Þjóðólfur - 22.11.1884, Qupperneq 3
179
Fljúgðu, minn andi,
frárri loftsins straumi,
svíf á vængjum, er sorg þér gaf;
unz að hjá leiði
lágu þú dvelur,
í fjarska, — fyrir handan haf.
Blómin, sem vaxa
þar á lágu leiði,
ei vætir nokkurt vinar tár;
ástvinir heima
syrgja þó sáran;
þeir væta’ af trega-tárum brár.
Lítinn og blómsveig
leiði fyrir þetta
ei hnýtir vinar höndin nein;
helguð því heima
hjartnanna blómin
þó elur sorg og ástin hrein.
Aður hann Magnús
æsku prýddur blóma,
er þetta litla leiði á,
elskaðri’ á ættjörð
ástsæil nam dvelja,
vinum og frændum var hann hjá.
þeir, sem hann þektu,
unnu honum allir, —
já, stutt var lífsbraut hans, en hrein.
Sál hans var helguð
saklausri gleði,
er fjölbreytt andans mýkir mein.
Gráta því margir
sárum saknaðs-tárum
vininn ástfólgna’, er guð þeim gaf,
lágu sem leiði
liggur und falinn
í fjarska — fyrir handan haf.
Lágt er þitt leiði,
fjarri fósturlandi,
en minnsvarða mæran þér
ástvinir reisa
fastan og fagran
af ástar-harmi’ í hjarta sér.
Grát þú ei, móðir,
mædd af heimsins böli,
látið, systkin, sorgum af;
grátið ei, vinir;
guð þekkir leiðið
í fjarska—fyrir handan haf.
Scurn.
Leiðvallahrepp, 21. okt.
Tíðin má heita að hafa verið in sama í
alt sumar síðan til óþerris brá. Dag hvern
rigning, og hvassviðri ef upp styttir, enda
oftar með úrkomunni. Fæst varla úrkomu-
laus lognstund til að laga hey í görðum, sem
víða fara illa sakir hitavellu, sem í þeim
liggr, og er það afleiðing óþurkanna næstl.
sumar.—Víða er hér um nálægar sveitir búið
að skera,eina,ogsumstaðarfleirikýr á heimili
hverju, auk annars nautpenings, sem í frek-
asta máta hefir verið eytt. Almenningr
ráðgjörðir að skera öll lömb, enda mun ei
af veita, því að heyin eru bæði lítil og illa
hirt. Verði harðr vetr, fer varla hjá að
fónaðr falli hrönnum saman.
Úr sama hrepp, II. nóvbr.
Erfitt er tíðarfarið enn sem fyrri. Nú er
vetrinn farinn að sýna sig. þriðjudag 28.
f. m. skall hér á austan-gaddbylr; næsta
dag var frostið 8 til 10 stig á Beamur,
fimmtudaginn (30.) aftr bylr, og síðan megn-
ustu umhleypingar og stundum frost, stund-
um frostleysur, jeljagangr o. s. frv. f>að
er því farið að setja talsvert að högum, og
eftir því sem til fjalla er að sjá, líklega hag-
lítið þar víða. I gærdag og frameftir nóttu
var hellirigning með stormi; tók hér því
mikið upp, en hér á mýrunum er nú hlaup-
ið svo í gadd, að mikið er enn þá undir
lagt af þeim. Nú eru krapahryðjur úr út-
suðri. Til fjalla er alhvítt að sjá. Heilsu-
far manna sæmilegt; slysfarir engar; fátt
manna deyr, engir nafnkendir.
Reyðarfirði, 17. október.
Lítill er afii hér og síld engin. Norð-
vestanátt nú, þó eigi kalt, engin frost á nótt-
um ; einu sinni hefir snjóað til þessa. Ný-
lega var ég við Eskifjarðarkyrkju (frísafn-
aðarins); það er fagrt hús og vandað; á-
gætr klerkr er séra Lárus, þótt eigi skrýðist
hann hempu-pokanum.
Reylcjavík, 22. nóvbr.
— Austanpóstr kom í fyrradag s;agði fátt
frétta, nema tíð líka og hér; en aðfaranótt
föstudags vikuna sem leið gekk hér skyndi-
lega í ofsarokveðr á suðaustan, fylgdi því
óhemjurigning og hólzt fram á 15. þ. m.
að veðr snérist til suðvestrs og gekk þá með
éljum. Nú er hægviðri og má héita blíða
um þennan tíma árs.
