Þjóðólfur - 16.03.1885, Blaðsíða 3
43
asta skylda, sem á oss hvílir, að bera ná-
kvæma umhyggju fyrir konum vorum og
börnum, og flestir manu ganga með fúsum
og frjálsum vilja undir hana í fyrstu, og þó
megum vór játa að hún er oft miðr upp-
fylt en skyldi.
Hvernig uppfyllir þú þessa skyldu, minn
breyzki bróðir, þú sem með iðjuleysi, of-
drykkju og óreglulegum liínaði eyðir tíman"
um og fjármunum þínum og hugsar ekk1
um annað, en svala þínum líkamlega þorsta?
það skaltu þó vita, að »hvcr eyrir, sem þú
eyðir til ónýtis, er stolinn af velferð konu og
barna« og hve mikill ábyrgðarhluti er það
ekki fyrir þig, verði þau síðan þessvegna
nauðlíðandi; hugleiddu þetta, meðan þú
hefir tíma til þess, því ekki veiztu, hve
lengi það kann að verða. jpú fer máske á
morgun hraustr og heilbrigðr frá heimili
þínu út á sjóinn; þá tekr vindrinn að
blása og geigvænar öldur æða og hvolfa, ef
til vill, þegar minst varir, skipi þínu, þú
kemst máske á kjölinn og heldr þér þar
dauðahaldi nokkrar mínútur, kannske fleiri
klukkutfma; þá mun þó samvizka þín
vakna ; með skelfilegri angist muntu renna
huganum til þinnar liðnu æfi og heim til
þinnar alsþurfandi konu og barna, sem nú
liggr ekki annað fyrir en að skiljast hvert
frá öðru, og fara út á sveitina; mun það
ekki vera sár og svíðandi tilhugsun sé það
að nokkru leiti þín skuld? Hve feginn
mundir þú þá ekki vilja fara að »ráðsfafa
þínu húsi«, en það er nú um seinan, »því
þú hlýtr að deyja«. Mun þá ekki taka til
að kvelja sálu þlna #sá ormrinn, sem aldrei
deyr?t Bn hafir þú, þar á móti, gjört alt
sem þér var mögulegt til að efla velferð
konu og barna, — hafir þú varið öllum
kröftum þínum þeim til blessunar og heilla
og sjáir svo engin vandræði liggja fyrir þeim,
er þú hefðir getað afstýrt, þá muntu með
samvizkufriði og sálarrósemi sofna inn
síðasta blund. Og hvers muntu framar
óska þór, þegar þú hlýtr að fara héðan ?
Uin nokkrar orsakir til fátæktar
og; sveitarþyngsla.
Eftir
þ. Guffmundsson.
í dagblöðum vorum hafa, bæði í
fyrravetr og í vetr, verið töluverðar
umkvartanir frá ýmsum mönnum um
vaxandi sveitarþyngsli viðsvegar um
landið, en þó einkum í sjóplássunum,
og er það því miðr satt, að þau eru
alt of mikil, og ekki anriað fyrir að
sjá, en að innan skams verði ekki und-
ir þeim risið, einkum ef hörð ár hald-
ast, í mörgum hreppum hér sunnan-
lands.
Hingað til hefir verið talað ómerki-
lega um orsakirnar til þessara oft um
ræddu sveitarþyngsla ; orsakirnar hafa
helzt verið taldar ódugnaðr og búðar-
slór í kaupstöðum ásamt ofdrykkju, sem
því miðr á sér- alt of víða stað, en ég
er ekki fjarri, að hér sé nógu freklega
talað, þvi það er langt frá því, að fá-
tækt margra eigi sér rót í þessum or-
sökum, því það eru margir bæði til
sjávar og sveita, sem bæði eru reglu-
menn, hvað drykkjuskap snertir, og
líka atorkumenn til allra verka, og eru
þó sífelt fátækir, og þurfa hjálpar við,
sem kemr einmitt til af því, að þá vant-
ar atvinnu, til þess að geta haft ofanaf
fyrir sér og sinum; þvi eins og allir
geta séð, sem vilja, eru fjölda margir,
einkum í kaupstöðunum Reykjavík og
Hafnarfirði, sem ekkert hafa til lifs-
framdráttar, nema ef þeir geta fengið
einhverja vinnu, því oftar er sjávarafl-
inn ónógr til viðrværis, sem við er að
búast, þar sem oft fæst ekki björg úr
sjó meira en hálft árið, og fjöldi manna
hafa ekki nema sinn eina hlut þegar
þeir fara á sjó, hversu marga sem þeir
hafa fram að færa, og geta þeir, sem
nokkra nærgætni hafa, séð, hvernig
menn með fjölskyldu geta lifað af þessu,
og það sem nú er talið, er þó ið eina,
sem flestir í sjóplássunum hafa til að
lifa á. Ég er orðinn nokkuð marg-
orðr um þetta, og vil því ekki tala
meira um það í þetta sinn.
