Þjóðólfur - 09.04.1886, Page 4
60
beiðslur til fjel.; kosnir voru B. Jðnss. ritst., G.
Zoega kaupm. og dr. Jðnassen.
Á fundinum kom fram megn óánægja og að-
finningar við stjórnina frá dr. J. Jónassen út
afþví, að skýrslur þær. er fjel. hefði gefið út,
væru að mörgu leyti skakkar o. fl. í [tarin streng-
inn tók og dr. Björn Ólsen, sem auk þess fann
að ýmsu i framkvæmdum ijelagsins, og þar á
meðal því, að það ynni ekki einu sinni upp þann
styrk, sem það fengi úr landssjóði, heldur hefði
lagt nokkuð upp af honum. B. J. rtistj. o. fl.
gjörðu og athugasemdir við reikningana og inn-
heimtu á tekjum fjelagsins. Eptir till. landr.
J. Jenssonar og ósk fundarmanna ljet forseti,
sem eptir lögunum á að kjósa endurskoðara reikn-
inganna, það eptir, að fundurinn kysi þá, og
voru kosnir B. J. ritstj. og J. J. landrit. Að
lyktum stakk stúdent Bogi Melsteð upp á þeirri
lagabreytingu, að endurskoðarar reikninganna
skyldu jafnan kosnir á fyrra ársfundi af fjel.m.,
en því máli var frestað til næsta fundar.
Netasam þv kkti n. Oss hefur borizt allangt
brjef frá hreppsnefndaroddv. Sveini Magnússyni
í Gerðum, dags. 2. þ. m., um ástand manna í
Rosmhvalaneshr. fyrir innan Skaga frá nýári
í vetur, og biður liann oss að taka það í blað-
ið; en vjer getum eigi tekið það að öllu leyti
sakir rúmleysis. Samkv. tjeðu brjefi eru þar
bágindi manna mjóg mikil, sem orsakist af því
að ekkert liafi aflazt. Hafi þó á Góunni mátt
sjá fisktorfurnar ofansjávar; en menn ekki náð
fiskinum, af því að eigi mátti brúka netin sak-
ir netasamþykktarinnar. Eptir því, sem ráða
megi af afla þeim, er þeir fengu, sem lögðu net
í lagaleysi, telst honum svo til, að menn á um-
ræddu svæði mundu hafa fengið alls 60000 fiska
síðan 14. f. m., ef þeir hefðu mátt leggja netin
á hinu bannaða svæði, og þennan afla hafi
samþykktin liaft af mönnum í Rosmhvalaneshr.
fyrir innan Skaga á þessum stutta tíma.
Þetta er aðalefni brjefsins. En engin senni-
leg ástæða sýnist vera til, að vera svo óánægð-
ur með samþykktina, því að nú sýnist óefanleg
sönnun vera komin fyrir nytsemi hennar, þar
sem nú er kominn afli fyrir innan takmarkalín-
una á þeim stöðum, sem ekki hefur aflazt á í
mörg ár; og hverju skyldi það vera að þakka,
nema þvi, að fiskurinn var ekki hindraður að
ganga á gnmnmið með netalögnum á djúpmið-
miðum. Ef samþykktin hefði ekki verið, er
mjög líklegt, að eins hefði farið um fiskiafla í
ár, sem undanfarin ár, og þá hefðu menn sann-
lega ekki verið betur farnir.
Þjðfnaðurinn á Eyrarbakka (sbr. Þjóðólf 7.
tbl. þ. á.). Nú er komið upp um þjófana, tvo
vinnumenn frá Laugardælum, Magnús og Þor-
finn, hinn siðari 17—18 ára að aldri, en þó sagð-
ur foringinn. Fleiri í vitorði, þar á meðal Helgi
nokkur og Jón Magnússon, báðir í Svarfhóli.
Skipströnd. Frakknesk fiskiskúta strandaði
í Þorlákshöfn í norðanrokinu um daginn; öll
skipshöfnin komst af. Þá strandaði og önnur
frakkn. fiskiskúta í Selvogi, og fórust allir
mennirnir. 8 lík þeirra rekin í land.
Tíðarfar. Hinu mikla norðanroki, sem getið
er um í siðasta bl., linnti á sunnudagsnóttina;
síðan frostavægt, en hefur gert talsverðan snjó.
Aflabrögð. Á Eyrarbaltka ágætisafli síðast
er frjettist. Hjer við Faxaflóa mikill afli ínet
á sunnudaginn var, er vitjað var um eptir
norðanveðrið. í fyrradag aflaðist lijer og nokk-
uð, mestum 10 í hlut af vænum þorski.
Á Austfjörðum síldarafli allt fram til febrú-
armánaðarloka. Þá var komin þar efnileg
byrjun til þorskafla. Við ísafjarðardjúp góð-
ur afli eptir brjefi 24. f. m.
Snjóflóð. Á Sævarenda í Fáskrúðsfirði hljóp
snjóflóð á bæinn aðfaranótt 4. febr. Fólk, sem
svaf upp á lopti, komst út um gluggana, en 4
menn, sem sváfu undir lopti, týndu lífi; þar á
meðal Guðmundur Erlendsson, sem lengi hafði
búið á Gestsstöðum, gamall maður og vel látinn.
