Þjóðólfur - 19.04.1885, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 19.04.1885, Blaðsíða 3
I nauðsynjamálum“ landsins vegna stjórn- arskr.m. Fyrst og fremst urðu þeir góðu lierrar of seinir til að byrgja þann brunn; því þjóðv. er þegar hniginn að stjórnarmálinu og farinn að sýna al- varleg afskifti aí því, jafnframt öðrum nauðsynjamálum; það sannar meðal annars nýafstaðinn þjóðfundr á Þing- velli, og til hans voru sendir fulltrúar úr hverju héraði, valdir með sérstöku tilliti til stjórnarskrármálsins, svo að sá, sem dirfist að mótmæla því, að þar hafi komið fram þjóðviljinn í því máli, er eins vís til að mótmæla því, að ljósið sé bjart! í annan stað er ástæðan mjög sjálfbyrgingsleg; því svo lítr út sem þeir, er liana bera fyrir, álíti sig hafa betr vit á, livað sé þjóð fyrir beztu, en hún sjálf; og samkv. hugs- unarhætti einvaldssinna þykir þeim sinn vilji rétthærri en almennings. Þeir virðast hafa nokkurs konarðskeikulleiks- hugmynd um sjálfa sig aftrhaldsmenn- irnir. — Yant er að sjá, hvort kjós- endr þeirra A. Ó. og Þ. Bj. knnna að meta slíkt frávik, og sýna þeim það við næstu kosningar til alþingis. Það er annars mikið óþægilegt fyrir blessaðan þjóðviljann, þegar alþm. og það jafnvel hæfileika menn snúast „í hálsliðunum“; því berlegast og áhrifa- mest kemr þjóðviljinn vanalega fram í alþingiskosningunum1; því eðlilegast er að þeir menn verði fyrir kosningu, er þá hafa traust og hylli kjósenda, eftir því sem þeir hafa komið og þá koma fram í stjórnmálum. En skipti svo þingm. skoðunum á kjörtímanum, máske þegar eftir að hann hlaut kosningu, liafa kjósendrnir ávalt „keypt köttinn í sekknum“, og sitr hann svo ef til vill á þrem þingum liverju eítir annað, og drepr niðr eftir megni helztu áhuga- málum kjósenda sinna, og það máske nauðsynlegustu þjóðþrifamálum, þvert á móti vilja þeirra, móti inum kjarklitla (en þó máske einlæga) þjóðvilja, sem hann um leið gjörir áhrifalausan; því hann dregr sig til baka og dirfist eigi að ganga í berhögg við þingmanninn; og svo þrætir hann öruggr fyrir, að þjóðvilji sé til! 1) Þó kosningarlögin séu þvi að líokkru leyti fyrirstöðu með framboðs-ákvörðuninni. Höf. [Þvert 4 móti! Ritstj.] 147 En — „nær vissuð þér svo heimsk- an hest“ — mistraust alþýðu má þó vera aftrhaldsmönnum nóg vissa fyrir því, að þjóðvilji er til, og kemr fram sem övilji á þeim, að minnsta kosti. í Tímariti bókm.fél., 5. árg., 1884, 1.—2. hefti, er ritgjörð „um kosningar og kjósendr til alþingis, eftir Indr. Einarsson", sem vert er fyrir alþýðu að kynna sér. Þar er tafla, sem sýnir, hve margir af kjósendum í hverju kjör- dæmi neyttu atkv.réttar síns við kosn- ingar til alþ. síðastl. — Að vísu er það eigi áreiðanlegr mælikvarði fyrir vilja- styrkleika kjósendanna, hve margir af þeim mæta á kjörf.; því oft geta aðrar ástæður verið til þess, aðrar aðstæður haft áhrif á það, hversu fjölsóttir þeir fundir eru, svo sem veðr, færð o. þvíl. Almælt er, að í því kjördæminu, þar sem þá voru flest atkv. greidd, hafi mikil atkvæðaverzlun átt sér stað; en það mun því nær einsdæmi hér á landi og mun því að öðru leyti nokkuð mega ráða af töflunni stjórnmálaáhugastyrk- leikann þá í hverju kjördæmi. Samkv. þeirri töflu liefir ekki fullr fjórði liluti (25°/0) allra kjósenda á landinu að með- altali neytt kosningarréttar síns. Flesta þessara manna hefir áhuginn hvatt til að sækja kjörfund til að sýna þar vilja sinn. Á fundinum réði svo afl atkv., og þeir, sem flestir voru samráða í að trúa einum og sama manni fyrir áhuga- málum sínum og velferð þjóðarinnar, réðu því, hverjir þingmenn urðu. Þeir trúðu þessum mönnum t.il að koma fram sem fulltrúar þjóðarinnar og talsmenn síns vilja sérstaklega. Þannig kemr þjbðviljinn fram á alþingi samandreg- inn í lítinn hnapp. Þótt nú kosning- arnar, á meðan þjóðin er að átta sig eftir ófrelsisvímuna, misfarist nokkuð og óheppnist sumstaðar, verðr það þó jafnan ofan á, að þjóðviljinn sitr á al- þingi í liði inna þjóðkjörnu; því ég ímynda mér ekki, að þjóðinni fari aftr í að velja þingmenn eftir sínum vilja. XI. Þó alveg sé óþarfi að fara um það orðum, hver sé réttr þjóðviljans í öll- um alþýðlegum málum íslenzkum, stjórn- málum sérstaklega, með því það hlýtr að liggja hverjum skynberandi manni í augum uppi, að liann er inn eini vilji, sem hefir rétt til að ráða lögum oglof- um þjóðarinnar, vil ég með þínu leyfi, „Þjóðólfr“ minn, skýra mína skoðun á því í fám orðum. Eins og áðr er á vikið, geta inir á- huga- og viljalausu þjóðlimir eigi kom- ið til greina. Og liversu margir sem þeir eru, geta þeir engan rétt haft til að hnekkja sjálfstæði hinna, sem sjálf- stæðir vilja vera. Það mun samkvæmt allra þjóða réttarmeðvitund. Inir fá- mennari flokkar þeirra þjóðlima, sem hafa áhuga og vilja á að skipta sér af þjóðmálum, hafa að sínu leyti jafnan rétt öðrum til að hafa fram sinn vilja, og það væri alveg óréttlátt að meina þeim að hafa þau áhrif á málin, sem þeim er mögulegt, og inir fjölmennari slíkra flokka ættu að geta haft fulltrúa á löggjafarþingi þjóðarinnar, eða að minsta kosti geta neytt sín við kosning- arnar, en þeir verða að láta sér lynda að vera ávalt í minni hluta og vera háðir vilja og yfirráðum meiri-(mesta)- hlutans: þjóðviljanum. Því hvorki stétt, staða né forréttindi einstakra manna eða stjórnm.flokka, getr gefið þeim rétt til að hafa áhrifameira atkv. í málum en að jöfnum atkvæðafjölda við aðra þjóð- limi. Þannig hefir embættismannastétt- in engan rétt til að hafa meiri áhrif á löggjöf og stjórn landsins en jafnmörg atkv. leikmanna; því þó stjórnin hafi fengið þeim í hendr vissar sýslanir, og hafið þá til vegs og valda, eða ráðið þá til að gjöra viss störf, sem þeir eru álitnir öðrum færari til að sinna, leiðir eigi- þar af það, að þeir hafi leyfi til að taka sér neinn rétt í öðrum efnum. Þvert á móti má álíta atkv. embættis- manna í stjórnmálum minna metandi en leikmanna, ef greinarmunr yrði á þeim gjör; því vilji embættismannsins getr stjórnazt af áhrifum, sem staða lians hefir á hugsunarháttinn, og verið háðr annara vilja, og atkv. hans þannig- verið kundið, þar sem atkv. leikmanns- ins má álítast óþvingað, eigi bundið við annað en hreina sannfæringu, alfrjáls ávöxtr heilbrigðrar skynsemi og þjóð- legs anda. Aðalflokkinn, inn fjölmennasta, vil ég nefna þjóðflokkinn eða þjóðviljaflokk- inn, af því eg tel hans vilja þjóðviljann. Ég byggi það blátt áfram á sanngirnis- kröfu þeirri, sem viðrkennd er í rétt-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.