Þjóðólfur - 21.06.1884, Page 4
m
96
— Athæíi strandferðaskipaima. —
f>egar »Laura« fór héðan síðast (11. þ. m.)
austr um sunnanlands, átti hún eins og lög
gjöra ráð fyrir að koma við á Vestmanna-
eyjum. þegar þangað kom, staðnæmdist
hún á vörsta stað í straumröst og ósjó, þótt
alkyrt og lygnt væri nær landi. Bátarfóru
þegar út í hana, með þvf fjöldi fólks ætlaði
austr á Seyðisfjörð þaðan að leita sér at-
vinnu (sakir fiskileysis-bágindanna á eyjun-
um). Fólkið af fyrsta bátnum komst og
upp á skipið slypt og farangrslaust, og hélt
skipið svo á stað, þótt annar bátrinn, drekk-
hlaðinn fólki og farangri, væri þar rótt við, og
svo nauðuglega staddrí sjórótinu, að lá við að
sökkva, og hefði að álitum manna vafalaust
sokkið þar með fólki og farangri, ef bátr frá
landi, frá hr. grósséra Bryde, hefði ekki
komið út og bjargað. I þessum bát, sem
eftir varð, var fjöldi fólks, sem austr ætlaði,
og farangr og peningar bæði þeirra og eins
hinna, sem um borð voru komnir og nú koma
alslausir austr öllum ókunnugir.—Með segl-
skipi, sem kom hingað frá Eyjunum, var
landshöfðingja send kærayfir þessu óþokka-
atferli, undirskrifuð af hlutaðeigendum, Er
vonandi að hr. landshöfðinginn sýni nú rögg
af sér að hjálpa vesalings fólkinu til réttar
síns. Virðist oss auðsætt, að félagið eigi að
bæta öllum hlutaðeigendum allan skaða, sem
þeir hafa beðið af þessu; og virðist einsætt
að stjornín haldi eftir af tillagi þvf, sem
landssjóðr á að greiða gufuskipafélaginu,
nauðsynlegri upphæð í þessu skyni og borgi
hlutaðeigendum, en láti ekki fátæklingana
þurfa að vera að eiga í málarekstri við fé-
lagið, því með því móti ná þeir aldrei rétti
sínum. Vór fáum ekki betr sóð, en aðland-
stjórnin (ráðgj.) hafi fulla heimild til slíks
8amkvæmt samningi félagsins við stjórnina,
sem auðsjáanlega er stórvægilega brotinn
með slíkri ómannúðar-þjösna-aðferð.
— Frá Isafirði skrifar oss skilorðr maðr
6. þ. m.: »|>að væri nauðsynlegt að þér
settuð nokkur orð í »þjóðól£« viðvíkj. ferð
s trandferðas kipsins norðr um Isafjörð.
Brottfa/rardagr héðan í þessari ferð er álcveð-
inh í ferðaáætluninni í fyrsta lagi í dag : 6.
júní. »Thyra« kom hér um miðjan dag 4.
júní, en eftir sólarhrings dvöl hér heyrðu
sumir, sem á staðnum voru, að hún mundi
fara þann dag kl. 8 e. m. Menn vildu ekki
trúa þessu, en kl. 8 $ e. m. þann ð. júní
(f gær) var hún algjörlega farin héðan af
stað. þctta veit og vestanpóstrinn, sem
þér munuð eiga kost á að tala við«.
Einnig á þessu athæfi, sem er argasta
samningsrof (og langt frá ekki ið fyrsta af
félagsins hendi) við stjórnina, viljum vér
vekja athygli landshöfðingjans.
Ef stjórn vor lætr slíka óhæfu viðgangast
óátalið, þá hefir allr landslýðr fylsta rétt til
að snúa allri sirmi' réttlátu gremju að sjálfri
landsstjórn vorri.
það er eins og þessir skipstjórar danska
gufuskipafélagsins fyrirlíti svo djúpt bæði
þjóð og landsstjórn, að þeir þykist þess um-
komnir að bjóða þeim hvern ósómann, hverja
óhæfuna, reka þeim hvern pústrinn á nasir
á fætr öðrum.
Er þá landið réttlaust gegn tveim dönsk-
um kapteinum, eða gegn þessu mikla gufu-
skipafélagi ? Til hvers eru þá allir samn-
ingar ?
Eða er enginn endi á landsstjórnarinnar
þolinmæði eða—gunguskap ?
Samskot til ekkna og barna þeirra,
er druknuðu í mannskaðaveðrinu í vetr.
Síðan vér auglýstum siðast, er innkom-
ið á skrifstofu ,.þ>jóðólfs“: Úr Grinda-
víkrhreppi 83 kr. 50 au. í peningum
og ávísunum (hæstir gefendr: Einar í
Garðhúsum 20 kr., Einar í Skemmunni
10 kr., séra Oddr 10 kr., Sæm. Jónss.,
Járngerðarst. og kona hans 14 kr.,
Hafliði á Hrauni 5 kr. o. s. frv.).
AUGLÝSINGAR
i samfeldu máli tn, smálelri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orí 15 stata frekast.
in. öðru letri eða setninj 1 kr. tjrir jramlunj dálks-lengdar. Borjnn út i hönd.