Afinælisdags konungs minntist bœrinn í
gær með því að flagga. Dansleikur var og
haldinn í latínuskólanum.
Slys og manntjón. ífyrradagum
kl. 1 e. h. vildi það slys til, að frakk-
uesk fiskiskúta sigldi á og braut tólf-
róið skip frá Gerðakoti á Miðnesi. A
hinu isl. skipi voru 18 menn, formað-
ur Tómas Eyjólfsson í Gerðakoti; var
það á siglingu i land fram undan Mið-
nesi, er slysið vildi til. Einn maður-
inn drukknaði, Ami Guðmundsson frá
Kirkjubæ i Rangárvallasýslu. Islenzkt
skip, sem var þar nálægt, bjargaði 2
og fór með þá í land. En hinum
bjargaði frakkn. skútan. 2 skip komu
úr landi og tóku þá, sem ferðafærir
voru, 5 að tölu, og fluttu í land. Hina
10 og þar á meðal formanninn kom
skútan með hingað í gær, og voru þeir
þá flestir hressir orðnir. Slysið er
kennt Frökkum.
-H|MOÐ.|-5-
—:o:—
Þung spurning. Kona ein, sem hafði ver-
ið gipt í 3 ár, sat einu sinni andspænis manni
sínum, leit til hans mjög hýrum augum og
sagði: „Segðu mjer, elskan mín, hvað var það
hjá mjer, sem vakti fyrst eptirtektþína? Hvaða
góða eiginlegleika hafði jeg til að bera, sem í
þínum augum gjörðu mig fremri öllum öðrum
konum í heiminum?11 Maðurinn hennar horfði
lengi á hana og sagði loks: „Æ, spyrðu mig
að einhverju, sem er ljettara".
Gamall fiskur. 31. janúar þ. á. veiddist í
ánni Spree við Berlin vatnskarfi1 (Cyprinus
carpio). í neðri skolti fisksins var hringur með
letri, sem var svo máð, að ekki var unnt að
lesa nema nokkuð af því. Það, sem lesið varð,
var það, að honum hefði verið sleppt í ána
1618 (sama árið, sem þrjátígiárastriðið mikla
hófst) við Haselhorst. Eptir því er hann um
') Sjá Gröndals Dýrafræði bls. 90.
270 ára gamall. Hann var 38 þuml. 4
lengd og um 30 þumlungar ummáls, þar sem
hann var gildastur, og vóg 38 pd. Það á að
reyna að treina lífið I þessum fisköldungi svo
lengi, sem unnt er.
AUGLYSINGAR
í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.)
hvert orö 15 stafa frekast; m. ööru letri eöa setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lkngdar. Borgun útíhönd.
----
LÖGFRÆÐISLEG FORMÁLABÓK
eöa
Leiðarvísir fyrir alþýðu
til aö rita samninga, arfleiösluskrár, skiptagjörn-
inga, sáttakærur, stefnur, umsóknarbrjef og fleiri
slík skjöl svo þau sjeu lögum samkvæm;
eptir
Magnús Stephensen 0g L. E. SveinbjBrnsson,
yfirdómendur,
erkominút, Stærð 22 arkir. Verð: f kápukr. 3.75.
Reykjavík, 12. febrúar 1886.
Kr. Ó. Þorgrímsson.
Jponta hefur fundizt í Hafnarfjarðarhrauni og
er geymd hjá ritstj. þessa blaðs.
Til athugunar.
Vjer undirskrifaðir álítum það skyldu vora
að biðja almenning gjalda varhuga við hinum
mörgu og vondu eptirlíkingum á Brama-lífs-
eleœ'ir hra. Mansfeld-Búlner & Lassens, sem
fjöldi fjárhuga kaupmanna hefur á boðstólum;
þykir oss því meiri ástæða til þessarar aðvör-
unar, sem margir af eptirhermum þessum gera
sjer allt far um, að líkja eptir einkennismiðan-
um á egta glösunum, en efnið í glösum þeirra
er ekki Brama-lífs-elixir. Vjer höfum um lang-
an tíma reynt Brama-lífs-elixír, og reynzt hann
vel, til þess að greiða fyrir meltingunni, og til
þess að lækna margskonar magaveikindi, og get-
um því mælt með honum sem sannarlega lieilsur
sömum bitter. Oss þykir það uggsamt, að þess-
ar óegta eptirlíkingar eigi lof það skilið, sem
frumsemjendurnir veita þeim, úr því að þeir verða
að prýða þær með nafni og einkennismiða al-
þekktrar vöru, til þess að þær gangi út.
Harboöre ved Lemvig.
Jens Christian Knopper. Thomas Stausholm.
C. P. Sandsgaard. Laust Bruun.
Niels Chr. Jensen. Ove Henrik Bruu/n.
Kr. Smed Rönland. I. S. Jensen.
Gregers Kirk. L. Dahlgaard Kokkensberg.
N. C. Bruun. I. P. Emtkjer.
K. S. Kirk. Mads Sögaard.
I. C. Paulsen. L. Lassen.
Laust Chr. Cristensen. Chr. Sörensen.
N. B. Nielsen. N. E. Nörby.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarastig við hornið á Ingólf sstræti.
Prentari: Sigm. (hiðmundsson.