þ>að sem ég í þessum fáu línum hefi
hugsað að gjöra að helztu umtalsefni,
var það, hvort ekki mundi eitthvað
mega bæta úr því vandræða atvinnu-
leysi, sem nú á sér stað, og sérstaklega
benda á eitt atriði þessu viðvíkjandi.
|>að hefir lítið, enn sem komið er, ver-
ið gert til þess, að bæta atvinnu-
veg hér á landi fyrir fátæklingana,
og enda alla, heldr virðist alt
benda til þess, að hér á landi af-
leggist innan fárra ára öll handavinna,
og jafnvel enda smíðar, sem hefir þó
alt til þessara vondu tíma verið mörg-
um til mikils gagns ; þetta getum við
fyrst og fremst kent kaupmönnum vor-
um, og þar næst blindri alþýðu, og í
þriðja lagi landstjórninni, sem til þessa
hefir lítið gjört, til þess að bæta úr
inum tilfinn'anlega atvinnuskorti; ég get
þó ekki betr séð, en hún gæti það, ef
hún vildi gefa því gaum, annaðhvort
með því, að banna algjörlega allan inn-
flutning á öllu því, sem vér sjálfir get-
um unnið, eðr að leggja á það tilfinn-
anlegann toll1.
Ég skal í fám orðum minnast á ýmsa
hluti, sem ég álít óþarfa að kaupa vinnu
á frá öðrum löndum. þ>að er fyrst og
fremst vinna á öllum hampi, svo sem
til netja, allra færa og teina, sem nota
skal til fiskiveiða á opnum skipum, eða
yfir höfuð allt nema kaðla til þilskipa-
útreiðslu, á meðan við ekki erum svo
langt komnir að geta einnig unnið það
sjálfir. Hampvinnan gæti við sjóinn
gefið tölverða atvinnu mörgum mönn-
um, þó í fljótu áliti sýnist má ske lítið
í varið. J>að er sannarlega sorglegt til
þess að vita, að margir iðju- og dugn-
aðarmenn verða að ganga eður hanga
eðr hanga iðjulausir allan vetrinn, og
geta ekki fengið handarvik að vinna
síðan menn voru—að heita má—algjör-
lega sviftir þessari vinnu; það má svo
að orði kveða, að nú fáist varla svo
mikill óunninn hampr hjá kaupmönn-
um, sem sé í eitt hrognkelsanet, heldr
mega menn ganga iðjulausir, og kaupa
svo vinnuna frá öðrum löndum, á því
sem þeir þurfa til sjávarútvegs, og
geta allir séð, hversu röng aðferð slíkt
er í sjálfu sér. þ>essu-—þó lítilfjörlegt
sé—ætti alþingi vort að ráða bót á ið
bráðasta, því ég er viss um, að þetta
eina atriði væri strax töluverðr léttir á
hreppsjóðunum hér við sunnanverðan
Faxaflóa, þar sem svo mikið er brúk-
að af hampi.
þ>ví næst eru smíðarnar. þ>að liggr
við, að handverksmenn eðr smiðir séu
þegar sviftir atvinnu sinni með inn-
flutningi á svo að segja öllum smíð-
um, því eins og kunnugt er, er mestr
hluti af smíðisgripum keyptr frá út-
löndum. J>að er altítt að kaupandi
segir, að ólíkt sé að kaupa hlutinn í
búðinni, heldr en hjá smiðnum, þvi í
búðinni sé hann með miklu lægra
verði; en það eru fáir sem hugleiða,
að flestir hlutir, sem hér eru smíðaðir,
eru miklu traustari en þeir, er við kaup-
um frá útlöndum, auk þess, að með
því að ganga fram hjá smiðnum, er
hann sviftr atvinnu sinni, og getr þess
vegna ekki lengr lifað af vinnu sinni,
og verðr að lokum ekki betr staddr
en inir fyrnefndu. [Niðrl.]
Reykjavik, 15. raarz 1885.
Húsbruni. Aðfaranótt 12. þ. m. brann alt,
að inaan hús það. er prentsm. Sigm. Guömunds-
1) pessU skal svarað verða. Ritstj.