TTltt 9 í markaða-boðun Coghills er skakk-
■U • sett: Ósi (. Ási; Laugardal f.
Laugardœlum.
Uppboðsauglýsing.
Föstudaginn 27. þ. m. kl. 12 m. d. verðr
við opinbert uppboð hjá »Hala« hér í bcenum
seldr nefndr bœr með tilheyrandi loð. Skil-
málar fyrir þessari sölu auglýsast á uppboðs-
staðnum á undan uppboðinu.
Bœjarfógetinn i Beykjavík, 26. júní 1884.
204 r.] E. Th. Jónasscn.
Litunar-efni.
Vor á g æ t u litunar-etni til heimilisþai fa fást
í Reykjavík að eins hjá
hr. kaupm. Finni Finnssyni.
Með þessum litunar-efnum getr s é r h v e r
húsmóðir litað voðir og band eins fall-
ega og trútt eins og æfðasti litari, og
ábyrgist verksmiðjan það, ef fyrirsögn vorri
er fylgt. Litareínin eru seld í 10 aura bögglum,
og fara 3 af þeim á pundið af bandi eða voð.
Fyrirsögn, sem verksmiðjan hefir gefið út til leið-
beiningar við litun, fæst ó k e y p i s hjá ofan-
nefndum umboðsmanni vor'um.
Buchs lítarefna-verksmiðja
I99 r.j Köbenhavn K.
Hér með lýsum við yfir því, að vér höf-
um tekið hr. Jón Vídalín í Reykjavík fyrir
umboðsmann vorn á íslandi, fyrst um
sinn um 2 ár frá 25. maí þ. á. að telja;
að vér höfum veitt honum fult umboð til
að taka við pöntunum á vörum, sem vér
skulum láta úti, á móti hestum, fé eða
vörum, sem oss verða sendar; einnig hefir
hann heimild til, þá er útskipað er tilvor
hestum eða fé, að gefa kaupmönnum á ís-
landi, sem senda oss þetta, a v i s t a ávís-
anir upp á oss fyrir alt að 2/s af inu áætl-
aða verði, ef peningaforði sá, sem hann
hefir í höndum frá oss, skyldi reynast ó-
nógr.’
Newcastle on Tyne, 9. mai 1884
Kana £awtit&en & (£o.
* *
*
Samkvæmt ofanskrifuðu umboði tek ég að mér
als konar s t œ r r i vörupantanir (smápöntunum get
ég ekki sinnt), og hef ég til sýnis ýmis sýnishorn
af enskri og ameriskri kornvöru, af ýmiskonar
kramvöru og annari vöru beint frá verk-
smiðjunum. Einnigtekég að mér sölu-umboð á
hestum, fé og ísl. vörum, og borga út fyrirfram alt
að 2/3 hf áætluðu verði þeirra. Upplýsingar um
sölu hesta o. s. frv. gef ég þeim er óska,—Mig er
að finna út þennan mánuð í Aðalstræti nr. 6, helzt
frá kl. 10 — 12 f. m. og kl. 4 — 5 e. m.
Reykjavík, 7. júni 1884.
Jon Vídalín. [202r.
Masldnusmiðja í London býðr þeim,
er vilja, pappírs-skurðarvjelar, sem
skera 27 þuml. langt snitt, fyrir 234kr.
Sigm. Guð'mundsson gefr- nákvæmari
upplýsingar. [aosr.
Á í m a n a k
þjóðvinafjelagsins um árið 1885 er út
komið. Meðal annars er í því myndir af
Cavour og Garibaldi, með æfisögum þoirra.
Fæst á afgreiðslustofu ísafoldarog hjá kaup-
njjönnum og bóksölum víðsvegar um land.
Kostar eins og að undanförnu 50 a. [206r.
Hjá undirrituðum er til sölu Bókaskurðarmask-
ína með tilheyrandi pressum og fl. sem til bók-
baíids þjenar. Maskína þessi er virt á 700 krónur,
en orsaka vegna fæst hún nú á 430 kr.
Reykjavík 18. júní 1884.
207 r.] F. Finnsson.
Undirskrifaðr kaupir góða og laglega hesta,
helzt vel einlita, frá 4—^-5 vetra gamla.
Bvík 84. B. H. Bjarnason. [208r.
Sauinavél
brukuð fœst fyrir lítið verð hjá Magnúsi
Benjamínssyni i Beykjavík. [ 209*
Hér með fyrirbjóðum vér undirskrifaðir
einum og serhverjum mnlendum sem út-
lendum alla veiði og veiðitilraunir í
Elliðaánumfyrir landi jarðanna Elliðavatns,
Arbæjar, Yatnsenda og Breiðholts, þar eð
við höfum leigt veiðiréttinn, og sömuleiðis
munum vér hafa nákvœmar gœtr á, hvort
þetta bann okkar verðr brotið, og kœra þá
til sekta og skaðabóta, er kynnu að brjótaþað.
Elliðavatni, Vatnsenda, Breiðholti íjúníl884.
Sæm. Sæmundsson. Ólafr Ólafsson.
Jón Jónsson. [210*
Eigandi og ábyrgðarm. : Jón Ólafason, alþm.
Skrifstofa : á Bakarastíg við hornið á Ingólfsstræti.
I’rentaðr i prentsmiðju ísafoldar.