á næsta þingi, þá «setr» hann
að fornum sið «höfuðið við þjóhnappana» og
veitir amtmannsembættið nyrðra.
Hvað á eftir fer er auðsætt: amtm.em-
bættið sunnan og vestan verðr auðvitað veitt
í sumar. f>á getr og hr. Oddgeir Stephen-
sen vonandi, ef hann vill, sameinað «utile
dulcii)'2 og útvegað frænda sínum Magnúsi
6000 króna embætti (með 1400 kr. skrif-
stofulaunum að auki; þar getr eitthvað
1) þegar hægri menn sitja að völdum i Danm.
gegn vilja meiri hluta þjóðþingsins (neðri d.), þá bera
þeir það fyrir, að þeir hati þó landsþingiö (efri
deild) með sór. Að neita staðfestingar lögum, sem
háöar þingdeildir hafa samþykt, liefir þar enn
engri stjórn dottið í hug.
2) D : ið þarflega við ið þægilega.
hrotið af til vikadrengsins !). — þetta er nú
mjög gleðiríkt fyrir þessa miklu og mögnuðu
Stephensens-ætt. En það efumst vér um, að
það verði almenningi á Islandi gleðiefni að
sama skapi.
Eigum vér nú að leggja árar í bát og
hætta við endrbót á fyrirkomulagi umboðs-
stjórnarinnar ?
Nei I og aftr nei!
Tífalt öruggara en nokkru sinni fyrri skul-
um vór nú halda máli þessu fram.
En látum jafnframt þennan löðrung í
andlit þjóðarinnar verða oss nýja og sterka
hvöt til, að draga nú eigi lengr endrskoðun
stjórnarskrárinnar.
Yeri þetta oss ný hvöt til, að hætta eigi
fyrri, en vór fáum viðrkent af stjórn vorri
þingrceðið, sem engin þjóð getr án verið,
sem heita vill frjáls og eigi þola óskorað
ráðgjafaeinveldi, sem f engu er betra en
konungs-harðstjórn!
• ================
Hugleiðingar
um nokkur helztu pingmál.
Eftir Jakob G'UÖmundsson, þingm. Dalamanna.’
I.
Eins og við mátti búast og vant er til að
ganga, skiftust málin á síðasta þingi í tvent
í meðferðinni: sum urðu útrædd og afgreidd
sem lög eða ályktanir frá þinginu, en sum
þar á móti feld eða ekki útrædd.
þegar nú þeir, sem nokkuð hugsa af al-
vöru um málefni landsins, hafa séð mál
þessi og afdrif þeirra á þinginu, þá er nauð-
synlegt að menn reyni að gjöra sér sem ljós-
asta grein fyrir, hvernig þeim geðjast að úr-
slitum og afdrifum þeirra mála, sem hvað
mest kveðr að eða sem menn ætla að hafi
verulega almenna þýðingu.
Um þau 33 lagafrumvörp, sem afgreidd
voru sem lög frá þinginu, má búast við að
I) Vér viljum taka það fram þegar fyrir fram,
til að fyrirbyggja allan misskilning, að þar sem
vér á noklcrum stöðum leyfum oss að gjöra smá-
athugasemdir við ritgjörð þessa, þá er það engan
veginn af mótsagnar-fýsn við vorn mikilsvirta vin,
inn háttv. höfund, heldr til þess að vekja athygli
bæði hans og lesendanna á fleirum hliðum, er líta
má á mál þessi frá, svo að tækifæri sé til að bera
saman fleiri skoðanir jafnhliða. Svo geta menn
sjálfir „rannsakað, hafnað og útvalið11. Ritstj.