Þjóðólfur - 30.07.1884, Page 3

Þjóðólfur - 30.07.1884, Page 3
3 Það, sem hann telr venju, er nefnt (þó ekJci sem venja) í Kyrkjuréttinum, en það er að eins aðferð, sem Bjarni konfer. Thorsteinsson hefir stungið upp á, en ég veit ekki til að neins staðar hafiupptekin verið. Persónan gjörir kannske svo velað til nefna nokkra hreppa, þar sem henni er fylgt? Annars verð ég að telja þetta þvætting einn; per- sönan hefir hent þetta á lofti i Kyrkjrétti og ætlar að slá um sig með fróðleiknum, en sýnir að eins fáfræði sína. Að ég þykist hafa í þættinum talið völl gjöld almenningsu, er tilhæfulaust. Gjöld þau, sem persónan nefnir, lág það alveg fyrir utan verkahring minn að telja. Einkennilegt er, að persöna þessi, sem hefir auðsjáanlega haft svo góðan vilja til að finna villur í þætti minum, hefir als ekki haft skyn á að finna eina verulega villu, sem er þar, og sem ég sjálfr hefi tekið eftir við það að lesa þáttinn á ný. Þar stendr: „Pararskjóta eðr flutning skal veita presti á embættisferðum, en ferðakaup ekkertu ; i stað þess að standa hefði átt: „Flutning á sjó skal veita presti á emb. ferðum, en reið- skjóta ekki og ferðakaup ekkertu. Það, sem „ritstjórinnu skrifar umAlmanak- ið, er eins og von er til af honum, sem er svo gjörsneyddr því að hafa nokkum snefil af skyni á því, sem hann talar um. Hann hefir hvort sem er verið svo ótilreiknanlegr stundum í þessum mánuði, að mér fyrir mitt leyti dettr ekki i hug að svara því, sem hann segir, að minnsta kosti ekki núna í hundadögunum. Jön Olafsson Reykjavík 30. júll. Hörmuleg-t slys vildi til á laugardagskvöldið 26. þ. m. Larsen verzlunarstjóri (Thomsens) og Sigurðr Sigurðsson kennari við latínuskólann ásamt ungl- ingspilti frá Sölfhól sigldu um kvöldið inn i Elliða- ár mynni að gamni sínu; sást það síðast til þeirra að þeir voru komnir á heimleið siglandi, en síðan hefir ekki til þeirra spurzt; en af bátnum lefír rekið botnfjöl og 1 ár. Bezta veðr var og kaldi nokkur. Hefir bátrinn sokkið Og þeir druknað. Sigurðr var fæddr 1849. Prestaköll veitt: 10. þ. m. Borg i Borgarf. cand. theol. Morten Hansen. 25. þ. m. Torfastaða-kall i Árnessýslu séraMagn- úsi Helgasyni á Breiðabólstað á Skógarströnd. AUGLÝSINGAR, Eptir skýrslu hlutaðeigandi sýslumanns hefir ýmislegt brak og tunnur, sumar með matvælum, sumar tómar, frá skipi, sem sökk við Yestmanna- eyjar aðfaranóttina hins 6. apríl þ. á., borið á land þar á eyjunum eða verið bjargað á floti. Á vog- rekum þessum voru ekki önnur sérstakleg einkenni, en að orðið „Bordeaux“ stóð á tveimur rauðvins- tunnum og orðið „Dunkerque“ á nokkrum brauð- tunnum; en eptir þvi sem fram er komið í prófum, er haldin hafa verið til upplýsingar um áðrnefndan skiptapa, virðist vafalaust, að ið sokkna skip hafi verið frakkneskt fiskiskip, og nokkur likindi til, að það hafi borið markið D 84. Eigendr þessara vogreka innkallast hér með með árs ogdags fresti samkvæmt lögum um skipströndl4. jan. 1876, 22. gr., til þess að sanna fyrir amtmann- inum í suðuramtinu eignarrétt sinn til vogrekanna, og taka við andvirði þeirra að kostnaði frá dregnum. Islands suðuramt, Heyhjavih 26. júli 1884. fHLay-núö Sl&pfveiisc’tt, settur. Enskunámsbók handa byrjöndum eftir Jón Ólafsson, kostar i bandi 1 kr. 50 au. og fæst nú: á ísafirði hjá Þorv. Jónssyni lækni. — Akreyri hjáFriðbirni Steinssyni. — Yopnafirði hjá kaupm. Jak. Helgasyni. — Eskifirði hjá konsúl Tulinius. — Djúpavogi hjá faktor Stef. Guðmundssyni hér í Beykjvik hjá bóksala Kristj. Ó. Þorgrímssyni og hjá höfundinum. I ORKALDARSÖG Ult NORÐXJRLANDA, (Hrólfasögumar o. fl.) Þessar sögur sem alþýða hefur haft svo miklar mætur á, er jeg nú byrjaður að prenta, og verða þær gefnar út i heptum smátt og smátt, stundum ein saga í hepti, og stundum 2 i hepti, ef sögumar eru stuttar. Ef sögurnar fá góðar viðtökur, mun ég gefa út 2 hefti á ári, hér um bil 6 arkir hvort. Verð verð- ur 15 a. örkin. Sögumar skulu vel prentaðar á góðum pappír, og mun ég með næstu póstum senda sýnis-örk af þeim til helztu bóksala landsins. í sambandi hér með bið eg þá, er ég hefi sent boðsbréf um Storminn (The Tempest) eftir Shakspear, þýddan af meistara Eir. Magnús- syni, að greiða sem bezt fyrir þeim, og sendaþau hið fyrfeta til baka. Rvik 80. júlf 1884. Sigm. Guðmundsson. Forlagsréttinn að guðsorðabókum herra biskups P. Pjeturssonar hefi ég selt herra Sigurði prentara Kristjánssyni í Reykjavik, með öllum réttindum og skyldum. Rvik 80. maí 1884. Sigm. Guðmundsson.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.