Þjóðólfur - 08.01.1886, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 08.01.1886, Blaðsíða 3
„Milli konungs og landsliöfðingja skal eng- inn milliliður vera. Pyrir málefni íslands skal sjerstakur skrif- ari skipaður í skrifstofu (Cabinet) kon- ungs. Embættismaður pessi hefur pað starf á hendi að afgreiða hjá konungi öll hin sjerstöku mál- efni landsins og með nafni sínu merkja alla konungsúrskurði11 (6. gr.). Það sjest eklci, hvort landshöfðingi átti að fara utan og skrifa undir lög og aðrar stjórnarályktanir, sem þurfa undirskript konungs, um leið og kon- ungur skrifaði undir, eða landshöfðingi átti fyrst að skrifa undir hjer og senda svo þessurn skrifara málin, og að kon- ungur skrifaði þá undir í viðurvist skrifarans. Yfir höfuð var staða þessa skrifara næsta óákveðin og afkáraleg. Ef landshöfðingi hefði þurft að fara á konungsfund í hvert skipti, sem undir- skriptar konungs þurfti við, þá var þetta engu hetra en frv. 1881. Ef landshöfðingi aptur á móti hefði ekki þurft á konungsfund, sýnist það í fljótu bragði mikill kostur fram yfir frv. 1881. En þá er undir því komið, hve mikið vald þessi skrifari hefði fengið í framkvæmdinni. Að líkindum hefur hann engin áhrif átt að hafa á mál vor, úr því að landshöfðingi átti að hera ábyrgðina. En ólíklegt er, að það hefði orðið. Að þessi maður væri á aðra hliðina svo þýðingarlítill, en á hina hliðina þó í svo nánu sambandi við konung og honum svo handgeng- inn, er ósennilegt. Loks eru bæði frv. frá 1881 og 1883 næsta óaðgengileg og óhentug að því leyti, að lög og öll önnur mál, sem nú þurfa undirskript konungs, hlutu að ganga út úr landinu t.il staðfestingar og úrlausnar. Ekki eitt einasta þeirra gat orðið staðfest í landinu sjálfu. í sumar kom minni hlutinn í stjórn- arskrármálinu bæði í neðri deild og í efri deild með tillögur til að bæta úr þeim annmörkum, sem þeim finnast á stjórnarfyrirkomulagi voru. Minni hlut- inn 1 neðri deild vildi biðja um sjer- stakan ráðherra, sem hafi að eins á hendi stjórn hinna sjerstöku málefna íslands, helzt íslending, er mæti á al- þingi, til að lialda þar svörum uppi af hendi stjórnarinnar, og minni hlutinn í efri deild vildi að eins beiðast, „að ísland fengi sjerstakan ráðgjafa, er mætti á alþinginu“. Tillögur þeirra eru því alveg hinar sömu. Reyndar vildi annar þeirra, að þessi sjerstaki ráðherra væri „liélzt Islendingur11, en að leggja aðaláherzluna á það, var allt of mikið eptir skoðun hans. Með öðr-. um orðum, þeir láta sjer lynda, að ráð- gjafinn sje útlendingur, alveg ókunnug- ur háttum og högum íslands, eins og ráðgjafinn er nú. Jafnvel þótt tillög- um þeirra yrði framgengt, fengist fyrir það engin trygging fyrir kunnugri stjórn. Já, en samvinnan milli þessa sjer- staka ráðgjafa og þingsins! Ekki má gleyma henni, því að allt á að vera fengið, ef ráðgjafinn mætir á þinginu. En hvert er skilyrði fyrir, að nokkurt gagn verði að því, að ráðgjafinn mæti á þinginu? Það, að ráðgjafinn sje kunnugur lijer á landi og skilji, hvað þingmenn eru að fara með. Annars er samvinna milli ráðgjafans og þings- ins gagnslaus, — meira að segja ó- möguleg. Tillögur þessara minni hluta mauna miðuðu heldur engan veginn til að ná stjórninni inn í landið. Þeir fóru þann- ig alls eigi fram á að bæta úr þeim tveim aðalgöllum á stjórnarfyrirkomu- lagi voru, sem vjer höfum sýnt fram á hjer að framan. Geta þá allir sjeð, að hve miklu leyti vjer værum bættari með að fá tillögum þeirra framgengt. Þá komum vjer til hinnar endur- skoðuðu stjórnarskrár, sem samþykkt var á síðasta þingi. Samkvæmt henni á að skipa landstjóra hjer á landi og ráðgjafa. „Konungur skipar landstjóra og YÍkur bon- um frá völdum11 (6. gr.). í stjórnarskrárfrumv. eins og það var, -þegar það kom inn á þingið, var á- kveðið, að landstjóri, en ekki konung- ur, skyldi skrifa undir ályktanir, er snerta löggjöf og stjórn. Til konungs þyrftu ekki að ganga, nema stjórnar- skrárbreytingar. Þetta þótti sumum hverjum allt of langt farið. Seinna kom þingið sjerþá niður á að vægja til, svo að síðustu var vald landstjórans ákveðið þannig: „Landsstjóri hefur í umboði konungs hið æðsta vald í öllum hinum sjerstöku málefhum landsins11 (6. gr.).. „Landsstjóri tekur sjer ráðgjafa og getur vikið peim úr völdum“ (7. gr.). „Landsstjóri . . . getur kært ráðgjafana fyrir embættisrekstur ]>eirra“ (9. gr.). Hann „stefnir saman reglulegu alþingi ann- aðhvort ár“ (11. gr.). Hann „getur frestað fundum hins reglulega alþingis allt að 4 vikum (12. gr.). Hann „getur rofið aðra eða báðar deildir al- ]>ingis“ (13. gr.). Ha'nn „getur stefnt alþingi saman til auka- funda“ (14. gr.). Hann „getur lagt fyrir alþingi frumvörp til laga og ályktana11 (15. gr.). Hann „annast um að lögin verði birt og peim verði fullnægt. Að öðru leyti er það komið undir konungi, hver völd landstjóri hefur, — hvort hann gétur veitt nokkrum eða öllum ályktunum, sem snerta löggjöf og stjórn, gildi með undirskript sinni, . — því að 16. gr. ákveður að „undir- skript konungs eða landsstjóra þarf til þess að veita ályktunum alþingis laga- gildi“. Rágjafarnir, sem ekki mega vera fleiri en ]>rír, skulu eins og landstjórinn náttúrlega hafa aðsetur á íslandi. Eáðgjafarnir hafa á hendi stjórnarstörfin og alla ábyrgð á }>eim. Auk landstjóra getur neðri deild alþingis kært ráðgjafana fyrir em- bættisrekstur peirra. I þeim málum dænih' landsdómur, sem skal skipaður dómendum hins æðsta dómstóls innanlands og öllum þingmönn- um efri deildar (7., 8., 9. og 48. gr.). Vjer skulum engan veginn segja, að með þessu fengist hið langbezta stjórn- arfyrirkomulag hjer á landi, sem hugs- azt getur. En það getum vjer sagt með full- kominni hjartans sannfæringu og full- vissu, að af þeim tillögum, sem komið hafa fram í þessu máli, er hin endur- skoðaða stjórnarskrá langfremst. Ef hún yrði staðfest, fengjust verulegar og fullkomnar bætur á hinum tveim aðalgölluin stjórnarfyrirkomulags vors, sem vjer höfum talað um (o: ókunn- ugri stjórn og fjarsetu hennar), því að þá fengjum vjer bæði kunnuga og inn- lenda stjórn. (Framh.).

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.