Þjóðólfur - 08.01.1886, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 08.01.1886, Blaðsíða 1
Kemur út á föstudagsmorgna. Verð árg. 4 kr. (erlenöis 5 kr.). Borgist fyrir 15. júlí. ÞJOÐOLFUR. Uppsögn (skrifleg) bundin við áraraót, ógild nema komi til út- gefanda fyrir 1. október. XXXVIII. árg. Reykjavík, föstudaginn 8. janáar 1886. Xr. 2. Þingmannakosningar. —0— Það er fátt, sem er jafnmikilsvert, sem kosningar á þingmönnum, og ef til vill ekkert, sem er jafnáríðsndi fyrir landið í heild sinni. Þingið er annar liður löggjafarvaldsins, og á því að semja lögin. Með lögunum á að bæta úr meinsemdum landsins og efla fram- farir þess. Með lögunum á yfir höfuð að hrinda öllu því í lag, sem annars verður bætt úr með lögum. Störf þingsins eru þó ekki fólgin í lagasmíðinu einu. Það eru önnur mjög mikilsverð störf, sem það hefur. Þann- ig getur það samkv. 22. gr. stjórnar- skrárinnar, „sett nefndir af þingmönn- um til þess, meðan þingið stendur yfir, að rannsaka málefni, sem eru áríðandi fyrir almenning11. Það skal og kjósa yfirskoðunarmenn landsreikninganna og gæzlustjóra bankans. Samkv. 37. gr. stj.skr. er hverjum þingmanni heimilt að bera upp í þeirri þingdeildinni, sem hann á sæti í, sjerhvert opinhert málefni og beiðast þar um skýrslu. Enn frem- ur getur þingið höfðað mál gegn ráð- gjafanum, ef þess skyldi þurfa (stjórn- arskr. 3. gr. og ákvarðanir um stund- arsakir 2. gr.). Það er þannig ekkert opinbert mál- efni til, sem þingið getur ekki skipt sjer af. Það hefur fullkomið vald til að hafa eptirlit með embættisrekstri embættis- manna og með landstjórninni yfir höf- uð að tala. Þetta eptirlitsvald þingsins er ómet- anlega mikilsvert, og það ekki síður en löggjafarvald þess. Ætti þingið að neyta þessa eptirlitsvalds meira, en það hefur gjört að undanförnu. Því meir, sem varið er í þingið, því meiri þjóðarheill, sem komin er undir, að þingið leysi vel störf sín af hendi;— því meira kapp og alúð ættu menn að leggja á þingmannakosningar og vanda þær þyí meir. Það hefur sjaldan þurft að vanda þingkosningar jafnmikið, sem nú, því að á kjörtímanum á að halda 4 þing. Hið fyrsta þeirra verður, eins og kunn- ugt er, aukaþing. Er að vísu efnt til þess sjerstaklega vegna stjórnarskrár- breytinganna, en það getur þó tekið fleiri mál fyrir, því að muuurinn á auka- þingi og reglulegu þingi að því, er málin snertir, sem þau geta haft til meðferðar, er ekki annar en sá, að aukaþing getur ekki tekið fjárlögin fyrir. Öll önnur mál getur það tekið til meðferðar, samið lög, sett nefndir til rannsókna, gjört fyrirspurnir, kosið yfir- skoðunarmenn landsreikninganna o.s.fr. En hvílíkan áhuga hafa menn á þing- kosningum ? Því miður eru menn mjög daufir í því efni. Víðast hvar enginn undirbúningur undir þær. Það ber varla við, að haldnir sjeu fundir áður, til að ræða um kosningarnar og mjög lítið um þær skrifað. Þeir, sem ætla að bjóða sig fram, láta sjaldnast til sín heyra opinberlega, fyr en á kjörfund- inn er komið, svo að kjósendurnir vita ef til vill ekkert annað um skoðanir þeirra á þingmálum, en það, sem þeir segja á kjörfundinum. Kjósendurnir geta því opt orðið í vanda staddir, er þeir eiga að kjósa; og sakir þessa undirbúningsleysis, og fyrirhyggjuleysis getur svo farið, að kjóseudur verði að kjósa þá menn á þing, sem þeir eru sáróánægðir með. Setjum svo, að í ein- hverju kjördæmi, þar sem velja ætti 2 þingmenn, bjóði sig fram að eins 2 til þingmennsku. Kjósendurnir mættu til að kjósa þá, þótt þeir teldu þá mjög svo óhæf þingmannaefni. En slíkt þyrfti ekki að koma fyrir, ef nægilegur undir- búningur væri við hafður, til að útvega hæfari menn. Það hefur heldur ekki leynt sjer að undanförnu, hverjar afleiðingar þessi deyfð og áhugaleysi á þingkosningum hefur, því að fæstir munu neitaþví, að þingið hefur alls eigi verið skipað svo vel, sem vera ætti, og sum störf þess ekki leyst af hendi eins vel, og æski- legt væri. Það hefur og látið sumt af- skiptalaust eða afskiptalítið, sem það hefði alvarlega átt að skipta sjer af, eins og Fensmarksmálið til dæmis, að vjer ekki nefnum fieiri mál. Til þess að þingið vcrði skipað bet- ur, en það hefur verið, eða til þess að öll sæti þess verði skipuð viðunanlega hæfum mönnum, þarf að hafa undir- búning við kosningarnar. Undirbún- ingurinn getur bezt komið fram á tvennan hátt, bæði með fundarhöldum og ritgjörðum í blöðunum. Að vísu ættu kjósendurnir sjálfir að stofna til þessa viðbúnaðar ekki síður, en þeir, sem ætla að bjóða sig fram til þing- mennsku, því að það er eiginlega kjós- endunum að þakka eða kenna, hvort þingmannakosningar heppnast vel eða illa; á þeim hvílir öll áþyrgðin í því efni, en ekki á þeim, sem kosnir eru. En allt fyrir það er þó þingmannsefn- inu fremur ætlandi að gangast fyrir fundarhöldum, en hverjum einstökum meðal kjósandanna, því að sá, sem býð- ur sig fram til þingmennsku, finnurþó köllun hjá sjer til að vera þingmaður, og ætti því að sýna af sjer meiri á- huga á þeirn. Vera kann, að margur segi, að fund- arliöld sjeu svo erfið hjer á landi og fundir svo illa sóttir þá sjaldan, sem þeir eru haldnir. Því verður ekki neit- að, að svo er víðast livar hjer á landi og fremur, en annars staðar í hinum menntaða lieimi. En það er þó ekki alls staðar svo fjarskamiklum erfiðleik- um bundið, að skjóta á almennum fundi. í kaupstöðunum væri það hægðarleik- ur, ekki sízt hjer í Reykjavík, og hjer er sannarlega þörf á þess konar fund- um ekki síður, en annars staðar á land- inu. Upp í sveitunum er allt öðru máli

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.