— I ofsaveðri þessu hafði skipið »Amoy«
frá Brydes-verzlun hér, er lagði hóðan fyrir
skömmu, rekizt upp á Holts-sand undir
Eyjafjöllum austr; menn komust allir af,
skipið og vörur sagt lítt skemt, en ekki til
að hugsa annað en að selja alt þar, sem
komið er.
— þá er gefið hefir, þessa viku, hefir orð-
ið allsæmilega fisk vart hér af nesjunum.
— 1 sumar kom hér út ritlingr einn ritaðr
og útgefinn af Sigurði nokkrum Sigurðssyni
frá Skúmsstöðum við Eyrarbakka, og út-
býtti höfundrinn honum ókeypis sama dag,
sem hann kom út; var það sfðari hlut dags;
nokkrum tímum síðar (kl. 8 eða svo ?) fór
höfundrinn um borð í gufuskip Slimons, er
lá her á höfninni og fór hann með því, er
það lagði út rétt eftir miðnættí, og kvað hafa
ætlað til Ameríku. Bitið nefnist »|>áttr
um lögmanninn í Gerðiskoti«, og mun flest-
um finnast, er lesið hafa, að grimmara níð
hafi ekki fyrri á prenti sézt, en þar er um
Stfán sýslumann Bjarnarson, sýslum. Árues-
inga. Níðrit þetta var prentað hjá Einari
þórðarsyni prentara, og hóf Stefán sýslu-
maðr mál gegn honum sem þeim, er ábyrgð
bæri af ritinu; var dómr upp kveðinn í
bæjarþingsrétti í fyrradag, og ritið alt í heild
sinni og hvert einstakt orð þess dæmt dautt
og marklaust, en Einar á að sæta einföldu
fangelsí i 4 mánuði, borga 15 kr. sækjanda
1 málskostnað. en 20 kr. sekt fyrir óþarfan
drátt á málinu.
fPrestaskortr í Skaftafcllssýslu.
(Úr bréfi úr Meðallandi).
—))«—
Ekki ganga prestar liðugt að okkr Meðal-
lendingum enn þá einu sinni; sama ætlar
nú að verða með Alftaverið að enginn sækir
um það. Út af þessu er og hefir verið megn
óánægja um þessar sóknir ; þykir oss ójafn-
aðarfullt að verða að gjalda öll prestsgjöld,
en njóta ekki prestsþjónustu nema öðru
hverju og það með miklum erfiðleikum, því
að til hvers aukaverks verðr prest að sækja
langar leiðir, en ekki messað nema 4. hverju
helgi, og líklega sjaldnar um vetrartímann ;
það gétr naumast heitið nema öðru hverju
á strjálingi. En við þetta mun þó verða að
búa. Eða hvað á til bragðs að taka?
Breyta eins og Beyðfirðingar, eða hvað? Eru
nokkur líkindi til, að vér fengjum prest að
heldr fyrir það, ef vér segðum oss úr þjóð-
kyrkjunni ?x Að afþakka alla prestsþjón-
ustu meðan enginn sækir um brauðin, mun
ekki þykja kristilegt. En með því fyrir-
komulagi, sem nú er, verðr þó alt trúarlíf
væntanlega dofið og kalt.
Athugas. ritstj. : J>ó að þið afþakkið
alla prestþjónustu, þá verðið þið samt látn-
ir gjalda prestgjöld öll til þess, sem skip-
aðr kann að vera eða verða að nafninu til
að þjóna. Og hvað er þá unnið ? f>ið ber-
ið sömu gjöld, en ykkr er þó ekki betr borg-
ið með als enga prestsþjónustu, heldr en þá
litlu og ónógu, er þið nú hafið. Stjórnendr
þjóðkyrkjunnar (alþingi meðtalið) lætr sér í
léttu rúmi liggja aðútvegayðr nokkurn prest
eða öðrum söfnuðum nýtan prest; ef þeir að
eins geta kúgað yðr og aðra til að gjalda
fé fyrir ekki neitt, þá eru þeir ánægðir. það
hefirkyrkjustjórnin sýnt í undirtektum sínum
1) vHer veit? Hugsanleyt er það. Ritstj,