Þjóðólfur - 22.01.1886, Síða 4

Þjóðólfur - 22.01.1886, Síða 4
16 hverjar kröfur klerkastjettin gjörði til löggjaf- arvalds, dómsvalds, umráða yfir kirknaeignum o. s. frv.; bar J>ær saman við rjettarstöðu klerka eptir kristinrjetti Grágásar, og sýndi, hvemig Árni biskup Þorláksson (Staða-Árni), fylgdi fram kröfum þessum, þangað til hann fjekk mestallan kristinrjett sinn, sem lögheim- ilaði vald klerka og yfirráð langtum meir, en áður hafði verið, lögtekinn á alþingi 1275. Því næst skýrði hann frá tilraunum Árna biskups til þess, að fá samþykki Magnúsar konungs lagabætis til þessa kristinrjettar, sem hann fjekk eigi, og talaði um mótmæli landsmanna gegn Jðnsbók á alþingi 1281, þegar sú lögbðk var lögtekin. Að lokum lýsti hann í fáum orð- um, hvernig Jónsbók er, og bar liana saman við Járnsíðu. Kvað hann Jónsbók fremur vand- lega samda, en sagði, að versti ókostur henn- ar væri, eins og Járnsíðu, að hún væri gefin um það, sem eigi hefði þurft nauðsynlega að fá ný lög um, en hefði mjög ófullkomin ákvæði um það, sem brýn þörf hefði verið að fá ákveð- ið með lögum, en það hefði verið að fá stjórnarskrá, með þvi að stjórnarfyrirkomu- lag landsins hefði breytzt við það, er landið gekk undir Noregs konung; en Jónsbók hefði mjög lítið eða þvi nær ekkert skipað fyrir um hið æðsta vald á íslandi, um vald konungs yfir íslendingum og rjettindi þeirra gagnvart lion- um. Þetta væri þvi ekki hægt að sjá af Jóns- bók, heldur af lögum og rjettarvenjum siðari tíma. Sama væri að segja um kristinrjett Árna biskups; hann hefði aldrei fengið fullkomlegt gildi hjer á landi, en þetta yrði að sjá af dóm- um og skjölum, sem til væru eptir 1281. Fyrirlestraniir byrjuðu kl. 8V2 um kveldið; voru þeir nokkuð langir; stóðu í meir en klukku- stund í hvert skipti, enda var efnið mikið. Yoru þeir til mesta fróðleiks og skemmtunar, enda hlýddu áheyrendur á þá með athygli, og launuðu þá með lófaklappi. Austanpóstur kom í gærkveldi. Með hon- um komu frjettir (frá því síðast í nóv.) um talsverðan síldarafla á Reyðarfirði ogFáskrúðs- firði. Útgjörðarmenn Túliníusar höfðu t. d. fengið í nót 700 tunnur í einu kasti, og bóndi einn 100 tunnur á viku í lagnet. Gufuskipið Agdanœs hafði farið fermt sild til Noregs. AUGLÝSINGAR ísamfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.) hvert orS 15 stafa frekast; m. öðru letri eða setning 1 kr. fyrir þumlung dálks-Iengdar. Borgun út i hönd. U m Ieið og jeg fyrir hönd tengdamóður minnar, frú J. Christensen, þakka fyrir alla velvild og traust, sem lienni og manni hennar sál. J. Th. Christensen hef'ur verið sýnt af viðskiptamönnum við verzlun þá, sem þau hafa rekið hjer á staðnum, leyfi jeg mjer að láta viðskiptamenn tjeðrar verzlunar vita, að jeg er orðinn eigandi hennar með öllum úti- og innistandandi skuldum. Yonast jeg svo góðs til allra, sem hafa fengið stærri og smærri lán við verzl- unina hin síðustu bágindaár, að þeir borgi af fremsta megni skuldir sínar í næstkomandi kauptíð. Jeg skal aptur á móti láta mjer vera sjerstaklega annt um, að gjöra þá menn áúægða, sem standa í skilum við mig. Hafnarfirði 18. jan. 1886. C. Zimsen. niinhvorjir skröksamir skraffinnar, sem virðast sjá ofsjónum yfir vexti og viðgangi Clood- Templarsdeildarinnar „Einingin", hafa borið það út, að deild þessi hafi tekið á leigu mið- hluta Glasgowar og bundið sjer með því þunga skuldbindingu á herðar, hafa svo haft þetta fyrir grýlu til að fæla menn frá að ganga í „Eininguna“ og talið þeim trú um, að á þá gæti lagzt svo eða svo mikil útgjöld sakir hús- leigu þessarar. Þetta er tilhœfulanst. Það eru 18 prívat- menn, sem að vísu eru einnig í deildinni (í henni eru nú milli 70 og 80), sem hafa tekið miðhluta Glasgowar á leigu á sinn kostnað og sína áhyrgð eingöngu, og er það jafnt „Ein- ingunni11, sem hinum deildunum alveg óviðkom- andi. Þetta er öllum deildunum kunnugt. Ef nokkur Good-Templar hjer í bæ ber ann- að út, þá segir hann vísvitandi ósatt og er þá enginn sannur Good-Templar. Rvík 18. jan. 1886. Forstöðunefnd Glasgow-leigjanda: Jðn Olafsson, Björn Kristjánsson, formaður. gjaldkeri. Konráð Maurer, Magnús Gunnarsson. skrifari. Guðl. Guðmundsson. cand. juris. Jeg undirskrifaður viðurkenni hjer með, að jeg hefi að öllu leyti án orsaka, eða án þess að það væri sannfæring mín, sagt það um hr. Eirík Ketilsson í Kotvogi í Höfnum, að mjer hafi sýnzt hann víndrukkinn við guðsþjónustu- gjörð á Hvalsneskirkju á Miðnesi, síðastliðinn jóladag, og apturkalla jeg hjer með öll þau orð, er jeg hefi talað um það efni. Þorkötlustöðum í Grindavík, 17. jan. 1886. Elis Eggertsson. Samkvæmt ofanskrifaðri auglýsingu lierra Elis Eggertssonar á Þorkötlustöðum, um það að herra Eiríkur Ketilsson í Kotvogi í Höfn- um, hafi átt að vera víndrukkinn við guðsþjón- ustugjörð að Hvalsnesi, á jóladag síðastliðinn, og jeg undirskrifaður hef haft það eptir Elis Eggertssyni, og máske aukið við. þá apturkalla jeg þau orð lijer með. p. t. Þorkötlustöðum, 17. jan. 1886. Jóseph Christopher Jóhnsson, frá Húsatóptum í Grindavík. Á næstl. hausti var mjer dreginn úr Hvera- gerðisrjett: svartbíldóttur sauður veturgamall með mínu eigin eyrnamarki: Tvístýft aptan hægra, hálftaf fr., biti apt. vinstra, og óglöggu hornmarki öðru en eyrnamarkinu. Þareð kind þessi er ekki mín eign, innkalla jeg hjermeð þann, sem markið brúkar og fargað hefur tjeðri kind; og skora á hinn sama að gefa upp þann rjetta eiganda, sem og að semja við mig um brúkun þess. Þormóðsdal 14. janúar 1886. Halldór Jónsson. Scldur óskilafjonsiður í Mosfells- hrejípi haustið 1885. 1. Gráflekkótt gimbur veturgömul, mark: hálft- af frarnan hægra, miðhlutað, fjöður aptan vinstra. 2. Hvítkollótt ær 4—5 vetra, mark: Sneitt fr., stig aptan hægra, sýlt., stig aptan vinstra. 8. Hvít ær 2 vetra, mark: Tvistýft apt. fjöð- ur fr. hægra, tvírifað í sneitt apt. vinstra. 4. Hvít gimbur veturg., mark: Blaðstýft aptan hægra, boðbíldur aptan vinstra. 5. Hvítur lambhrútur, mark: Sýlt í hamar hægra, sneitt aptan vinstra. 6. Hvítur lambhrútur með sama marki. Rjettir eigendur að ofanrituðum kindum mega vitja andvirðis þeirra, að frádregnum kostnaði, til undirskrifaðs lireppstjóra, fyrir næst- komandi fardaga. Mosfellshreppi 31. des. 1885. Halldór Jónsson. T?rú og stillt vinnukona getur fengið vist í vor hjá 0. S. Endresen. Til almennlngs! Læknisaðvörun. Þess hefir veriö óskaö, að ég segöi álit mitt iun bit ers-essentsu, sem hr. C. A. Nissen hefir búið til og nýlega tekið að selja á íslandi og kallar Brama-lífs-essents. Eg hefi komizt yfir eitt glas af vökva jmssum. gg verð að segja, að nafniö Brama-lífs-essents er mjög villandi þar eð essents þessi er með öllu ólikr inum ekta Brama-lifs-eliœir frá hr. Mansféld-Búllner & Lassen, og því eigi getr haft þá eiginlegleika, sem ágæta inn ekta. Þar eð ég um mörg ár hefi haft tækifæri til að sjá áhrif ýmsra bittera, en jafnan komizt að raun um, að Brama-lifs-élixir frá Mansfeld-Búllner & Lassen er kostabeztr, get eg ekki nógsamlega mælt fram með honum einum, umfram öll önnr bitterefni, sem ágætu melt-ingarlyfi. Kaupmannahöfn 30. júlí 1884. E. J. Melchior, læknir. Einlcmni ins óekta er nafnið C. A. Nissen á glas- !inu og miðanum. Einkmni á vorum eina ekta Brama-lífs-elixir eru firmamerki vort á glasinu, og á merki-skildinum á miðanum sézt blátt ljón og gullhani, og innsigli vort MB & L í grænu lakki er á tappanum. Mnnsfeld-Búllner & Lnssen, sem einir búatil inn verðlaunaða Brama-lífselixir. Kaupmannahofn. ■BBBBBBBBBaBSSBBBBSBSai Eigandi og ábyrgðarmaður: Þorleifur Jónsson, cand. phil. Skrifstofa: á Bakarastíg við hornið á Ingólf sstræti. Prentari: Sigm. Guðmundsson.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.